Dagblaðið - 05.03.1976, Síða 7

Dagblaðið - 05.03.1976, Síða 7
 Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976. Hemaðarsamningur U5A og Spánar fœr góðar undirtektir — er œtlað að greiða fyrir aðild Spánar að N- Atlantshafsbandalaainu Fimm ára vináttu- og samvinnu- sáttmáli Bandaríkjanna og Spánar hlaut yfirgnæfandi stuöning í utan- ríkismálanefnd Bandarikjaþings i gær. Virðist þar með oruggt að þingið staðfesti sáttmálann. Utan rikismálanefndin hóf umræður um sáttmálann i gær, en hann var undirritaður af Henry Kissinger og Jose Maria de Areilza, utanríkisráðherrum landanna, i Madrld 24. janúar. Áður en sáttmálinn tekur gildi, verður þingið að samþykkja hann mcð tveim þriðju hlutum atkvæða. Robert McCloskey, sendiherra Bandaríkjanna án sérstakrar til- nefningar, sagði á fundi með nefndinni, að sáttmálanum væri §að hjálpa Spánverjum til að i sig aukna byrði i sameigin- . vörnum vcslrærina ríkja, svo Spánn'gæti með tíð og tima gengið í NATO. Sáttmálinn gerir ráð fyrir að Bandaríkjamcnn fái áframhaldandl afnot af herstöðvum á Spáni, en þeir veiða þó að fara meö kjarn- orkuknúna kafbáta sina frá Rota- hcrstöðinni fyrir 1. júli 1979. efstur á lista í Hanoi!! Songvárinn Frank Sinatra er efstur á vinsældalistanum í Hanoi í Norður-Vietnam. Segja sendiráðs- starfsmenn, að plötur og segulbönd með söng Sinatra renni út eins og heitar lummur. Númer tvö á listanum er lag frá Kúbu. FYRSTA KJARNORKUKNÚÐA SKIP HEIMSINS VERDUR NÚ RIFIÐ Fyrsta kjarnorkuknúna skip heims hefur nú verið dregið til hafnar, þar sem járniðnaðarmenn eiga að rífa það. Skipið, sem alla tíð hefur verið rckið með halla, cr orðið úr sér gcngið og gcgnumsýrt af gcislavirkni. Bara kostnaðurinn við að rífa það mun nema allt að einum og hálfum milljarði króna. Savannah var stolt bandaríska flotans í byrjun sjötta tugsins. Það var ferðast um heiminn og var fólki sýndur þessi furðuhlutur, sem aöeins var’til á teikningum og þótti góður. En um leið og Savannah fékk vatn undir kjölinn, byrjaði að halla pndan fæti. Fáar eöa næstum því engar hafnir vildu fá skipið til sín. í Japan lögðu fiskimenn bátum sínum í mynni allra hafna til þess að mótmæla komu skipsins þangað. Oft urðu vélarbilanir á rúmsjó og var skipið þá dregið heim með leynd. í þau tvö ár, sem skipið var í rekstri hrukku tekj- urnar langt í frá fyrir kostnaði. Skip- inu var lagt strax árið 1967 og hefur síðan verið að ryðga niður. Kjarna- hleðslurnar hafa lekið út í allt skipið og því er erfitt að rífa það. Þó hefur eitt fyrirtæki tekið verkið að sér en vill, eins og áður segir, fá sem svarar einum og hálfum milljarði fyrir vikið. Sinatra PATTY-ÆÐI" grípur um sig í Bandaríkjunum Vegna réttarhaldanna yfir Patriciu Hearst hefur nýtt æði gripið um sig I Bandaríkjunum. Fólk skírir börn sín „Tania” og listafólk tekur sér þetta nafn í auglýsingarskyni. Fólk bíður í biðröðum fyrir utan réttarsalinn, þar sem Patty-réttarhöldinn fara fram og þaðan er þessi mynd. Hefur verið komið fyrir Ijósmyndaramma, líkt og tíðkast í fjölleikahúsum, þar sem fólk getur látið taka mynd af sér i líku umhverfi og Patty var í, er bankarán það var framið, sem hún er nú sökuð um að hafa tekið bátt í af fúsum vilja. IRA STIGUR SKREFIÐ TIL FULLS: Sprengja sprakk á Cannon Street stöðinni, — átta manns sœrðust Lundúnabúar verða nú að að- lagast þeirri tilhugsun, að jafnvel í lestum verði þeir ekki óhultir fyrir sprengjum írska lýðveldishers- ins. í gær sprakk sprengja í tarþega- lest, sém var að koma inn á Cannon Street járnbrautastöðina, en þar tengist neðanjarðarkertlð venjuleg-1 um lestum, sem flytja fólk til London frá nágrannabyggðum. 1 Að sögn lögreglu í London er þetta fyrsta sprengjan sem komið er fyrir í almennum farþegalestum og óttast menn nú, að manntjón geti oröið mikið, ef lýðveldisherinn ætlar sér að notfæra sér almenningslestir málstað sínum til framdráttar. Átta manns slösuðust í sprenging- unni. Voru þeir í lest sem leið átti framhjá lest þeirri, er sprengjuna geymdi, en um 600 manns voru nystignir af henni og segir lögreglan að manntjón hefði getað oröið mun meira, ef sprengjan hefði sprungið meðan lestin var á fullri ferð. Þá segir lögreglan, að þessi nýja aðferð Frelsishers írlands kunni að draga mjög alvarlegan dilk á eftir sér, vegna þess að tiltölulega litla sprengjuhleðslu þurfi til þess að valda miklu manntjóni, ef a!- menningslestir skotmark. eru valdar sem Erlendar fréttir REUTER LATNIR BANDA- RÍKJAMENN HEIM FRÁ S-VÍETNAM Tveir samstarfsmenn Edwards Kennedy fljúga til Saigon á næstunni til þess að sækja jarðneskar leifar tveggja síðustu Ameríkananna, sem fellu í styrjöldinni þar. Er hér um að ræða tvo land- gönguliða' , sem féllu, er verið var að korfia fólki undan frá Saigon á síðustu klukkutimunum áður en borgin féll * hendúr Norður- Víetnama. Í200 líYNISKJOl ^fciA ERU TÝND! , CIA, lét rannsóknarnefnd þingsins í té, Formaður þingnefndarinnar, Otis send til utanríkisráðuneytisins, eða •-r St nU-u-'* f ,, . C^m hafa „týnzt.” Segir CIA, að þar á meðal Pike, segir að nefndin hafi skjölin ekki ríkisskjalasafnsins. séu þýðingarmikil skjöl varðandi fjár- lengur í fórum sínum. Heldur hann því Ekki taldi Pike aö skjölunum hefði mál leyniþjónustunnar. fram að þau geti hafa verið eyðilögð, verið stolið. skjöl, sem leyniþjónusta Bandaríkjanna,

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.