Dagblaðið - 18.06.1976, Side 24

Dagblaðið - 18.06.1976, Side 24
Hátíðahöldin 17. júní: Fánaberi handtekinn í miðbœnum — veitti lögreglu harða mótspyrnu Lögreglan handsamaði í fyrrinótt ungan mann, sem var á ferð í miðbænum með Is- lenzka fánann. Að vonum þótti dularfullt, að drukkið ung- menni væri komið í svo mikið þjóðhátíðarskap, að það léti sér ekki nægja að sveifla papp- írsfána heldur hefði á lofti heilt flagg án flaggstangar. Lögreglan stöðvaði því kauða og vildi, að hann gerði grein fyrir ferðum sínum. Fánaberinn var hins vegar ekki á því að gefa neina skýr- ingu á ferðum sínuum. Eftir nokkra viðureign tókst þó lög- reglunni að ná stolti Islenzku þjóðarinnar af honum og maðurinn fékk gistingu í fangageymslu. — AT — Harður árekstur á Háaleitis- brautinni Mjög harður árekstur varð laust fyrir miðnætti í nótt, er leigubifreið og einkabíll skullu saman á gatnamótum Háaleitis- brautar og Hvassaleitis á móts við bensínstöð Esso. Slys urðu ekki alvarleg. Þó fékk stúlka í leigubif- reiðinni höfuðhögg og er talin hafa hlotið heilahrist- ing. Einnig fékk farþegi f einkabifreiðinni skurð á hvirfil, er hann rakst upp í topp bifreiðarinnar. Að sögn lögreglunnar voru tildrög slyssins þau, að leigubifreiðin kom akandi eftir Háaleitsbrautinni. Einkabíllinn kom frá Hvassaleiti og ók viðstöðu- laust inn í hlið hins. Mjög miklar skemmdir urðu á báðum bílunum. Er slysið varð var veður mjög gott, svo að ekki er hægt að kenna um slæmu skyggni. Ekki s. reyndist unnt að reikna út' hraða bílanna frá hemla- förum, þar eð hvorugum gafst tími til að hemla. — AT — Bréfin voru fölsuð Rannsóknarlögregkin stað- festir bréfaskiptin í Síðumúlofangelsi — sölumoðurinn slapp úr varðhaldi og fékk 15 mánaða dóm tveim dögum áður en hann bauð bréfin til kaups Bréfin, sem sögð voru frá Sævari M. Siecielski og átti að hafa verið smyglað út úr Síðumúlafangelsinu í Reykja- vik, voru fölsuð, að sögn Arnar Höskuldssonar, saka- dómara í Geirfinns- og Guð- mundarmálunum. Pilturínn, sem bauð Dagblaðinu og fleiri blöðum þau til kaups fyrir hundrað þúsund krónur, hefur verið hnepptur í varðhald á ný. En pótt bréfin hafi verið- fölsuð, þá breytir það engu urn sannleiksgildi fréttar DB í fyrradag. Bréfaskipti fóru fram á milli Sævars og sölumannsins misheppnaða í fangelsinu, en þau bréf voru öll gerð upptæk. að sögn Arnar Höskuldssonar. Pilturinn, sem hér um ræðir, er aðeins 17 ára gamall. Hann var handtekinn í marz sl. vegna þátttöku sinnar í nokkrum stór- þjófnuðum. Á föstudaginn i síðustu viku féll síðan dómur i máli hans og var hann dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi. A laugardaginn var honum sleppt þar til hann hæfi afplánun refsingar sinnar og á mánu- daginn hafði hann samband við DB og fleiri blöð og bauð bréfin til kaups. Eins og sagði í blaðinu á miðvikudaginn, þá hafnaði DB tilboði piltsins.-ÓV. frjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 18. JÚNl 1976. GERT RAÐ FYRIR 6500 MANNA BYGGD — verðlaun af hent fyrir hugmyndir að aðalskipulagi Seltjarnarness Afhent voru verðlaun við opnun sýningar í Valhúsaskóla á tillögum um aðalskipulag Sel- tjarnarneskaupstaðar i gær, 17. júní. Bæjarstjórnin efndi til hug- myndasamkeppni um aðalskipu- lagið 15. nóv. 1975 og bárust 12 tillögur. Fyrstu verðlaun hlaut tillaga nr. 8, kr. 550 þús. Höfundar: Ormar Þór Guðmundsson, Örnólfur Hall, Magni Baldursson, Gunnar G. Einarsson og Jóhann Gunnarsson. Önnur verðlaun, til- Iaga nr. 10, kr. 400 þús. Höfundar: Gestur Olafsson, Ililmar Þór Björnsson og Örn Sigurðsson. Þriðju verðlaun, tillaga nr. 12. Höfundar:. Gylfi Guðjónsson og Sturla Sighvatsson arkitektar, samstarfsmenn: Björn Gústafsson verkfræðingur og Sigurþór Aðal- steinsson, arkitekt. 1 dómnefnd voru Karl B. Guð- mundsson, formaður. Guðrún Jónsdóttir, Njáll Þorsteinsson, Pálmar Ölason, Sigurgeir Sigurðs- son, Stefán Benediktsson og Steindór Haarde. í tillögu nr. 8 og 12 er endanleg- ur íbúafjöldi 6500 manns en í nr. 10 er hann 5000 manns. Ef við segjum aðeins frá umsögnum dómnefndar kemst hún að þeirri niöurstöðu með nr. 8 að úrlausn verkefnisins sé í samræmi við þau markmið sem höfundar setja fram í upphafi: Skýra og styrkja stöðu bæjarfélagsins sem sjálf- stæös sveitarfélags og taka fullt tillit til nábýlisins við höfuðborg- ina. Utivistarsvæðin vestast á nes- inu eru mjög aðlaðandi og byggðin skýrt afmörkuð til vest- urs með hringvegi. Tengsl Nes- stofu við Bakkatjörn eru hins vegar ekki góð. Telur dómnefnd- in óæskilegt að ráðgera byggingar milli stofunnar og tjarnarinnar. Nr. 10. Höfundar setja mjög skýrt fram mótaða heildarstefnu í máli og myndum. Meginkostur til- lögunnar er sú áherzla sem lögð er á ósnortið náttúrufar á sam- felldu svæði vestast á nesinu og hvernig það svæði tengist Nes- stofu. Staðsetning miðbæjar og iðnaðarsvæða á Eiði hafa áber- andi ókosti. Nr. 12. Hugmyndir höfunda að miðbæ og samfelldum útivistar- svæðum eru góðar en tillaga að vegakerfi ekki til neinna úrbóta frá núverandi ástandi. Náttúru- verndarmarkmið skila sér ekki í tillögunni, svo sem blön'dun frið- lands og útivistar og nálægð byggðar við Bakkatjörn. Lögð er áherzla á verndun gamalla húsa. Valhúsahæð er opið svæði i góðum tengslum við Norður- og Suðurströnd. EVI » Hér er kvsst á „miðju stræti er kona ung og heit....“ og annað par skoðar trúlofunarhringana hjá einunt skartgripasala borgarinnar. (DB-m.vndir Arni Páll). Að sögn lögreglunnar í Reykjavik fóru hátíðahöldin í gær og gærkvöld með eindæmum friðsamlega fram. Sömu sögu er að segja annars staðar að af landinu. Alls staðar skemmtu ungir og aldnir sér saman eins og bezt verður á kosið. Fangageymslur lögreglunnar í Re.vkjavík fylltust ekki, sem hlýtur að heyra til tiðinda, þar sem stundum kemur fyrir að þar er hvert rúm upptekið jafnvel á mánudegi. — Hátíða- höldunum í gær má því lýsa bezt með orðum varðstjórans, sem Dagblaðið hafði samband við í morgun: „Hér var allt friðsamlegra en á föstudegi." -AT- Svo sem sjá má af myndinni er Range Roverinn mikið skemmdur ef ekki ónýtur eftir brunann. Hjá bílnum stendur eigandi hans ívar Haildórsson. DB-mynd Haraldur Hansen. ALLT FÓR FRIÐSAMLEGAR FRAM EN Á VENJULEGUM FÖSTUDEGI Range Rover brann „til kaldra kola" Nýlegur Range Rover jeppi gereyðilagðist í eldi skammt frá Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli í gærdag. Slökkviliðið frá Akureyri hélt þegar á staðinn. Þar sem það þurfti að fara um 10 kílómetra leið og mestan hlutann upp brattar brekkur með þungan vatnsbíl, var bíllinn orðinn stórskemmdur er það kom á vettvang. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er ekki kannað af hvaða ástæðum kviknaði í jeppanum, en talið er að bilun hafi orðið í rafkerfi. -AT-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.