Dagblaðið - 27.03.1976, Page 3
DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976.
hef beðíð 7 mánuði eftir varahlut i bílinn minn sem
á meðan er óökufœr, segir lesandi
Svava Guðmundsdóttir kom að
máli við okkur:
,,Allir vita og viðurkenna að
bíllinn hefur tekið við af þarf-
asta þjóninum sem aðalsam-
göngutæki landsmanna. islend-
ingar hafa lagt geysimikla pen-
inga í þetta samgöngutæki —
»»»•
dýrmætan gjaldeyri. Því er
mikilvægt að þau bifreiðaum-
boð sem selja bíla, hafi góða
varahlutaþjónustu svo hægt sé
að halda þessum samgöngu-
tækjum gangandi. Nú er al-
kunna að iðulega hefur orðið
misbrestur þarna á og á því hef
ég illilega fengið að kenna.
í júli sl. pantaði ég hjá
bifr.umboóinu Vökull hf. vara-
hlut i bílinn minn sem er af
Chryslergerð. Bíllinn hefur
verið óökuhæfur þar sem þetta
eru legur. Nú, þessar legur
pantaði ég í júlí, eins og ég
sagði áðan, og enn eru þær ekki
komnar til landsins — bíllinn
óökufær og ég hef engin not
af honum. Til stóð að sprauta
bilinn en ég hef ekki viljað
gera það fyrr en hægt væri að
keyra hann, lái mér hver sem
vill. Eðlilega er ég oróin
langþreytt á þessari bið—7
Raddir
lesenda
mánuðir— og hvað skyldi ég
þurfa að bíða lengi áður en ég
fæ legurnar? Eru ekki 7
mánuðir nóg?”
Þarna stendur Chryslerbílllnn á planinu engum til gagns vegna
seinagangs í umboðinu. (DB-mynd Björgvin.)
Vegna Geirfinnsmálsins og annarra sakamála eru:
LÖG UM MENNTUN RANN-
SÓKNARLÖGREGLUMANNA
BRÝN NAUÐSYN
Magnús Guðmundsson,
Patreksfirði skrifar:
„Nú situr löggjafarsamkunda
þjóðarinnar og þingar við
Austurvöll, eins og raunar allur
almenningur veit. Ekkert er
nemá gott eitt um pá samkundu
að segja en sorglegt finnst rnér
að þegar þessir „vitringai
okkar við Austurvöll eru búnir
að baka frumvarp bæði í efri og
neðri deild og brauðið
undirritað sem lögboðin
gæðavara, kemur nefnilega
iðulega í íjös, að brauðiö er
iðulega annaðhvort klesst eða
holt að innan, því miður.
Ástæða þessara skrifa minna
eru hin tiðu mannshvörf
almennt og auðvitað ber hæst
Geirfinnsmálið. Mér finnst
Alþingi verða að taka þessi mál
fastari tökum með löggjöf, þó
vissulega örli á framtaki þaðan
nú.
Mannshvörf á íslandi hafa
verið mikil og tíð miðað við
mannfjölda og af öllum
hvörfum undanfarin ár ber
Geirfinnsmálið hæst vegna þess
að vitað mál er að Geirfinnur
hvarf af mannavöldum, svo sem
allt umstang er af hefur hlotizt
ber glöggt vitni.
En ég spyr, hvað um alla
hina? Það var fyrir tilviljun að
vitað var að Geirfinnur hvarf
af mannavöldum. Ef svo hefði
ekki verið hefði sjólfsagt
glumið i útvarpi, rétt eins og
vanalega: Hann fór að heiman
frá sér kl. og hefur ekki spurzt
til hans siðan og þar með búið
nema ef til vill: Þeir sem hafa
orðið hans varir eru
vinsamlegast beðnir að láta
vita.
Nei, mannshvörf á Islandi
eru ekkert undrunarefni, ef á
annað borð þrífast meðal okkar
glæpamenn, óviða eða hvergi er
eins handhægt og áhættulaust
að láta mann hverfa. Þetta
byggi ég fyrst og síðast á þeirri
staðreynd að við eigum ekki
einn einasta sérfræðing í rann-
sóknum á mannhvörfum, morð-
málum, þjófnaðarmálum og
fleiru varðandi glæpi.
Þar af leiðir að sjálfsögðu að
erfitt eða jafnvel ógerningur er
að upplýsa ntál vegna menntun-
arskorts. Þetta leiðir aftur að
þeirri spurningu, hverjar eru
kröfur í lögum um menntun
rannsóknarlögreglumanna?
Hefur ef til vill gleymzt að
gera kröfur til þessara starfa?
Gerðar eru kröfur til ýmissa
starfshópa en hvergi minnzt á
rannsóknarlögreglumenn. Það
er tvennt ólíkt að vera
hjartasjúkdómafræðingur og
beinasjúkdómasérfræðingur
enda gerðar ólíkar kröfur til
þeirra. Með þessu vill ég síður
en svo kasta rýrð á
löggæzlumenn okkar, ég veit að
þeir gera sitt bezta við að
upplýsa mannshvörf.
Þarna er löggjafinn í sök og
ég skora á Alþingi að taka þetta
mál föstum tökum, enda segir
hið fornkveðna: ,,Með lögum
skal land byggja”.
of
hótt!
Óþolandi bið eftir varahlutum
GRÁSLEPPUKARLAR GERA ÞAÐ
EKKIALLIR JAFNGOTT
Hafnfirzkur grásleppukari
hafði samband við DB vegna
forsíðufréttar þriðjudaginn 23.
marz um að grásleppukarlar
gerðu það gott:
,,Það er i alla stnði góóra
gjalda vert nð vnkin sé athygli á
því aðgrásleppu' eiðin sé hafin.
Það sem vantar hins vegar í
fréttina er að það gera ekki
allir grásleppukarlar það
jafngott.
Eins og kemur fram í
fréttinni og hefur mikið
gæftaleysi hrjáð okkur eins og
aðra sjómenn undanfarið. Því
höfum við freistazt til að
leggja net okkar á grunnsævi
til að geta verið snöggir að ná i
þau ef veður breytist til hins
verra. Af þessum sökum höfum
við margir hverjir rifið net
okkar svo að salan á rauðmaga
hefur varla nægt til að bæta
þann skaða. Nokkrir hafa
sloppið við þetta netatjón og
því gert það betur en aðrir, en
ég held að við hinir séum samt
fleiri.”
Logar hafa alls ekki
„Einn með fulla heyrn”
hringdi til DB og kvaðst vilja
koma eftirfarandi á framfæri:
,,Eg er alls ekki sammála ein-
hverri er nefnir sig ,,Ein með
höfuðverk” og skrifar grein í
„Raddir lesenda” í síðustu viku
og kvartar undan hávaða-
mengun frá hljómsveitinni
Logum. Eg hef sótt talsvert
dansleiki með Logum í Vest-
mannaeyjum að undanförnu og
ég finn alls ekki fyrir neinum
ærandi hávaða. Auk almennra
dansleikja hafa ýmis félaga-
samtök verið með dansleiki þar
sem Logar hafa leikið og hefur
styrkur tónlistarinnar hjá þeim
alls ekki ært neinn. „Ein með
höfuðverk” segir lítið af hjóna-
fólki sækja dansleiki Loganna i
Eyjum en það kemur nú mikið
til af því hversu margt aðkomu-
fólk sækir dansleikina.
Dansleikirnir fara yfirleitt afar
vel fram og „Ein með
höfuðverk” ætti til
samanburðar bara að sækja
dansleik í Re.vkjavík eða
nágrenni og he.vra hávaóann
sem þar er inni. „Sándið” hjá
Logum er mjög þægilegt.”
„Sándið” hjá Logum er mjög
þægilegt segir einn með fulla
heyrn.
Hvað er skemmtilegast
að gera í skólanum?
Nina Skúladóttir, 7 ára. Mér
finnst skemmtilegast að teikna
svo að lesa af því ég kann það
alveg.
Georg Hansen, 7 ára. Mér finnst
skemmtilegast að lesa svo að
reikna. Ég er búin að læra plús
og mínus, en ég á eftir að læra
sinnum.
Guðrún Bryndís Hafsteinsdóttir,
7 ára. Það er skemmtilegast að
teikna hænur og kisur. Svo finnst
mér gaman að lesa. Ég er búin
með Tröllin í sandkassanum.
Unnur Jónsdóttir, 6 ára. Lesa, ég
er núna með Ævintýri fiskanna.
Svo finnst mér gaman að teikna,
ég er búin að teikna húsið heima
hjá mér.
Ragnheiður Hrönn Björnsdóttir,
6 ára.Teikna og læra stafi. Ég er
búin að læra T, það segir eins og
heyrist í bát.
Asdís Ulfarsdóttir, 6 ára. Púsla,
það er til fullt af púsli hér. Svo að
leira. Ég kann T. en það er fullt af
stöfum eftir.