Dagblaðið - 18.06.1976, Page 2

Dagblaðið - 18.06.1976, Page 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JUNl 1976. Ekki spurning um borgoðor eða óborgaðar mellur — mólið er meira alvörumól og skyldi ekki hafa það íflimtingum Jón Arngrímsson, Háteigsvegi 52, skrifar: „Yfirlýsing Páls Ásgeirs Tryggvasonar í Dagblaðinu 9. júní, er gott dæmi um skrif- stofumennsku. Annaðhvort segir Páll Ásgeir ósatt eða hann hefur byggt á upplýsingum frá „réttum opinberum aðilum“ sem vísvitandi hafa skýrt ósatt frá um mál tveggja Þjóðverja sem hafa verið til umræðu í blöðunum undandarið. Á sínum tíma réð ég þessa tvo Þjóðverja í vinnu hjá varnarliðinu. Þar sem þeir voru ekki ísl. ríkisborgarar voru þeir settir í dollarakaup. Það gæti valdið þeim mis- skilningi að þeir hefðu verið ráðnir erlendis. Ef ég man rétt greiddu þeir enga skatta þar eð þeir voru ekki amerískir Ætli varnariiðið hafi kjarnorkusprengjufiugvélar til að berja á Rússum? borgarar. Þótt þeir hafi síðar unnið sig upp þá vinna þeir við störf sama eðlis og í upphafi. Þó um endurráðningu kynni að hafa verið að ræða, undirritaða í New York, breytir það engu um eðli málsins þar eð þeir hafa alltaf haldið áfram störf- um. Undirskrift mín til sam- þykkis ráðningu þeirra er á upphaflegum ráðningarsamn- ingi! En þetta mál er svo smátt að tæplega tekur að nefna það. Ekki er sanngjarnt að eltast við einstakar persónur. Málið er mikið stærra. Við umræður um varnarmál hefur það komið berlega í ljós að starfsmenn varnarmáladeildar eru alls ókunnugir starfsemi vallarins, samanber er þeir voru að lýsa því yfir að Kanar hefðu svikizt um að verja landið sómasam- lega. Þeir hefðu ekki kjarna- sprengjur til að berja á Rússun- um. Þeir virðast fara eftir upp- iýsingum „þar til settra opin- berra starfsmanna“ (sem virðast vera í CIA-mafíunni). Væri nú ekki ráð að þeir menn, sem þekktu starfssemina, sætu næstu endurskoðun varnar- samningsins? Sú endurskoðun hlýtur að fara fram innan skamms. Þjóðin þolir ekki annað. Punktar eins og þeir, sem Jónas Kristjánsson bendir á i leiðara í Dagblaðinu 9. júní, verða að koma inn í þann ramma. Glósur eins og Ingólfur Pálmason sendi í Dagblaðinu eiga hér ekki við. Málið er miklu meira alvörumál fyrir íslenzku þjóðina. Hér á ekki við hvort við viljum láta nota okkur sem borgaðar eða óborg- aðar mellur. Hitt er spurning hvort húseigandi sé háður leigj- anda sínum. Hvort bóndi selji sjálfan sig ef hann leigir jörð sina. Hvort hann glati óðalsrétti sínum við það“. Athugasemd varðandi sjónvarpsstrókinn Palla Að marggefnu tilefni í blaða- skrifum um barnatíma Sjón- varpsins, „Stundina okkar,“ og fjarveru „Páls Vilhjálmssonar“ í tveimur síðustu þáttunum á þessu vori skal þetta tekið fram: Um síðustu áramót, þegar Guðrún Helgadóttir tókst á hendur að semja þann texta, sem Palli átti að flytja og Gísli Rúnar Jónsson tók við stjórn brúðunnar og flutningi textans, var samið urn ákveðnar greiðsl- ur til þeirra fyrir hvern þátt, sömu upphæð til beggja, og gengu þau umtölulaust að þeim skilmálum, sem þeim voru boðnir. Eftir um það bil tvo mánuði, þegar sýnt var, að þessi samvinna gafst vel ogPalli hafði náð vinsældum, voru greiðslur þessar hækkaðar um þriðjung eftirtölulaust. Af Sjónvarpsins hálfu var litið svo á, að um bindandi samkomulag væri að ræða, á meðan „ Stundin okkar‘i væri á dag- skrá í vor, þ.e. fram á hvíta- sunnu. Þegar eftir var að taka upp þátt Palla í tveimur síðustu „Stundunum" á þessu vori, kom Gísli Rúnar að máli við undirritaðan og krafðist hækkunar á þóknun sinni. Rök- studdi hann kröfuna aðallega með þeim vinsældum, sem honum hefðu hlotnazt í gervi Palla, auk þess sem hann, sagðist eiga verulegan hlut í textanum. En samkomulag hafði verið um það milli þeirra Guðrúnar, að honuin væri heimilt að víkja til orðum frá handriti, eftir því sem honum þætti fara betur í munni. Upptöku á samtölum þeirra Palla og Sigríðar M. Guðmunds- dóttur hefur verið hagað þannig, að tekið hefur verið upp á einum degi efni í þrjá barnatíma. Til undirbúnings taldi Gísli Rúnar sig hafa þurft annan dag. Fyrir þessa tvo daga hefur hann fengið greidda þóknun, sem nemur tímakaupi dagskrármanna í Sjónvarpinu fyrir rúmlega 44 vinnustundir eða meira en fjórðungi mánaðarlauna. Þessa upphæð þótti ekki fært að hækka, m.a. vegna fordæmis. Það skal tekið fram, að Guðrún Helgadóttir hefur engar kröfur gert I þessu sam- bandi, og hefur samvinna vTð hana verið hin ánægjulegasta að öllu leyti. Og vonir standa til að Palli komi hress og kátur úr sveitinni með haustinu. 14. júni 1976. Jón Þórarinsson dagskrárstjóri. Það tók því að sleppa matar- tímanum „Sóldýrkandi“ sendi okkur þessa visu. Varð vísan til er hann einn sólardaginn sleppti matmálstima en hugðist njóta útiveru á Arnarhóli: Ylríkt vori Arnarhól í ótal liti prjónar. Fólkið þarna fagnar sól, fyllibyttur og rónar sífellt gera lífið leitt lögreglan sér ekki neitt. Sterk utanhiíssmálníng með óvenju fallegri áferð co c to Hraun sparar vinnu og peninga Ein umferð af þessari frábæru utanhúss- málningu frá Málningu h/f jafngildir 3 til 4 umferðum af venjulegri plastmálningu. Hraun hefur ótrúlega góða viðloðun við flest byggingarefni og frábært veðrunarþol. Hraun fæst með tvennskonar áferð, — fínni eða grófri. HRAUN SENDIN PLASTMÁLNING málning'f

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.