Dagblaðið - 16.11.1976, Page 2
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. NÚVEMBER 1976.
BÍLAR UPP
AÐ DYRUM
— leikvöllurinn við Vogaskóla gerður
að bílastæði
Húsmóðir í Vogunum hringdi:
„Vogaskólinn er bæði barna-
og unglingaskóli. Sem eðlilegt
er er þarna fjöldi barna fyrir
utan á öllum tímum dagsins að
koma og fara úr skóla. Eins og
við aðra skóla er malbikað
skólaplan við skólann þar sem
börnin eru að leik í frímínút-
um. Nú hefur brugðið svo við
að kennararnir eru farnir að
aka bilum sínum alveg að
dyrum skólans. Planið er því
orðið nokkurs konar bílastæði.
Mér finnst að alls ekki eigi að
leggja bílum sínum þar sem
börn eru svona mikið á ferðinni
eins og á skólaplani. Það hlýtur
að vera vinnandi vegur fyrir
kennara að ganga nokkurn spöl
að dyrum skólans. Ætli þeim
veiti nokkuð af hreyfingunni.
Mér finnst ákaflega einkenni-
legt að þeir geri svona hluti,
þeir sem eiga að vera vel
kunnugir börnum og hegðun
þeirra.“
Fyrir utan Vogaskólann. DB-mynd Arni Páll.
Fjosameistarí Framsóknar
Þórður Halldórs$on,
Lúxemburg, skrifar:
Við íslendingar erlendis, sem
erum fjarlægir áhorfendur að
þvi sem hefur gerzt í íslenzkum
réttarfarsmálum að undan-
förnu, horfum með hryllingi á
það sem þar fer fram.
Almenningur á íslandi
virðist vera orðinn þessu svo
samdauna að hann er hættur að
sjá kjarna þess sem fram fer og
virðist taka gott og gilt að
framámenn í pólitík villi um
fyrir honum á öllum sviðum
þegar þeim býður svo við að
horfa.
Eitt dæmi um slik vinnu-
brögð er að finna i kjallara-
grein, sem Halldór Kristjáns-
son, sem kennir sig við Kirkju-
ból, ritar í Dagblaðið þann 6.
okt. sl. Hann er að taka að sér
það vonlausa verk að reyna að
hvítþvo Framsóknarflokkinn af
því að hafa að vissu marki stutt
við bakið á þeim glæpahring,
sem flest meiri háttar glæpa-
mál hafa verið rakin til á
undanförnum misserum.
Þar sem þú, herra Halldór,
hefur tekið þér á hendur þessa
krossferð, væri ekki úr vegi að
skjóta að þér nokkrum
spurningum svona til íhugunar
fyrir þig. Af skrifum þinum að
dæma, er hins vegar varla að
vænta þess að þú sért haldinn
því hugarfari eða manndómi að
svara þeim. Þar I móti kemur
'þá hið sigilda orðtæki; að þögn
er sama og samþykki.
Þú velur þér það yrkisefni að
ráðast að Vilmundi Gylfasyni
og reyna að gera hann að sið-
spilltum ósannindamanni af öll-
um hans skrifum um dóms- og
réttarfar á tslandi. Mín fyrsta
spurning er því þessi: Hver er
það sem fyrstur gerði þjóðinni
viðvart um þau glæpa-, fjár-
spillingar- og glæframál, sem
hafa verið efst á baugi að
undanförnu? Þér væri nær að
taka í hönd Vilmundi og þakka
hans stóra þátt I því, frekar en
auglýsa þitt hugarfar á þann
hátt sem þú hefur nú gert og
lengi verður óafmáð á þínum
skildi.
Er það ennþá sannfæring þín
að reyna að halda því fram að
engin fjármálatengsl séu, eða
hafi verið, á milli Klúbbsins og
Framsóknarflokksins? Enda
þótt dómsmálaráðherra segði á
Alþingi að hann legði æru sina
að veði fyrir því að svo væri
ekki, ættir þú að vita, eins og
þjóðin öll, ef þú ert ekki
pólitískt blindur á báðum
augum, að Kristinn Finnboga-
son, fjármálaráðherra Fram-
sóknarflokksins á heimavíg-
stöðvum, afsannaði þennan
æruþvott dómsmálaráðherra
áður en hanaræksnið galaói
þrisvar. Kristinn upplýsti að
Sigurbirni í Klúbbnum hefðu
verið lánaðar 2,5 milljónir kr.
úr sjóðum Framsóknarflokks-
ins. Dómsmálaráðherra taldi
sig þá geta smogið í gegnum
nálaraugað með því að segja að
það hefði ekki verið Fram-
sóknarflokkurinn sem lánaði
peningana heldur byggingar-
sjóður Framsóknarflokksins.
Heldur þú, Halldór, að það sé
afskaplega sannfærandi að
ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins hafi ekkert
vitað um þessar fjárráðstafanir,
eða að það kæmi Framsóknar-
flokknum ekkert við hvað yrði
um fjárreiður byggingarsjóðs
Framsóknarflokksins?
Telur þú að nokkur einasti
maður á landinu trúi þessu
utan túngarðs Kirkjubóls?
Finnst þér, Halldór, eftirfar-
andi dagsetningar bera
nokkurn keim af tilviljunum,
eða einhverju öðru? Klúbbnum
var lokað vegna meintra lög-
brota 14.10. 1972 af lögreglu-
stjóranum í Reykjavik. Trúir
því nokkur maður að lögreglu-
stjóri hafi gert það án laga-
heimildar, eins og dómsmála-
ráðherra hefur haldið fram?
17.10 1972 fær Sigurbjörn I
Klúbbnum 2.5 milljónir að láni
hjá Framsóknarflokknum.
20.10. 1972 lætur dómsmála-
ráðherra opna Klúbbinn, i ó-
þökk lögreglustjóra og sak-
sóknara ríkisins. Ráðherra
gefur þá skýringu að lögregiu-
stjóri og saksóknari hafi tekið
fram fyrir hendur sínar með
lokun hússins. Er þá skýringin
sú að hann hafi látið opna
Klúbbinn m.a. vegna þess að
fyrrnefndir embættismenn hafi
framið embættisafglöp? Eru
kannske ekki frekar líkur til
þess að ráðherra hafi iátið opna
klúbbinn til þess að veitinga-
maðurinn gæti staðið við skuld-
bindinguna við Framsóknar-
flokkinn?
Ég er ekki fjarri þvl, Halldór,
að þú mundir álykta eitthvað í
þá veru, ef aðrir hefðu átt hlut
að máli.
í framhaldi af þessu öllu
setti dómsmálaráðherra upp
eins konar revíu, þegar hann
eyddi sínum dýrmæta tíma I
það að skrifa framhalds-
langhunda í Timann, er hann
nefndi „Opið bréf til Þorsteins
ritstjóra Vísis.“ Þau opnu bréf
eiga það sameiginlegt að hvergi
örlar á rökum um þau mál sem
voru til umræðu, en allt kapp
lagt á að draga nafngreindar
persónur sundur og saman í
háði og lagt á sig mikið erfiði
við að gera fjölda manna að
fábjánum og fíflum.
Ennþá kemur þú að veikum
unkti, Halldór, í þinni
jallaragrein. Þegar Klúbb-
menn, Sigurbjörn og Magnús,
ráku upp sitt þjóðfræga rama-
kvein út af illu umtali, eins og
þeir kölluðu það, þegar byrjað
var að rannsaka feril þeirra, og
báru sig upp við dómsmáia-
ráðuneytið undan því, segir þú
í grein þinni: „Þau afskipti
dómsmálaráðuneytisins, sem
hér er vikið að, skilst mér að
séu að það sendi bæjar-
fógetaembættinu í Keflavík
afrit af bréfi þeirra
Sigurbjarnar Eiríkssonar og
Magnúsar Leopoldssonar, þar
sem þeir báru sig upp undan
því að hafa orðið fyrir leiðin-
legu umtali og mæltust til að
rannsókn færi fram svo að sak-
leysi þeirra kauni í ljós.“ Þér
finnst sjálfsagt. Halldór, að
ráðuneytið sé hlaupaköttur
þessara tugamilljóna fjár-
svikara, enda bregzt það ekki
vonum þeirra. Þú segir orðrétt:
„Hitt hefur mér þótt stór-
furðulegt að rannsóknarmaður
segist hafa skilið þetta svo, að
ráðuneytið sendi tilmæli þeirra
Klúbbmanna áleiðis, þannig, að
það, ráðuneytið, væri nánast að
banna að rannsaka allt sem þá
menn snerti. Það er að mínu
viti eitt af undrum dómsmála-
sögunnar að rannsóknarmaður
skuli álykta svo. Hvernig er sú
ályktunargáfa?1' Þú virðist
hafa góða fyrirmynd í því að
dæma um gáfur manna og ekki
skortir þig hrokann. Ég vil því
spyrja þig, manninn með.
„gáfurnar" og glöggskyggnina:
t hvaða tilgangi var bréf
ráðuneytisins stílað á svo loð-
inn hátt að það reyndist torskil-
ið rannsóknrmönnum? Hvað
fengi skólabarn fyrir þann stíl,
sem kennarinn botnaði hvorki
upp né niður í? Og enn og
aftur: Hvers vegna fæst þetta
bréf, sem hefur valdið slíkum
misskilningi, ekki birt opinber-
lega? Er það algengt að opnber
ráðuneytisskjöl týnist?
Þú skrifar langt mál um
Klúbbveizlur Framsóknar-
flokksins, sem þú gerir tilraun
til að afsanna. Vel má vera að
þær kunni að vera nokkurt
aukaatriði. Sama er mér hvort
þú hefur sjálfur greitt fyrir
kaffið I þetta eina skiptið sem
þú segist hafa komið I
Klúbbinn. Hins vegar er það
siður rökþrota manna að spinna
langhunda utan um smáatriði.
Enn segir þú orðrétt: „Ég
dvel heldur ekki við þær full-
yrðingar hans (Vilmundar) að
Tfminn hafi gert „einhverja þá
ægilegustu níðherferð á hend-
ur lögreglumönnunum Hauki
Guðmundssyni og Kristjáni
Péturssyni, sem sögur fara af.“
Nei, Halldór, þú skalt ekki
dvelja lengi við þær, því svo
grunnur ertu ekki að það hafi
farið framhjá þér að allt kapp
er á að láta þessa menn koma
sem minnst nálægt rannsókn
opinberra mála, vegna þess að
þeir hafa sýnt það og sannað að
þeir eru flestum færari að
fletta ofan af óhroðanum, sem
allt kapp er lagt á að fela. Þú
veizt kannske ekki, eða vilt
ekki vita, að kjánaleg tilraun
var gerð til þess af
ákæruvaldsins hálfu að útiloka
þá frá störfum með því að sjóða
saman á þá ákæru út af nauðaó-
merkilegum atburði. Eg skora á
þig að sjá til þess aó þeir fái að
talá við opin réttarhöld, bæði
um þau ákæruatriði og annað
sem þá kæmi kannske
óþægilega í ljós.
Að endingu ein
samvizkuspurning: Ertu ekki
hre.vkinn af því, Halldór, sem
Islendingur að hafa dæmdan
mann fyrir meiðyrði í sæti
dómsmálaráðherra? Viltu
nefna mér dæmi úr hinum vest-
ræna heimi þar sem slíkir hlut-
ir gætu gerzt?
Eg vorkenni þér í fjósa-
meistarastarfinu hjá Fram-
sókn. Þú mátt lengi moka, ef þú
ætlar að hreinsa þann flór.
LAND ROVER
ER 0F GÓÐUR
HANDA ÞÉR
HREINN!
— ef þú vilt
hann ekki
Sigurður Jónsson skrifar:
Varðandi grein Hreins
Sigurðssonar í DB hinn 3. þ.m.
langar mig að gera nokkrar at-
hugasemdir.
Hreinn greinir frá atburði
sem hann varð vitni að í
Austurstræti er tveir lögreglu-
þjónar fjarlægðu dauðadrukk-
inn mann þaðan og fluttu hann
á brott í Land Rover, sem að
áliti Harðar er vart hæfur til
fólksflutninga heldur helzt
starfhæfur við landbúnaðinn.
Eg skal fúslega játa að til eru
þægilegri bílar en Land Rover,
en heldur þú ekki Hörður, að
róna, sem veit hvorki i þennan
heim né annan (eins og þú
kemst að orði), standi ekki
nákvæmlega á sama um hvort
hann er fluttur á Land Rover
eða dýrustu gerð af Mercedes
Benz I steininn?
Fyrir utan það finnst mér
allsterkt til orða tekið, að segja
að varla sé hægt að koma manni
í heilu lagi inn I Land Rover.
Það er mjög auðveldur verkn-
aður, nema maðurinn sé þvi
meiri utan um sig.
Land Rover jepparnir hafa
notið mikilla vinsælda
hérlendis um árabil og þykja
mjög heppilegir til aksturs um
vegakerfi okkar.
Aumt er ástandið hjá löggunni:
LANDBÚNAÐARTÆKI NOTUÐ
TIL RÓNAFLUTNINGA
Og varðandi orð þin um lögg-
urnar tvær, að þær hafi gefizt
upp við að koma manninum inn
með mildilegum handtökum, en
ýtt honum inn fyrir dyrnar,
skellt hurðinni og iæst. Ti\ er
orðtak sem segir: „Allt vill
lagið hafa hér. af hvaða tagi
sem það er“. Heldur þú þá ekki
Hreinn, að lögregluþjónarnir
ættu að taka sér þetta til fyrir-
myndar?
Svo víkur þú spurningum til
lögregluyfirvaldanna, sem ég
að sjálfsögðu veit ekki fullgild
svör við, nema það að mig
langar að fræða þig um hvernig
jeppar standi sig í hraðakstri.
Þeir standa sig mjög vel, t.d.
eru flestir sjúkrabílar á Islandi
jeppar (þ.e. bflar með fjór-
hjóladrif) og þeir þurfa yfir-
leitt öðrum fremur að hafa
hraðann á. Nú svo eru það
læknar og dýralæknar. Þeir
eiga allflestir jeppa. Þurfa þeir
ekki stundum að flýta sér? Jú,
ég held nú það og þeir komast
leiðar sinnar eins og aðrir þó á
Land Rover séu!
Hreinn Sigurðsson! Land
Rover bíll er aldeilis fullgóður
handa þér og of góður ef þú vilt
harin ekki!
Raddir
lesenda
Hríngið í síma
83322
milli kl. 13 og 15