Dagblaðið - 05.03.1976, Qupperneq 24
Nú brennir
Akraborgin
svartolíu
Akraborgin hefur nú bætzt í hóp
þeirra skipa, sem brenna svartolíu. í
gær var blaðamönnum og fleiri gestum
boðið í ferð með skipinu, þar sem þessar
breytingar voru kynntar.
Það var strax og svartolíunefnd
kynnti sparnaðaráætlanir sínar, ef
svartolía væri notuð sem eldsne>ii, sem
útgerðarfélag Akraborgar tók að íhuga
að gera breytingar á skipinu. Eftir
nokkrar athuganir var nemendum á
fjórða stigi í Vélskóla íslands falið að
gera breytingarnar. Þeir hafa síðan
unnið að verkinu ýmist uppi á Akranesi
á nóttunni, á meðan skipið var í
ferðum eða í skólanum. Umsjón með
verki nemendanna höfðu þeir Magnús
Ingimundarson og Ólafur Eiríksson
vélfræðikennari Vélskólans.
Áætlað er'að breytingarnar á Akra-
borg hafi kostað um 2.5 milljónir króna.
Verðmunurinn á að nota hráolíu og
svartolíu er um fimmtán krónur á lítr-
ann. Akraborg notar um 90.000 lítra á
ári, svo að sparnaðurinn verður tölu-
verður, þegar fram í sækir.
Þrátt fyrir að Akraborgin sé nú farin
að brenna svartolíu, þýðir það samt
ekki að hún sé alveg laus við hráolíuna,
því að þegar skipið siglir í og úr höfn
verður að notast áfram við hráolíuna.
Ástæðan fyrir því er sú, að þegar álagið
á vélunum fer niður fyrir visst stig,
kemur svartolían ekki að notum. —ÁT—
STUND MILLISTRÍÐA
Fyrst eru það embættisverkin fyrir Framleiðslueftirlit sjávarafurða, fylla út skýrsluna um loðnusýnin. . . .
Síðan er tími til að heilsa upp á gamlan kunningja, sem alltaf er gaman að sjá. ... — segja honum það nýjasta á
ferðinni í bænum, alveg í trúnaði...... og það var ekki af lakari endanum í þetta skiptið
Loðnuflutningaskip kemur fýluferð
Japanskt loðnuflutningaskip
kemur fýluferð hingað. Skipið er
væntanlegt næstu daga og icemur á
vegum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna.
Það er verkfallið sem veldur. Slík
sigling er að sjálfsögðu ákveðin
löngu fyrirfram, og átti skipið að
taka hér frysta loðnu upp í samninga.
Vegna verkfallsins munu ekki vera til
nema 450 tonn, samkvæmt
upplýsingum frá Sölumiðstöðinni,
en skipið er líklega gert fyrir 1500-
2000 tonn.
Hja Sölumiðstöðinni var okkur
tjáð, að ákvæði mundu vera í
samningum, sem tryggðu fyrirtækið
gegn tjóni, sem yrði af völdum
verkfalls. Japanir mundu einnig geta
bjargað sér með því að breyta áætlun
skipsins og finna einhvers staðar
annarn farm fyrir hina löngu
siglingu. -HH.
Lögfrœðingarnir rœða
réttarfarsbreytingar
Vegna nýframkomins frumvarps á
Alþingi um nýskipan lögreglumála
hafði blaðið samband við nokkra
lögmenn í Reykjavik og spurði um
álit þeirra á frumvarpinu.
Björn Þ Guðmundsson borgar-
dómari kvaðst ekki cnn hafa séð
frumvarpið aðeins það er hingað ui
hefur birzt í blöðum og kvaðst því
ekki vilja tjá sig um innihald þess og
fyrirhugaðar breytingar.
jóhannes L. L. Helgason,
formaður Lögfræðingafclags íslands,
sagði Lögfræðingafélagið ekki enn
hafa tekið afstciðu lil frumvarpsins en
miðvikudaginn 10. mar/ n.k. vcrður
almcnnur fundur í I.cigfræðinga-
rélaginu þai sem hið nýja frumvarp
vcuðiu til uinræðu. Fmmmadeiulur
þar vcrða þeir Björn Svcinbjömsson
hæstaréttardóniari, formaðm réitar-
farsnefndar, nefndar þeirrar er
frumvarpið samdi og Haraldur
Henrýsson formaður Dómarafélags
Reykjavíkur.
Eftir þessum fundi munu allflestir
lögfræðingar á landinu vera að bíða
til að geta svo tekið afstöðu til
frumvarpsins. Á fundinum mun
frumvarpið verða rækilega kynnt og
lögfræðingarnir fa tækifæri til að
fræðast um efni þess.
Kvaðst Haraldur Henrýsson ekki
vilja tjá sig neitt um hvað
framsöguerndi sitt á fundinum
myndi fjalla um, það kæmi í ljós á
fundinum sjálfum.
Ekki er ólíklegt að ýmis atriði
frumvarpsins cigi hugsanlega eftir að
valda dcilum meðal lögfræðinga og
það sjálfsagt cftir að brcytast
citthvað í meðfc'rrum Alþingis.
-BH
IBM-gjöfin eða lánið:
„ÓSÆMANDI
AÐ ÞIGGJA
ÞESSA GJÖF"
— segir starfshópur um auðhringa
umboðsmennirnir fyrir Digital hefðu
talið sig „heita” í haust, er Háskólinn
kannaði Digital 1170 með kaup í huga.
Ráðamenn hefðu þá haft fullan hug á
kaupum, en skortur á fé hefði síðan
komið í veg fyrir það. Bragi sagði að ef
kaup þessi hefðu komizt á, hefði Digital
fest góðar rætur á tölvumarkaði hér á
landi.
Svokallaður starfshópur um auð-
hringa hcfur haft samband við blaðið
vegna tölvulána IBM og segir m.a.:
„Það er þvt álit „starfshóps um auð-
hringa”, að viðbrögð IBM við tilraun-
um Háskóla íslands til að marka nýja
stefnu í tölvumálum sínum, séu til þess
fallin, að styrkja enn meir einokunarað-
stöðu þessa erlenda auðhrings og þar
með torvelda eðlilcga þróun tölvumála
í landinu. Með tilliti til aðdraganda og
afleiðinga þcssa máls tclur starfshópur-
inn að æðstu menntastofnun fslendinga
sé ósæmandi að þiggja þessa gjöf.”
—JBP—
Tölvan, sem IBM hefur lánað Há-
skóla íslands til næstu 3 ára annar ekki
öllum þeim verkefnum er Reiknistofn
unin þarf að annast. Að sögn Jóns Þ.
Þórhallssonar hjá Reiknistofnun eru
þarfir Háskólans á þessu sviði nokkuð
víðar og greinileg þörfln fyrir stóra
tölvu. Jc»n kvað það rétt að Háskólinn
hcfði kannað kaup á hýrri tölvu hjá
þcim framleiðcndum scm bjc'»ða slíka
vöru.
Bragi Ragnarsson, framkvæmdastjóri
hjá Kristjáni Skagíjörð, sagði að þeir
fijáJst, úháð dagblpð
Föstudagur5. marz 1976.
Fór heila
veltu ó
Breiðholts-
braut
Fólksbifreið fór í gærkvöldi heila
veltu á Breiðholtsbrautinni.
Óhappið varð í brekkunni á móts
við Stekkjarbakka á ellefta
tímanum. Valt bíllinn yfír eyju sem
þarna er á götunni og staðnæmdist
ekki fyrr en á akbrautinni sem ligg-
ur til Breiðholtshverfís.
Ein kona var í bílnum. Hlaut hún
skrámur en meiðslin voru ekki talin
alvarleg.
Meðan lögreglumenn gerðu sínar
athuganir á staðnum varð aftan-
ákeyrsla .á sama stað. í báðum
óhöppunum lék grunur á að öku-
menn hefðu verið ölvaðir við akstur.
—ASt
Brotizt inn
á þremur
stððum í nótt
Þrjú innbrot voru framin í
Reykjavík í nótt. í tveimur tilfell-
anna höfðu þjófanir ekkert upp úr
krafsinu og lítið í hinu þriðja.
Farið var inn í verzlun í Austur-
stræti 6 og rótað þar í peningakassa.
Einskis var þar saknað.
Þá sprengdu þjófar upp hurð í
Matvælabúðinni í Efstasundi 99.
Til þeirra sást og'kom lögreglan
skjótlega á vettvang og voru þjóf-
arnir flúnir af staðnum.
Þá var tilkynnt kl. 1.26 að brotinn
hefði verið upp vínskápur í Klúbbn-
um. Það mál er í rannsókn. ASt.
Ný eyja
við Suð-
austurland
— segja erlend blöð
— en enginn kannast
við eyjuna
„Eg held að maður hlyti að hafa
frétt af því ef myndazt hefði ný eyja
við landið,” sagði Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur er við spurðum
hann um frétt er við sáum í Dagens
Nyheter, þess efnis að eyja hefði
myndazt í eldgosi við landið.
„Það hlýtur að vera út af þessu
sem ég fékk skeyti um daginn frá
Bretlandi, þar sem ég var beðinn að
senda myndir af nýju eyjunni við
ísland. Ég kannaðist ekki við málið,
og hélt kannske að átt væri við
Surtsey, en ég hef ekki heyrt frá þeim
aftur.”
í þessari sænsku frétt er sagt að
flugmenn í eftirlitsflugi frá NATO-
vellinum í Keflavík hafi komið auga
á eyju sem myndazt hefði við eldgos
um 20 sjómílur út af suðaustur homi
landsins. Eyjan er ekki stór, stendur
þar, aðeins 15 metrar í þvermál og
rétt um einn metri yfír sjávarmál. í
sænska blaðinu segir að þótt þessi
eyja sé lítil þá hjálpi hún
íslendingum í þorskastríðinu við
Breta þar sem hún gefi tilefni til þess
að flytja Iandhelgina út fyrir
hana. - -A. Bj.