Dagblaðið - 23.10.1976, Side 10

Dagblaðið - 23.10.1976, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGAKDAGUR 23. OKT0BER 197& MMBUBIÐ frjálst, úháð dagblað Útgefandi Dagblaðiðhi. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Aðstoðarfrétta stjóri: Atli Steinarsson. Iþróttir: Hallur Slraonarson. Hönnun: Jóhannes Reykdal. Handrit Asgrlmur Pálsson. Hlaóamenn: Anna Biaruason. Asgoir Tómasson. Hraui SigurAsson. Krna \' Inuólfsdóttir (iissur Sigurósson. Ilallur Hallsson. Helgi Pótursson. Jóhanna Birgisdóttir. Kairin Pálsdótiir Krislln Lýósdóuir. Olafur JÓnsson. Omar Valdimarsson. I.jósmyndir: Arni Páll Jóhannsson Bjarnleifur Bjarnleifsson. Sveinn Þormóósson. (’.jaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már K.M. Halldórsson. Askriftargjald 1100 kr. á raánuói innanlands. I lausasölu «0 kr. eintakió. Ritstjórn Sióumúla 12. slmi SJ322. auglýsingar. áskriftirog afgreiósla Þverholti 2. simi 27022 Setningog umhrot: Daghlaóióhf og Steindórsprent hf. Armúla 5. Mynda-og plötueeró: Ililnurhf . Sióumiila 12 Prentiiu: Arvakiir hf.. Skeifunpi 10 „Samtökin" og kerfið Samtökin virðast vera að syngja sitt síóasta. Fækkun stjórnmála- flokka er æskileg, eins og málum er komið. Samtökunum hefur mis- tekizt ætlunarverk sitt. Forystumenn flokksins munu leita á ný mið. Sumir hyggjast ganga í Alþýðuflokkinn, aðrir í Alþýðubandalagið en enn aðrir telja sig hvergi munu una. Þetta eru ömurleg endalok til- raunar sem um skeið leit vel út. Megintilgangur Samtakanna var frá upp- hafi að stuðla að sameiningu vinstri manna í nafni jafnaóar- og samvinnustefnu. Þessi til- raun upphófst þó með aukinni sundrungu svo- kallaðra vinstri manna, stofnun enn eins flokks á vinstri kantinum. Raunin varð sú að illa gekk að sameina þá sem að nýja flokknum stóðu. Þar var hart barizt. Svo fjarri voru mennirnir í nýja flokknum takmarki sínu að upp úr honum spratt enn einn flokkur með einhvern athyglis- verðasta foringja flokksins í fararbroddi. Bjarna Guðnason. Tilraunin hafði lofað góðu þegar Frjáls- lyndir og vinstri menn unnu kosningasigur og forystumenn gömlu flokkanna til vinstri urðu felmtri slegnir. Ef til vill hefði verið unnt að halda áfram á sigurbraut hefði innbyrðis- klofningur ekki komið til. Flokksforingjarnir gerðu þó þá reginskyssu að gerast þátttakendur í misheppnaðri ríkisstjórn. Fólk hætti að sjá muninn á þeim og foringjum gömlu flokkanna. Foringjarnir urðu samsekir kerfinu. Þetta og klofningurinn réð úrslitum. r Á hvaða leið er Glistrup? Glistrup hefur enn sótt á meðal ðnnskra kjósenda. Jafnaöarmenn eru óttaslegnir, því að kannanir sýna.að flokkur Glistrups a vaxandi fvlgi meðal verkamanna. Stefna Glistrups er harla óvenjuleg. Ekki hefði stjórn- málaskoðendur grunað fyrir nokkrum árum, gð viðgangur hans yrði slíkur sem raun ber vitni. Glistrup vill kveðja heim alla sendiherra Danmerkur nema fulltrúann hjá Efnahagsbanda- laginu. Hann vill fækka ríkis- starfsmönnum um fjögur þúsund og þrjú hundruð á mán- uði á næstunni, alls um þrjú hundruð og tíu þúsund manns. Hann vill afnema tekjuskatta á tekjur undir um tveimur millj- ónum íslenzkra króna. Glistrup vill, að danski herinn verði leystur upp og í staðinn komi símsvari, þar sem endurtekið sé í sifellu: „Við gefumst upp.“ Ekki þýði fyrir heimamenn að ætla að verja landið fyrir Sovét- mönnum. Þó eigi Danmörk að vera í Atlantshafsbandalaginu. Takmark hans er að skera fjárlög ríkisins niður um helm- ing með margvíslegum sparnaðarráðstöfunum. Til þess segist hann þurfa fimm ár, komist flokkur hans til valda. Sex prósenta fylgisaukning Flokkur Mogens Glistrups er annar stærsti flokkur landsins. Samkvæmt skoðanakönnun Gallups í sumar mundi flokkur- inn fá fylgi 22,8 af hundraði kjósenda, ef kosið væri nú. Það er ríflega sex prósenta aukning á hálfu ári. Fylgi stærsta flokksins, jafn- aðarmanna, er samkvæmt skoð- anakönnuninni 30,7 af hundr- aði. Foringjar gömlu flokkanna vöruðu sig’ ekki á Glistrup í upphafi. Nú hafa þeir skilið.aé honum hefur tekizt að snerta strengi í brjóstum kjósenda. Hann hefur talað mál, sem kjósendur hafa skilið. Hinar róttæku hugmyndir hans eru Mogens Glistrup: Niður- skurður f járlaga um helming. einmitt í anda fjölmargra danskra skattborgara, sem sligast undir skattbyrðinni. Starfsmenn ríkisins eru nú 770 þúsund en yrðu 460 þúsund eftir aðgerðir Glistrups. Hann hyggst stöðva stuðning við vanþróuð ríki og framlög til menningarmála. Að öllu saman- lögðu hefur hann ráðizt gegn grundvallaratriðum í „hefð- bundnu" pólitíkinni dönsku. Hægri menn líta út eins og al- gerir sósíalistar í samanburði við Glistrup. Glistrup skelfir jafnaðarmenn. — Foringi jafnaðarmanna, Anker Jörgensen forsætisráðherra, með starfsbróður sinum og flokks- bróður Odvar Nordli, Noregi. Frjálslyndi flokkurinn átti ekki lífsvon en Samtökin héngu í síðustu þingkosningum á kjöri Karvels Pálmasonar í Vestfjarðakjör- dæmi þar sem vinsældir Hannibals Valdimars- sonar komu til. í Reykjavík náði flokkurinn ekki kjördæmakjörnum þingmanni. Þá mátti spyrja til hvers þessi flokkur væri. Augljóst var að honum tækist sízt að sameina vinstri menn. Þvert á móti mátti kalla hann enneitt sundrungaraflið á vinstri væng stjórn- málanna. Af þessu hlaut að leiða sú þróun, sem fylgdi. En þetta sprikl hefur ekki verið með öllu tilgangslaust. Ræóur forystumanna flokksins, hvort sem var Bjarna Guðnasonar, Magnúsar Torfa Ólafssonar eða Hannibals Valdimars- sonar vöktu athygli og féllu í góðan jarðveg, langt út fyrir raðir stuðningsmanna flokksins. Fólk hlýddi á mál þeirra þótt þaö hlypi ekki til að kjósa þá. í ræðum þeirra var þungamiðjan að benda á samsekt gömlu flokkanna í kerfinu, spillingu þeirra og samtryggingu. Þetta voru orð í tíma töluð. Hitt var svo annað mál, að þorri manna treysti nýja flokkn- um ekki til að valda neinni byltingu í þeim efnum. Augu almennings eru opnari en áður fyrir ágöllum kerfisins. En Samtökin hafa lítið notið góðs af. Ljóst er að eigi að veróa umbylting til hins betra verður hún aó koma með öörum hætti. Stapadraugur skýtur Þaó eru áreiðanlega ekki margir sem gera sér grein fyrir þeirri staðreynd, að sá tími, sem svokallaðir herstöðvarand- stæðingar velja nú til að boða ráðstefnu til styrktar málstað sínum (svo þjóðræknislegur sem hann er nú) að gera ísland varnarlaust, — er ekki valinn út í bláinn. t þeim siðferðilega öldudal, sem þjóðlif í landinu hefur sog- azt niður á undangengnum mánuðum, einmitt kærkominn og heppilegur jarðvegur fvrir vinstri öfgaöflin meo' þau áróðurstæki, sem þeim eru til- tæk, að blása til herkvaðningar og stefna hinum ofstækisfullu saman á einn stað. Þar stappa þeir stálinu hver í annan og strengja þess heit að láta nú tækifæri sem þetta ekki ganga sér úr greipum til þess að véla um fyrir veikgeðja sálum sem ekki hafa látið sannfærast al- gjörlega um að „ísland úr NATO, herinn burt“ séu lykil- orðin að nýju og betra þjóð- félagi. En nú sem oft áður hefur einhverjum þeim, sem standa að undirbúningi „landráða- stefnunnar" í Stapa 'skrikað fótur, kannski vegna þess, að hernámsandstæðingum sem svo kalla sig reynist, ekki síður en öðrum, erfitt að fóta sig á hálum „skötubörðum" siðgæðisins. Þannig mátti lesa um það í Þjóðviljanum sl. sunnudag, að ,,kvöldskemmtun“ þeirra vinstri manna í Stapa hefði verið slík, þegar frá eru talin „ísland úr NATO, herinn burt“-slagorðin og baráttu- kveðjur og símskeyti frá félög- um'.,útum allar trissur“ eins og sagði í blaðinu, — að maður hefði verið farinn að efast um að tilgangurinn helgaði meðal- ið. Orðrétt segir frá þessum fundi í Þjóðviljanum. „Nú kann það að vera að klám trekki vel á skemmtanir, það er að minnsta kosti skoðun og reynsla bíóstjóra okkar, — Þjóðleikhúsið er líka með ■einhverja pempíulega tilburði í þá átt undir rúmi um þessar •mundir. En þegar okkur sem hingað til höfum ekki verið talin af allra viðkvæmustu sort er boðið upp á eins pervert pornóþrugl oe gróteskan hrylling og framreiddur var til að fylla Stapa á vegum hernámsandstæðinga mánu- dagskvöldið góða, fer maður að efast um að tilgangurinnlhelgi meðalið.“ Það er greinilegt, að þarna hefur Stapadraugnum enn einu sinni skotið upp meðal fundarmanna, og honum, sem þó- er rammíslenzkur, ofboðið svo freklega sajnkunda sú sem þarna var samarkomin á hans umráðasvæði, að hann hafi hreinlega lagt listamönnum vinstristefnunnar orð í munn. Enda segir í Þjó ö viljanum'i.ennfremur frá þess- ari samkomu, „að sönglist öll hafi verið á ýmsa vegu, hljóð- færaleikur á stundum óvand- aður og textar hæpnir“. En svo ógeðfelld meðul, sem komúnistar og ýmis brot vinstri aflanna i þessu landi hafa notað til þess að koma á framfæri sinni heitustu ósk, að ísland verði varnarlaust og hafa þótt góð og gild i þeirra röðum til þessa, þá er ástæða til að leggja við hlustir, þegar málgagn stefnu varna- og öryggisleysis telur, að vafasamt sé, að slík uppákoma sem herstöðvarandstæðingar stóðu að í Stapa mánudagskvöldið góða, verði til þess, að tilgangurinn helgi meðalið! En grínlaust og gamanlaust talað. Það er varla ætlandi þeim þorra þjóðarinnar, sem stendur utan og ofan við brambolt vinstri aflanna í landinu við að koma Islandi úr varnarbandalagi vestrænna ríkja, að treysta eingöngu á það, að Stapadraugurinn grfpi 1 taumana á hverri þeirri samkundu, sem kommúnistar standa að til eflingar þeirri fyrirætlan sinni að koma Islandi úr Atlantshafsbanda- laginu. Eða eru for- svarsmenn íslenzku borg- araflokkanna svo blindir að

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.