Dagblaðið - 27.04.1976, Page 8

Dagblaðið - 27.04.1976, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRItí.JUDAGUR 27. APRtL 1976 70 KVARTMÍLUMENN í HÓPAKSTRI: Teikning af kapp- akstursbrautinni við Geithóls í athugun „Nú sér hann Franklín rautt,” varð einum kvartmílumanni að orði er hann sá þessa mynd á ritstjórn Dagblaðsins. Franklín þessi er helzti hatursmaður Bif- riðaeftirlitsins gegn breiðum dekkjum undir bifreiðum. DB-mynd Ragnar Th. Kvartmíluklúbburinn efndi til hópaksturs um Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð sl. laugardag. Ferð þessi var farin til að vekja athygli fólks á klúbbnum og kvartmilu- brautinni sem i ráði er að byggja við Geitháls. Að sögn Örvars Sigurðssonar, formanns Kvartmíluklúbbsins, tóku um sjötíu bílar þátt I þessum hópakstri. Tölfróður maður tjáði þó Dagblaðinu, að þeir hefðu verið tæplega hundrað svo að einhverjir hafa ef til vill svindlað sér í röðina. Fyllsta samráð var haft við lögregluna er hópferðin var farin. Lögregluþjónar óku meira að segja í fararbroddi og stöðvuðu alla umferð til að kvartmílumenn kæmust leiðar sinnar. Að hópakstrinum loknum var yfirmönnum umferðardeildar lögreglunnar boðið í kaffi á Hótel Loftleiðum. Félagsmenn Kvart- míluklúbbsins fara nú senn að verða langeygir eftir því að aðalbaráttumál þeirra — kappakstursbrautin við Geit- háls — komist í framkvæmd. Teikningar af brautinni eru nú í athugun hjá Skipulagsdeild Reykjavíkurborgar. -AT- Áherzla lögð á íslenzkar aðstœður tóri „Eg hef nú slitið öllum mínum skóm í Reykjavík og hef hugsað mér að gera það á meðan ég tóri.” sagði Mey- vant Sigurðsson á Eiði, heiðursfélagi Reykjavíkur- félagsins. Hann komst allt í einu í þá aðstöðu að vera kominn í Seltjarnarnesbæ við það að hreppamörkin milli Reykjavíkur og Seltjarnarness voru flutt til. „Þetta á eftir að fara fyrir Alþingi, áður en þessi breyting á mörkunum öðlast gildi,” sagði Meyvant. „Það hefur hún ekki gert enn svo á meðan er ég I Reykjavík. Nú leita ég mér að íbúðarhúsnæði og verð fluttur þegar Alþingi sam- þykkir breytinguna. -EVI. Meyvant fyrlr utan hús si'tt'a Eiði. Yerð Reyk- víkingur meðan ég Skipulagið ó Kjalornesi: OTTUÐUST MANNFÆKKUN — því var þéttbýlið skipulagt Hugmyndir að þéttbýlis- kjörnum eins og þeim sem nú er fyrirhugaður uppi á Kjalar- nesi eru ekki nýjar. Þær hafa komið upp alltaf öðru hverju. Ekki eingöngu í nágrenni Reykjavíkur heldur einnig við nokkra kaupstaði úti á landi. Við ræddum við skipulags- stjóra ríkisins í tilefni nýskipu- lags íbúðarhúsasvæðisins á Kjalarnesi og fengum hjá honum hinarýmsu upplýsingar varðandi skipulagið. Viða úti um landið er til þéttbýli utan kaupstaða og eru það yfirleitt hálfgerð „vandræðasvæði”. Þegar þéttbýlið er komið þarf að gera samgöngurnar greiðari milli þess og kaupstaðarins og lendir það yfirleitt á kaup- staðnum. Einnig mun í fæstum tilvikum þar séð nægilega vel fyrir þjónustu við íbúa, læknis- þjónustu, atvinnu og skólum. Hefur þetta allt yfirleitt verið sótt til kaupstaðarins og meira til. Þörf Kjalnesinga fyrir skipu- lag líkt og það sem nú hefir verið gert var orðin allmikil vegna fyrirsjáanlegrar fólks- fækkunar í sveitinni. Hafa lög- fræðingar úr Reykjavík keypt þarna býli sem þeir leggja í eyði, fólkið flyzt brott en eng- inn nýr kemur í staðinn. I nýja þéttbýlinu á Kjalar- nesi mun verða séð fyrir flest- um þörfum íbúanna, skólar eru fyrir hendi og atvinnusvæði eru skipulögð jafnhliða íbúðar- húsasvæðum. En spurningin er aftur á móti hvort einhver at- vinnurekandi muni síðan not- færa sér þessi svæði til að byggja á yfir atvinnurekstur sinn. Á það hefur enn ekki reynt en aðstandendur skipu- lagsins virðast þó engu að síður vonast til að atvinnurekendur muni sjá hag sinn í því að flytja eða stofna til atvinnureksturs uppi á Kjalarnesi. B.H. Stjórn Bloðamannafélags- ins mótmœlir banni loftskeytamanna Stjórn Blaðamannafélags Islands gerði eftirfarandi sam- þykkt á fundi sínum hinn 26. apríl: Stjórn Blaðamannafélags Islands mótmælir banni loft- skeytamanna á fréttasendingar islenzks blaðamanns frá brezkri freigátu á íslands- miðum enda styðjist bann þetta við hæpnar forsendur. Má á það benda að brezkir fréttamenn hafa óhindrað, svo sem sjálfsagt er, fengið að senda fréttir sínar Irá islenz.k- um varðskipum um íslenzkt fjarskiptakerfi og til fjölmiðla sinna ytra. Einnig má benda á að umrætl bann er sambærilegt við það að stöðvaðar væru fréttasend- ingar frá brezkum freigátum á íslandsmiðum sem koma á fjar- rita íslenzkra fjölmiðla. Blaðamannafélag íslands harmar að æðstu yfirvöld pósts- og simamála hér á landi skuli ekki geta tr.vggt hagsmuni íslenzkra fréttastofnana í þess- um efnum. —BS Vöruskiptajöfnuðurinn janúar til marz: Óhagstœður um tœpa 5 milljarða Vöruskiptajöfnuðurinn í marz- mánuði var óhagstæður um 2.169,6 milljónir króna. Er það meira en helmingi lægri upphæð í krónutölu en var í marz í fyrra en þess ber að geta að meðalgengi erlends gjalde.vris í marz 1976 er talið vera 7,15% hærra en það var í sama ntánuði í fyrra. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu 3 mánuði þessa árs er óhagstæður um 4.866,4 millj. kröna en á sama tíma i f.vrra var hann öhagstæður um 7.362 inilljónir kr. i janúar til marz nú í ár var flutt inn f.vrir 15.979 milljónir en út fyrir 11.112,6 milljónir. Meginmis- m'uninn á minni halla vöru- skiptajafnaðar nú og í f.vrra er að finna í mjög auknum útflutningi f.vrstu þrjá mánuði þessa árs, úiiðað við sama tíma í fyrra. Á1 og álmelmi hefur í ár verið flutt út fyrir 1.089,2 milljónir. Til Landsvirkjunar hefur verið flutt inn í ár fyrir 557,8 milljönir kr. 87.3 milljónir til Kröfluvirkjunar og Alfélagið hefur flutt inn fyrir 1.030.6 millj. kr. í nýrri íslenzkri matreiðslubók Góður málsverður verður ekki til af sjálfu sér og því nauðsynlegt að hafa einhverjar bækur til þess að glugga í þegar á að undirbúa hann. Einnig krefjast nútíma lifnaðarhættir þess að sá sem undirbýr, kaupir inn og matreiðií kunni nokkur skil á hlutunum. Einnig er gott að geta matréftf einfaldar máltíðir með hjálp uppskrifta óg leiðarvísa, án þess að málið sé gert of flókið. ísafoldarprentsmiðja hefur sent frá sér nýja matreiðslubók er heitir við matreiðum. Er hún eftir húsmæðrakennarana Bryndísi Steinþórsdóttur og Önnu Gísla- dóttur. Bókin er um 300 bls. á stærð og eru um 750 uppskriftir í henni. Lögð er höfuðáherzla á islenzkar aðstæður í vali hráefna til matargerðarinnar. Útlit bókarinnar er mjög smekklegt. -A. Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.