Dagblaðið - 16.11.1976, Side 9

Dagblaðið - 16.11.1976, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. NOVEMBER 1976. [ — má lækka vöruverð með niðurskurði umboðslauna og hækkun álagningar?_________ Verðlagsstjóri hefur jafnvel fundið dæmi þess, að verð úr búð i London væri lægra en verð það, sem islenzkur inn- flytjandi hefur greitt fyrir vöru. Til greina kæmi, til að lækka vöruverð, að koma i veg fyrir, að umboðslaun séu tekin erlendis með þvi að heimila hækkun álagningar á ákveðn- um vörum. Þetta kemur fram í viðtali Dagblaðsins við Georg Ólafsson verðlagsstjóra. „Mér hafa komið viðbrögð innflytjenda við upplýsingum minum um mismun á innkaups- verði hér og í London á óvart,“ sagði verðlagsstjóri. „Þær upplýsingar, sem ég gaf, voru ekki hugsaðar sem nein atlaga gegn þeim. Fyrir mér vakti að reyna að varpa ljósi á þessi mál. Það er ekkert laun- ungarmál, hve háir tollar eru, eða vörugjald, álagning, sölu- skattur og slikt, og þvi ekki óeðlilegt, að það komi fram i fjölmiðlum. Hér er um vanda- mál að ræða, þar sem er mis- munur á þvi verði, sem islenzkir innflytjendur og brezkir greiða i London, þótt ef til vill megi hártogast um, hversu stórt það er. Min hugs- un er að reyna að fá almenning, stjórnmálamenn, innflytjendur og verðlagsyfirvöld til að vinna saman að lausn þessa vanda máls og koma þessum málum i betra horf.“ Hingað til einungis eftirlif með ólagningunni. Er það ekki svo, að hingað til hafi einungis verið eftirlit með álagningunni? „Það mætti segja, en nú teljum við æskilegt að reyna að fylgjast almennt með verðlags- þróun erlendis." Skiptir magnafsláttur miklu i þessum verðmun? „Við höfum orðið varir við það. Til dæmis hefur komið fyr- ir, að verð úr verzlun i London væri lægra en það verð, sem íslenzkur innflytjandi hefur greitt fyrir sömu vöru.“ Rætt við verðlagsstjóra: Varan jafnvel ódýrarl í búð í London en í innkaupum okkar GEORG ÓLAGSSON, — viðbrögð innflytjenda komu honum á óvart (DB-mynd Bj.Bj.) Hvernig verður framhaldið? „Um það get ég ekki fullyrt, en við höfum samstarf við stofnanir i London, sem munu senda okkur mánaðarlega upp- lýsingar um verð á helztu nauð- synjavörum. Við vitum einnig, að í Osló og Stokkhólmi er i undirbúningi könnun á inn- kaupsverði innflytjenda þar í ýmsum löndum og munum við fylgjast með þvi til samanburð- ar.“ Hvað má gera til að koma i veg fyrir umboðslaun meðan við höfum ekki fengið nýja verðlagslöggjöf? „Ég skal taka dæmi,“ sagði verðlagsstjóri. „Setjum sem svo, að innflytjandi telji álagn- ingu á einhverja vöru ekki standa undir kostnaði og hafi gripið til þess að taka 10% umboðslaun erlendis. Ef þessi vara 3-4 faldast i verði frá inn- kaupi, 3-4 faldast þessi umboðs- laun lika í verðinu. Þá segir sig sjálft, að gætum við komið i veg fyrir kommissionina, umboðs- launin, og heimilað I staðinn hækkun álagningar, sem sam- svarar þeim, þá hefði okkur tekizt að lækka verðið á vör- unni.“ Að öðru leyti vildi verð- lagsstjóri ekki ræða um áhrif kommissionar. „Markmið mitt er að reyna að stuðla að umræðu um þessi mál,“ sagði Georg Ólagsson að lokum. -HH — Haraldur Böðvarsson & Co hf. á Akranesi sjötíu ára Hagur fyrirtækisins hef ur speglazt í þróun bæjarins Fyrirtækið Haraldui Böðvarsson & Co h/f á Akranesi á sjötíu ára afmæli á morgun, 17. nóvember. Saga fyrirtækisins er ekki einasta nátengd atvinnu- og byggingarsögu Akraness heldur einnig Sandgerðis, en fyrstu tuttugu ár fyrirtækisins voru umsvif þess þar suðurfrá. Nú eru fimmtíu ár síðan fyrirtækið flutti starfsemi sina til Akraness, en eignir þess í Sandgerði voru ekki seldar að fullu fyrr en árið 1941. Á þeim liðlega fimmtíu árum, sem liðin eru síðan Haraldur Böðvarsson hóf starfsemi sína á Akranesi hafa orðið þar stórstígar framfarir, sem fléttast að miklu leyti saman við vöxt fyrirtækisins og viðgang. Haraldur Böðvarsson var einn helzti framkvæmdamaðurinn i flestum stórframkvæmdum í byggðarlaginu. Hann var formaður hafnarnefndar frá upphafi. Hann var í fararbroddi þegar Akur- nesingar og Borgfirðingar virjtjuðu Andakíl og stjórnar- formaður frá upphafi til ársins 1963. Haraldur Böðvarsson var for- maður byggingarnefndar sjúkra- húss Akraness og má segja að mesti þungi byggingarfram- kvæmdanna hafi hvílt á herðum hans. Hann skilaði sjúkrahúsinu fullbyggðu og skuldlausu eftir fjögur ár. Það var á allra vitorði á Akra- nesi að verulegar fjárhæðir og gjafir komu til sjúkrahússins frá fyrirtækinu H. Böðvarsson & Ca, og einnig frá þeim hjónum Ingunni og Haraldi persónulega. Rausn þeirra hjóna reis kannski hæsi þegar þau gáfu Akraneskaupstað Bíóhöllina. Allur ágóði sem yrði af bíósýningum þar átti að renna óskiptur til sjúkrahússins. Þessi rausn er einsdæmi og verður seint þökkuð sem skyldi. Fyrirtækið Haraldur Böðvars- son &Co hefur frá fyrstu tíð verið stær.-.li alvuinuveitandinn á Akra- nesi. Fyrirtækið hefur einnig beitt sér fyrir nýjungum I at- vinnuhagræðingu. Sonur Haraldar Böðvarssonar, Sturlaug- ur, stjórnaði fyrirtækinu með föður sínum og síðan einn eftir hans dag. Haraldur, sonur Sturlaugs, tók við rekstri fyrirtækisins, er faðir hans lézt fyrir aldur fram, í sumar. Margir af starfsmönnum fyrir- tækisins hafa starfað hjá því um og yfir hálfa öld og segir það sína sögu. í tilefni sjötíu ára afmælisins hefur fyrirtækið boðið öllum núverandi og fyrrverandi starfs- mönnum og mökum þeirra til af- mælishófs annað kvöld. Sl. sumar létu afkomendur hjónanna Ingunnar ' Stur- laugsdóttur og Haraldar Böðvarssonar gera brjóstmynd af þeim hjónum. Myndinni var komið fyrir í garði framan við húsið að Vesturgötu 32, þar sem þau hjónin bjuggu lengst af. Brjóstmyndina gerði Gyða Jóns- dóttir. -G.H./abj. mf* fcSÍ. r 1 | m m* íífl m i mm V H! mm Þessi gamla mynd sýnir þá þrjd menn, sem verlð hafa framkvæmda- stjórar fyrirtækisins Haraldur Böðvarsson & Co h/f í sjötiu ár. Frá hægri: Haraldur Böðvarsson, Sturlaugur Böðvarsson og Haraldur Sturlaugsson. 56 hafa leitað sér lækninga erlendis — Jim Cusack forstöðumaður stofnunar fyrir drykkjusjúka á opnum fundi í Austurbæjarbíói „Alkóhólisma er hægt að líkja við sykursýki. Það er ekki hægt-að lækna þennan sjúkdóm alveg, en það er hægt að halda honum niðri,“ sagði Jim Cusack í samtali við DB. Hann er forstöðumaður Veritas Willa í New York, en þangað hafa Islendingar komió til dvalar, eftir að hafa útskrifazt af Freeport sjúkrahúsinu frá Dr. Pirro. Jim og kona hans Sue eru hér á landi i boði Freeport- klúbbsins, en hann var stofnaður fyrir nokkru. Þau hjómn dvelja hér í vikutíma og verða m.a. á opnum fundi sem verður á vegum AA- samtakanna í Austurbæjarbíói nk. laugardag kl. 2. Einnig funda þau með félögum Free- port-klúbbsins og það eru ekki margar stundir sem þau eiga frí. Jim sagði okkur að nú hefðu 56 tslendingar dvalið hjá þeim hjónum á Veritas Willa. Lág- marksdvalartíminn er 2 vikur. Hann sagði að mjög góður árangur hefði náðst og það væri eftirtektarvert hve Islending- arnir stæðu vel saman. Það væri furðulegt hve góður árangur hafi náðst hér á svo skömmum tíma, sem raun ber vitni. I Bandaríkjunum er ekki hægt að tala um árangur fyrr en eftir tvö ár, en Jim sagði að ef litið væri á árangur hér núna, eftir þennan skamma tíma gæti hann sagt að um um 80% af þeim sem kæmu til New York hefðu fengið bót Það er mjög áríðandi að þessu starfi sé fylgt nógu vel eftir. Það verður að vera gott samband á milli fjölskyldu- meðlimanna, eigi góður árangur að nást. Starfandi eru hér á landi samtök sem kölluð eru Ala-non, en þau eru fyrir aðstandendur drykkjusjúkra. Nú er einnig ætlunin að stofna Ala-teen, en það eru samtök barna drykkjusjúklinga. -KP. Hjónin Jim og Sue Cusack eru hér í boói Freeportklúbbsins, en hann var stofnaður hér nýlega.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.