Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 13
Dagblaðið. Föstudagurð. marz 1976. Olympíumeistannn hafði þoð ó frjólsu œfíngunum John Curry fró Birmingham varð heimsmeistari í listhlaupum í gœr í Gautaborg. Þriðji stórtitill hans ó tveimur múnuðum John Curry varð heims- meistari í listhlaupi á skaut- um í gærkvöld. Hann sigraði helzta keppinaut sinn, Rúss- ann Kovalev sem hafði for- ystu eftir fyrri hluta mótsins. En Curry sýndi ótrúlega hæfni í listræna þættinum í frjálsu æfingunum og brezki dómarinn gaf honum 6 — hæsta sem hægt er að fá. Á meðan allt gekk Curry í hag- inn í listræna þættinum datt hekti keppinautur hans, Kovalev og titillinn var Currys. Þetta er þriðji titill Currys á tveimur mánuðum. í janúar varð Curry Evrópu- meistari og var þá fyrst verulega sem Curry tókst að fara fram úr rússnesku keppinautum sínum, en áður hafði Curry ávallt staðið í skugga þeirra. Á Olympíuleikunum vann Curry gullið — og sýndi þá ótrúlega hæfni í listræna þættinum í listhlaupinu. Mikið fjaðrafok varð eftir sigur hans því venjulega halda sigurvegarar í hinum einstöku greinum blaðamannafund þar sem þeir sitja fyrir spurningum blaða- manna. Curry hins vegar var alls ekki á þeim nótunum. Þess í stað lokaði hann sig inni í herbergi og tók með sér ástmann sinn. Blaðamenn urðu hinir reiðustu, að Curry skyldi taka ástmann sinn fram yfir blaðamannafund,. það hafði ekki þekkzt áður. Þessi kynvilla Curry var því mikið fréttaefni, en Curry kærði sig kollóttan, þó spennan hafí verið mikil. Nú streyma tilboðin til Curry. „Mér berast hin ótrúlegustu tilboð,” sagði Curry. „Tilboð sem mér datt aldrei í hug að ég fengi, eins og að syngja og dansa. En ég er staðráðinn í að halda áfram þeim draum mínum að gera listhlaup að list. Ástæðan fyrir því að ég held áfram er líka að verða sá bezti, fólk hlustar alltaf á þá beztu,” bætti Curry við. John Curry, sem býr nú í Colorado í Bandaríkjunum er Breti og kemur frá Birmingham. Nú en í Gautaborg átti Curry allt og Rússinn Kovalev varð að láta sér nægja annað sætið. í þriðja sæti varð A- Þjóðverjinn Jan Hoffmann og í fjórða sæti Kanadamaðurinn Toller Cranston, sá er vakti mikla athygli í Innsbruck fyrir ævintýralegar æfingar sínar. í parakeppninni í ísdansi í Gauta- borg hefur rússneska parið og sigurveg- ararnir frá Innsbruck, þau Ludmila Pakhomova og Alexander Gorshkov for- ystu og aðeins er eftir.frjálsi þátturinn og einmitt það getur reynzt þeim hættulegt því keppnin er geysihörð. Bronshafarnir frá Innsbruck, Colleen O’Connor og Jim Millns eru einmitt mjög sterk í frjálsa þættinum og rúss- neska parið verður að halda vel á spöðunum ef sigurinn á að verða þeirra. Eins og er er staðan: 1. Ludmila Pachkomova og Alexander Gorshkov með 104.32 stig. 2. Irina Moiseeva og Andrei Minenkov 100.24 síig. 3. Colleen O’Connor og Jim Millns I00-12st'g- h.halls. Bretinn John Curry hefur þótt sýna mikla hæfni í listhlaupi á skautum í vetur og hefur þar með ýtt hinum sovézku keppinautum sínum til hliðar en um áraraðir stóð Curry í skugga þeirra. íþróttir Kornungt lands- lið i handknatt- teik kvenna Bandaríska kvennalandsliðið í hand- knattleik leikur þrjá landsleiki við hinar íslenzku stallsystur sínar. Fyrsti leikurinn verður á sunnudaginn suður á Keflavíkurvelli, í íþróttahúsi varnar- liðsins, og hefst sá leikur kl. 15. Annar landsleikurinn fer fram í Hafnarfirði og sá þriðji uppi á Skaga, báðir þessir leikir fara fram í lok næstu viku. fslenzka landsliðið hefur verið valið og hefur víða komið fram gagnrýni á val liðsins þar sem stúlkurnar í því eru kornungar og reyndari handknattleiks- konur ekki í liðinu. Hitt ber einnig á að líta að áhugi kvenna fyrir landslið- inu hefur verið næsta lítill og val landsliðsnefndar í samræmi við það. Landsliðið er þannig skipað: Markverðir eru Aðalheiður Emilsdótt- ir, Ármanni, og Gyða Úlfarsdóttir FH. Aðrir leikmenn: Jóna Brandsóttir, FH, Katrín Danivaldsdóttir,FH, Sigurborg Daðadóttir, UBK, Jóhanna Halldórsdóttir, Fram, Jenný Magnúsdóttir, Fram, Hrefna Bjarnadóttir, Val, fyrirliði, Hjördís Sigurjónsdóttir, KR, Halldóra Magnúsdóttir, Val, Erla Sverrisdóttir, Ármanni, Harpa Guðmundsdóttir, Val. Samanlagður landsleikjafjöldi er 31 landsleikur og þar af hefur Erla Sverrisdóttir leikið 11 landsleiki. Fimm stúlkna'nna hafa ekki^ leikið landsleik áður. Það er því ekki iyrir reynslunni að fara og fróðlegt verður að sjá hvern- ig liðinu vegnar, þar sem framundan eru mikil verkefni. Þjálfari liðsins er Pétur Bjarnason. h.halls. Dankersen, 23ja febrúar. Landsleikur V-Þýzkalands og Belgíu, sem fram fór í Eppelheim á sunnudag, var aðalefni v-þýzkra handknattleiksmanna um síðustu helgi. Þar af leiðandi fóru aðeins fimm leikir fram í deildum Budeslígunnar. Þessir leikir breyttu stöðu liðanna ekki mikið, nema kannski það, að lið Kiel og Rein- hausen hafa misst af lestinni með að ná öðru sæti í norðurdeildinni. Óþarfi er að fjölyrða um hina ýmsu möguleika, sem enn eru opnir á toppi sem botni, þar sem því atriði voru gerð skil í síðasta þæt,; okkar. Vegna undankeppni Olympíu- leikanna verður nú gert hlé í þrjár vikur í Bundeslígunni. Næstu leikir verða 14. marz. DANKERSEN— SCHWARTAU' 20-11 Fyrir fullu húsi áhorfenda í Minden átti GWD í erfiðleikum í byrjun og eftir 10 mín. leik var staðan 5-2 fyrir Schwartau. Þar á eftir fylgdu hins vegar fimm GWD- mörk í röð og í hálfleik var staðan 8-6 fyrir GWD. í síðari hálfleiknum skoraði GWD tvö fyrstu mörkin og eftirleikurinn var auðvcldur. Dómarar leiksins, sem komu frá Köln, voru mjög ósamrýmdir og gerðu margar vitleysur á báða bóga. sem varð til þess að leikurinn varð óþarflega ruddalegur á köflum. Með sigrinum færðist Dankersen enn næi takmarki sínu að ná öðru sætinu. Það er þó engum blöðum um það að fletta, að næsti leikur liðsins, semer-í Essen þann 14. marz gegn Phönix Essen, mun verða úrslita- leikurinn um það sæti. Mörk GWD. Axel 6, Ólafur H. 5, Waltke 3/1, Kramer 2, Grund 1, von Oepen 1, Becker 1 og Buddenbohm 1. % WELLINGHOFEN —KIEL 17-11 Annar sigurleikur Wellinghofen í röð og endurkoma Grönings í liðið (eftir meiðsli) hafði mikil áhrif á leik liðsins. Mikil harka var strax frá byrjun, en er líða tók á fyrri hálf- leikinn kom betri varnarleikur Wellinghofen í ljós. Liðinu tókst að ná afgerandi forustu, sem það helt til loka. Hinn leikreyndi landsliðsmaður Grönings lék aðalhlutverkið óg skoraði sex mörk. Hjá Kiel var hinn 33ja ára Nielsen atkvæðamestur og skoraði sex mörk. ALTENHOLZ— RHEINIIAUSEN 15-14 Það má með sanni segja, að Kiel sé cin mesta handboltaborgin í Þý/kalandi. (j()uo manns mættu í Kielar-Ostseehalle til að styðja Altenholzliðið (Altenholz er smáþorp við Kiel og teilur 3000 íbúa) og það þó liðið sé svo gott sem fallið. Leikurinn var allan tímann mjög spennandi og jafn. Rheinhausen* hafði unnið sex síðustu leiki sína í röð og hafði enn töluvert góða möguleika á öðru sæti í riðlinum. Altenholz-liðið sýndi þó og sannaði, að margt býr í liðinu og drifið áfram af hinum leikreynda Werk tókst því að knýja fram sigur á síðustu sekúndunum. Hjá Rheinhausen skoraði Schmitz átta mörk, en Werk Fimm fyrir Altenholz. SUÐURDEILD GROSSWALLSTAD— IJUTTENBERG 14-6 Þessi leikur fór fram á föstudags- kvöldið og var Hér um algjöra yFirburði Grosswallstadt að ræða. Líðið sýndi þó engan stjörnuleik og þurftiþess ekki, þar sem Huttenberg- liðið var óvenju dauft. Auk þess sýndu leikmenn þess lítinn sem engan áhuga, enda árangurinn eftir því. Markvörður Grosswallstad, sem er 1. markvörður þýzka landsliðsins, sýndi alla sína beztu takta víð niikinn fögnuð áhorfcnda, scm voru um 2700. REIMUi 1EUORFER FUSCHE— GÖPPINGEN 13-13 Það var furðulegt, hvað Berlínarliðinu tókst að halda vel í við Göppingen, því Fimm af beztu mönnum liðsins eru á sjúkralista. Lítill áhugi var á leiknum í Berlín, því aðeins 597 áhorfendur mættu til að fylgjast með þessari botnbaráttu. Göppingen-liðið hafði ávallt forustu ; I en rétt fyrir leikslok skoraði Berlínarliðið jöfnunarmark sitt. Að vanda voru þeir Gunnar Einarsson og Emmrich beztu menn Göppingen og þeir, sem halda liðinu á floti. ÞÝZKALAND—BELGÍA 34-6. Eins og tölurnar bera með sér úr þessum leik í 5. riðli Olympíukeppninnar var hér um algjöra einstefnu að ræða Þýzka liðið varð að sigra með 23ja marka mun til þess að ná hagstæðari markatölu en DDR í riðlinum. Eftir 15. mín. leik var staðan orðin 9-0 fyrir Þýzkaland og loks á 17. mín. skoraði Belgía sitt fyrsta mark. Markaregnið hélt síðan áfram og í iiálflcik var staðan 16:3. Síðari hálfleikurinn var keppni um að ná þessum 23ja marka mun. Eftir 20 mín. var því marki náð og vestur-þýzkir önduðu léttar. Gummersbakkararnir Deckarm (9 mörk) og Brand (7 mö'rk) leku aðalhlutverkin í þýzka liðinu sem fyrr, en Kluhspies sýndi einnig mjög jákvæðan leik og skoraði sex mörk. Axel og Ólafur. Njarðvíkingar heimsœkja KR — i 1. deild körfunnar um helgina Þrír leikir verða leiknir í 1. deild körfuknattleiksins um helgina og leikur helgarinnar verður vafalítið í Haga- skóla. Þar leiða saman hesta sína KR og UMFN — bæði liðin hafa misst af möguleikanum á íslandsmeistaratitli en bikarkeppnin er enn eftir og Iiðin ætla sér ekkert minna en sigur í hennL En þar eins og í 1. deild er aðeins einn sigurvegari og því mikilvægt fyrir liðin að vera í æfingu. Leikur KR og UMFN fer fram í Hagaskóla á morgun og hefst kl. 14. í íþróttahúsi Kennaraháskóla íslands leika stúdentar og Snæfell og vart þarf að spyrja að leikslokum þar, Snæfell hefur verið áberandi lélegasta liðið í 1. deildinni í vetur. Leikurinn fer fra á morgun og hefstkl. 17. Snæfell er svo aftur á ferðinni á sunnudaginn og þá uppi á Skaga. Þá heimsækir Valur liðið og enn er líklegt að Snæfell verði að láta í minni pokann. En lítum á stöðuna í 1. deild: Ármann ii 11 0 1032-832 22 ÍR ii 9 2 990-845 18 KR 9 6 3 789-691 12 UMFN 10 6 4 798-771 12 ÍS 10 4 6 792-850 8 Valur 10 3 7 909-952 6 Fram 11 2 9 744-870 4 Snæfell 9 0 9 507-758 0

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.