Dagblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 6
I)
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976.
„Ég hef oft haldið framhjá
— en aðeins í hjarta mínu"
— segir Jimmy Carter í viðtali við Playboy
„Eg hef litið á fjölda kven-
manna með ágirnd og hef oft-
sinnis haldið framhjá... en
aðeins í hjarta mínu. Þetta er
hlutur, sem guð veit að ég geri
og þá leyfi ég mér það. Ég veit
að guð fyrirgefur mér allt
slíkt.“ Þetta sagði Jimmy
Carter forsetaframbjóðandi
demokrata í viðtali við tímarit-
ið Playboy.
,,En,“ bætti hann við i viðtal-
inu. „Þetta þýðir ekki að ég sé
ásáttur við þá menn, sem líta á
konur með ágirnd og yfirgefa
síðan eiginkonur sínar til að
lifa með þeim sem þeir
ágirnast.
Jesús Kristur segir okkur að
álíta okkur ekki betri en náung-
ann. einungis vegna þess að
hann haldi fram hjá konu sinni
með fjölda annarra kvenna
meðan við erum trúir eigin-
konum okkar. Hinn trúi eigin-
maður ætti ekki að fyllast
sjálfsréttlæti og stolti, því að í
hjarta sínu er hann jafn synd-
ugur og hinn ótrúi.“
Og Jimmy Carter bætti við:
„Kristur setti okkur mönnun-
um næstum því of strangar
reglur... Sjálfur er ég mann-
legur og skapmikill...“
Jody Powell blaðafulltrúi
Carters sagði fréttamönnum að
trú forsetaefnisins, baptisminn,
segði að ágirnd hugans gagn-
vart konum væri jafn syndsam-
leg og raunverulegt framhjá-
hald. Hann kvað því Carter
vera að lýsa því yfir að hann
væri jafn mannlegur og hver
annar, og gæti því ekki for-
dæmt aðra fyrir framhjáhald.
„Það sem Carter segir okkur
í þessu viðtali er það að við
eigum að setja okkur mikil tak-
mörk en ekki vera of fljótir á
okkur að dæma aðra,“ sagði
Powell.
Skyldi Jimmy Carter hafa
fyllzt girnd hugans til þessarar
konu?
Flugslysið í Tyrklandi:
SJÓNARVOTTA GREINIR
Á UM TILDRÖG SLYSSINS
Yfirvöld í Tyrklandi hófu strax
í gær að kanna flugslysið mikla,
er Boeing 727 flugvél fórst á flug-
leiðinni frá Istambul til strand-
bæjarins Antalya seint á sunnu-
dagskvöld. Með flugvélinni voru
147 farþegar og sjö manna áhöfn.
Allir fórust í slysinu.
Sjónarvottar að flugslysinu
voru yfirheyrðir í gær. Þá greinir
mjög á um tildrög slyssins. Sumir
segja að eldur hafi kviknað í flug-
vélinni á meðan hún var enn í
loftinu. Aðrir halda þvi fram að
eldur hafi ekki brotizt út fyrr en
vélin skall niður á rúmlega 2000
metra háu fjalli, sem er skammt
frá borginni Isparta. Þá greinir
sjónarvotta einnig á um, hvort
sprenging hafi orðið í Boeing
vélinni í flugi eða eftir að hún
rakst á fjallið.
Farþegar vélarinnar voru
flestir ítalskir og vesturþýzkir
ferðamenn, sem hugsðust eyða
sumarleyfi sínu í Tyrklandi. — í
gær var svarta kassanum, sem
hefur að geyma öll fjarskipti flug-
vélarinnar, bjargað úr flakinu.
Svíþjóð:
Ný stjóm eftir 4. okt.
ii'**i'v**
Borgaraflokkarnir þrír í
Sviþjóð, sem á sunnudaginn
sigruðu í þingkosningunum þar
í landi, hefja i dag viðræður um
myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Olof Palme, fráfarandi for-
sætisráðherra, lagði lausnar-
beiðni sína og ráðuneytis síns
fyrir forseta þingsins í gær-
kvöld, þegar úrslit kosninganna
lágu fyrir.
Thorbjörn FaMdin, væntanlega
næsti forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, hefur í dag stjórnarmynd-
unarviðræöur.
Palme og samráðherrar hans
voru beðnir að annast stjórnar-
störf þar til ný ríkisstjórn
hefur verið mynduð, en eins og
fram hefur komið er talið að sú
stjórn verði undir forsæti Thor-
björns Fálldins, leiðtoga Mið-
flokksins.
Ekki er talið að ráðherralisti
hinnar nýju stjórnar verði
lagður fram fyrr en eftir 4.
október, þegar þing kemur sam-
an á ný. Þar munu borgara-
flokkarnir hafa ellefu þingsæta
meirihluta yfir Jafnaðarmenn
Palmes og samstarfsflokk
þeirra á þingi, Vinstri flokkinn-
Kommúnistana.
Neovletta:
NÝ PILLUTEGUND MEÐ
MINNIAUKAVERKANIR
Færri aukaverkanir en meira
öryggi, segir sænska blaðið Dag-
ens Nyheter að hægt sé að segja
um niðurstöður rannsókna á nýrri
tegund getnaöarvarnataflna,
Neovletta. sem settar voru á
markað í Svíþjóð fyrir um það bil
ári.
Þessi pillutegund hefur lægra
hormónahlutfall en aðrar pillu-
tegundir á almennum markaði í
Svíþjóð og er það talin ástæða
þess, að aukaverkanirnar eru
minni.
í áðurnefndri rannsókn var
gerð tilraun með pilluna á 430
konum á tíu sjúkrahúsum og náði
tilraunatímabilið samtals yfir
nærri fjögur þúsund mánuði.
Engin kona varð þunguð á þess-
um tíma .
Fyrstu mánuðina, sem konan
noíar Neovletta, eru blæðingar þó
nokkuð tiðari en gerist og gengur,
en eftir því sem á líður jafnast
millibilið á milli blæðinga og
verður síðan eðlilegt.
Þessi pillutegund er seld í tíu
löndum utan Svíþjóðar, en fæst
þó ekki hérlendis enn sem komið
er.
Panama:
Vopnaðir hermenn
sundruðu andófi
— beittu táragasi og gúmmíkúlum
gegn 300 stúdentum í morgun
Hundruð hermanna sátu í
morgun um háskólann í
Panama, en aðhöfðust ekkert
gegn fjölda stúdenta sem
höfðust þar við. Þangað höfðu
stúdentarnir flúið eftir að
herinn sundraði mótmæla-
göngu sem þeir fóru í.
Það voru alls um 300
stúdentar, — flestir trotskist-
ar, — sem leituðu hælis í
skólanum. Þeir höfðu farið í
göngu til að mótmæla hækk-
andi verðlagi á matvælum í
Jandinu. Sjónarvottar segja að
lögregla hafi notað gúmmí-
kúlur og táragas til að sundra
göngunni.
Yfirvöld í Panama hafa
Fangar höfðu
lyklavöldin
Fyrstu fangar í glænýju
fangelsi í. bænum Wilcannia í
Nýja Suður-Wales, Ástralíu,
ráku heldur betur upp stór
augu, þegar þeim voru afhent-
ir lyklar að klefum þeirra um
leið og þeim var stungið inn.
Skýringin kom þó von bráðar.
Ekki var hægt að læsa
klefunum nema innan frá.
Hurðasmiðunum höfðu
orðið þau mistök á að snúa
læsingunum öfugt, það er að
skráargatið var innan á. Síðan
urðu íarigarnir að læsa sjálfir
og henda lyklunum til fanga-
varðanna.
Þessi mistök hafa nú ven
löguð.
ekkert látið hafa eftir sér opin-
beriega vegna þessa máls.
Ahorfendur að aðgerðunum
segja að um 50 manns hafi
verið handteknir. Mótmæli
gegn hækkandi verðlagi hófust
í síðustu viku.
Lætin í gær voru þau mestu í
Panama síðan fyrst fór að bera
á ókyrrð í " landinu, 10.
september. Ökyrrðin hófst í há-
skólanum, en breiddist fljótt út
meðal verkamanna. Þetta eru
mestu mótmæli, sem viðhöfð
hafa verið í Panama, síðan
Omar Torrijos hershöfðingi
komst til valda með herinn að
baki sér árið 1968.
Kosið til EBE-
þingsins 1978
Utanríkisráðherrar EBE-
landanna hafa undirritað
plagg, sem gerir þegnum
aðildarrikja bandalagsins
kleift að kjósa til Evrópuþings
í beinum kosningum ekki siðar
en 1978.
Þetta gerist þó á þeim tíma
sem bandalagið er staðnað og
er sögð vera útbreidd skoðun
meðal embættismanna og
diplómata í Brussel að undir-
ritunin geti ekki haft mikil
bætandi áhrif á bandalagið
sem stendur.
Samkomulagið, sem næst nú
eftir margra mánaða erfiðar
samningaviðræður, gerir ráð
fyrir að f.vrstu kosningarnar til
Evrópuþingsins fari fram í
maí eða júní 1978.