Dagblaðið - 21.09.1976, Side 1
2. ARG. - - ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 — 210. TBL. •RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOÚTI 2, SÍMI E7022
• •
w w
MENNTAMALARAÐHERRA GENGURI BERHÖGG VIÐ FRÆÐSLURÁÐ
ÞEIR ERU ENN
Á EFTIR BRAGA
Rök róðherra
„Gurtmumiur Sveinsson,
skólasl jóri Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. óskaði cftir því að
Rögnvald’ ’■ Sæmundsson yrði
settur aðstoðarskól.astjóri,1'
sagði Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra í viðtali
við Dagblaðið í morgun. Hann
sagði ennfremur: „Fræðsluráð
Reykjavíkur mælti með dr.
Braga Jósepssyni, en fræðslu-
stjórinn í Reykjavík mælir í
umsögn sinni með Rögnvaldi.
Sú afstaða ráðuneytisins að
setja Rögnvald í þessa stöðu
byggist á framangreindu."
Ráðherra gat þess, að ekki
væri skyldugt að leita um-
sagnar fræðslustjóra, en að
það hefði þó verið gert, enda
ekki bannað.
Málið rœtt utan dagskrár á fundi borgarráðs í dag
Menntamálaráðherra setti
Rögnvaid Sæmundsson
aðstoðarskólastjóra í Fjölbrauta
skótann í Breiðholti þrátt
fyrir það að Fræðsluráð
Reykjavíkur mælti nær
einróma með dr. Braga Jóseps-
syni í stöðuna.
Borgarráðsfundur mun fjalla
um þetta mál utan dagskrár á
fundi sínuin í dag, eftir því sem
góðar heimildir segja.
„Þetta er ekkert annað en
ofsókn," sagðf dr. Bragi Jósefs-
son í viðtali við Ðagblaðið, er
hann var inntur eftir viðhorfi
til þeirrar ráðstöfunar mennta-
málaráðherra að ganga fram
hjá honum í stöðu aðstoðar-
skólastjóra við Fiölbrauta-
skólann í Breiðholti. „Annars
er mér orðið svo kalt til þess
manns, þ.e. menntamála-
ráðherra, að mér er hyggilegast
að segja sem minnst um þetta
mál að svo koranu," sagði dr.
Bragi.
„Fræðsluráð Reykjavikur
hefur sýnt hug sinn í málinu og
tjáð ráðuneytinu hann. Við at-
kvæðagreiðslu í fræðsluráði
fékk dr. Bragi meðmæli 5 ráðs-
manna, Rögnvaldur Sæmunds-
son meðmæli eins en einn seðill
var auður. Fræðsluráð mælti
þannig eindregið með dr. Braga
Jósepssyni,'' sagði Ragnar
Júlíusson, formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur.
Ragnar kvaðst ekki enri hafa
fengið i hendur formlega stað-
festingu á þeirri ráðstöfun
ráðherra, sem gengur i berhögg
við vilja fræðsluráðsins, og
ekki vilja tjá sig um málið
frekar að svo komnu.
Þess má þó geta að hugsan-
legt er, að fleiri umsagnir en
álit fræðsluráðs varðandi stöðu-
veitingu þessa hafi legið fyrir.
Meðal annars er það athyglis-
vert, að fræðslustjóri Reykja-
víkur, sem er framkvæmda-
stjóri fræðsiuráðs, er sam-
kvæmt nýrri reglugerð, orðinn
ríkisstarfsmaður eftir því sem
‘ næst verður komizt.
Þess má geta að dr. Bragi
.Jósepsson höfðaði á sínum tíma
skaðabótamál gegn mennta-
málaráðherra og fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
vegna ólögmætrar . brott-
vikningar úr starfi deildar-
stjóra í ráðuneytinu. í héraði
féll dómur þannig, að ríkis-
sjóður var dæmdur til að greiða
hátt á fjórðu milljón króna í
skaðabætur til dr. Braga auk
málskostnaðar. Var þessum
dómi áfrýjað og gagnáfrýjað til
Hæstaréttar.
-B.S.
Hlaupið fer vaxandi
Skeiðarárhlaupið eykst hægt og sigandi. Beljar nú vatnsflauinur
s-ein að magni til er hátt á 4. þúsund rúininetrar á sekúndu niður
eftir sandinum. Varnargarðar og brýr standa enn vel fyrir sínu og
eru ekki í vfirvofandi hættu. Niðri á sandinuin er áin 2,5 km að
breidd og hvergi sést á e.vrar. DB-mynd Páll Steingrimsson
„Það eru ekki miklar
breytingar en heldur fer hlaupið
vaxandi," sagði Ragnar Stefáns-
son bóndi að Skaftafelli. Helgi
Hallgrímsson og fleiri frá Vega-
gerðinni fylgjast með hlaupinu í
Skeiðará, Sigurjón Rist vatna-
mælingamaður og menn frá Orku-
stofnun. „Menn eru sífellt að
koma og fara frá þessum stofnun-
um,“ sagði Ragnar. Engar
skemmdir hafa orðið á mann-
virkjum utan þess að einn síma-
staur brotnaði í fyrradag svo að
símasambandslaust hefur verið
yfir Skeiðarársandinn.
Vatnsflaumurinn stefnir mest á
brúna og er næstum samfelldur
en hann liggur ekki þungt á
varnargörðum ts er afar litill og
lítilsháttar vatn er komið í Gígju-
kvísl á vestanverðum sandinum.
Á hádegi í gær mældist
rennslið í Skeiðará 3.200 rúm-
metrar á sekúndu.
EVI
Fyrsta fisksala í Englandi eftir þorskastríð:
DAGNÝ FÉKK 140-170 KR. FYRIR KÍLÓIÐ
hvert kíló og ýsuverðið var 140-
145 krónur hvert kíló.
Mjög gott verð er á fisk-
mörkuðum í Englandi nú, en
ekkert mun afráðið um frekari
sölur íslenzkra skipa.
Skuttogarinn Dagný frá
Siglufirði seldi í Grimsbv í
morgun f.vrstur íslenzkra
togara frá því þorskastríðinu
lauk. Dagný fékk mjög gott
verð fyrir afla stnn og má gera
ráð fyrir að heildarsala skipsins
verði rúmlega 20 milljónir
króna. sagði Jón Olgeirsson
ræðismaður í morgun.
Dagný seldi í morgun fyrir
alls 42.067 sterlingspund eða
13,5 millj. kr. Eftir er að selja
63 tonn af frystum fiski.
Þorskafli skipsins fór á 155-
160 kr. hvert kíló að meðaltali.
kolinn fór á 160-170 krónur
ENIGA,
MENIGA,
PABBI
GRÆÐIR
PENINGA
Sjá kjallaragrein
Halldórs Halldórssonar
bls. 11
Póstmenn
nœstir til
verkfalls-
aðgerða
— Sjá bls. 8
„Eg hef
haldið
framhjá...
i huganum
— segir Jimmy
Carter i viðtali
við Playboy
— Sjá erl. fréttir
á bls. 6-7