Dagblaðið - 05.03.1976, Side 11

Dagblaðið - 05.03.1976, Side 11
11 Dagblaðið. Föstudagurð. marz 1976. HEARST FJÖLSKYLDAN Hvað svo sem segja má um Patriciu Campbell Hearst, hvort sem hún er orðin vitlaus, hefur vcrið hcilaþvegin, er { einfaldlega ótrúlega forhert eða hvað, - þá er eitt víst: á strönd Kaliforníu, í * bænum San Simeon, er minnismerki um þann heim, sem hún hefur alizt upp í, Hearst Castle. Kastalinn er að vísu engin lausn á gátunni Patty/Tania. Hann er engin ikýring á því hvers vegna Patty Hearst hefur undanfarnar vikur staðið frammi fyrir kviðdómi og dómara í San Fran- cisco, sökuð um þátttöku í bankaráni með meiru. Hearst-kastalinn minnir hins vegar á, að löngu fyrir daga Patty Hearst var til Hearst-goðsögnin. Líf afa hennar, blaðakóngsins Williams Randolphs Hearsts, var því sem næst ein samfelld hneykslissaga í nærri heila öld, eða frá 1863 til 1951. Þetta hneyksli — ef lesendur vilja fallast á að nota það orð — hófst að sjálfsögðu einum ættlið framar. George Hearst, sem upphaflega safnaði fjöl- skylduauðnum með gull-, silfur- og koparnámum sínum. Það var einnig hann, sem stofnaði blaðið San Fran- cisco Examiner. í ævisögu W.R. Hearst, „Citizen Hearst”, er George gamla lýst sem „margmilljónera, ótilhlýðilega klæddum, tæplega lesandi, hugsandi oft fyrst og fremst með höndunum, unn- anda pókers og góðs viskís. Hann tuggði gífurlega mikið skro og bæði sítt skegg hans og hvítt skyrtubrjóstið báru þess glögg merki...” En ólæsi Georges gamla kom þó ekki í veg fyrir að hann kæmist á þing. Peningar skiptu meira máli en málfræði og engin sérstök ástæða er til að leggja áherzlu á að það hafi breyzt með tím- anum. Það var George Hearst, sem keypti landareignina, þar sem kastalinn stend- ur nú, og hóf byggingaframkvæmdir. En það var sonurinn William Ran- dolph, afi Patty Hearst, sem byggði kastalann sjálfan. George Hearst keypti landareignina vegna þeirrar ástar, sem hann hafði á henni. Hann kallaði fjallið fyrir ofan San Simeon-víkina „í hæstum hæðum”. Það var ekki að ástæðulausu. Enginn nema blindur maður kemst hjá því að verða bókstaflega talað bergnuminn af staðnum á fögrum sumardegi. Frá ströndinni upp á topp eru tju kílómetr- ar ög hver metri er öðrum fegurri. Jörðin, sem George gamli keypti, var ekkert smáræði. Hún var álíka stór og hálft fylkið Rhode Island, eða um 600 fermílur. f dag er hún minni, en leið- sögumenn hafa gaman af að benda á fjallatind í blámanum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð, sem eitt sinn var hluti landareignar Hearst- fjölskyldunnar. William Randolph var einkabarn. Hann tók við fjölskylduauðæfunum að fullu þegar móðir hans lézt 1919 og byrjaði strax að byggja hús, hofj gesta- hús, lystigarða, sundlaugar, tennisvelli og fleira og fleira, sem nú er hluti Hearst-kastlans. Byggingarfram- kvæmdum l^uk ekki að fullu fyrr en 1947. í dag stendur allt þetta sem minnismerki um mann, sem var um- deildur allt sitt líf — valdamikill rómantíker, eins og sagt hefur verið um hann. Hann hafði um hundrað milljón dollará árstekjur en rambaði oft á barmi gjaldþrots. Hann var blaðakóng- ur, sem setti ný met í blaðaútgáfu og skóp sínar eigin siðareglur í blaða- mennsku — og raunar upphafsmaður þess, sem hefur verið kallað „hin gula pressa”. Hann bjó um tíma með kvik- myndastjörninni Marion Davies og vakti það gífurlega athygli — og hneykslun — eins og nærri má geta. William Randolph ánafnaði Kali- forníuríki Hearst Castle og í dag er kastalinn opinn almenningi. Vilji maður vera viðstaddur árlega opnun — þótt straumurinn sé raunar nokkuð jafn allt árið um kring — getur maður leigt sér herbergi í „móteli” í nágrenninu. Þar er glæsileikinn ekki hinn sami og í sjálfum kastalanum, en nöfnin eru stór: „Silver Surf’ (King Size Waterbed, Indoor Heated Pool!). Glæsileiki Hearst Castle er slíkur að flest önnur heimili bandarískra auðkýf- inga falla í skuggann. Byggingin er stórkostlega glæsileg og fellur inn í umhverfið rétt eins og náttúran hafi verið sköpuð umhverfis kastalann en ekki öfugt. Þarna ægir saman ýmsum tegundum byggingarlistar — gotneskum stíl, frá endurreisnartíman- um, rómverskum stíl, flórenskum, frönskum, spænskum, márískum. Hvar- vetna er eitthvað nýtt og stórkostlegt að sjá og gestirnir komast ekki hjá því að leiða hugann að þeim andlegu og félagslegu forsendum, sem þarna hefur verið gengið út frá. Hearst Castle er ekki sízt dæmi um hvernig auðjöfur notar sína peninga og sýnir fram á, hversu mikils „virði” hann er. Leiðsögumaðurinn segir gestunum, að öll dýrðin haFi ekki kostað undir þrjátíu milljónum dala. Aftur á móti sé erfitt að slá því föstu og ýmsir telji sig vissa um að ekki sé of mikið að reikna með að kastalinn og nágrenni hans haFi kostað hundrað milljón dali. Það verður samt að teljast skaði, að fá ekki nákvæmar upplýsingar um hvað öll dýrðin hafi kostað, því þetta allt er sláandi dæmi um erkiamerískt fyrir- bæri, þrátt fyrir evrópsk áhrif. Það er lítil hjálp í því að fá upplýsingar um það að 100 herbergi séu í aðalbygging- unni, þar af 38 svefnherbergi, 31 snyrti- herbergi, 14 stofur og tvö bókasöfn. Hearst var á sínum tíma mikill kaupandi evrópskra listaverka, sem setja mikinn svip á allt umhverFið. Það eru eftirprentanir og frummyndir og meira að segja styttur eftir Torvaldsen gamla. Útskornar loftfjalir eru úr evr- ópskum kirkjum og klaustrum og þarna eru stórkostlegar mósaikskreytingar. Fokhelt leikfélag í óbyggðu leikhúsi Leikfélag Grindavíkur. Afbrýðisöm eiginkona. eftir Gay Paxton og Edward Hoile. Leikstjóri Kristján Jónsson. Þýðandi: Sverrir Haraldsson. Hvort sjónvarpsmyndin „Fiskur undir steini”, hafi örvað menningar- líf grindvíkinga, skal ekki fullyrt, en hitt er staðreynd, að allt frá sýningu hinnar umdeildu myndar, hefureins- konar menningarbylting geisað sunn- an Svartsengis og eitt afsprengi hennar er Leikfélag Grindavíkur, sem starfar af miklum þrótti og frumdsýndi sitt annað verkefni um liðna helgi, fyrir troðfullu húsi, — 300 áhorfendum, — næstum sjötta hluta íbúanna, — við mjög góðar undirtektir. Félagsheimilið Festi er glæsileg bygging, en aðstaða til leiksýninga er þar fremur óheppileg, eins og stend- ur, enda er sá áfangi heimilisins, sem ætlaður er Þalíu óbyggður, aðeins búið að grafa fyrir undirstöðum. Hins vegar er Leikfélagið sem slíkt, lengra á veg komið, — eiginlega fokhelt, — ef dæma má eftir ágæti frumsýningarinnar á „Afbrýðisöm eiginkona”. Viljinn dregur liálft hlass, segir máltækið og sannast jnála þarf bæði dugnað og hugkvæmni til að breyta salarkynnum í Festi á þann veg, að hægt sé að efna til leiksýninga og þar brást þeim grindvíkingum ei boga- listin. Á efra gólfi í aðalsal smíðuðu þeir leikSvið og búningsherbergi, en áhorfendabekkirnir eru á dansgólf- inu. Að vísu stendur leiksviðið full lágt, en með því að halla höfði eða teygja svolítið úr hálsvciðvunum geta allir salargestir fylgst með því scm er að gcrast á fjölunum. Eins og gefur að skilja, cr þarna um bráðabirgðaráðstcifun að ra*ða og \'ic^ skuluin vona að óskir þessa þróttmikla Lrikfélags uin leikhús- álmu í Fcsti ra-tist fljc'itlega, því eins og Kolbrún Sveinbjörnsdóttir, ritar í leikskrá, þá er „Leikfélag Grindavíkur ungt að árum, en það er trú mín að meðlimir þess hugsi sér hærra í framtíðinni. Það á að vera metnaður hvers byggðarlags að eiga dugmikið og öflugt leikfélag.” Það yrði dapurleg fyrir -leiklist á Suður- nesjum, ef félagið í Grindavík koðn- aði niður, vegna ills aðbúnaðar, eins og reyndin varð með Leikfélag Kefla- víkur. Áður en fjallað er um frammistöðu leikaranna í hlutverkum sínum, er rétt að geta leikstj. Kristjáns Jóns- sonar, sem hefur tekið að sér það erFiða verkefni að leiða Leikfélag Grindavíkur fvrstu sporin, á vonandi langri a*li Ai angui hans er næstum ótrúlcgur. Þótt flestir leikenda haFi varla á leiksvið komið áður, þá tókst Kristjáni að sneiða hjá flcstu því scm kallað er bvrjendabragur. Sýningin var laus við alla óþarfa tilgerð og ofleik, — sem var þó sannarlega freistandi í sumum hlutverkum, — framsögn yfirleitt skýr, persónusköp- un sterk og hraðinn jafn sýninguna í gegn, — hvergi dauðir kaflar. Einnig er vert að geta góðrar leikmyndar Evelínar Adolfsdóttur, en hún hafði þau Sigurð Vilmundarson, Kol- brúnu Sveinbjörnsdóttur og Kristján Jónssbn sér til aðstoðar. Haukur Guðjónsson fór með aðal- hlutverk leiksins, Charles Pentwick leikhússtjóra, sem tekið hafði á leigu gamalt hús fjarri hávaða stórborgar- innar til að losna við streituna, sem hrjáði hann, mest vegna þess að hann reyndi að útskýra næturgist- ingu ungrar stúlku fyrir eiginkonu sinni, með því að segja sannleikann, — en konan reyndist vantrúuð, — og þá upphcifust vandræðin. Haukur Leiklist Magnús Gislason lék hinn taugaveiklaða og sjálfs- morðsþenkjandi leikhússtjóra með miklum ágætum, persónan heil- steypt. Eina þversögnin var kannski í gervinu, — grásprengt hár orkaði ekki vel gegn biksvörtu yfirskeggi. Afbrýðisömu eiginkonuna og iðr- unarfullu lék Guðveig Sigurðardótt- ir. Framsögn hennar var mjög góð, best þeirra leikendanna, og fas henn- ar virðulegt, eins og konu í hennar stöðu sæmir. Ungur piltur og geð- þekkur, Þorgeir Reynisson, lék son þeirr'a hjónanna, léttur og kvikur í fasi og ástfanginn upp að eyrum, eftir baðferðina. ísfirðingurinn Lúðvík Jóelsson, sá eini sem mátti heita sviðsvanur, lék Róbert Bentley leikara og vin leik- hússtjórans. í leikaragervinu fór ekki mikið fvrir Jóel, — en þegar hann varð tilneyddur að bregða sér í nýja persónu, móður þjónustustúlkunn- ar, nutu hæFileikar hans og leik- reynsla sin vel, var á köflum alveg óborganlegur án þess að ofleika nokkru sinni. Jóna Inuvadótiir o«» Lúðvik Jóelsson i iiiutverkum síniun (Ljósmynd Kristinn Benediktsson) Rómverska sundhöllin er punktur- inn yfir i-ið. Dýrðin þar minnir í einu á Sixtínsku kapelluna í Péturskirkjunni í Róm og á Westminster Abbev. Þarna er kvikmyndasalur, þar sem Hearst sýndi gestum sínum, eða fjöl- skyldunni nýjustu myndirnar frá Hollywood. Kvikmyndasalurinn er frá fyrstu tímum kvikmynda og er í sjálfu sér heimsóknarinnar virði, sérstaklega þegar heimatilbúin kvikmynd um fjöl- skylduna er sýnd. í myndinni spókar Hearst sig með frægu fólki, frægum stjórnmálamönn- um og leikkonum frá þessu tímabili léttúðar og áhyggjuleysis. Heimsstyrj- öldin er á enda, og veröldin hefur upp á allt að bjóða. Heimskreppan og seinni heimsstyrjöldin leynist í bakgrunnin- um, en þá voru menn ekki uppfullir af alls konar vandamálum eins og nú fimmtíu árum seinna. Þarna bjó Hearst á rómversku-, Tudor-, Medici- og Habs- borgaratímabili. En samt var hann uppi á „The Great Gatsby”-tímabilinu í sögunni, sem kannski var einnig tóm martröð. Glæsileiki Ernu Jóhannesdóttur, naut sín vel í hlutverki Fristy Willers leikkonu, — alveg mátulega til- gerðarleg, eins og vera bar, en örugg á sviðinu. Vafalítið er þarna gott efni á ferðinní Jóna Ingvadóttir lék Molly sem annaðist ráðskonuhlutverkið í for- föllum móður sinnar, — og varð að hafa ráð undir riFi hverju til að allt færi ekki í kalda kol hjá Pentwick- fjölskyldunni. Lék hún hlutverkið ai mikilli innlifun, og alveg hnökralaust í hraða atburðarásarinnar, á viðfeld- inn og skemmtilegan hátt. Skátaforinginn hnýsni, — med neFið í hvers manns koppi, — var leikinn af Jóhanni Olafssyni. Gott gervi og kátlegar hreyFingar öfluðu honum mikilla vinsælda meðal áhorfenda, enda tókst honum að tjá þennan kynlega kvist mjög skýrt, þótt einstaka sinnum ræki hann í vörðurnar í textanum. Ragnheiður Ragnarsdóttir skilað ágætlega litlu hlutverki frú Harris ráðskonu, móður Mollyar, og sömu sögu er að segja um hlutverk Jallps bílstjóra, sem Tómas Tómasson lék með virðulegu yFirbragði. Tómas gegnir hins vegar stærra hlutverki hjá Leikfélaginu, formannsstarFinu og það er mál manna að hann eigi sem framkvæmdastjóri í Festi, mestan þátt í góðu gengi leiklistar í Grindavík og því ei vel viðeigandi í lokin að þakka hon- um sérstaklega fyrir skemmtilega sýningu. I rabbi við leikstjóra og formann kom fram að Leikfélag Grindavíkur hefur á prjónunum að sýna í Kefla- vík og jafnvel víðar og væri það sannarlega fengur, ef af því getur orðið, fyrr en seinna. Magnús Gíslason.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.