Dagblaðið - 27.03.1976, Síða 15
DACBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976.
Póskaeggin þurfa
ekki að vera
úr súkkulaði
Páskar og egg tilheyra hvort
öðru eins og leggur skel ef svo
má aö oröi komast. Það þurfa
ekki (ndilega að vera
súkku'laðiegg, þótt þau séu
auðvitað ómissandi. Hænuegg
eru alveg tilvalin til þess að
skreyta með á páskunum, —
mála þau í öllum regnbogans
litum og leyfa fjölskyldunni
spreyta sig í málaralistinni.
Bezt er að nota venjulega
tússliti og þekjuliti, en það er
ágætt að teikna lauslega með
blýanti áður en liturinn er
notaður. Ef maður vill heldur
fá einlit egg, er það afar einfalt.
Mislitur „silki”-pappír er látinn
í pottinn um leið og eggin eru
soðin.
Vikurnar fyrir páska er
tilvalið að revna að brjóta þau
egg, sem maður þarf að nota á
þann hátt að skurnin verði
nothæf í páskaskraut. Á
meðfylgjandi myndum er
sýnishorn af þvi hvernig hægt
er að skreyta eggjaskurn á
margvfslegan hátt. Að
sjálfsögðu er langsnjallast að
nota hugmyndaflugið og
ímyndunaraflið.
Á þennan hátt er hægt að fá
bæði fallegt, ódýrt og
skemmtilegt páskaskraut, sem
þar að auki er heilmikil
afþreying að búa til, bæði fyrir
börn og fullorðna.
Ef nota á eggin í heilu lagi
vandast málið óneitanlega
nokkuð en mér er tjáð að ekki
sé nokkur vandi að blása úr
eggjum. Þá verður annaðhvort
að búa til eggjaköku handa
heimilisfólkinu eða gieypa
eggið hrátt. Ég hef aldrei
prófað þetta sjálf en þetta er
eflaust mjög einfalt.
Nú fæst jafnan í verzlunum
hér alls kyns páskaskraut, svo
sem ungar, kaninur, hérar,
körfur og annað það sem
tilheyrir páskahaldi. Slíkt er
vanalega nokkuð dýrt í
innkaupi en það er með það
eins og jólaskraut, — með því
að ganga vel frá því eftir
páskana, má nota það aftur frá
ári til árs. Einnig er sjálfsagt að
halda til ungunum á þeim
súkkulaðieggjum sem
heimilinu áskotnast á hverjum
páskum.
Hérna má sjá alls konar
hugmyndir um
eggjaskreytingarnar, það mætti
jafnvel kikja ofan í gamlan
skartgripakassa og finna þar
eitthvað nýtilegt til þess að
skreyta eggin með
—A.Bj.
Fljótgert póskoteppi
Það eru kannski margar
konur því marki brenndar að
vera latar við margbrotna og
flókna handavinnu. Mér þykir
aftur á móti mjög gaman að
hvers konar dútli sem segja má
að maður sjái fyrir endann á
um leið og maður b’yrjar á því.
Þannig er þessi sniðugi ungi,
sem er hér á veggskreytingu.
Hann er úr gulu filti,
kamburinn og goggurinn eru úr
rauðu filti og augað úr hvitu og
svörtu. Skurnin er úr hvítu
filti, slaufan gæti verið rauð og
grasið að sjálfsögðu grænt.
Hann er síðan límdur með
föndurlími á „teppið”, sem er
úr tvöföldu efni ca 25x30 cm
stórt. Það er síðan hengt upp
með bambusstöng og snúru.
—A.Bj.
UÓÐ Á LAUGARDEGI
- EKKERT ÞÆGILEGT
/
\
Við þekkjum öll hvað það
getur verið gott að vera skotinn
í einhverjum. Þetta var þó
ekkert þægilegt fyrir
kunningja minn einn. Hann var
nefnilega skotinn í seinna stríð-
inu.
Það þótti mörgum heldur
ekkert þægilegt þegar Ólafur
Jóhannesson lét loka öllum
áfengisútsölum í landinu og
bannaði þar að auki að vín yrði
selt á veitingahúsum. Urðu þá
margir að láta sér nægja
íslenska bjórinn sem er svo
þunnur að það liggur við að
maður vorkenni honum.
K.N. 'sagði eitt sinn við
svipaðar kringumstæður.
Ég hlýt að slá viö slöku
í slyngri ljóðamennt.
Það yrkir enginrt stöku
á aðeins tvö prósent.
En þrátt fyrir lokun Ólafs á
dögunum virtust einhverjir
hal'a bngl sig það vel upp af
vini að þetta kom ekki að sök.
V
Þannig var með manninn sem
ég sa á Hótel Sögu helgina
eftir að bannið gcki; í gildi.
Hann var sýnilega mjög
drukkinn þar sem hann sat við
borð og studdi hönd undir
kinn. Þegar ég gekK fram hjá
borðinu hans heyroi ég að hann
sagði. — Þetta hlýtur að vera
skakkt númer, elsku vinur, því
að ég hef ekki síma.
Ég á mér vinkonu vísa.
Ef vil ég hringja í þá píu.
Það eina sem hún segir
er, sautján, fimmtán, tíu.
En þótt ég hafi ekki síma, þá
hef ég glugga. Hann kemur að
visu að litlu gagni þegar ég þarf
að hringja í einhvern. Aftur á
möti gagnar hann mér þeim
mun betur, ef mig langar til að
sjá eitthvað hér fyrir utan
húsið, án þess að hafa fyrir því
að fara út. Þegar ég leit út um
þennan ágæta glugga minn um
daginn sá ég kvenmanninn í
íbúðinni á móti kviknakinn.
Hún horfði svo stíft á mig að
það var engu líkara en hún
hefði aldrei séð nakinn
karlmann fyrr.
Egill Jónasson kvað eitt sinn.
Konur eru erfið gáta
okkur mönnum hérogþar
og ekki batnar ei' þær láta
eins og þær væru fullkomnar.
Ég er alveg frámunalega
latur. Eg nenni til dæmis ekki
alltaf að elda ofan i mig. Mér
fannsl ég þvi hafa fundið gott
ráð urn daginn, ekki síst þar
sem fyrir utan að vera latur er
ég niskur. Ég keypti mér steikt
beikon og hrátt egg. Síðan fór
ég heim og beið eftir að þetta
tvennt færi að rífast og
beikonið spældi eggið.
Einn í fleti fæ mér blund,
það fyrna margir Iá mér,
en ennþá þykist engin hrund
ólnt að sofa hjá mér.
Þetta er að sjálfsögðu fyrir
ofan minn skilning. En ég get
sagt eins og einn kunningi
minn. Þegar ég verð svo gamall
að ég verð ekki fær um að klípa
kvenfólkið sjálfur, þá bið ég
bara einhvern að gera það fyrir
mig.
Næsta vísa er eftir Bjarna
frá Grof.
Mun ég hafa á meyjum lyst
meðan endist þrekið.
Þrettán hafa heimavist
í hjarta mínu tekið.
Margt kvenfólk er afskaplega
viðkvæmt. Ein kunningjakona
mín sagði við mig um daginn
með hneykslun í rómnum. Hvar
lærðirðu eiginlega að kyssa
svona. í Bréfaskóla SlS sagði
ég. I Bréfaskóla SÍS spurði
hún. Hvernig er það nú hægt.
Ég spurði hana hvorl hún hefði
aldrei sett bréf í póst. Hún
sagðist að vísu hafa gert það.
Og hvað gerðirðu við frímerkið
spurði ég. Þá sagði hún:
Ef frímerki lenti auðgrund á,
það ekki myndi hrakið,
hve þætti ykkur indælt þá
á því sleikja bakið.
Annars er hjónasængin
svipuð tunglinu að því leyti að
menn vilja gjarnan skreppa
þangað. Hitt er svo allt annað
mál hvort menn vilja setjast
þar að.
K.N. orti á sínum tíma.
Aldrei brenni—bragða ég vín,
né bragi nenni að tóna.
Fellt hefur ennþá ást til min
engin kvenpersóna.
I tilefni af þessu dettur mér í
hug kvenmaðurinn sem vinnur
á Manntalsskrifstofunni, en
hefur samt ekki tölu á þeim
mönnum, sem hún hefur
elskað.
Þar með læt ég þættinum
lokið.
Ben. Ax.