Dagblaðið - 16.11.1976, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. NÖVEMBER 1976.
7
Brezhnev í ræöustól:
„Úlfurínn ætlar
ekki að
éta Rauðhettu”
— sem þýðir: Sovétmenn ráðast ekki á Júgóslava
Leonid Brezhnev aðalritari
Sovézka kommúnistaflokksins,
fullvissaði Tito Júgóslavíufor-
seta um það í gærkvöld að
Sovétmenn hefðu alls ekki í
hyggju að ráðast á Iand hans.
K
Tito Júgóslavíuforseti hugsar
sinn gang undir ræðuhöldum
Brezhnevs í Belgrad þessa dagana.
Brezhnev kvað þetta vera ævin-
týri sem væri skáldað upp á
Vesturlöndum.
Aðalritarinn sat kvöldverð í
boði Titos i gærkvöld og við það
tækifæri sagði hann:
„Höfundar þess háttar ævin-
týra reyna að festa þá skoðun í
sessi að Júgóslavía sé fátæk og
hjálparlaus lítil Rauðhetta sem
hinn hræðilegi og blóðþyrsti
úlfur — það er að segja hið
árásargjarna Sovétveldi — hafi
i hyggju að tæta í sundur og éta
i einu vetfangi.“
Og Brezhnev hélt áfram: „Eg
skal ekkert um það segja hvað
býr að baki svona hugarfari.
Annað hvort er það algjört
skilningsleysi á grundvallar-
reglum sem sósíalísk ríki setja
um samskipti sín í milli eða sú
kaldhæðnislega trú að óbreytt-
ur almúginn gleyþi við hvaða
lygi sem er sé hún einungis
endurtekin nógu oft.“
Crosland: Rússar eru
að taka fiskinn okkar
Fiskveiðar sovézkra togara, út
af ströndum Bretlands, sem
nýlega hafa farið mjög vaxandi
eru helzta ógnunin við brezka
fiskistofna.
Þetta sagði Anthony Crosland,
utanríkisráðherra Breta á fundi
með fréttamönnum í Brussel í
gær. Hann sagðist einnig hafa
látið áhyggjur sínar í ljós við Finn
Olof Gundelac, þegar þeir hefðu
ræðzt við um viðræður Gunde-
Anthony Crosland, utanríkis-
ráðherra Bretlands.
lachs við íslenzka ráðamenn um
væntanlega samninga íslendinga
og Efnahagsbandalags Evrópu.
Bandalagið, sem níu ríki eiga
aðild að, ákvað í síðasta mánuði
að sameiginleg fiskveiðilögsaga
þess skyldi færð út í tvö hundruð
milur á næsta ári. Það hefur tekið
að sér það vandasama hlutverk að
gera allsherjarfiskveiðisamning
EBE við Islendinga, segir i
Reutersfrétt í morgun.
Af þessum níu ríkjum hafa
Bretar mestan áhuga á að hefja
þessar viðræður sem fyrst, þar
sem samningur þeirra við
Islendinga rennur út 1. desember,
segir einnig.
Gundelach hafði ekki árangur
sem erfiði af för sinni til Reykja-
víkur í síðustu viku. A morgun
gerir hann ráðherranefnd banda-
lagsins grein fyrir viðræðum
sínum, þegar hún kemur saman.
til að ræða sameiginlega
fiskveiðistefnu bandalagsins og
heldur siðan aftur til Islands i
næstu viku.
EBE hefur komið sér saman
um sameiginlega 200 milna
lögsögu en ágreiningur ríkir um
kröfur Breta og Ira um 50 mílna
einkalögsögu innan hinna
sameiginlegu tvö hundruð.
CARTER
HYGGST
EINBEITA
SÉR AÐ
KJARNORKU-
AFVOPNUN
Jimmy Carter, sem tekur við
embætti forseta Bandaríkj-
anna 20. janúar næstkomandi,
hélt blaðamannafund í gær —
í annað skipti síðan hann náði
kjöri. Fundurinn fór fram í
tilraunastöð í Iandbúnaði sem
er í heimabæ Carters, Plains.
Svona getur bara
gerzt í Ameríku:
Hún vill giftast dauða-
fanganum Gary Gilmore
— sem er að skrifa ævisögu sína í kapp við dauðann
Kærasta dauðadæma morð- more af lífi.
ingjans Gary Gilmores, sem óskað
hefur eftir að fá að deyja „eins og
maður“ hið fyrsta, segist hafa
fallizt á að giftast honum.
Stúlkan er tvítug, fráskilin og
heitir Nicole Barnett. Hún sagði
við blaðamenn í Utah í gær þegar
hún hafði heimsótt Gary í fang-
elsið: „Ég sagði við hann í dag að
ég vildi það, og hann virtist mjög
undrandi."
Frú Barnett bætti þvi við að
hún reiknaði ekki með að fang-
elsisyfirvöld vildu leyfa henni að
giftast fanganum á dauðadeild-
inni.
Yfirmaður fylkisfangelsanna,
Samuel Smith, hafði í gærkvöld
ekki fengið skriflega ósk urn
hjónavígsluna. „Ég veit ekki
hvaða tilgangi það ætti að þjóna
en ég er hlutlaus,'1 sagði hann.
Þriggja rnanna náðunarnefnd
Utah kemur saman á morgun til
að ræða hina óvenjulegu ósk Gil-
mores.
Lögfræðingur hans, Dennis
Boza, skýrði frá því í gær að skjól-
stæðingur hans, sem dvalizt hefði
átján af undanförnum 21 ári bak
við lás og slá, væri nú að skrifa
ævisögu sína. Ætti hún að koma
út þegar búið væri að taka Gil-
Barrett myndi njóta útkomu ekki tjá sig nánar um fjármála-
Dennis Boza sagði einnig að frú bókarinnar fjárhagslega en vildi hliðmálsins.
Á þessum fundi sagði Carter
að eitt fyrsta stóra verkefni
hans, eftir að hann tæki við
völdum, væri að einbeita sér
að kjarnorkuafvopnun í heim-
inum. Hann sagði að hann
mundi vinna að því af öllum
mætti að minnka afskipti
Bandaríkjanna af kjarnorku-
vopnum og bætti við:
„Það mun alltaf vera ofar-
lega í huga mér, í samskiptum
mínum við Sovétrikin jafnvel
þó að einungis sé um viðskipta-
mál að ræða.“
Kína:
Byrjad að reisa graf-
hýsi fyrir Mao formann
Kínverjar hafna
öllum vinsamlegum
samskiptum við
Sovétmenn
Þúsundir verkamanna og her-
manna í Kina eru byrjaðar á að
reisa grafhýsi til heiðurs stofn-
anda kínverska kommúnista-
flokksins, Mao tse-Tung. En
aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að þetta óvænta verk
hófst hristist öll höfuðborgin,
Peking, í 20 sekúndna löngum
jarðskjálfta. Ekki er kunnugt
um að neinn hafi farizt eða
slasazt alvarlega i jarðskjálft-
anum.
Kínverjar höfnuðu í gær-
kvöld öllum vinsamlegum sam-
skiptum við Sovétmenn eftir að
dauða Maos formanns hefur
borið að höndum. 1 harðri ræðu
sem varaforsætisráðherra
Kína, ,Li Hsien-nien, flutti í
kvöldverðarboði í gærkvöld
baðst hann undan öllum slíkum
samskiptum. Fyrr I ræðunni
hafði hann veitzt að Sovét-
mönnum og valdið þvi, að
sovézki sendiherrann gekk út
úr veizlunni' ásamt sendiráðs-
starfsmönnum sjö leppríkja
Sovétríkjanna.
Kína: þjóðirnar fyikja sér um
Hua formann. í heimahéraði
hans var piltur nýlega tekinn
af lífi fyrir að hafa krotað yfir
nafn formannsins á vegg-
spjaldi.