Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 5
I sýningarsölum okkar eru medal annars
Sunbeam Arrow ’70. Hvítur,
góð vél, sjálfsk., snjódekk,
sumardekk. Eigulegur bill.
Verð kr. 450 þús.
Dodge Dart GT Sport ’70.
Grænn, V-8, sjálfsk. Verð kr.
1250 þús. Skipti möguleg á
Bronco.
Humber Hawk ’66. Grænn, vel
með farinn bfll. Tilboð, skipti.
Chverolet Blazer K-5 ’71,
Rauður, 8 cyl., sjálfsk. (350).
ekinn 75 þ. km. Verð 1400 þús,
kr. Skipti möguieg.
Citroen GS '73. Hvítur, ekinn
54 þ. km, útvarp. Verð kr. 950
þús. Fæst jafnvel á góðum lán-
um.
Dodge Dart ’70. Brúnn, 6 cyl.,
4ra dyra, beinsk., powerstýri,
Verð kr. 950 þús.
Fiat 127 ’75. Hvítur, ekinn 40 þ,
km. Verð kr. 800 þús.
Saab ’67. Rauður, nýi. tvígeng-
isvél, gott boddý, nýsprautaður.
Góður bíll miðað við aldur. Má
greiðast m/skuidabréfi.
M. Benz 250 ’69. Grár, sjálfsk.,
nýupptekin vél. Verð kr. 1350
þús., skipti á Mazda 929.
Pontiac Le Mans árg. ’72. Giæsi-
legur 2ja dyra bíll. Verð kr.
Land Rover dísil ’75. Blár, ek-
inn 50 þús. km. Verð kr. 1850
þús.
Mini Cooper S (1275) ’73. Vín-
rauður, ekinn 20 þ. km, breið
dekk á sportfelgum, há sæta-
bök, kraftmikiil bíli.
Toyota Mark II ’72. Blár, bíll í
toppstandi. Verð kr. 950 þús.
Mercury Monarch ’75. Guil-
sanseraður, ekinn 15 þ. km, 8
cyl., sjáifsk. Glæsiiegur bill.
Buick Appolio árg. ’74. Biásans-
eraður, lítil 8 cyl. vél, sjáifsk.,
litið keyrður einkabiil.
Chevrolet Maiibu ’74 31 þ.km 6
cyl. beinsk. Verð kr. 1850 þús.
skipti á ódýrari bíl.
Bflaskipti
oft möguleg
Chevrolet Vega '74. Gulur 16
þ.km. Sem nýr. Verð kr. 1450
þús. Skipti æskiieg á ódýrari
bil.
Ford LTD Brougham ’74. Blár,
vandaður bill með öllum út-
búnaði. Verð aðeins kr. 1750
þús.
Vauxhail Viva ’74. Rauður, ek-
inn 29 þús. km, góður bíll. Verð
kr. 900 þús.
Sunbeam 1250 '72. Blár. nv vél,
Verð kr. 550 þús.
Ford Bronco ’74. Blár, ekinn 41
þ. km, 8 cyl., beinsk., ókiæddur.
Verð kr. 1850 þús.
Citroen GS station '74. Grænn,
ekinn 41 þ. km. Verð kr. 1250
þús.
Saab 99 '71 Rauður. 41 þ.km,
Verð kr. 1100 þús.
GEYSILEGT URVAL AF 0LLUM STÆRÐUM 0G GERÐUM _
A Dl/ A Dl IDIAIId Grettisgötu 12-18 - Sími 25252 ^
vlAKWAtlUlflNN Bflar fyrir skuldabréf - Næg bflastæöi
Ingimundur Jónsson. leik-
stjóri.
ingjuóskum vegna giftingarinn-
ar. Ekki er það verra áð Miriam
blessunin vaknar aftur til liís-
ins, vegna þess að sjúkdóms-
greining Butlers reyndist ekki
rétt, hann treysti þvi auðvitað
að hann væri bara að gera konu
á dauðastund góðverk, en siðan
uppgötvaði hann. þegar hún
birtist aftur bráðlifandi, að
eitrið i ör indiánans var af allt
annarri og meinlausari jurt en
hann hafði haldið. Jón Guð -
laugsson skilar litlu hlutverki,
— Toms, sem er sonur Rocke-
fellers, og talinn ættleri, af
krafti og kynngi. Ekki má
gleyma Pamelu, 17 ára óhemjú
þeirra Rockefellerhjónanna,
sem Anna Ragnarsdóttir leikur
og höfum við þar eignast sköru-
lega unga leikkonu, ófeimna og
íallega, sem við væntum mikils
af.
Ég þakka þessu duglega fólki
sem að sýningunni stendur fyr-
ir skemmtilegt kvöld. Að lok-
inni sýningunni fögnuðu áhorf-
endur af einlægni. Við sáum
ekki i þetta sinn leikrit sem
ristir djúpt, en við þurfum tiara
lika að hlæja og það gerðum við
i kvöld af hjar ans lyst.
Og ef við ekki fáum snjóinn á
næstunni, þá geta landsmenn
komið til okkar i leikhús-
helgar-ferð, i staðinn fyrir
skiða-helgar-ferð, nóg og gott ei
hótelrýmið hér!
AsmBj.
* Tilvitnanir úr leikskrá.
skoðanakönnun, sem
gerð var, sýnir, að
92.5% vilja hafa her í
landinu gegn greiðslu
Fyrst i stað spurði hnnn 2þ
manns, en fannst það ekki nógu
mikill fjöldi til að byggja á.
Hann jók þvi fjöldann upp i
fimmtlu, siðan upp i hundrað
og loks i tvii hundruð.
Niðurstaða könnunarinnar
er þvi sú, að af þeim 200 sem
spurðir voru vilja 92,5% hafti
her i landinu gegn greiðslu. -A’l
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976.
Bjarni þarna leiksigur og fatast
aldrei á fylliriinu, en ofgerir
heldur aldrei. Gervi hans og
látbragð er bráðsnjallt, en hann
er á sviðinu allan leikinn út i
gegn eins og Sigurður og Krist-
jana.
Jón Friðrik Benónýsson leik-
ur m.vndarlegan og góðan
indíánahöfðingja, sem Snar-
auga heitir, svo og einnig Frán-
auga, sem er aftur á móti
ekkert nema kvensemin og ill-
mennskan. Inn i „selskapinn”
kemur svo Carlos, „hetja mikil.
sem er i fríi frá þvi að leika i
kvikmynd eftir John Ford“*.
Einar Njálsson leikur hetjuna
ismeygilega og kemur særður á
heimili Rockefellers, en Butler
karlinn verður fjarlægja kúlu
úr handlegg hans, hvað hann
gerir eftir að hafa fengið sér
einn „dry“ áður af spritti sem
hann fékk til þess að hreinsa
með sárið. Bráðsnjallt atriði.
Giftingaratriðið, þegar Rocke-
feller gefur þau saman, Butler
og Miriam, „gleðikonuna bein-
skeyttu með göfugt hjarta”*,
sem leikin er af krafti og inn-
lifun af Guðrúnu K. Jóhannes-
dóttur, er annað lifandi og
sprenghlægilegt atriði, ekki sizt
af þvi giftingin er ekkifyrr.yfir-
staðin en okkar ágæti Butler er
orðinn ekkjumaður og Rocke-
feller verður að samhryggjast
honum strax að loknum ham-
ÞJOÐNYTING LANDS 0G SJAVAR
— Alþýðubandalagið vill ekki láta sitt eftir liggja
Alþýðubandalagsmenn munu
ekki vilja láta sitt fyrir Alþýðu-
flokksmönnum, og hafa þeir nú
borið fram frumvarp um þjóðnýt-
ingu lands og sjávarbotns.
„Öll verðmæti i sjó og'á sjávar-
botni innan efnahagslögsögu, svo
og almenningar, afréttir og önnur
óbyggð lönd utan heimalanda,
teljast sameign þjóðarinnar allr-
ar, einnig námur í jörðu, orka í
rennandi vatni og jarðhiti neðan
við 100 metra dýpi.“ Svo segir
meðal annars i frumvarpi Alþýðu-
bandalagsmanna.
í greinargerð segir, að verð-
mæti i sjó og á sjávarbotni með-
fram ströndum landsins gætu orð-
ið bitbein einstakra manna siðar
meir, ef séreignarstefnan verði
enn frekar ofan á í islenzkri lög-
gjöf og ekki tekinn af allur vafi
með ótviræðu stjórnarskrár-
ákvæði.
Eignarréttur afrétta og almenn-
inga sé þegar orðinn bitbein
manna á milli.
Mjög viða, meðal annars i mörg-
um kapitaliskum löndum, sé talið
sjálfsagt, að þjóðin öll tileinki sér
námuauðæfi í jörðu. Ríkið ráði þá
yfir þessum réttindum og selji
vinnsluaðilum leyfi til námu-
graftar. Sjálfsagt sé þá að bæta
landeigendum tjón af námugrefti.
Eignarréttur á orku i rennandi
vatni hafi lengi verið deiluefni á
íslandi. Fráleitt sé, að einstakl-
ingar geti átt þá orku og selt
öðrum.
Eignarréttur landeigenda á
jarðhita djúpt í jörðu sé ekki sið-
ur fráleitur. Tryggja þurfi með
stjórnarskrárákvæði rétt sam-
félagsins til orkunnar i iðrum
jarðar.
Fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins er Ragnar Arnalds. -HH