Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 1
dagblað
2. ARG. — FIIWMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976 — 266. TBL.
RITSTJORN SIDUMULA 12. SlMI 8.‘}:i22. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMl 27022
V
Aðaláherzla lögð
á flugsamgöngur
Almannavarnir vinna
að skipulagi
hjálparstarfs vegna
Suðurlandsjarðsk jálfta:
— hætta á að útihús verði illa úti
„Vió munum fyrst og fremst
leggja áherzlu á flugtæknina
rofni vegasamband, enda eru
góöir flugvellir í Gunnarsholti
á Hellu og á Selfossi,“ sagöi
Guðjón Petersen, fulltrúi hjá
Almannavarnaráði, í viötali við
DB í morgun er rætt var við
hann um viðbrögð við hugsan-
legum jarðskjálftum á Suður-
landi.
Bæði Ölfusárbrú og Þjórsár-
brú eru á miklum hættu-
svæðum miðað við skjálftann
1896. Þá stóð þó reyndar
Ölfusárbrúin en hún sprengdi
sig frá endunum.
Að sögn Guðjóns er
aðaláherzla nú lögð á öryggi
manna, en nokkuð af húsum á
Suðurlandi er hlaðið og sýndi
það sig í Kópaskersskjálftanum
að þau eru veikust fyrir.
Reikna má með að Suðurlands-
skjálftar verði mun sterkari
þannig að nú er húgmyndin að
gera úttekt á íbúðarhúsum á
mestu hættusvæðunum og gera
á grundvelli upplýsinga
hennar, hugsanlegar fyrir-
byggjandi ráðstafanir, þar sem
hús eru veikust.
Þá sagði Guðjón að ekki væri
nægilega vel hugað að
útihúsum og með hliðsjón af að
suðvesturhorn landsins fengi
sínar landbúnaðarafurðir af
Suðurlandinu, kynni að skapast
hið versta ástand, þá sér-
staklega -ef skjálftarnir kæmu
að vetrarlagi.
Nú er unnið að skipulagn-
ingu alhliða hjálparstarfs á
svæðinu, en Guðjón tók fram að
flest hús þar væru nu mun
sterkari en þau voru í síðasta
stórskjálfta og þvl mun minni
lífshætta á ferðum, þótt hús
kynnu að skemmast verulega.
Einnig lagði hann áherzlu á að
ekki væri von á skjálftanum í
bráðina frekar en eftir einn tíl
tvo áratugi, en jarðfraeðíngar
teldu hann þó óumflýjanlega.
-G.S.
Séra Jón Dalbú
hlaut flest
atkvæði
— munaði aðems
52 atkvæðum á
frambjóðendunum
Séra Jón Dalbú Hróbjarts-
son fékk flest atkvæði í
prestskosningum i Laugar-
nesprestakalli. Atkvæði
voru talin á skrifstofu
biskups í morgun og lauk
um 11-leytið.
Hlaut séra Jón Dalbú 1089
atkvæði, séra Pjetur Maack
hlaut 1037 atkvæði, ógildir
seðlar reyndust 9. en auðir
seðlar voru 4. -JKP-
Það var ljót aðkoman hiá starfsmönnum Fósts og sima i kópavogi þegar þeir komu til vinnu sinnar í morgun. Þar hafði verio brotizt
inn. Alls konar pakkar voru á víð og dreif um gólfið og höfðu þeir veriðtættir upp. DB-mynd Arni Páll.
Misheppnuð aðför að
milljónaverðmætum í skáp
— er brotizt var inn í pósthúsið í Kópavogi og tugir pakka rifnir upp og tættir sundur
Brotizt var inn í pósthúsið í
Kópavogi í nótt og þar gerð
atlaga að peningaskáp stofnun-
arinnar en hann geymir
margra milljóna virði í frí-
merkjum og öðrum verð-
mæturn. Miklar skemmdir voru
unnar á pökkum sem í pósthús-
inu voru. Voru þeir rifnir upp
og tættir sundur tugum saman.
Ekki er ljóst hvort verið var að
leita að einhverju sérstöku eða
hvort pakkaskemmdirnar voru
unnar í bræði vegna misheppn-
aðrar atlögu að rammbyggðum
peningaskápnum.
Guðmundur Árnason,
stöðvarstjóri Pósts og sima í
Kópavogi, sagði að lögreglan
teldi fullvíst að gluggi á salerni
hefði verið sprengdur upp og
farið þar inn.
Sprengdar voru upp tvær
læstar skúffur í skrifborðum og
ein peningaskúffa sem læst
var. Er af þeim brotum nokkurt
tjón. „Það hefur verið farið í
allar skúffur hér. Þær læstu
eru brotnar og skemmdar en
hinar heilar, enda er það
meginregla hér að flytja öll
verðmæti i peningaskápinn og
hafa síðan hirzlur opnar.“
Rannsóknarlögreglan í Kópa-
vogi gerði frumrannsókn í póst-
húsinu í morgun en siðan unnu
tveir menn frá póststjórninni
og fulltrúi í Kópavogspósthús-
inu að skýrslugerð vegna eyði-
leggingar á póstpökkunum og
öðru sem skerpmt var.
Eins og fyrr segir mistókst
atlagan að skápnum. Var þó
brotið múrverk ofan til við
hann og eitt horn hans er
nokkuð „marið" og beyglað.
ASt.
*
Yfir 3000
manns fórust
í jarðskjálftiun
í Tyrklandi
— sjá erf. fréttn-
á bls. 6-7
Hinir útvöldu og
brennivínsskatturinn
— sjá kjallaragrein Halldórs Halldórssonar
á bls. 10-11
Á órökstudd skoðun eins manns að ráða, að grund
velli efnahagslegs sjálfstæðis verði kippt burt?
— sjá kjallaragrein Reynis Hugasonar á bls. 10-11