Dagblaðið - 27.03.1976, Qupperneq 22
Sjónvarp kl. 18.30:
NÝ MYND
BÖRNOG
FYRIR
UNGUNGA
Nú er lokiö myndaflokknum
um Pollyönnu, sem var geysi-
vinsæll bæði meðal barna og
fullorðinna. í staðinn fáum við
að sjá ástralska kvikmynd er
nefnist Viðureign við smygl-
arana.
í myndinni segir frá því er
þrjú börn sem eru á skemmti-
siglingu finna böggul er einn
af skipverjum á flutningaskipi
hefur varpað í sjóinn.
Þeir sem áttu að fá böggulinn
sjá er krakkarnir finna hann og
er þá ekki að sökum að spyrja.
Þýðandi er Ellert Sigur-
björnsson.
—A.Bj.
Útvarpið í kvöld kl. 20.45:
w
The John F. Kennedy Center
for the Performing Arts í
Washington.
„I tveim bandarískum
menningarstððvum"
„Það má kannski segja að
þetta séu leifarnar af því efni
sem ég tók upp í Bandaríkjun-
um, þegar ég var að elta þorsk-
inn á dögunum,” sagði Páll
Heiðar Jónsson, sem hefur
umsjón með þætti er hann
nefnir ,,I tveimur bandarískum
menningarmiðstöðvum.
Páll Heiðar sagðist hafa haft
tækifæri til að komast til
Washington og skoða hina
merkilegu menningarmiðstöð
„Kennedy Cultural Center for
the Performing Arts,” en hún
samanstendur af leikhúsi,
óperuhúsi og hljómleikasal,
einum af þeim beztu í heimi,
þvl er þeir segja vestra. Á leið-
inni heim kom Páll svo við í
Lincoln Center í New York og
fékk viðtal við einn af fram-
kvæmdastjórum stofnunarinn-
ar, sem segir frá starfseminni í
stórum dráttum.
„Ég vii geta þess í sambandi
við þennan þátt,” sagði Páll
Heiðar, „að mér þótti efnið
njóta sín betur með því að út-
varpa viðtölunum á ensku. Að
vísu er efnið endursagt í fáum
orðum, en þaóer kannski ekki
ósanngjarnt að segja að þetta
höfði öllu meira til enskumæl-
andi fólks. Það er þó alls ekki
stefna mín eða útvarpsins að
gera það að reglu að útvarpa á
erlendu tungumáli. Þetta er því
hrein undantekning.” EVI
Sjónvarp kl. 20.35:
NÝR SPURNINGAÞÁTTUR MEÐ
W •• ••
ÞATTTOKU KJORDÆMANNA
í liði Reykjaneskjördæmis eru Sigurveig Guðmundsdóttir, Hafn-
arfirði, Pétur Gautur Kristjánsson, Keflavík og Sigurður Ragn-
arsson, Kópavogi.
Lið Sunnlendinga skipa Jón Einarsson, Skógaskóla, Einar Ei-
ríksson, Vestmannaeyjum og Jóhannes Sigmundsson, Syðra
Langholti, Hrunamannahreppi.
Stjórnandi þáttarins er Jón Asgeirsson íþróttafréttamaður og
dómari er Ingibjörg Guðmuiidsuuiiii.
í kvöld hefst í sjónvarpinu
nýr spurningaþáttur er nefnist
Kjördæmin keppa og verður á
dagskrá sjö næstu laugardags-
kvöld. Keppendur eru fulltrúar
frá hinum ýmsu kjördæmum
Iandsins, eins og nafn þáttarins
ber með sér. í fyrsta þættinum
keppa Reykjanes og Suðurland.
Stjórnandi þáttarins er Jón
Ásgeirsson en dómari er Ingi-
björg Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku annaðist Tage
Ammendrup.
Fólki þykir almennt mjög
gaman að fylgjast með spurn-
ingaþáttum alls konar og
verður fróðlegt að sjá hvernig
kjördæmunum vegnar.
í hléi leikur hljómsveitin
Glitbrá frá Rangárvallasýslu
lög eftir Gylfa Ægisson. Spurn-
ingarnar samdi Helgi Skúli
Kjartansson. —A.Bj.
Sjónvarp kl. 21.05:
Lœknaþóttur-
inn i lit
Sjóveiki er ekki sjúkdómur,
nefnist þátturinn um læknana
vini okkar, sem er á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld kl. 21.05.
Nú eru þeir komnir út á sjó, en
aðeins eru það þrír af góð-
kunningjum okkar, sem eftir eru
i þáttunum, Stuart Clark, Waring
og Loftus, nú í hlutverki. skip-
stjórans.
Þeir lenda í margs konar
ævintýrum að vanda, en kornast
klakklaust í gegn eins og þeirra er
von og vísa. Læknaþátturinn er
sendur út í lit.
Peter Falk t.h. líklega betur þekktur undir nafninu Columbo,
leikur eitt af aðalhlutverkunum í kvikmynd kvöldsins. Kvik-
myndin var tekin árið 1967, og það ár lék Jack Lemmon t.v. í
annarri gamanmynd, „Makalaus sambúð,” á móti Walter
Mathau. Leikritið var sýnt hér í Þjóðleikhúsinu og kvikmyndin
í Háskólabíói.
Sjónvarp kl. 22.25:
Gamanmynd á dag-
skránni í kvöld
Kvikmynd kvöldsins Ást
(Luv) er gerð árið 1967 eftir
gamanleikriti Murrays Schis-
gals sem sýnt var á Broadway
við mikla hrifningu áhorfenda.
Hún fjallar um lif og ástir
miðstéttarfólks í New York,
sem er upptekið af sjálfu sér og
trúir á sálfræðilega aðstoð.
Með aðalhlutverkin fara Jack
Lemmon, Peter Falk og Elaine
May.
i kvikmyndahandbókinni
okkar fær m.vndin tvær og
hálfa stjörnu og þar segir að
jafnvel þótt handritinu hafi
verið breytt bjargi góður leikur
Elaine Ma.v þar öllu um að og
vel megi hlæja að þessari
mynd. Það má lesa milli lín-
anna að farið hafi verið illa
með góðan efnivið i kvikmynd-
inni. eins og svo oft vill verða.
Það má til gamans geta þess
að eitt af aðalhlutverkunum er
í höndum Peter Falk, þess hins
sama sem leikur lögreglu-
foringjann Columbo í
þriðjudagsþáttum sjónvarps-
ins. Gaman að sjá hvernig hann
stóð sig áður en Columbo kom
til sögunnar.
Um efni myndarinnar er það
að segja að aðalpersónan er
komin að því að drekkja sér
þegar gamall skólafélagi
kemur á vettvang og fær hann
ofan af því. Hann býður vini
sinum heim og kynnir hann
fyrir eiginkonu sinni.
Sýningartími er ein klukku-
stund og þrjátíu mínútur.
Þýðandi er Dóra Hafsteins-
dóttir.
A.Bj.
—A.Bj.