Dagblaðið - 05.03.1976, Page 15
Dagblaðið. Föstudagur 5. marz 1976.
HJÓNABANDIÐ RIÐAR TIL FALLS EFTIR ELLEFU ÁR
15
Bílakonunginn
Henry Ford langar í
ANNA
BJARNASON,
nýja órgerð
Undanfarna mánuði hefur verið á
kreiki orðrómur um skilnað bíla-
kóngsins Henry Fords II. og konu
hans, hinnar 47 ára gömlu, ítölsku
Christinu. Þrátt fyrir það kom stað-
festing á skilnaðinum eins og reiðar-
slag yfir vini þeirra og kunningja.
Þau hjón hafa verið gift í 11 ár. Ford
var sjálfur í íbúð fyrirtækisins í aðal-
bækistöðvunum í Dearborn þegar
hann fól lögfræðingi sínum að gefa
út tilkynningu um skilnaðinn.
Christina, sem var á sveitasetri
þeirra hjóna í Georgia, bar fregnina
til baka. Fjölskylduvinur einn sagði
við fréttamenn að Christina kærði sig
ekki um skilnað, allt væri í bezta lagi
og orðrómurinn yrði kveðinn niður.
Henry væri á förum í viðskiptaerind-
um til Evrópu og Christina væri
heima á sveitasetrinu í Grosse Point.
Þrátt fyrir þessi mótmæli hafa
verið uppi háværar raddir um að
bílakóngurinn vildi gjarnan fá sér
„nýtt módel”, hina 36 ára gömlu
Kathleen DuRoss sem hann hefur
lengi átt vingott við. Hún vár með
honum í bílnum í fyrra þegar hann
var tekinn fastur fyrir að aka undir
áhrifum áfengis í Kaliforniu.
Þá var Christina kona hans með
Imeldu, eiginkonu Marcosar forseta
Filippseyja, við krýninguna í Nepal.
Þrem mánuðum síðar opnaði
Kathy DuRoss nýtt diskótek í
Detroit. Fréttamenn þustu í diskó-
tekið fyrsta kvöldið og gerðu mikið
veður út af opnuninni. „Ég vona
bara að þið séuð hér vegna sjálfrar
mín en ekki vegna þess að ég var í
bílnum með Ford þegar hann var
tekinn fastur,” sagði hún.
Þau þekktust áður en Ford kvænt-
ist Christinu árið 1965. A sl. árum,
þegar Christina hefur verið að
„dandalast” um allar jarðir, fóru
Ford og Kathy oft saman í frí. Hún
þykir dálítið „dularfull”, er fædd og
uppalin í Detroit. Hún var ekki
nema 19 ára þegar hún varð ekkja.
Maður hennar, sem var hljóðfæra-
leikari, fórst í bílslysi. Hún á tvær
dætur, Kim 18 ára og Debbie 20.
Kathy var um jólin í veiðiferð með
Ford og vini hans, Radziwill prins
(fyrrverandi mági Jackie Onassis) á
heiðunum í Yorkshire. Þá var Christ-
ina á skíðum í Sun Valley.
Henry Ford hitti Christinu árið
1960 á hinum fræga næturklubbi
Maxim í París. Þau spjölluðu saman
alla nóttina án þess að hún vissi hver
hann væri. Síðar kom í ljós að hún
hafði spurt hann tvisvar að heiti.
Henry var ákaflega kátur yfir því
að þessi unga, fallega og fráskilda
koma skyldi ekki þekkja hann (eða
a.m.k. ekki kannast við það) eða hina
frægu fjölskyldu hans. Kunnings-
skapur þeirra varð brátt mjög náinn.
Christina fluttist til New York og
beið eftir að Henry fengi skilnað frá
Anne McDonald sém hann hafði
verið kvæntur í 23 ár.
Fyrst eftir brúðkaupið voru þau
óaðskiljanleg. Christina var af fátæku
„Nýja árgerðin” hans Fords. Hún á diskótek í Detroit og er komin í sviðsljósið.
„Mér finnst gaman að bjóða
„spennandi” fólki hingað til þess að
auka á hátíðleikann,” sagði Christina
við það tækifæri.
Henry Ford hefur ímugust á slík-
um samkvæmum og flaug til Evrópu
í „viðskiptaerindum”. Það er einmitt
það sem hann hefur gert núna.
fólki komin og á meðan á styrjöldinni
stóð varð hún um tíma blind vegna
næringarskorts. „Ég gleymi aldrei
því tímabili í ævi minni,” segir hún.
Christina var orðlögð fyrir fegurð
og fagran limaburð. Hún var í 90
mínútna danstíma á hverjum degi og
hvatti Henry til þess að halda línum
hans í lagi.
Á síðari árum hafa leiðir þeirra
skilið æ oftar. Henry neitaði heim-
boðum, en Christina hellti sér út í
samkvæmislífið af lífi og sál og hefur
fundið sanna vinkonu í Imeldu
Marcos, forsetafrú á Filippseyjum.
Þær voru saman árið 1971 í af-
mælisveizlunni miklu í íran þegar
keisarinn hélt upp á 2500 ára afmæli
ríkisins. Þær voru einnig saman í
Ástralíu, þegar nýtt óperuhús var
opnað í Sidney. Christirta heimsótti
frú Marcos í Manilla þegar alheims-
fegurðarsamkeppnin var haldin þar,
en Christina átti sæti í dómnefnd-
inni.
Imelda Marcos hefur einnig heim-
sótt Christinu til Bandaríkjanna, en
hún var viðstödd þegar ný deild í
listasafni Detroitborgar var opnuð.
Eftir margra mánaða sögusagnir lét Henry Ford lögfræð- Christina neitar því að skilnaður sé á næsta leiti.
ing sinn gefa út tilkynningu um væntanlegan skilnað
þeirra hjóna. Síðan flaug hann til Evrópu.
nýtt í hverri Viku
ikan prófar Autobianchi — Rœtt við nokkur börn um sjónvarpíð
kipasmiðar og siglingar til forna