Dagblaðið - 19.07.1976, Qupperneq 19
I> \<;m,AÐH>. — MANUDACUR 19. JULt 1976.
19
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Engin batamerki hjó ÍBK!
— Fram sigraði baráttulaust lið ÍBK 2-1 í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu og er aðeins stigi á ef tir Yal
„Það er af sem áður var,‘‘ sagði
áhorfandi að loknum leik Fram
og ÍBK i 1. deild ísiandsmótsins í
knattspyrnu. Og hann héit áfram:
„Keflvíkingar hafa í gegnum árin
verið þekktir fyrir góða bar-
áttu og samstöðu — en nú er þetta
f.vrir róða og þvi lítið eftir. Kefl-
víkingar hafa lítið fram að færa í
isiandsmótinu í ár.“
Undir þessi orð áhorfandans
má fyllilega taka — baráttulaust
lið Keflvíkinga var Fram lítil
hindrun í gærkvöld. Fram sigraði
2-1 — í tilþrifalitlum leik í meira
lagi. Knötturinn gekk lengst af
mótherja á milli. — En sigur
Fram var fyllilega verðskuldaður.
Mun meiri barátta var með leik-
mönnum Fram — þeir voru fljót-
ari á knöttinn. þó ef til vill árang-
urinn væri ekki alltaf sem erfiðið.
Fram fylgir nú Val — hefur
aðeins hlotið stigi minna, en
leikið einum leik meira. Allt
getur því gerzt það sem eftir lifir
tslandsmótsins þó auðvitað sé
staða Valsmanna mjög sterk.
Fram varð f.vrra til að skora í
gærkvöld og þar var aó verki
landsliðsmaðurinn Marteinn
Geirsson. Pétur Ormslev tók langt
innkast — kastaði yel inn í víta-
teig Keflvikinga.
Þorsteinn Ölafsson ætlaði að
slá knöttinn frá — en tókst ekki
betur en svo að knötturinn barst
út í teig — þaðan til Marteins sem
sendi knöttinn rakleiðis í net-
möskvana, 1-0.
Fátt markvert gerðist í hálf-
leiknum annað — þó fengu Kefl-
víkingar ágætt tækifæri, raunar
áður en Fram skoraði. en Arni
Stefánsson var vel á verði í marki
Fram. Varði með stakri prýði.
Fram hélt uppteknum hætti í
siðari hálfteik — leikmenn liðsins
voru ávallt fyrri til í knöttinn á
meðan Keflvíkingar biðu eftir að
knötturinn bærist til þeirra. En
hins vegar — Keflvíkingar
jöfnuðu á 15. mínútu. Karl Her-
mannsson átti í höggi við Sigur-
berg Sigsteinsson, en hann Iék í
stað Jóns Péturssonar sem er
meiddur. Knötturinn barst til
Gunnars Jónssonar, sem gaf'fyrir
til Einars Gunnarssonar. Einar
var ekkert að tvínóna við hlutina
— skaut þrumuskoti frá vítateig,
óverjandi fyrir Arna þó nærrí
væri að verja. 1-1.
En dýrðin stóð ekki lengi —
aðeins fjórum mínútum siðar brá
Guóni Kjartanssn hinum mark-
sækna Kristni Jörundssyni innan
vitateigs og Guðjón Finnbogason,
dómari leiksins dæmdi umsvifa-
laust vítasp.vrnu. Marteinn Geirs-
son skoraði örugglega framhjá
Þorsteini Olafssyni.
Skömmu síðar tókst Kristni
Jörundss.vni að skora — hann
skallaði knöttinn laglega í markið
en var dæmdur hárfínt rang-
stæður. Oheppinn þar, drengur-
inn.
Það sem eftir lifði leiks gerðist
fátt maikvert. Rétt eins og bæði
lið sættu sig fyllilega við úr-
slitin. Keflvikingar ógnuðu
marki Fram aldrei verulega. Þó
var einn maður tilbúinn að taka á
öllu lið Fram — Þórir Sigfússon.
Þessi eldfljóti og hættulegi út-
herji lék Agúst Guðmundsson
grátt í síðari hálfleik — beinlínis
stakk hann af. En allt kom fyrir
ekki — Þóri vantaði aðstoð sam-
herja sinna.
Fram sýndi i gærkvöld einn
sinn slakasta leik í sumar. Þrátt
fyrir það nægði það til sigurs —
það kann góðri lukku að stýra
fyrir Fram. Enda úr því sem
komið er, þá er Fram líklegasta
liðið til að veita Val keppni um
Islandsmeistaratignina.
Sama deyfðin og rikt hefur með
Keflvíkingum i íslandsmótinu
var í gærkvöld. Iæikmenn biðu
alltaf eftir knettinum — en
auðvitað voru Framarar fyrri til
Það eru því enn engin batamerki
með Keflvikingum.
Leikinn dæmdi Guðjón Finn-
bogason.
Steinar Jóhannsson gcrir heiðarlega tilraun til markskots en knötturinn fór himinhátt yfir. Agúst Guðmundsson f.vlgist með — skelfingu
lostinn. DB-m.vnd Bjarnleifur.
h.halls.