Dagblaðið - 05.03.1976, Qupperneq 12
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976.
Erfiðast hjó
Derby
— á lokasprettinum að enska
meistaratitlinum
Keppnin í 1. deildinni ensku er tvísýnni
nú en oftast áður og ef að Iíkum lætur
verður mikil spenna alveg fram í
lokaumferðina. Fjögur lið eru efst og jöfn
með 43 stig — Liverpool, QPR, Manch.
Utd. og Derby. Liverpool og Manch
Utd. hafa leikið einum leik minna, en hin
tvö liðin og standa því betur að vígi. Þá er
markahlutfall Liverpool bezt og það gæti
haft úrslitaáhrif því markahlutfall ræður
úrslitum ef Iið eru jöfn að stigum.
En við hvaða lið eiga þessi fjögur félög
eftir að keppa? — Við skulum nú aðeins
líta á það.
Liverpool á eftir 10. leiki. Fimm á
heimavelli og fimm á útivelli. Heima
gégn Middlesbro, Burnley, Everton
Leicester og Stoke og ef að líkum lætur
ætti Liverpool að ná flestum stigunum úr
þessum leikjum. Útileikirnir eru gegn
Úlfunum, Norwich, Aston Villa,
Birmingham og Manch. City — og tvö af
þessum liðum eru í fallhættu. Það er alltaf
erfitt að Ieika gegn slíkum liðum á útivelli
í lok keppnistímabils.
QPR á eftir níu leiki — fimm heima,
fjóra úti. Heimaleikirnir eru gegn
Coventry, Manch. City, Middlesbro,
Arsenal og Leeds — erfiðir leikir flestir.
Úti leikur QPR við Everton, Stoke,
Newcastle og Norwich.
Manch. Utd. á eftir 10 leiki — fimm
heima, fimm úti, Heimaleikirnir eru gegn
Leeds, Middlesbro, Manch. City, Everton
og Stoke — engan veginn léttir leikir, og
útileikirnir eru gegn Norwich, Newcastle,
Ipswich, Burnley og Leicester.,
Derby á eftir níu leiki — fimm heima,
fjóra úti. Heimaleikirnir eru við Norwich
Birmingham, Stoke, Leicester og Everton
og ættu meistarar Derby að hljóta flest
stigin úr þeim, en útileikirnir eru erfiðir
gegn Middlesbro, Manch. City, Aston
Villa og Ipswich.
Það er athyglisvert hve Manch. City
getur spilað mikið irln í — á eftir að leika
við öll efstu liðin, og það er áreiðanlegt, að
deildabikarmeistararnir leggja mikið upp
úr úrslitum í þeim til að sýna hvers liðið er
megnugt.
Þá er Leeds cngan veginn úr spilinu, þó
möguleikar séu kannski ekki miklir. Liðið
hefur 39 stig, og á eftir 11 leiki.
Japanskur
landsliðsþjálfari
Judosamband íslands hefur ráðið japanska
judoþjálfarann Naoki Murata 4. dan sem
þjálfara íslenzka landsliðsins í judo.
Murata hefur um eins árs skeið verið þjálf-
ari hjá judódeild Ármanns og gegnir því starfi
einnig áfram, en samkvæmt samkomulagi
milli JSÍ og Ármanns tekur hann nú að sér
þjálfun og stjórn judolandsliðsins. Murata
hefur raunar unnið að þjálfun landsliðsins
síðan í nóvember samkv. bráðabirgðasam-
komulagi, og hann stjórnaði liðinu í keppn-
inm við Norðmenn 7. þ.m. sem lauk með
stórsigri íslendinga 14:5.
Murata mun nú annast val manna í úrvals-
hóp judomanna til æfinga og verða æfingar
hópsins tvisvar í viku fyrst um sinn auk
æfinganna hjá hinum einstöku félögum.
Murata hefur með starfi sínu hér á landi
áunnið sér vaxandi traust og álit íslenzkra
judomanna, og hyggja þeir gott til leiðsagnar
hans.
Frá Wembley á laugardaginn. Peter Barnes skorar fyrsta mark Manchester City eftir að Joe Royle hafði skallað til hans. Barnes kom á fullri ferð og þrumuskot
hans, boltinn ber við Royle sem er liggjandi, hafnaði í netinu. Manch. City sigraði Newcastle 2-1 í úrslitaleik deildabikarsins — sjötti stórsigur liðsins á áratug.
Harka, en öruggur sig-
ur gegn Milbertshofen!
íslenzka landsliðið sigraði með 19-17 í siðasta œfingaleik sinum
fyrir Olympíuleikinn við Júgóslava á sunnudag
Þetta var mjög harður leikur —
harka og þýzku dómararnir leyfðu mik-
ið. Það má alltaf reikna með slíku og
við erum ekki að kvarta undan dóm-
gæzlu þeirra, þó ýmsum hafi fundizt
þeir hlutdrægir. öruggur sigur vannst
gegn Milbertshofen, þýzka 1. deildar-
liðinu í suðurdeild í Munchen í gær-
kvöld, 19-17, sagði Ólafur H. Jónsson
fyrirliði íslenzka landsliðsins í símtali
við Dagblaðið.
Þetta er orðin anzi ströng ferð. Mikið
um ferðalög og leikið á hverju kvöldi.
Ekki laust við, að sumir verði ánægðir
með að fá frí frá leikjum fram á sunnu-
dag, en þá verður leikurinn, sem öllu
þessu hefur verið stefnt að — Olympíu-
leikurinn við Júgóslava.
íslenzka landsliðið skoraði þrjú fyrstu
mörkin í leiknum við Milbertshofen í
gær, en til mikillar ánægju fyrir all-
marga þýzka áhorfendur tókst þýzka
liðinu að jafna í 5-5. En íslenzka liðið
náði aftur yfirhöndinni og hafði alltaf
yfir í leiknum. í leikhléi var staðan 10-9
og skoruðu Þjóðverjarnir síðasta mark
sitt beint úr aukakasti eftir að leiktíma
var lokið.
Um tíma í síðari hálfleik náði ís-
lenzka liðið þriggja marka forskoti —
en Milbertshofen tókst að jafna þann
mun. Lokakaflann var íslenzka liðið
betra og sigraði með 19-17 og voru
menn eftir atvikum ánægðir með þann
sigur.
Mörk íslenzka liðsins skoruðu Jón
Karlsson 5 — öll mörkin úr vítaköstum
— Páll Björgvinsson fjögur, Ólafur H.
Jónsson þrjú, Árni Indriðason og Jón
Hjaltalín Magnússon tvö hvor, Stein-
dór Gunnarsson, Gunnar Einarsson og
Bjarni Jónsson eitt hver. Ólafur Einars-
son, sem skoraði mikið af mörkum í
fyrri leikjum, beitti sér lítið í gærkvöld,
enda ekki alveg heill í hendi. Ólafur
Benediktsson varði markið í fyrir hálf-
leik, en Guðjón Erlendsson í þeim síðari
og stóðu báðir sig vel. Það furðulega
skeði, að Guðjóni var vísað af velli í
tvær mín. — sennilega fyrir einhvern
misskilning, þó hann hefði áður sýnt, að
hann var ekki beint ánægður með dóm-
arana.
í kvöld verður haldið til Zagreb í
Júgóslavíu — og Olympíuleikurinn
verður kl. 4.30 að íslenzkum tíma i
smáborg rétt við Zagreb. Jón Ásgeirs-
son mun lýsa leiknum.
Það er vörður fyrir utan'Þú býst ekki
Vildi að Lolli og Polli -yvið miKlu af
væru hér.Þeir mundu
finnaupp á einhverju.
Rólegur, Þjálfi, ekki Vjæja, gerum
stund til að reiðast... -7' áætlun. Attu
KHvernig væri? Bráðum hættTr að
rigna og þá.
SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK
Stafirnir eru til margs gagnlegir, t.d. sem framlcnging handannaxog það hjálpar að halda jafnvæginu meðan þið eruð á ferð. Einnig eru þeir notaðir
iil aðstoðar við bcygjurog auðvitað til að komast á ferð í byrjun.