Dagblaðið - 01.09.1976, Page 14

Dagblaðið - 01.09.1976, Page 14
DAGBLAÐIÐ. — MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 197P- 14 r Rocfc 'n' Roll festival '76: Þar verður fjörið í kvöld Þá fer senn stóra stundin að renna upp fyrir þá, sem aldrei hafa verið á stórhljómleikum. Rock ’n’ Roll hljómleikar Óttars Felix Haukssonar hefjast klukkan hálfníu í kvöld. Það þarf varla að kynna það lesendum poppsíðunnar, hvaða hljómsveitir koma fram á hljómleikunum. Ef það skyldi samt hafa farið fram hjá einhverjum unnanda popptón- listar, þá er þar saman kominn rjóminn af íslenzkum rokk- hljómsveitum. Það eru Paradís, Celsius, Cabaret, Fresh og Eik. Reyndar hefði verið skemmtilegt að sjá nokkrar fleiri hljómsveitir á. sviðinu f Laugardalshöll í kvöld. Þar má nefna Hauka sem enn hafa ekki leikið fyrir Reykvíkinga. Þá hefðu Galdra- karlar einnig mátt láta sjá sig, en það verður ekki við öllu séð. Sjónvarpið er búið að fá leyfi til að taka tónleikana upp á myndsegulband. Deila FÍH, Óttars og Sjónvarpsins, sem reyndist engin deila, heldur smá misskilningur. er farsæl- lega leyst. Tony Cook hinn brezki verður á hljóðupptöku- tækjunum. Aldrei stóð nein deila um hans hlut í tónleikunum. Hann undir- ritaði strax samninga um að fá greiðslu í íslenzkum þúsund- köllum og skozkri viskiflösku, svo að hann verður vonandi ánægður með sinn hlut. I salnum verður staddur f kvöld bandarískur umboðs- maður, Kramer að nafni. Ef hann sér og heyrir eitthvað, sem honum finnst brúklegt, þá er hann tilbúinn að gera þann hinn sama að stjörnu í Banda- ríkjunum. Kramer er annars’ einkaumboðsmaður söngkon- unnar áströlsku, Oliviu Newt- on-John og fleiri bandariskra skemmtikrafta. Þá er ekkert eftir nema að tryggja sér miða og skella sér síðan í Höllina með tónleika- skap í maganum. Síðast voru haldnir stórir íslenzkir popptónleikar fyrir sjö árum og óvíst er að nokkur nenni að standa í slíkum framkvæmd- um næstu sjö árin. Ef allt tekst vel á Óttar Felix Hauksson miklar þakkir skildar. Ef mis- tök verða, sem vonandi verður þó ekki — nú þá geta áheyrendur bara skammazt i lesendadálkum Dagblaðsins. -ÁT- pR-KI-l

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.