Dagblaðið - 05.03.1976, Side 2

Dagblaðið - 05.03.1976, Side 2
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976. Frí... frí... og meira frí! 2633-8867 hringdi: „Nýlokið er verkföllum og þeim ósköpum er þeim fylgdu. Þjóðlífið lamaðist og loka varð skólum af heilbrigðisástæðum. Þetta er kunn- ara en frá þurfi að segja. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan skólar voru opnaðir aftur og því Allt of mikið er um frí, segir lesandi. Finnst lesanda taka út yFir allan þjófabálk þegar veitt var frí á öskudaginn — rétt eftir langt frí bæði kennara og nemenda í verkfallinu. skýtur svolítið skökku við að frí skuli geFið á öskudaginn — aðeins nokkrum dögum eftir langt frí. Við vorum nokkrar að ræða þetta í saumaklúbbi og satt bezt að segja ofbauð okkur allt þetta fríafargan. Það eru mánaðarfrí, jólafrí, páskafrí, öskudagsfrí, 1. maí frí. . .frí. . .frí. Jafnvel eru skólar farnir að gefa frí 1. apríl, sums staðar að minnsta kosti. Hvar endar þetta fríafargan? Menn velta því fyrir sér hvort skólinn sé fyrir kennara eða börnin.” Við höfðum samband við Sigurð Helgason og inntum hann eftir hverju öskudagsfríið sætti. Hann tjáði okkur að frí á öskudag væri samkvæmt reglugerð og gert væri ráð fyrir því í kjarasamningi kennara. Hins vegar væri þetta sennilega síðasta árið því samkvæmt reglugerð, sem bráðlega tekur gildi, fellur ösku- dagsfríið niður. Raddir lesenda •• Ongþveiti við Skólaf ell Asgeir Guðmundsson hringdi: Um helgina núna um mánaða- mótin lagði ég leið mína upp í Skála- fell og ætlaði á skíði. í útvarpi höfðu birzt tilkynningar um að skíðalyftur væru opnar og skíðakennsla væri fyrir þá sem þess óskuðu. Fólk var því hvatt í gegnum útvarpið til úti- veru. Þegar ég var kominn lang- leiðina í Skálafell hitti ég kunningja minn, sem var að koma þaðan. Hann varaði mig við og sagði að ófært væri upp eftir. Nú eru flestir þeir sem eru á svona ferðalagi með útvarp opið í bíl sínum. Er það ekki þjónusta við almenning að koma réttum tilkynn- ingum á framfæri við fólk? Mér finnst að einhver samvinna þurfi að vera á milli útvarps og þeirra sem auglýsa. Það skapaðist mikið öng- þveiti í Skálafelli þennan eftirmiðdag og þegar beðið var um að koma upplýsingum til fólks í gegnum út- varp var því neitað.” ALLT OF MIKIÐ UM KLASSISKA TÓNLIST ÞORSTEINN JÓNSSON hringdi: „Ég hef legið veikur heima hjá mér og hef því hlustað töluvert á útvarp. Ég er viss um að 80% af efninu er klassísk tónlist. Þessi klassísku verk tröllríða dagskránnni Þættir eins og taflþáttur, málakennsla og morgunleikFimi eru fyrir sérhópa. Útvarpið er alveg staðnað og hefur verið eins í áratugi. En tímarnir breytast og mennirnir eiga að breytast með, en því er ekki til að dreifa hjá útvarpinu. Fólk sem hlusta vill á klassíska tónlist á síiistereotæki og hlustar á góða músík í þeim og fær góð tóngæði. Útvarpið er ekki vettvangur fyrir þessa tónlist, hún er alltof þung og tóngæðin eru ekki þannig að hún njóti sín í útvarpinu. Útvarpið er ekki vettvangur fyrir þessa tónlist, hún er alltof þung og tóngæðin eru ekki þannig að hún njóti sín í útvarpinw. Útvarpið verður að fara að hugsa til þess að fá tvær bylgjur til að senda út efni á. Annars heldur þorri íslendinga áfram að hlusta á Kanann lon og don. Önnur stöðin á að senda út létta tónlist og hægt væri að kalla hana bylgju fólksins en hina menningarbylgjuna og á henni á að senda út sérhæft efni fyrir fólk sem hlustar á taflþætti, morgunleikfími, tungumálakennslu og allt þetta tilkynningaflóð og auglýsingar. Útvarpið á að vera þjónustumiðill fyrir almenning í landinu, en það eiga ekki einhverjir servitringar að ráða efnisvali og hafa það eftir sínu höfði til leiðinda fyrir allan landslýð. Á bylgju fólksins á að hafa frettir, veður og almennar upplýsingar fyrir venjulegt fólk, en ekki fyrir einhverja sérvitringa. Ég hef aldrei vitað til þess að það hafi verið klippt af klassískum þáttum, en ef um poppþátt er að ræða þá er ekki hikað við það. Það er nóg af bylgjum til hér og enginn vandi að koma þessu upp. Ef útvarpið vill reyna að gera eitthvað til þess að meirihluti ungs fólks á landinu hlusti ekki á amerísku stöðina í Keflavík, þá verður það að fara að gera sér grein fyrir á hvaða tímum við lifum. Það er ekki árið 1950 heldur 1976.” Lesanda fínnst heldur mikið af klassískri tónlist í útvarpi sem skilar sér ekki vel þar sem tækjabúnaður útvarpsins er alls ekki nógu fullominn. TONLISTARDEILD ÚTVARPSINS Vonlaus mann- skapur? 4573-4936 SKRIFAR: >rÁ fimmtudaginn var 19. febr. beið ég undirritaður eftir fréttum útvarpsins kl. 12.30 en eins og venja er leikið síðasta lag fyrir fréttir. í þetta sinn var það með Guðmundi Jónssyni sem er búinn að gaula yfír landslýð í tíma og ótíma undanfarin ár og er búinn að gera alla söngelska menn dauðaleiða á sér og söng almennt. En lagið sem hann söng var eftir Þorkel Sigurbjörnsson við texta Steins Steinars og hét Blóm. Söngurinn var í einu orði sagt hryllilegur. Því spyr ég, eru þeir sem við tónlistardeildina starfa vonlaus mannskapur eða er þeim skipað af framkvæmdastjóra útvarpsins að spila lög með Guðmundi Jónssyni?” AÐ HAFA SALFRÆÐING 0G AÐ ViRA SALFRÆDINGUR — oð fora aftan að lögunum L.G.L. hringdi: Mig langar að gera athugasemd við grein í einu dagblaðanna 1. marz, sem ber yfirskriftina „Sálfræðingar að lögum.” Skilst mér rétt í fyrrnefndri grein, að það að hafa sálfræðing geti þýtt það sama og það að fara aftan að lögunum og jafnvel hinum almenna borgara. Af einhverri ástæðu eru sál- fræðingar bundnir þagnarheiti. Aum hlýtur sú saga að vera, sem ekki má segja frá. Geta ekki sálfræðingar notað sér þjóðfélagsþegnana? Ég á við öryrkja og þá sem hafa verið sviptir sjálfræði t.d. í peningamálum. Er svo vel að þessum hópi búið, sálfræðingum og skjólstæðingum þeirra, að þessi lög sem þarna er talað um séu réttlætanleg? Á al- menningur ekki að fá meiri vitneskju um þessi lög, svo hann geti vegið og metið sjálfur hvert bezt er að leita, ef hann þarf að segja eitthvað, sem ekki má fara lengra í bili eða um aldur og ævi, eins og mér skilst að lög þessi ákvarðist við. Nokkur orð um Kristjón Pétursson deildarstjóra i Keflavík Karl skrifar: „bá sem þcssai línur ritar hefur að undanförnu ásamt fleiri aðilum verið að velta því fyrir sé'r, hvernig Kristján Péturssoh, deildarstjóri á Keflavíkurflugvelli, geti upplýst svo mörg og merk sakamál á breiðum grundvelli, eins og sagan sannar á undanförnum árum. Bréfritari þekkir ekkert þennan mann, en hefur fylgzt með honum í fjölmiðlum af miklum áhuga. Hann er sagður harðduglegur ög fari sínar léiðir hvað scrn aðrir segja. Um hann eru sagðar ýmsar siigur varðandi djarflegar uppljóslranir <>g láti sig engu skipta lisort málin komi undir hans embætti eða ekki. Hann cr sagður rannsaka málin utan og innan kerfisins og hafi á að skipa mjög öflugum og breylileguin upplýsinga- kerfum, sem enginu veit um. Fróð- legt væri að vita hvar þessi athafna- semi embættismaður hefur hlotið sérmenntun sína eða þjálfun á þessu sviði. Eitt er víst, að dómskerfið skelfur í hvert sinn, sem hann lætur til sín heyra og ekki hef ég heyrt nokkurn aðila í dómskerfinu reka ofan í hann ósannindi eða sannað á hann ódreng- skap. Kristján hefur komið við sögu eða öllu hcldur vcrið aðalrannsóknar- aðilinn í ótrúlega mörgum stærstu sakamálum þjóðarinnar og má þar m.a. nefna eftirtalin mál: Olíumálið á Keflavíkurflugvelli 1958-1961. Byggismálið 1959 — 1960 Læknamálið Rannsóknir á fíkniefnamálum frá 1969 — 1976, en hann var brautryðj- andi í þeim málum frá upphafi. Unnið að stærstu smyglmálum þjóð- arinnar um árabil, þar á meðal spíra- málið á s.l. ári. Klúbbmálið (stærsta skattsvikamál þjóðarinnar) Af hverju er ekki svona manni falin rannsókn á þeim mannshvörf- um sem nú eru til rannsóknar og öðrum þáttum þeirra mála. Eru jafn- vel einhverjir hræddir um að hann upplýsi óþarflega mikið í leiðinni. Dómsyfírvöldin og sérstaklega dóms- málaráðherra ætti að fá hann til þessara starfa, enda þótt hann hafí deilt harðlega á méðferð dómsmála á undanförnum árum. Það er von mín og ég veit margra annarra, að þessi mál verði að fullu upplýst, það er nóg komið af þessum sýndar- og sorgarleikjum á undan- förnum árum. Ég vona, Kristján, að þú vinnir störf þín af sömu einurð og drenglyndi sem hingað til og látir ekki hugfallast, þjóðin stendur með þér" Kristján Pétursson l

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.