Dagblaðið - 27.03.1976, Side 23
DAGBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1976.
23
f
Utvarp
Sjónvarp
i
Útvarpið ó sunnudag kl. 14.00:
//
FATLAÐIRISTARFI
//
,,Það ma vekja á því athygli
að á því herrans ári 1976 er það
engum vandkvæðum bundið að
komast til tunglsins en fatlaður
Arni Gunnarsson ræðir við
fjölda af fötluðu fólki i
þættinum „Fatlaðir í starfi”.
maóur kemst ekki inn í Þjóð-
leikhúsið,” sagði Arni Gunnars-
son sem sér um þátt er nefnist
„Fatlaðir í starfi".
„Þáttur þessi er tengdur al-
þjóðadegi fatlaðra sem einmitt
er á sunnudaginn. Einkunnar-
orð þess dags eru ..Fatlaðir í
starfi”. Tilganguri nn or fyrst
og fremst sá að vekja áhuga
almennings á margvislegum
vandamálum sem fatlaðir eiga
við að stríða,” sagði Árni.
Hann ræðir við fjöldann all-
an af fötluðu fólki sem ýmist
vinnur úti, er í skóla eða vinnur
húsmóðurstörf. Innt er eftir því
hvaða vandamál verði á vegi
þeirra, bæði þegar leitað er að
atvinnu og þegar þarf að
komast til og frá vinnustað.
Raunverulega má segja að
við látum hugtök gabba okkur.
Við tölum gjarnan um almenn-
ingsvagna þegar við tölum um
Strætisvagna Reykjavikur.
Hvernig er það hægt, í raun,
þegar bæklaður maður kemst
ekki upp í þá? Þegar hús eru
reist eða vinnustaðir er aldrei
hugsað fyrir því að sá sem ekki
hefur mátt í báðum fótum
komist inn.
Fáir hugleiða það hrottalega
dæmi: hvernig komast hinir
fötluðu á klósett?
í þættinum verður einnig
flutt tónlist eftir sænskan
mann, Rune Andersson. Hann
er frægur fyrir kveðskap og
söng um fatlaða. Kvæðin verða
flutt í íslenzkri þýðingu. EVI
Það er ekki víða sem við sjáum aðstöðu eins og hér til þess að
komast áfram í hjólastól.
Útvarpið á sunnudag kl. 16.25: Framhaldsleikritið Upp 6 kant við kerfið
1 fjórða þætti í Upp á kant við
kerfið verðum við vitni að því að
vinskapur Davíðs og Maríönnu
verður æ nánari. Hún keppist við
að skilja hann og er óðfús að
hjálpa honum.
Hubert og Lísa, skólasystkini
Davíðs, koma við sögu. Hubert
veit allt bezt og er ákveðinn í að
bæta heiminn. Davíð er skotinni
Lísu en kemur sér ekki að því að
segja henni það. Þau herma eftir
Hollywood-kvikmyndum til þess
að komast hjá því að segja hvað
þeim býr í brjósti.
Læknirinn heldur áfram að
ræða um lífið við Davíð, en lausn
lífsgátunnar finnst ekki í þessum
þætti.
Traubert og Davíð ákveða að
m.vnda varnarbandalag gegn
óvinunum, hverjir sem þeir eru.
Þýðandi leikritsins er Hólm-
fríður Gunnarsdóttir. -EVI
Allir keppost við að lœkna Davíð
Gísli Alfreósson er leikstjóri
framhaldsleikritisins „Upp á
kant við kerfið”.
Útvarpið 6 sunnudagskvöldið kl. 21.45:
#/Geggjaður óstaróður"
Töffari sendir
elskunni sinni Ijóð
„Þetta er úr einu ljóðanna í
„Hraðfryst ljóð” sem heitir
„Geggjaður ástaróður”. Þar segir
frá töffara i ákveðnum bíl sem
sendir stelpunni sinni ljóð í
„Lögum unga fólksins”, auðvitað
með málfari töffara,” sagði Birgir
Svan Símonarson sem les upp úr
fyrrnefndri ljóðabók.
„Þetta er fyrsta bókin sem ég
gef út. Hún er uppseld. Eg er að
Birgir Svan Simonarson hefur
þegar skrifað eina Ijóðabók og
er nieð aðra á prjönunum.
Hann .es upp citt ljöða sinna
annaö kvöld, „Geggjaöur
ástaróður”. DB-mynd Björgvin.
vonum mjög ánægður með það.
Nú er ég að láta prenta meira,”
sagði Birgir. „Jú, ég er með aðra
ljóðabók í bígerð, „Nætursöltuð
ljóð”.
Birgir sagði að „Hraðfryst ljóð”
fjölluðu um hraðfryst líf í litlu
þorpi úti á landsbyggðinni þar
sem fólkið hefur litla aðra
möguleika en að vinna og sofa.
„Ég reyni að ráðast gegn því
þjóðfélagi sem gerir það að
verkum að menn > verði þrælar
við færibönd. Þarna er vinnan
líka orðin rúin öllu mannicgu
gildi. Maðurinn er eins og vél.
Ilann endurtekur alltaf sama
hlutin.
Ýmsir aðrir þættir eru í
bókinni sem sýna lífið í þorpinu.
Það er lýsing á blóðugum
kvikmyndum, • sem sýndar eru í
félagsheimilinu, þáttur um
kvenfélagið og kaupfélagið.
„Eg var fljótur að skrifa hana,”
sagói Birgir Svan „ég byrjaði
strax eftir jólin 1974, þá var ég að
kenna úti á landi, og bókin kom út
i desember síðastliðnum. Þessi
bók er hraðfryst ástarjátning til
verkalýðsins en sú na'sia er méira
undir áhrifum l'rá poppi og allri
þessari poppmenningu, sem
dembt er yfir unga fólkið í út-
varpinu og fjölmiðlum. Við getum
sagt að „Nætursöltuð Ijóð” séu
ástaröður til unga fólksins sem
þessi menning er sett til höfuðs.”
isVl.
d
i)
^ Sjónvarp
LAUGARDAGUR
27. marz
17.00 íþróttir.
Umsjónarmaður Ömar
Ragnarsson.
18.30 Viðureign við smyglara.
Áströlsk kvikmynd. Þrjú
börn á skemmtisiglingu
finna böggul, sem skipverji
á flutningsskipi hefur
varpað í sjóinn. Þeir, sem
böggullinn er ætlaður, sjá er
krakkarnir hirða hann.
Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kjördæmin keppa. Nýr
spurningaþáttur, sem
verður á dagskrá sjö
laugardagskvöld í röð. í
fyrsta þætti keppa
Reykjanes og Suðurland. í
liði Reykjaness eru Pétur
Gautur Kristjánsson,
Keflavík, Sigurveig
Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði og Sigurður
Ragnarsson, Kópavogi, en
lið Sunnlendinga skipa Jón
Einarsson, Skógaskóla,
Einar Eiríksson,
Vestmannaeyjum, og
Jóhannes Sigmundsson,
Syðra-Langholti,
Hrunamannahreppi. í hléi
leikur hljómsv. Glitbrá frá
Rangárvallasýslu lög eftir
Gylfa Ægisson. Stjórnandi
þáttarins er Jón Ásgeirsson,
en dómari Ingibjörg
Guðmundsdóttir.
Spurningarnar samdi Helgi
Skúli Kjartansson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.05 Læknir til sjós L.
Brezkur
gamanmyndaflokkur.
Sjóveiki er ekki sjúkdómur.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
22.00 Vatnið er þeirra land
Fræðslumynd um fólk í
Hong Kong, Makaó og
Taílandi, sem býr í bátum í
höfnum og síkjum. Þýðandi
og þulur Ingi - Karl
Jóhannesson.
22.25 Ast (Luv) Bandarísk
gamanmynu frá árinu 1967.
Aðalhlutverk Jack Lemmon,
Peter Falk og Elaine May.
Harry Berlin er að þvi
kominn að drekkja sér, en
gamlan skólafélaga ber að
og fær hann ofan af
fyrirætlun sinni.
SUNNUDAGUR
28. marz
18.00 Stuii.ön okkar.
Umsjónarmenn Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefáns-
son. Stjórn upptöku Kristín
Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Asgrímur Jónsson
Myndina gerði Ösvaldur
Knudsen árið 1956. Þulur er
dr. Kristján Eldjárn.
20.45 Gamait vín á nýjum
belgjum Italskur mynda-
flokkur um sögu
skemmtanaiðnaðarins. 3.
þáttur. 1930—1945 í þessum
þætti koma fram m.a. Mina,
Raffaella Carra, Nino Tar-
anto og Nilla Pizzi.
21.30 Skuggahverfi Sænskt
framhaldsleikrit í 5 þáttum.
3. þáttur. Efni 2. þáttar:
Baróninn faldi feikn af víni,
áður en hann dó. Baróns-
frúin ætlar að selja Roblad
vínið, og hann kemur frá
Stokkhólmi, en nýi hallar-
eigandinn kemur á sama
tíma. Hann vill engan þátt
eiga í flutningi vínsins.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
(Nordvision-Sænska sjón-
varpið)
22.15 Nú er önnur tíð Kór
Menntaskólans við Hamra-
hlíð flytur tónlist frá 20. öld.
Söngstjóri Þorgerður
Ingólfsdóttir. Stjórn upp-
töku Andrés Indriðason.
Frumflutt 2. ágúst 1975.
22.45 Að kvöldi dags Sigurður
Bjarnason, prestur aðvent-
safnaðarins, flytur hugvekju.
22.55 Dagskrárlok
Útvarp
13.30 Iþróttir. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir. Íslenzkt
mál. Jón Aðalsteinn Jónsson
16.40 Popp á laugardegi
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 Spunastofa Stefáns
amtmanns Þórarinssonar.
Lýður Björnsson
sagnfræðingur flytur fyrra
erindi sitt um nokkur atriði
úr sögu síðari hluta 18.
aldar.
20.00 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar
20.45 Í tveimur bandarískum
menningarmiðstöðvum.
21.45 Létt tónlist frá
ný-sjálenzka útvarpinu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passíusálma (34). Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
28. marz
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Þórir
Stéphensen. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
13.15 Þættir úr nýlendusögu.
Upphaf siglinga Evrópu-
manna til Afríku og Asíu:
Portúgalir. Jón Þ. Þór cand.
mag. flytur fyrsta hádegiser-
indi sitt.
14.00 Fatlaðir í starfi. Þáttur
um starfsaðsöðu fatlaðra,
tekinn saman í tilefni al-
þjóðadags þeirra í samvinnu
við Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra. Umsjónar-
maður: Árni Gunnarsson.
14.45 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátíðinni í Salzburg
í haust. Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leikur. Stjórnandi:
Karl Böhn. Einleikari: Emil
Gilels. a. Sinfónía í C-dúr
(K338) og Menúett í C-dúr
(K409) éftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. b. Píanókons-
ert í a-moll og Sinfónía nr. 4
í d-moll eftir Robert Schu-
mann.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikritið:
„Upp á kant við kerfið”. Olle
Lánsberg bjó til flutnings
eftir sögu Leifs Panduros.
Þýðandi: Hólmfríður Gunn-
arsdóttir. Leikstjóri: Gísli
Alfreðsson. Persónur og
leikendur í fimmta þætti:
Davíð: Hjalti Rögnvaldsson,
Effina: Guðrún Stephensen,
Traubert: Helgi Skúlason,
Schmidt: Ævar R. Kvaran,
Marianna: Helga Stephen-
sen.
17.00 Létt-klassísk tónlist.
17.40 Otvarpssaga barnanna:
Spjall um Indíána. Bryndis
Víglundsdóttir heldur áfram
frásögn sinni (11).
18.00 Stundarkorn með fiðlu-
leikaranum Nathan
Milstein. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Hjónakornin Steini og
Stína”, gamanleikþáttur
eftir Svavar Gests. Persónur
og leikendur í sjöunda
þætti: Steini: Bessi Bjarna-
son, Stína: Þóra Friðriks-
dóttir, Maddy: Valgerður
Dan. Einnig kejnur fram
Jörundur Guðmundsson.
Stjórnandi: Svavar Gests.
19.45 Þórarinn Guðmundsson
tónskáld og fiðluleikari átt-
ræður (27. marz). Þorsteinn
Hannesson ræðir við
Þórarin og leikin verða lög
eftir hann.
20.25 Frá ráðstefnu um
íþróttir og fjölmiðla.
Umsjón: Jón Asgeirsson.
21.10 Pablo Casals leikur á
selló tónlist eftir Granados,
Saint-Saéns, Chopin og
Wagner.
21.45 „Geggjaður ástaróður”,
ljóð eftir Birgi Svan Simon-
arson. Höfundur les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.