Dagblaðið - 27.04.1976, Qupperneq 14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1976
(—----------------------
Þaö er víst ekki ofsögum sagt
eftir alla þessa hátiöisdaga
núna undanfarið að hús-
mæður séu orðnar þreyttar á
öllu þessu matarstússi. Ekki er
að efa að nokkrir eiga líka
erfitt með aö konta aö sér
buxnastrengnum og hjá enn
fleirum hefur buddan oröið
mun léttari.
Þess vegna datt okkur
svona í hug að koma nteð
nokkrar uppástungur um
máltíðir, sem annaö hvort eru
megrandi, koma lítt viö
pyngjuna eða hreinlega spara
okkur smátíma, svo að við
getum sinnt öðrum
hugðarefnum en mat...
Hellið yfir þetta lög sem í er
youghurt. sítrónusafi, sykur,
lauksalt, steinselja (persil) og
d 111.
Látið þetta liggja í leginum í 10
mínútur. Borið fram með
bóndabrauði. maltbrauði eða
heilhveitibrauði
(um 25 mín.).
Fiskréttur
Setjið örlítið vatn og
smjörlíki í nott. raðið ýsu-
flökum og laukhringjum í
hann og síráið saiti og pipar
yfir. Sjóðio við hægan hita.
Borið fram með soðnum kart
öflum og rúgbrauði
(um 25 mín. ).
Reykt síld
Roðflettið reykta síld. Setjið
hana fallega á disk með hrárri
eggjarauðu og söxuöum
blaðlauk (eða lítið eitt af mjög
smátt söxuðum lauk). Beriö
fram soðnar kartöflur með
(um 25 mínútur).
Hangikjötssalat
Við getum líka notað annað
en hangikjöt, eins og til dærnis
skinku eða jafnvel saltkjöt.
Blandið saman kjötræmunum,
agúrku, soðnum kartöflum,
tómötum (má sleppa) og lauk í
skál.
Lauksúpa
Sjóðið pakkasúpu. Ristið
nokkrar franskbrauðssneiðar
og raðið ofan á og stráið síóan
rifnum osti yfir. Bakið í ofni
við meðalhita
(um 25 mín.).
Svikið pizzapœ
Skerið formbrauð í tvennt
eftir endilöngu. Smyrjið og
saxið niður lauk. Setjið hann á
ásamt tómatsósu, rifnum osti
hvítlaukssalti og sardínum.
Bakið í ofni
(um 25 mín.).
Franskt buff með
frönskum kartöflum
Steikið sneiðar af meyru
nautakjöti. Þrjár mín. á hvorri
hlið (eftir þykkt). Berið fram
með sítrónusneið og
persilsmjöri, sem hægt er að
kaupa tilbúið. Kaupið tilbúnar
franskar kartöflur
(um 20 mín.).
Kjötbollur
Steikið bollurnar og berið
fram með hvítkálssalati. I þvi
er appelsína skorin i litla bita,
hvítlaukssalt, sýrður rjómi
(creme fraiche) og majones. i
stað hvítkálssalats má nota
kartöflusalat, ef soðnar
kartöflur eru til í ísskápnum. I
því er saxaður laukur. „sweet
pickles” saxaður, majones hvít-
laukssalt og harðsoðin egg
(um 25 mín.).
Var neitað um
vegabréfsáritun
Þeir verða bara að
dúsa heima
Sovézka hljómsveitarstjóran-
um Gennadi hefur verið
neitað um vegabréfsáritun en
hann átti að stjórna Fíl-
harmóníusveit Stokkhólms-
borgar á hljómlistarhátíð í maí
næstkomandi.
Hljómsveitarstjórinn,
Rojedtevski, sem stjórnað
hefur hljómsveitinni i vetur
fékk á sínum tima vegabréfs-
áritun. Hún gengur úr gildi
aðeins fáum dögum áður en
hljómlistarhátíðin hefst.
Vonaðist hann til þess að fá
framlengingu á árituninni, en
var synjað.
Hugsið ykkur um tvisvar
— óður en þið bjargið jórnbrautarlest
Það er ekki allt unnið með
því að bjarga heilli járn-
brautarlest frá glötun. Ron Mil-
es, 26 ára gamall t'rá St. Albans
í Englandi. komst að því um
daginn.
Hann hafði verið að hjóla
heim eitt kvöldið er hann sá, að
tréstaurar lágu þvert yfir járn-
brautarteinana og farþegalest-
in nálgaðist óðfluga.
Miles þreif luktina af
hjólinu. tók sér stöðit á teinun-
um ug ,eifaði til lestarstjórans,
sem tókst að stöðva aðeins fáa
faðma frá piltinum.
Kn þakklætið sem hann
hlaut var að lögreglan komst
að því. að reiðhjólið var stolið
og lann hann þar að auki sekan
um að hafa hnuplað ávísunum
upp á 100 þúsund krónur frá
vinnuveitanda sínum.
Um daginn var því hetjan
Ron Miles dæmd í 15 mánaða
fangelsi og litil var huggunin
þegar þakkarbréfið frá brezku
járnbrautunum barst honum í
fangelsió.
Honum var að vísu þakkað
fyrir hugulsemina en einnig
alvarlega bent á, að hann hefði
verið i öleyfi á einkalöð og hon-
um sagt að finna sér aðra leið
heim til sin. Að öðrum kosti
yrði gripiö til harðari aðgerða
gegn honum.
Það verður sennilega nokk-
ur bið á þvi að Ron Miles bjargi
aftur járnbrautarlest.
málsverðir
til
grenningar
Lifur með bacon
Setjið lifur og örlitið bacon
til skiptis á grilltein. Penslið
með 1 tsk. af matarolíu, kryddið
með salti og pipar. Grillið í 8
mínútur. Síöan er blanda af
ediki, kjötkrafti (teningur),
vatni, salti;pipar og hvítlauks-
salti hellt yfir. Borið fram með
hrásalati (um 350 hita-
einingar).
EIGUM VIÐ
AÐ SPARA,
FLÝTA —
EÐA GRENNA
OKKUR?
Þorskahrogn
Tvær þykkar sneiðar af
þorskahrognum úr dós eru
hitaðar upp í örlitlu smjörlíki á
pönnu.
Með þessu er borið fram
hrásalat sem í er rifin gulrót
og epli með sítrónusafa yfir
(um 275 he.).
Eggjaréttur
Hitið lítinn skammt af frosnu
blönduðu grænmeti (má nota
blandað úr dós). Látið lítið eitt
af því í form. Þeytið tvö egg
með svolitlu vatni, salti og
pipar. Hellið yfir. Sjóðið í vatns
baði þangað til eggin eru
stíf. Berið fram afganginn af
grænmetinu (um 275he.).
Blómkólssúpa.
Sjóðið H blómkálshöfuð og
nterjið í gegnum gróft sigti.
Jafnið hana með eggjarauðu.
Berið fram snittubrauð með
(um 200 he.).
Vi
/
— uppskriftir að máltíðum
í þessum tilvikum
________________________/
Penni
framtíðar-
innar
Næst þegar þú ætlar að fá
þér nýjan kúlupenna skaltu
athuga hvort ekki séu komnir á
markaðinn hér afbragðsgóðir
pennar sent eru með ínn-
byggðri tölvu.
Þið haldið kannski að við sé-
um að gera grín en svo er alls
ekki. Að vísu höfunt við ekki
he.vrt getið um þessa penna á
markaðnum hérlendis en þessir
pennar eru komnir í verzlanir í
Bandaríkjunum og eru væntan-
legir í danskar búðir innan
skamms.
Þeir kosta einar litlar 550
danskar krónur sem er unt
J5.400 isl. kr. Við erum svoddan
flottræflar hér á Islandi að ekki
kænti mér á óvart þótt einhver
skólakrakkinn kæmi með svona
penna í reikningstíma.
Þessir pennar eru úr ryðfriu
stáli og með níu töflu ljós-
skernti. Hægt er að reikna ein-
földustu reikningsaðferðir með
pennanum og sömuleiðis
prósentureikning. Notaðar eru
1,5 volta rafhliiður i hann. Með
stööugri notkun endast þa>r í
tvo tima.
Tölvupenninn kemur að
sjálfsögðu frá Bandaríkjununt
en er framleiddur í Japan.
Tölvupenninn hefur eitt
fram yfir vasatölvurnar,
það er luegt að
skrifa með honuiu.