Dagblaðið - 23.10.1976, Side 6

Dagblaðið - 23.10.1976, Side 6
I>. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. OKT0BER 1976. Gkesibœ — Simi 83210 Rúllukragapeysur, yrjóttar og röndóttar, kr. 1840.- Rúllukragapeysur, einlitar, kr. 2090.- UHarnœrföt kvenna, úr skozku eingirni Verzlunin MADAM, Glœsibœ Simi 83210 Námskeið í siglingafrœðum verður haldið á nœstunni. Uppl. i simum 37845 og 11692 SNARFARI Félag sportbátaeigenda Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða nú þegar ritara í hálft starf (e.h.).. Verzlunarskóla-eða hlið- stæð menntun æskileg. Laun skv. kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Lfl. B-8. Umsóknir sendist starfsmannastjóra. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116 Reykjavík. Auglýsingastarf Óskum að ráða starfskraft sem fyrst til auglýsinga- og skrifstofustarfa. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist afgreiðslu Dagblaðsins Þverholti 2 merkt „2222" Umboðsmaður óskast á ísafirði frá næstu ára- mótum. Allar upplýsingar gefur Gunnlaugur Jónasson núverandi um- boðsmaður á ísafirði. Skriflegar um- sóknir sendist til skrifstofu H.H.Í. Tjarnargötu 4, Revkjavík, fvrir 10. nóv. 1976. Happdrœtti Hóskóia íslands. Stjorn landssmnlakanna Þroskahjálp.Einar Sigurbjörnsson (Noröurland), Gunnar Björnsson (Vest- firdir). Heiga Finnsdóttir (Reykjavík). Gunnar Þormar (Revkjavík), Kristján Ingólfsson (Austur- land). Eggert .lóhannesson (Suðuriand) og Jón Sævar Alfonsson (Hafnarfjörður). Landssamtökin Þroskahjálp stofnuð: Við vitum minnst um neyðina sem ríkir í málefnum þroskaheftra „Stofnfundur Þroskahjálpar, sem er landssamtök 13 félaga sem vinna að málefnum þroskaheftra í landinu.litur svo að íslendingar séu sér ekki meðvitandi um þá neyð sem ríkir í málefnum þroskaheftra. Þeim er ekki gert kleift að njóta sjálfsagðra mannréttinda, þjóðfélagsleg samhjálp þeim til handa er alls ófullnægjandi og þarf ekki að fjölyrða um það hvernig þjóðin hefur brugðizt skyldum sínum i þessum efnum.“ Þannig hljóðar upphaf ályktunar sem samþykkt var einróma á stofnfundi landssamtakanna Þroskahjálþar. sem haldinn var í Reykjavík sl. laugardag. Samkvæmt rannsókn, sem §erð var á vegum íslenzka heilbrigðis- ráðune.vtisins árið 1974, kom í ljós, að 0.61% landsmanna voru þroskaheftir á einhvern hátt. Það kom fram á stofnfundinum að þrátt fyrir þessa staðreynd er engin heildar- löggjöf til um málefni þroska- heftra í landinu sem tryggir að ekki sé lengur gengið á rétt þeirra er ekki geta svarað fyrir sig. ' Þegar tekið er mið af nágranna- þjóðunum eru íslendingar 30 árum á eftir tímanum. Það kom fram á fundinum að fjárframlag ríkisvaldsins til hinna nýstofnuðu samtaka er mjög ótryggt þar sem svonefnt ,,tappagjald“, er rann til b.vggingarsjóðs þroskaheftra. hefur verið lagt niður í þess stað á sjóðurinn að fá vissa upphæð úr ríkissjóði en mjög er óljóst hver hún verður. „Ríkisvaldið þarf skilyrðislaust að ganga fram fyrir skjöldu nú þegar og setja heildarlöggjöf um málefni þroskaheftra í landinu sem tryggir það að ekki verði lengur gengið á rétt þeirrá er ekki geta svarað fyrir sig. Þeirri löggjöf ber að fylgja eftir með framkvæmdum sem geri mögu- lega eðlilega lífshætti þessa fólks og sömu lífsskilyrði sem við hinir heilbrigðu og heilbrigð börn okkar búa við. Stofnfundurinn telur að framangreind atriði þoli enga bið og fjármögnun þeirra verði að sitja í fyrirrúmi. Landssamtökin Þroskahjálp hafa það að markmfði að sjá til þess að þroskaheftir fái jafnan rétt á við aðra þjóðfélagsþega í orði og á borði.“ „Stofnfundur Þroskahjálpar samþykkir að fela nýkjörinni stjórn, en formaður hennar var kjörinn Gunnar Þormar tann- læknir, að halda almennan fund um málefni þroskaheftra í land- inu með aðaláherzlu áheildarlög- gjöf, menntamál og styrktarsjóð. sem allra fyrst. Til þessa fundar verði boðið öllum stofnfélögum samtakanna, svo og öllum þeim aðilum sem þessi mál varða.“ EVI Undirskriftasöfnun sjómanna: Listarnir afhentir Alþingi á þriðjudag sjómenn gefa út annað blað Síðasti spretturinn í undir- skriftasöfnuninni „Frjáls samningsréttur" stendur yfir þessa dagana en stefnt er að því að leggja listana fyrir Alþingi 26. október nk. Enn eiga allmargir eftir að senda listana inn en fréttir, sem borizt hafa utan af landi, benda til góðra undirtekta viðast hvar að sögn Páls Stefánssonar. Þannig hefur á sumum stöðum frétzt um jafn- vel 100% undirtektir sjómanna Vildi Páll hvetja þá sem ekki hafa skilað undirskriftalistun- um enn að senda þá með hraði svo að þeir nái fyrir afhending- una. Þeir sem að undirskriftasöfn- uninni standa hafa gefið út blað sem nefnist Sjóntaðurinn og hefur því verið dreift um allt land. Hefur það hlotið mjög góðar undirtektir alls staðar að sögn Páls. I blaðinu er gerð grein fyrir viðhorfum sjó- manna til bráðabirgðalaganna sem ríkisstjórnin setti um kjör þeirra. Erþegar farið að vinna að undirbúningi næsta blaðs sem mun að mestu verða til- einkað þingi Sjómannasam- bandsins. JB Engin rannsókn á „stolnum" skjölum frá Vœngjum hf. Alþýðublaðið skýrði frá þvi i «;er i kjaltadálki sinum að kralizt hefði verið sakadóms- rannsöknar á meintum stuldi skjala frá flugfélaginu Vængj- unt hf. Myndir at suinum þess- ara skjala voru birtar i Dag- blaðinu með grein um Vængi hf. Dagblaðið fékk í g;er þ;er upplýsingar hjá Sakadónti Reykjavikur að krafa um þessa rannsókn hefði ekki borizt. i — ÓV.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.