Dagblaðið - 21.09.1976, Side 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTÞMBER 1976.
(f
23
Útvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 20,40: Vopnabúnaður heimsins
STUÐLAADFRKN
- jofnframt því að spilla honum
Nú líður að lokum sænska
fræðslumyndaflokksins um
vopnabúnaðinn í heiminum í
kvöld verður sýndur 5. og næst-
síðasti þátturinn.
Þátturinn fjallar um sænsku
vopnaverksmiðjurnar, en Svíar
eiga mikinn þátt í framleiðslu
vopna í heiminum, og afkoma
þeirra byggist mjög á því að
hægt sé að selja framleiðsluna
á erlendum mörkuðum. Eins og
ástandið er nú ætti það ekki að
vera vandalaust fyrir þá að
losna við þessa útflutningsvöru
sína.
Svíar eru friðelskandi þjóð,
og hafa barizt fvrir umbótum á
sviði mannréttinda og friðar-
verðlaun Nóbels, eru veitt þar
svo til hvert ár. Því hlýtur þessi
framleiðsla þeirra að vekja
ýmsar spurningar og í þættin-
um er leitað svara við þeim.
Þýðandi og þulur er Gylfi
Pálsson. —KL
„Meðal annars verða borin
saman persónuleg vandamál
sem fólk átti í fyrir þrjátíu
árum og vandamál fólks í dag,“
sagði Jón Björgvinsson blaða-
maður um þátt sinn „Sumarið
’76“.
I tilefni af þessu var gluggað
aðeins í póstinn í Vikunni og
gáð að því hvaða ráð voru gefin
fyrir þrjátíu árum við sömu
vandamálum og nú eru á döf-
inni. Til aðstoðar Jóni við þátt-
inn verður Sigríður Snævarr,
háskólanemi. Ekki gat Jón
upplýst okkur um hvað fleira
yrði fjallað, þar sem það væri
ekki ákveðið fyrr en sam-
dægurs.
Þetta er síðasti þátturinn,
þar sem Jón er á förum til
London til framhaldsnáms við
kvikmyndagerð. Einnig verður
hann áfram fréttaritari út-
varpsins í Bretlandi.
—EVI
w;j>rmiÉ>
Þriðjudagur
21. september
7.00 Morgunútvarp. Véðurfregnir kl.
7.00. 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustgr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbœn kl. 7.55. Morgunstund
bamanna kl. 8.45: Sigurður Gunnars-
son heldur áfram sögu sinni „Frændi
segir frá“ (18). Islenzk tónlist kl.
10.25: Þorvaldur Steingrímsson og
Ólafur Vignir Albertsson leika tvær
rómönsur fyrir fiðlu og píanó eftir
Arna Björnsson / Sigurður Ingvi
Snorrason og Guðrún Kristinsdóttir
leika Sónötu fyrir klarínettu og píanó
eftir Jón Þórarinsson / Jón Sigur-
bjömsson, Pétur Þorvaldsson og Hall-
dór Haraldsson leika Smátríó eftir
Leif Þórarinsson. Morguntónleikar kl.
11.00: Jussi Björling og Birgit Nilsson
syngja lög eftir Sibelius, Alfvén.
Rangström og fleiri. Hljómsveit undir
stjórn Pers Lundquists leikur tónlist
eftir Peterson-Berger / Stig Ribbing
leikur á pianó tónlist eftir Sjögren,
Sibelius. Sæverud og Eirik Trap.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Grænn varstu,
aalur ' eftir Richard Uewellyn. Olafur
Jóh. Sigurðsson islenzkaði. Óskar
Halldórsson les (9).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom.
17.30 Sagan: „Sautjánda sumar Paricks"
eftir K.M. Peyton. Silja Aðalsteins-
dóttirles þýðingu sina (6).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkynnirgar.
19.35 Sumaríð '76. Jon Björgvinsson sér
um þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Svej*rir
Sverrisson kynnir.
21.00 Um endurhæfingu og bæklunarlækn-
ingar. Umsjónarmenn: Gísli Helgason
og Andrea Þórðardóttir. Lesarar með
þeim: Dagur Brynjólfsson og dr.
Björn Sigfússon.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: Ævisaga
Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði.
Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur
les (12).
22.40 Harmonikulög. Guðjón Matthíasson
og Harry Jóhannesson leika.
23.00 Á hljóðbergi. Claire Bloom les þrjár
enskar þjóðsögur, Tamlane, The Mid-.
night Hunt og The Black* Bull of
Norroway.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
22. september
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund
bamanna kl. 8.45: Sigurður Gunnars-
son endar flutning sögu sinnar
„Frændi segir frá“ (19). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Kirkjutón-
list kl. 10.25: Temple-kirkjukórinn
syngur þátt úr Kantötunni „Hjartað,
þankar, hugur, sinni“ eftir Bach;
Leon Goossens leikur á óbó /
Kammerkór tónlistarskólans og
hljómsveit Alþýðuóperunnar í Vínar-
borg flytja Messu nr. 5 í C-dúr. „Missa
Trinitatis", eftir Mozart; Ferdinand*
Grossman stjórnar. Morguntónleikar
kl. 11.00: Reino Simola og Sinfóníu-
hljómsveit sænska útvarpsins leikí
Klarlnettukonsert nr. 3 I H-dúr eftii
Bernhard Henrik Crussell; Waltei
Siisskind stjórnar. / Sinfónluhljóm-
sveit Lundúna ieikur Hljómsveitar-
konsert eftir Michael Tippett; Colin
Davis stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
D
^ Sjónvarp
Þriðjudagur
21. september
20.00 Fréttir og veður.
20.3u Auglýsingar og dagskra.
20.40 Vopnabúnaður heimsins. Sænsk-
ur fræðslumyndaflokkur um
vígbúnaðarkapphlaup og vopnafram-
leiðslu I heiminum. 5. og næstsíðasti
þáttur. Afkoma sænskra vopnaverk-
smiðja byggist að verulegu leyti á þvl,
a*' unnt sé að selja framleiðsluna á
erlendum markaði, og oftast nær er
það vandaldust. En þessi útflutningur
vekur ýmsar samviskuspurningar, og I
þættinum er leitað svara við þeim.
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.30 Columbo. Bandarískur sakamála-
mvndaflokkur. Bíræfinn bókaútgef-
andi. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
22.45 Dagskrárlok.
Útvarpið íkvöld kl. 19,35: „Sumarið 76"
VANDAMÁLIN NÚ -
0G FYRIR 30 ÁRUM
Til þess að bera saman vandamál fóiks í dag og fyrir 30 árum er
gluggað í póstinn hjá Vikunni og athugað hvort ráðleggingar við
sömu vandamálum eru svipaðar nú og þá.
Gísli Heigason og Andrea Þórðardóttir varpa ljósi á endurhæfingu
og bæklunarlækningar í fróðlegum þætti í kvöld. DB-mynd Bjarn-
leifur.
Útvarp kl. 21,00 íkvöld:
Varpað Ijósi ó endur-
hœfingar og bœklun-
arlœkningar í landinu
Rœtt við lœkna Landspítalans og
starf saðstaðan kynnt
Gísli Helgason og Anarea
Þórðardóttir eru á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 21, með
klukkutíma þátt er nefnist Um
endurhæfingu og bæklunar-
lækningar. Gísli Helgason sagði
okkur frá efni þáttarins.
„Fyrir 4—5 árum voru
settar á stofn á Landspítalanum
deildir fyrir bæklunarlækning-
ar og endurhæfingu. Er með
þessum þætti ætlunin að varpa
örlitlu ljósi á það sem fram fer
á þessum deildum og þeirri
starfsaðstöðu sem þar er fyrir
hendi.
Endurhæfingardeildin hefur
aðeins þrettán sjúkrarúm, en
hún gegnir hlutverki al-
mennrar endurhæfingar-
deildar fyrir allar deildir Land-
spítalans. Bæklunardeildin er
liklega eina sér-
bæklunardeildin á landinu
enda þótt bæklunarlæknar hafi
starfað á nokkrum sjúkra-
húsum, eins og t.d. á Landakoti
og Borgarspítalanum.
Deildin hefur aðeins 33
rúmum á að skipa og má það
teljast furðulegt þar sem bið-
listi deildarinnar fer vaxandi
og eru nú um átta hundruð
manns á honum.
Við munum ræða við
læknana Stefán Haraldsson,
Jóhann Guðmundsson og
Höskuld Baldursson á bækl-
unardeildinni og auk þess við
einn sjúkling af þeirri deild.
Þá ræðum við einnig við Pál
Helgason og Kristján T.
Ragnarsson lækna á endur-
hæfingardeildinni. Þá verður
einnig rætt við Magnús
Kjartansson alþingismann, sem
hefur hlotið endurhæfingu á
Grensásdeild Borgarspítalans.
í lok þáttarins verður komið
inn á heildarskipulag heil-
brigðismála, sem samkvæml
dómi lækna, sem rætt hefur
verið við, virðist ekki vera fyrir
hendi,“ sagði Gísli Helgason.
Gísli starfar nú við hljóð-
bókasafnið sem rekið er af
Blindrafélaginu og Borgar-
bókasafninu í Hamrahlið.
Andrea Þórðardóttir, sem
unhið hefur að gerð fróðlegra
iítvarpsþátta með Gísla, hefur á
sumrin verið með barnaheimili
Styrktarfélags lamaðra oe fatl-
aðra í Reykjadal. —A.Bj.
Einkaritaraskólinn
starfsþjálfun skrifstofufólks.
KJARNI A: Enska. Ensk bréfritun. Verzlunarenska.
Pitmanspróf.
KJARNI B: Almenn skrifstofustörf. Skrifstofutækni.
SÉRNAMSKEIÐ: C. Bókfærsla— D. Vélritun — E.
Notkun skrifstofuvéia — F. Kennsla á reiknivélar — G.
Meðferð tollskjaia — H. íslenzka, stafsetning
sími 11109
, . Brautarholt 4
mimir (ki. i-7e.h.)
Höfum
kaupanda að
Chevrolet Blazer
73—’74, sem mætti greióast
að fullu á 10—12 mánuðum.
-^JMLADR imifK í >
MAZD/ jj
-BORGAmuí BÍLDEKKíV 4, f KLÚBBUWN* 1 E s -c 1