Dagblaðið - 27.04.1976, Page 2

Dagblaðið - 27.04.1976, Page 2
da<;blaðið. þkið.judabuk 27. afkíi, 1976 Fer Siglingomálastof nunin ekki eftir reglugerð? Nemi í Stýrimannaskúla ís- lands hringdi: ..Okkur nemendur í Stýri- mannaskóla íslands kom nokk- uó spánskt f.vrir s.jónir yfirlýsing sigiingamálast jóra. Hjáltnars Bárðarsonar. þegar hann lýsti því yfir að stofnun- inni hefði verið ókunnugl um bre.vtingar á Álftanesinu, sem fórst f.vrir skömmu. Annað er okkur kennl um þær reglur er Siglingamálastofnunin á að fylgja. Úr kennslu í sjörétti er eftirfarandi. Hvenær á skoðun á skipum að fara fram? Og svarið er: 1. Skip eru skoðuð reglulega ár hvert. 2. í hvert sinn er skipi er hleypt af stokkum, eða eftir að veru- legar umbætur hafa farið fram á því, þar á meðal eftir að skipt hefur verið um vél I skipinu. 3. Lögreglustjóri eða siglinga- málastjóri gefa úl haffæris- skírteini að lokinni aðalskoðun. 1 samræmi við þetta á sigl- ingamálastofnunin að vita um breytingar þær er gerðar voru á Álftanesinu. Okkur hér í Stýri- mannaskólanum finnst hæpið að vera að kenna okkur reglur sem svo alls ekki er farið eftir.” Raddir lesenda Þjóðum ber oð vinna saman en ekki slíta stjórn- málasambandi Það er ekki nóg að keyra Arnarbakkann á fullu og tilkynna: EFTIRLITSFERÐ UM BREIÐ- HOLT 1 LOKIÐ! ALLT RÓLEGT A.T.T. skrifar: „Tilefm þessara lína. er skrif T.B. i lesendadálks Tím- ans 11/3. Minnist bréfritari þar á af- brot barna og unglinga í Breið- holti. og að áhyggjur hafi látið á sér kræla um að hugsanlega séu að mvndast glæpafélög meðal harna og unglinga þar. Máli sinu til stuðnings nefnir hann afbrot svo sem þjófnaði og inn- brot. Einnig segir hann orðrétt: ,,En, nú er mér spurn. hvernig getur fólkið í þessu fjöl- mennasta og jafnframt nýjasta hverfi Reykjavikur. búið við þessi ósköp? Eftir lýsingunum að dæma getur varla nokkrum heiðarlegum manni verið vært í hverfinu.” Jæja. nú langar mig til að fræða bréfritara, og aðra. um ýmislegt sem tíðkazt hefur, í a.m.k neðra Breiðholti. frá fyrstu tíó. Til dæmis þctta: Þegar íbúðum í Breiðholti I var út- hlutað var búið svo um hnútana að beztu íbúðirnar fóru til þeirra sem stóðu næst hugsjón borgarstjórnar (þ.e.a.s. sjálf- stæðismenn). Aðrir sem enga áttu að, voru svo „heppnir” að einhver góðvinur úthlutaði þeint íbúð gegn eins og 10.000 kalli. sem þótti þó nokkur pen- ingur í þá daga (1968). Er þetta nú ekki spilling? Næst er það varðandi glæpa- félög í hverfinu. Þau hafa verið starfandi frá fyrstu tíð. „Starfs- svið” þeirra var (er) m.a. vasa- þófrtaðir. rán. innbrot. nauðg- anir og margt fleira. Ef einhver skyldi efast, þá ætla ég að taka það fram að ég hef sjálfur verið viðriðinn einn glæpaflokk (sem að öllum líkindum starfar enn í dag) og tala því af re.vnslu. „Starfstími” okkar var nokkuð óreglulegur á sumrin, i f.vrsta lagi eftir klukkan 11 —11.30 á kvöldin. En á vet- urna byrjuðum við um 9-leytið. Þegar ég dró mig út úr þessum ógeðfellda „bransa” (1974) var félagið í örum vexti. Tvennu má kenna um: áfengi annars vcgar og sjón- varpi hins vegar. Þó held ég að glæpir séu fremur i rénun vegna þess að mesta nýjabrum- ið er farið af sjónvarpinu og þess vegna horfi 7—12 ára börn ekki nærri því eins mikið á sjónvarp eins og jafnaldrar þeirra gerðu f.vrir nokkrum ár- umsíðan. Að lokum vil ég segja það að löggan hefði getað bjargað miklu ef hún hefði reynt að skyggnast svolítið um i hverf- inu i stað þess að bruna einn hring á Arnarbakka á fullu og tilkynna siðan niður á stöð: „Eftirlitsferð unt Breiðholt I lokið. Allt rólegt". Kannski getur hún enn bjargað væntanlegum fórnar- löntbum unglinga á glapstigum í Breiðholti." Asbjörn Pétursson skrifar: „Ríkisstjórnir eru kjarni hverrar þjóðar og vilja þegnum sinum það bezta og ekki láta hlunnfara þá, svo er með ríkis- stjórn Íslands og Bretlands. Þó gera ríkisstjórnir þegnum sínum oft á tíðum grikk svo að einstaklingar standa ekki undir því alla sína ævi, svo grátt leika þær þegna sína þótt almenn- ingur taki ekki undir með ein- staklingnum. Margur framtaks- samur maður hefur orðið fyrir barðinu á þessum ríkisstjórn- um er eignir þeirra hafa verið teknar af þeim — og þær vítis- kvalir hugsar enginn um — aðeins það var gott á helvítið og svo framvegis. Nei. eignir eru teknar af mönnum víðar en I Rússlandi, Ungverjalandi, Lettlandi eða kannski við köllum þetta bara allt saman Rússland, sem er nú einna bezta f.vrirmyndin á þessu sviði. Þar sem ríkisstjórnir eru nú svo framtakssamar. og margar iðngreinar þurfa ekki mann- skap lengur vegna hraða tækn- innar. þvi í ósköpunum hafa þær ekki meira samstarf sín i milli, þegar að þær vita að brauð jarðarinnar er allra sem á jörðinni búa, —ogenginn má hafa meira en annar? Nú er það vitað mál að fisk- iðnaður Breta stendur ekki undir sér og öll þjóðin verður að borga hallann. Nú er það líka að íslendingar hafa lagt I stórvirki sem þeir ætla að klára — orkuverið við Kröflu. Þarna er orka sem íslendingar þurfa ekki á að halda um langan tíma — nema því aðeins að stóriðnaður komi þarna og ekki fyrirsjáanlegt að islendingar geti hagnýtt sér hana nema með hjálp annarra. Hérna er verkefni fyrir Breta og islendinga að vinna saman þvi Bretar eiga mikinn orku- frekan iðnað sem þeir gætu látið svo fullvinna í þeim borgum sem verst verða úti af atvinnuleysi í fiskiðnaði. — Þetta er náttúrlega engin lausn, en „ðeins vottur um að ríkisstjórnum beri að vinna saman, en ekki slita stjórnmála- sambandi hvor við aðra til að gera málin ennþá erfiðari og setja þau í strand. Þótt fleira kunni að bera á milli þá er ekki svo lítill hópur bæði karla og kvenna af brezkum og íslenzkum ættum sem hefur gifzt allt frá því að tsland byggðist og óneitanlega er sk.vldleikinn og -inátta þjóð- anna betri til samstarfs. þótt á henni þurfi ekki að halda, því báðar þjóðirnir byggir gestrisið og hjartahreint fólk — nema hvað rikisstjórnirnar eru vondar." Blaðamenn œttu að láta staðreyndirnar Siggi f'lug 7877—8083 skrilar: Það hlýtur að vera hugsandi mönnum ihugunarefni hve sum dagbliið okkar lala illa um aðrar þjóðir og forustumenn þeirra. þjöðir sem eru helztu viðskiptaþjóðir okkai' og sem okkur ríður á að halda vinfengi við. Eg er um þessar mundir staddur erlendis, en mér berast islenzk dagblöö. og reyni ég að lesti mér til gagns livað fram f'er á gamla Eróni. Það vakti athygli mína að i oinu daghlaðanna okkar var sagt frá þvi að við helðuni gert „stierstu samninga sem ís- lendingar hafa gerf', við Spánverja og l’ortúgali vegna kaupa á sallliski. Við Íslendingar eriiin býsna liarðu í dómum okkar uiii aörar þjóðir. og liafa Ineði Spánverjar og Portúgalir sannanlega ekki farið varhluta af því að undan- förnu. Í einu islenzku dagblaðanna var sagt frá þvi. að Spinola frá Portúgal hafi verið „rekinn úr landi " (frá Sviss) vegna þess að hann hefði farið til Vestur- Þýzkalands þeirra erinda að afla vopna og fjármagns til valdaráns i Portúgal. A islenzku máli er þó nokkur miimir a hvorl einhver hafi virið „rekinn ' úr landi eða ..visað” ur laudi. en hið íslenzka l„,i() valdi hið Ijótára orðatiltæki al' því að það þjönaði blaöinu betur. Það getur vel verið að þeir sem að þessu islenzka dagblaði slanda aðíiyllisl ekki hugmyndir Spinola. en i l’ortúgal eru vafalausl margir seni fylgja hontim að ináluni. en þau mál eru innanríkisinál þeirra, alveg eins og deilurnar á Spáni eru innanríkismál þeirra, og sem við höfiím engan rétt til að skipta okkur af. Það er því miður olt þannig að ekki er sama liver skiptir sér af hverjum. þvi það voru ekki Kússar sem voru að skipta sér af' innanrikismáluni Tékka og Ungverja uni árið, nei. það voru frelsarar þessara þjóða sem óku rússneskum skriðdrek- um um giilui' Prag og Budapest og myrlu fjiilda saklausra liorg- ara. Evrir allmörgum árum var manni vísað úr landi (íslandi) vegna skril'a hans í erlendu blaði.og þótti ganga landráðum næst. Skrif sumra islenzkra blaða n ni aörar þjóðir og þjóð- höl'öingja þeirrá linnasl mér ganga landráðum niest. Við þurfum mjiig á vinfengi við er- lend ríki að halda og allt sem getur skemmt samband okkar við þau, hvort sem er viðskipta- lega eða menningarlega á að mínum dómi að liljóta þyngstu dóma Nú skal enginn skilja orð mín ■þannig. að ég se aö miela með þvi að við tiikum upp einhvers konar ritskoðun, þvi l'er viðs Ijarri. — en það er ekki sama hvernig sagt er frá ýmsum lilulum. og það ættu blaðainenn að athuga mjög gamngiefilega. Þegar dvalið er í erlendum löndum. og maður tekur að lesa dagblöð. er það mjög áberandi bve hlutlaust er sagt frá fréttum. aldrei ..svigurmielum" beitt. en staðreyndir látnar duga. Þetta lettum við að tileinka okkur i blöðunum okkar. við lslendingar þar sem varla er lengur luegt að skrifa imi jafnvel hin veigamestu landsmál án þess að ata þau pcrsónulegum ádeilum.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.