Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 8
8
f ....
Atvinnuástandið á Siglufirði:
Nóg að gera í öðru
frystihúsinu, —
en ekkert í hinu
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976.
Tala atvinnulausra á Siglufirði er
mjög svipuð um þessar mundir frá
viku til viku, — 40-50 manns. Þó brá
út af þessu vikuna fyrir verkfall er
atvinnulausum fjölgaði upp í 70
manns. Ástæðan fyrir þessari skyndi-
legu fjölgun var sú að annað frysti-
húsið á Siglufirði, ísafold hf., varð að
segja upp meginhluta starfsfólks síns
vegna hráefnisskorts. Á meðan var
þó full vinna í frystihúsi Þormóðs
ramma, og meira að segja unnið
fram eftir kvöldi.
Dagblaðið kannaði ástæðuna fyrir
því að annað frystihúsið þurfti að
segja upp starfsfólki sínu á meðan
tynnin er eftir- og jafnvel næturvinna
í hinu húsinu.
„Ástæðan fyrir þessu er sú,”
svaraði Skúli Jónasson, fram-
kvæmdastjóri ísafoldar hf., ,,að við
fáum einungis helminginn af þeim
fiski sem skuttogarinn Dagný leggur
upp hér á Siglufirði, auk afla frá
nokkrum smábátum sem oft verða að
liggja * við bryggju vegna lélegra
gæfta. Hinn helminginn af afla
Dagnýjar fær Þormóður rammi. En
það fyrirtæki fær einnig allan afla
skuttogaranna Stálvíkur og Sigluvík-
ur, þannig að þar er alltaf nóg að
gera.”
í því tilfelli, þegar segja varð upp
starfsfólki ísafoldar, hafði Dagný lagt
upp stuttu á undan hinum togurun-
um, þannig að búið var að skipta
aflanum er þeir lönduðu. Því fór það
svo að hráefni þraut hjá ísafold
löngu áður en búið var að vinna
aflann hjá Þormóði ramma.
„En svona staða er svo sem engin
nýlunda,” sagði Skúli. „Einkafyrir-
tækin hér á Siglufirði hafa alltaf
barizt fyrir tilveru sinni í samkeppni
við bæjar- og ríkisfyrirtækin hérna,
sem er lyft undir á allan hátt.”
Forstjóri Þormóðs ramma kvað
ástæðuna fyrir atvinnuleysi hjá ísa-
fold eiga sér eðlilega skýringu.
Togarinn Dagný hafi þurft að fara í
tíu daga vélarhreinsun og því ekki
getað skilað á land neinum afla á
meðan. Spurningu um hvort ekki
væri óeðlilegt vegna verkafólksins að
eitt frystihús væri hráefnislaust á
meðan meira en nóg væri að gera í
hinu, svaraði forstjórinn ekki. —ÁT—
Siglufjörður — hér var Neskaupstaðartogarinn Börkur að hressa upp á
atvinnuástandið. . . og á neðri myndinni Gísli Árni, báðir komu með
loðnufarm. (DB-myndir Bjarni Árnason)
Lögregluronnsóknin í Sigtúni:
„SPÍRINN" REYNDIST
VERA PÓISKT VODKA
,Jú, rétt er það, þeir skiluðu mér
„spíranum” aftur,” sagði Sigmar
veitingamaður Pétursson í Sigtúni,
þegar fréttamaður ræddi við hann í gær
um 40 flöskur af áfengi, sem hald var
lagt á í Sigtúni meðan verkfallið stóð.
„Ég held að þeir hafi fundið út við
rannsókn að í fiöskunum væri ekki að
finna neitt Gvendarbrunnavatn, heldur
bara venjulegt pólskt vodka.
Lögreglan í Reykjavík kom á staðinn
og kannaði sjússamæla þjónanna og tók
slíka af tveim þjónum, en auk þess tóku
þeir áfengisfiöskur, sem opnaöar höfðu
verið af þjónunum fyrirfram og í hag-
ræðingarskyni að sögn Sigmars, því það
vill brenna við að erfitt se að opna
fiöskurnar.
Um mæliglösin sagði Sigmar, að
þjónarnir hefðu keypt þau í góðri trú í
verzluninni Bristol. „Auðvitað var það
athugunarleysi að láta ekki löggilda
mælana strax í Löggilclingarstofunni”.
Sigmar taldi að mælarnir væru gefnir
upp fyrir 3 sentilítra en það hefði ekki
reynzt vera rétt.
„Mér fannst framkoma lögreglunnar
ekki til fyrirmyndar þegar þeir lögðu
hald á vínið og mælana,” sagði Sigmar.
„Þeir hefðu getað látið staðinn í friði
rétt á meðan meðalannirnár stóðu yfir.
Þess vegna kom í mig kergja, og ég tafði
fyrir þeim á fjórða tíma.”
Sigmar kvaðst vilja láta það koma
fram að það er ekki veitingamönnum í
hag að of lítið sé skammtað. Þjónarnir
kaupa fiöskurnar af veitingamanninum,
sem tapar raunar á því að þjónar drýgi
flöskurnar meðof litlum sjússum. jgp.
Átti örfáa metra
eftir í áfangastað
— endastakkst út af
veginum
Bílstjóri á leið frá Siglufirði til
Hofsóss varð fyrir óhappi í útjaðri
Hofsóss, þegar hann átti aðeins
örfáa metra ófarna i áfangastað í
fyrradag. Hann varaði sig ekki á
frostbólgnum veginum þarna og
endastakkst út af veginum. Bíl-
stjórinn slasaðist við þetta, rif-
brotnaði, og farþegar hans skrám-
uðust nokkuð. Bíllinn, sem er af
Jeepstergerð, skemmdist talsvert.
—BÁ/JBP
KÝRNAR GELDAR, -
FRAMLEIÐSLAN ER Í
ALGJÖRU LÁGMARKI
„Mjólkurskortur er enn alls staðar
á Suðvesturlandinu og verður fram í
næstu viku. Það kemur til af því að
eftir verkfallið var enginn dropi af
mjólk, hvorki í mjólkurbúinu á
Selfossi eða í Borgarnesi, Mjólkur-
samsölunni hérna í Reykjavík,
mjólkursölustöðunum eða á
heimilunum.”
Þetta sagði Oddur Helgason hjá
Mjólkursamsölunni, er við ræddum
við hann í morgun.
Hann sagði einnig að framleiðslan
á þessum árstíma væri ekki meiri en
svo að langa tíma tæki að safna
birgðum þannig að allt gæti gengið
eðiilega fyrir sig. Kýrnar væru í
geldstöðu og væru rétt að byrja að
bera. Á mánudag kom ekki nema
fimmtungur af venjulegu
mjólkurmagni til sölu og þessa
dagana er mjólkurmagnið um 65-
70%.
Við megum eiga von á því að
þetta ástand ríki áfram þangað til
um miðja næstu viku og sagði
Oddur, að fólk yrði því miður að
sætta sig við að fá skammtaða tvo
lítra á dag, þangað til salan kæmist í
rétt horf. -EVI.
Bíðröðin eftir mjólkinni á dögunum minnti
ú styrjaldarórin
Ekki amalegt nýja DAS-húsið!
Nýja DAS-húsið er í Setbergslandi fyrir ofan Halnarijörð. Það er 200 fermetrar með tvöföldum bílskúr.
þessu happdrættisári verður dreginn
út 6. apríl og er |)að einbýlishúsið að
Furugrund 9 í Garðabæ. Þcir hjá
happdrætti DAS eru nú þcgar búnir
að ákveða stóra vinninginn.á næsta
happdrættisári. Það er cinbýlishús að
Hraunbcrgsvcgi 9 í Sct bcrgslandi
„Mér er sagt að þetta hús sé 20 til
22 milljón króna virði,” sagði
Baldvin Jónsson hjá I^AS í samtali
við l)B.
íbúða- og húsavinningar hafa verið
alls 170 á 22 ára starfsferli happ-
draettisins. Stóri vinningurinn á
fyrir ofan Hafnarfjörð. Húsið er fuil-
frágengið með ræktaðri lóð og tVö-
földum bílskúr. Sá heppni þarf að
bíða í eitt ár, vegna þess að stóri
vinningurinn verður dreginn út í
apríl árið 1977.
— K.P.