Dagblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 12
12 , i . Manch. Utd. vann mót- herja Kef I- víkinga Ensku knattspyrnuliðin eru nú sem óðast að undirbúa sig fyrir leiktimabiiið — ferðast vítt og breitt til le.ikja. IVIanch. Utd. liðið. sem vakti hvað mesta at- hygli á síðasta leiktímabili. lék nýlega við Hamburg SV, eitt sterkasta lið Yestur-Þýzkalands. Leikið var í Hamborg, en United sigraði samt 3-1. Þeir Sammy Mcllroy, Stuart Pearson og Gerry Daly skoruðu mörk Manchester-' liðsins. Hamburger SV var meðal efstu liða í Bundeslígunni í vor — og í næsta mánuði leika Keflvíkingar við þetta ágæta lið í Evrópu- keppni bikarhafa. En það eru fleiri en ensku liðin. sem ferðast um og leika. Þannig léku nýkrýndir meistarar Suður-Ameríku, Cruseiro frá Braziliu. við frönsku meistarana. St. Etienne. í Frakklandi í gær. Jafntefli varð 1-1. Revelli náði forustu fyrir Frakka á 17. mín. Melhino jafnaði á 61. mín. og tvívegis eftir það áttu Braí.zarnir stangarskot. Cruseiro var suður- amerískur meistari í fyrri viku. Sigraði þá River Plate eftir þrjá leiki. Það er í fyrsta skipti í 13 ár. sem lið frá Braziliu hlýtur þenn- an titil. Evrópukeppnin í knattspyrnu hefst í dag Evrópukeppnin í knattspyrnu hefst í dag, en þá leika Cardiff. Wales. og Servette, Sviss, í Evrópubikar bikarhafa í Cardiff í forleik fyrir fyrstu umferð. Cardiff, sem sigraði í bikar- keppni Wales, lék í 3ju deildinni ensku á siðasta leiktímabili, en vann sér rétt til að leika í 2. deild. Þetta er i níunda skipti síðustu 12 árin, sem Cardiff tekur þátt í Evrópukeppni. Svissneska liðið er talið sigurstranglegra í viður- eign félaganna. Það hefur sex svissneskum landsliðsmönnum á að skipa — og svo Martin Chivers, sem i sumar var keyptur frá Tottenham fyrir áttatiu þúsund sterlingspund. Stóri Chivers hefur gert það gott með Servette. Hann skoraði fimm mörk í fjórum leikjum i Alpa-bikarnum og kom þar með Servette í úrslit í þeirri keppni, sem staðið hefur yfir að undanförnu. Síðari leikur Servette og Cardiff verður í Genf 11. ágúst og sigurvegarinn leikur við sovézku hikarmeistarana í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa. Fó að vera Pierre Trudeau, forsætisráð- herra Kanada, skýrði frá þvi i Ottawa í gær, að Sergei Nemtsa- nov, hinn 17 ára sovézki dýfinga- maður. sem bað um hæli i Kanada meðan á Olympíuleikunum stóð, hefði gert það af frjálsum vilja og mundi ekki verða þvingaður til að fara heim. Sovétríkin gerðu um tíma mikið veður út af flótta Nemtsa- nov og hótuðu að hætta þátttöku á leikunum tvo síðustu keppnisdag- ana ef pilti yrði ekki skilað í olympíuþorpið á ný. Sú hótun var hins vegar drcgin til baka. Trudeau forsætisráðherra bætti því við í gær, að vegna aldurs yrði Nemtsanov að fá nægan tíma til umhugunar — ef hann vildi breyta um skoðun. Honum hefur verið tryggður réttur til að dvelja í Kanada fram til 1. janúar 1977. Sama rétt hafa fjórir aðrir flöttamenn fengið — allt Rúmenar, sem báðu um hæli sem pólitískir flóttamenn á leik- unum. FIMLEIKASÝNING SE DAGBLADIf). — MIDVIKUDAGUR 4. ÁGUST 1976. Áhorfendur í Laugardalshöll- inni — með forseta tslands, Kristján Eldjárn, Halldóru for- setafrú, og Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, í broddi fylkingar — stóðu á fætur í lok fimleikasýningar sovézku olvmpíufaranna í gærkvöld og hylltu þá lengi og ákaft. Það var verðskuldað lófatak, sem þetta mikla afreksfólk hlaut — fim- leikasýning þess i Laugar- dalshöilinni glevmist aldrei þeim, sem á horfðu. Þar sam- einaðist frábær leikni — mikil dirfska — hreint ótrúleg hæfni í hinum crfiöustu æfingum ásamt því fínasta fína i fimleikum nú- tímans. Ogleymanleg kvöldstund. Ásgeir Guðmundssón, for- maður Fimleikasambands íslands, kynnti hina sovézku gesti í byrjun sýningarinnar — Nelli Kim, eina af stórstjörnum Olympíuieikanna í Montreal, sem á þrenn gullverðlaun frá leikunum í pússi sínu. Elviru Saadi, þá glæsilegu konu, litlu Maríu Filatovu, sem vann hug og hjörtu allra í Laugardalshöll ekki síður en i Montreal, Svetlönu Grozdovu, sem er við' upphaf ferils, sem áreiðanlega á eftir að verða mjög glæsilegur — og Irenu Devine. sem er sovézkur meistari í nútíma fimleikum. Glæsileg stúlka. Og meistarana fjóra í ■fimleikum karla — Alexander Krysin, Vladimir Marchenco, Vladimir Sofrov og hinn 18 ára Alexander Thachev. Það merkilega skeði að þeir héldu meira en sínum hlut við að vinna hylli áhorfenda í hinni hörðu samkeppni við stúlkurnar snjöllu. F'imleikar kvenna er það. sem mest hefur hrifið fólk í flestum löndum heims síðustu árin — og það þarf því mikla snillinga til að standast samanburð við hinar snjöllu sovézku fimleikakonur. En það tókst þessum mönnum vel í gær — enda frábærir snillingar hver á sínu sviði. og langfremstú fimleikamenn. sem sýnt hafa listir sínar hér á landi. Hugsið ykkur — Alexander Krysin í þreföldu heljarstökki af svifrá. Einn þriggja manna í heiminum, sem getur framkvæmt það atriði Það var mikil eftirvænting. þegar sovézka fimleikafólkið hóf æfingar i gærkvöld — síðan sýningar — og i lokin leyndi hrifningin sér ekki á hverju andliti. Það var mikið klappað — ekki síður forsetinn og forsætis- ráðherrann. en hinir minnstu nteðal ahorfenda. Gamlir fimleikakappar islenzkir — konur sem karlar — voru orðlausir i hnfni sinni. Hvert atriðið öðru betra sást á fjölum Laugardalshallarinnar — atriði. sem kostað hafa áralanga þjálfun.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.