Dagblaðið - 05.03.1976, Page 4
4
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976.
MOSKVU, (APN): Reglulegt 25.
flokksþing Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna hófst í þinghöllinni í Kremi.
Skýrslu miðstjórnar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna og stefnumörk-
un flokksins í innanríkis- og utanrík-
ismálum flutti Leonid Brézjnéf, aðal-
ritari miðstjórnar Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna.
í þeim þætti skýrslunnar, er fjall-
aði um ,,ástand heimsmála og al-
þjóðlega starfsemi KFS”, lagði L.
Brézjnéf áherzlu á að flokkurinn
beindi athygli sinni fyrst og fremst að
því að efla einingu og alhliða sam-
starf við sósíalistaríkin. Svo væri ein-
ingu sósíalísku ríkjanna fyrir að
þakka, að þeim hefði tekizt að ná
þeim markmiðum, sem þau hefðu
keppt að í langri baráttu. í fyrsta lagi
bæri í þessu sambandi að nefna sigur
vietnömsku þjóðarinnar, allsherjar-
viðurkenningu á fullveldi Austur-
Þýzkalands og að sósíalisminn stæði
nú traustum fótum á Kúbu. Sósíal-
isminn hefur nú gífurleg áhrif á
hugsanir og tilfinningar hundruða
milljóna manna um allan heim.
Leonid Bréznéf ræddi um sam-
skiptin við Kína og benti á, að stefna
Pekingstjórnarinnar er miðar að því
að koma af stað heimsstyrjöld, væri í
andstöðu við hagsmuni allra þjóða.
Sovétríkin munu halda áfram að
berjast markvissri og ósættanlegri
baráttu gegn maóismanum. Ef Pek-
ingstjórnin snýr inn á braut sam-
vinnu og samstöðu með hinum
sósíalíska heimi, þá munum við taka
undir það af okkar hálfu og skapa
möguleika á því að góð sambúð geti
þróazt milli Sovétríkjanna og
Alþýðulýðveldisins Kína. Það er
Kínverja að stíga næsta skrefið.
Tengsl Sovétríkjanna við þróunar-
löndin hafa aukizt og eflzt. Sovétrík-
in styðja eindregið lögmæt sjónarmið
hinna nýfrjálsu ríkja og þá ákvörðun
þeirra að losa sig algerlega undan
arðráni heimsvaldasinna.
Baráttan fyrir viðurkenningu á
lögmálum friðsamlegrar sambúðar
hefur verið og er einn meginþáttur-
inn í stefnu Sovétríkjanna gagriVart
auðvaldslöndunum. Veruleg fram-
þróun hefur orðið í þessa átt á síð-
ustu fimm árum. Breytingar í átt til
spennuslökunar og eflingar friðar í
Evrópu eru sérstaklega áberandi.
Sem árangur af Evrópuráðstefnunni
í Helsinki þá hafa skapazt hagstæð
skilyrði til þess að varðveita og efla
friðinn á meginlandinu öllu. Aðalat-
riðið nú er að framkvæma öll ákvæði
og samþykktir er samkomulag varð
um í Helsinki.
Breyting til batnaðar á sambúð
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
hefur haft úrslitaþýðingu í því sam-
bandi að draga úr hættunni á nýrri
heimsstyrjöld svo og fyrir eflingu
friðarins. Hin í heild jákvæða þróun
sovézk-bandarískrar sambúðar er þó
torvelduð af vilja áhrifamikilla afla í
Bandaríkjunum til þess að hindra
þessa þróun.
Leonid Brézjnéf lagði áherzlu á að
áframhaldandi barátta fyrir málstað
friðarins, frelsi og sjálfstæði þjóða
krefðist lausnar eftirtalinna megin-
vandamála: Skilyrðislausrar eflingar
einingar bræðraríkja sósíalismans og
þróunar alhliða samvinnu þeirra um
uppbyggingu sósíalismans í því skyni
að auka virkt sameiginlegt framlag
þeirra til eflingar friðarins; að unnið
sé að því að stöðva hið mikla og
hættulega vígbúnaðarkapphlaup, að
því að draga úr söfnun vopnabirgða
og að afvopnun; að friðelskandi ríki
beini viðleitni sinni að því að upp-
ræta þær uppsprettur spennu í heim-
inum, sem enn eru fyrir hendi, og þá
fyrst og fremst að því að koma á
réttlátum og varanlegum samning-
um í deilu landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs; að einskis verði látið
ófreistað til að útbreiða hina alþjóð-
legu friðarþróun og til þess að koma
á ákveðnum formum. gagnkvæmt
hagstæðrar samvinnu ríkja í milli; að
kappsamlega verði unnið að því að
framkvæma til fulls lokaályktun
Evrópuráðstefnunnar um öryggis- og
samstarfsmál og að því að þróa frið-
samlega samvinnu innan Evrópu; að
stöðugt verði haldið áfram í sam-
ræmi við lögmál friðsamlegrar sam-
búðar að þróa langtíma-, gagn-
kvæma og hagstæða samvinnu á
ýmsum sviðum við auðvaldslöndin;
að unnið verði að því að tryggja
öryggi Asíu á grundvelli sameigin-
legra tilrauna Asíuríkja; að unnið
verði að gerð alheimssamninga um
að ekki verði beitt valdi í alþjóðleg-
um samskiptum; að litið verði á það
sem meginverkefni á alþjóðavett-
vangi að útrýma þeim leifum ný-
lendukúgunar, sem enn fínnast, svo
og skerðingu á sjálfstæði og jafnrétti
þjóða og hvers konar gróðrarstíum
nýlendustefnu og kynþáttakúgunar;
að leitast verði við að útrýma mis-
munun og tilbúnum hindrunum í
vegi alheimsviðskipta og að útrýmt
verði öllu ójafnræði, yfirdrottnun og
arðráni úr efnahagslegum samskipt-
um á alþjóðavettvangi.
Leonid Brézjnéf ræddi náið um
framvindu heimsbyltingarþróunar-
innar við skilyrði efnahagskreppunn-
ar sem nú herjar í auðvaldsheimin-
um og lagði áherzlu á vaxandi áhrif
komniúnistaflokkanna í auðvalds-
löndunum.
í kaflanum um „Árangur síðustu
fimm ára áætlunar og meginatriði
efnahagsstefnu flokksins” lagði L.
Brézjnéf áherzlu á, að vöxtur efna-
hagsmáttar landsins á tímabili 9.
fímm ára áætlunarinnar .væri ein-
stæður. Jókst iðnaðarframleiðslan
um 42% eins og gert hafði verið ráð
fyrir.
Megintakmarki 9. flmm ára áætl-
unarinnar — að bæta lífskjör þjóðar-
innar — var náð með góðum árangri.
Rauntekjur á hvern íbúa jukust um
nálega 25%. Á síðustu fímm árum
fengu 56 milljónir manna betra hús-
næði en áður.
Þrátt fyrir miklu alvarlegri þurrka
en áður hafa komið á tímabili nokk-
urrar fímm ára áætlunar, jókst árleg
heildarframleiðsla landbúnaðarins
að meðaltali um 13% borið saman
við áttundu fímm ára áætlunina.
í skýrslu sinni fjallaði Leonid
Brézjnéf ýtarlega um efnahagsstefnu
flokksins, en helzta markmið hennar
er að bæta stöðugt efnahagsleg og
menningarleg kjör þjóðarinnar. í 10.
fímm ára áætluninni er gert ráð fyrir
að meðallaun iðnverkamanna og
annarra verkamanna hækki um
16—18% og að laun samyrkjubænda
hækki um 24—27% á sama tíma og
smásöluverð mun haldast óbreytt á
helztu nauðsynjavörum.
í lokaþætti skýrslunnar er fjallaði
um flokkinn við skilyrði þroskaðs
sósíalisma, benti Leonid Brézjnéf á,
að Kommúnistaflokkur Sovétríkjnna
rækir sem vera ber þá skyldu sína áð
vera pólitískur leiðtogi alls verka-
fólks, verklýðsstéttanna og gervallrar
sovézku þjóðarinnar. Kommúnista-
flokkur Sovétríkjanna heldur áfram
að vaxa að fjölda og að styrkjast. í
dag eru flokksmenn nálega 15.7
milljónir. Verkamenn eru nú 58%
nýrra félaga í flokknum, en það
endurspeglar forustuhlutverk verk-
lýðsstéttanna í lífí og starfi hins so-
vézka samfélags. Áhrif ungs fólks
innan raða flokksins fer vaxandi.
Á tímabilinu milli 24. flokksþings-
ins og 25. flokksþingsins lagði KFS
höfuáherzlu á starf ráðstjórnanna og
endurbætur á sviði löggjafar, á að
styrkja sósíalísk lög og reglur, á starf-
semi stjórnarstofnana og að efla
varnarmátt landsins og bæta herinn.
Verklýðssamtökin og Konsomol, sem
eru vinsælustu samtök almennings í
landinu, eru óaðskiljanlegur hluti
hins sovézka stjórnmálakerfís.
Leonid Brézjnéf benti á að í sam-
bandi við aukið sósíalískt lýðræði
væri fyrst og fremst lögð áherzla á að
tryggja vaxandi þátttöku þjóðarinnar
í stjórnun allra mála þjóðfélagsins, á
það að styrkja lýðræðislegar undir-
stöður þjóðskipulagsins og að skapa
skilyrði fyrir alhliða þróun persónu-
leikans. Þá drap L. Brézjnéf á samn-
ingu nýrrar stjórnarskrár fyrir Sovét-
ríkin.
Að lokum sagði Leonid Brézjnéf:
Á flokksþinginu skulum við draga
saman niðurstöður hins mikla starfs,
sem unnið hefur verið síðustu fímm
ár. Þetta eru góðar niðurstöður. Við
skulum ræða áætlanir okkar fyrir
næsta fímm ára tímabil. Þetta eru
erfiðar en þó raunhæfar og gerhugs-
aðar áætlanir.
MOSKVU, (APN): Alexei Kosigin,
forsætisráðherra Sovétríkjanna flutti
á 25. þingi Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, sem nú stendur yfir, skýrslu
um „grundvallarstefnu efnahagsþró-
unarinnar í Sovétríkjunum á tíma-
bilinu 1976—1980.”.
Hvað varðar aukningu iðnaðar-
framleiðslunnar, fjárfestingu og
aðgerðir ríkisins, er miða að því að
bæta lífskjör þjóðarinnar, þá hefur
tímabil níundu fimm ára áætlunar-
innar verið bezta fimm ára tímabil í
sögu landsins. Á tíma níundu fímm
ára áætlunarinnar jukust þjóðartekj-
urnar um 34% frá fyrra áætlunar-
tímabili, og meira en 80% aukningar-
innar var varð beinlínis til þess að
bæta lífskjör þjóðarinnar.
Alexei Kosigin nefndi eftirfarandi
tölur til að gera grein fyrir einkenn-
um meginárangurs þeirrar þjóðfé-
lagsáætlunar, sem 24. flokksþing
KFS samþykkti: Á þessum fimm
árum hafa meðalmánaðarlaun iðn-
verkamanna og skrifstofumanna
hækkað um 20% og laun samyrkju-
bænda hafa hatkkað um 25%. Elli-
laun og örorkulaun iðnverkafólks,
skrifstofufólks, samyrkjubænda og
hermanna svo og skólastyrkir til
stúdenta og nemenda hafa hækkað
og fleiri ráðstafanir í sama skyni
verið gerðar. Smásöluverzlun jókst
um 36% en smásöluverð ríkisins á
helztu matvælum og iðnvarningi
hézt óbreytt. Frá 1971 —1975 voru
byggðar yfir 11 milljónir íbúða og
einbýlishúsa, samtals 544 milljón fer-
metrar að flatarmáli. Af þessum sök-
um fengu 56 milljón Sovétborgar
bætt húsnæði.
Alexei Kosigin ræddi ennfremur
um niðurstöður fimm ára áætlunar-
innar á sviði framleiðslumála. Borið
saan við árið 1970 hafði heildariðn-
aðarframleiðslan 1975 aukizt um
43%, er þctta í samræmi við markaða
stefnu 24. flokksþingsins. Farið var
fram úr settu marki hvað varðar
heildarframleiðslu þungaiðnaðarins.
f skýrslunni cr bent á, að á síðustu
fimm árum hafi meiri áhersla verið
lögð á að þróa hinar ýmsu grcinar
1976—1980. Meðallaun iðnverka-
manna og annarra verkamanna eiga
að hækka um 16—18% á næsta fimm
ára tímabili. Tekjur starfsmanna
samyrkjubúa frá þjóðarbúinu eiga að
hækka um 24—27%. Qreiðslur úr
opinberum sjóðum eiga að aukast
um 28—30%. Stöðugt smásöluverð á
nauðsynlegustu vörutegundum og
lækkað vefð á sumum vörum mun
tryggja rauntekjur þjóðarinnar.
Húsaby^gingum verður haldið áfram
í landinu í stórum stíl. Á tímabili
næstu fimm ára áætlunar á að
byggja íbúðarhúsnæði er samtals
verður 545—550 milljón ferm að
flatarmáli.
Þjóðartekjurnar eiga að aukast um
24—28%, iðnaðarframleiðslan um
35—39% og landbúnaðarframleiðsl-
an um 14—17%. Aukning á fram-
leiðslu undirstöðugreina iðnaðarins á
tímabili yfirstandandi fimm ára
áætlunar mun fara langt fram úr því
stigi, sem náðist á tímabili síðustu
fimm ára áætlunar. Framleiðsla
þungaiðnaðarins á að aukast um
38—42%. Aukin framleiðsluaukning
þungaiðnaðarins þýðir ekki, að
minni áherzla verði lögð á ráð'stafan-
ir til verulegrar aukningar á fram-
leiðslu neyzluvara. Markið, sem
neyzluvöruiðnaðinum er sett á yfir-
standandi fímm ára tímabil er að
auka framleiðsluna sem nemur að
verðmæti 43—46 þúsund milljónum
rúbla, en aukningin á tímabili ní-
undu fímm ára áætlunarinnar var 39
þúsund milljón rúblur.
Alexei Kosigin sagði, að það sem
einkenndi tíundu fímm ára áætlun-
ina væri virkari þátttaka sovézks
efnahagslífs í alþjóðlegri vinnuafls-
skiptingu og áframhaldandi breyt-
ing erlendra efnahagstengsla yfir á
langtímagrundvöll. Lagði Alexei
Kosigin áherzlu á, að sakir vaxtar
gervallrar þjóðarframleiðslunnar
myndi tíunda fimm ára áætlunin
fara langt fram úr síðustu fimm ára
áætlun.
AUGLÝSING
S0VESKT EFNAHAGSLIF
Á TÍMABILI10. FIMM
ÁRA ÁÆTLUNARINNAR
neyzluvöruiönaðarins. í heild jókst
framleiðsla neyzluvarnings um 37%
og framleiðsla á ýmsum vörum til
menningarlegra, daglegra nota og
heimilishalds um 60%.
Hinni yfirgripsmiklu langtíma-
áætlun flokksins um þróun landbún-
aðarins var staðfastlega fylgt sl. fimm
ár. Efnaleg og tæknileg undirstaða
hans var breikkuð, unnið var að við
tækum jarðabótum og sérhæfing i
landbúnaðarframleiðslu hefur verið
aukin. Þetta hefur gert það kleift,
þrátt fyrir ákaflega óhagstætt veður-
far sl. fimm ár, að auka árlega mcðal-
framleiðslu landbúnaðarins um 13%
frá því sem var á tímabili áttundu
fimm ára áætlunarinnar. Árleg
meðaluppskera korns jókst um 14
milljón tonn.
MEGINMARKMIÐ TÍUNDU
FIMM ÁRA ÁÆTLUNARINNAR
ER AÐ FRAMKVÆMA AF
FESTU STEFNU KOMMÚN-
ISTAFLOKKSINS, SEM MIÐAR
AÐ ÞVÍ AÐ BÆTA EFNALEG OG
MENNINGARLEG KJÖR ÞJÖÐ-
ARINNAR Á GRUNDVELLI
ÖRRAR OG JAFNRAR ÞRÓ-
UNAR ÞJÓÐARFRAMLEIÐSL-
UNNAR OG VIRKARI
NÝTINGAR HENNAR, ÖRARI
VÍSINDA- OG TÆKNIÞRÓUN-
AR, AUKINNAR FRAMLEIÐNI
OG VERULEGRAR AUKNING-
AR VINNUGÆÐA Á ÖLLUM
SVIÐUM ÞJÖÐARBUSKáPAR-
INS,-
Meginmarkmið tíundu fimm ára
áætlunarinnar, sagði Alexei Kosigin,
kemur fram i skýrri og víðtækri
reglu, sem flokkurinn hefur samið.
Þetta verður fimm ára áætlun auk-
inna gæða og aukinnar virkni í þvi
skyni að efla efnahagslifið og bæta
lífskjör þjóðarinnar.
Alexei Kosigin lýsti í smáatriðum
hinni viðtæku áætlun um félagslegar
og aðrar ráðstafanr til þess að bæta
lifskjör þjóðarinnar á árunum