Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976. Forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins: J „Ollum er frjálst að kynna sér efni tilboöa þau hafa veriö opnuð” ,,Það kemur fyrir í svo sem eitt skipti af hverjum tuttugu að við höfnum öllum tilboðum sem hafa borizt i tiltekið verk sem við höfum boðið út,“ sagði Asgeir Jóhannesson forstjóri Innkaupastofnunar rikisins, er Dagblaðið innti hann eftir frétt, sem birtist í Timanum i gær. Þar kemur fram, að Inn- kaupastofnunin hafi hafnað tveimur tilboðum i ákveðið verk, en síðan gefið þriðja aðii- anum kost á þvi að vinna verk- ið. eftir að hafa kynnt honum tilboðin sem bárust. I frétt Timans segir meðal annars, að þarna hafi verið um að ræða útboð Innkaupastofn- unar ríkisins á smíði innrétt- inga i eðlis- og efnafræðistofu Kennaraháskólans. Tveir aðilar buðu í verkið, — Tréval og Hjálmar Þorsteinsson. 1 frétt- inni segir, að maður frá Tré- smiðjunni Asi í Kópavogi hafi verið viðstaddur, þegar tilboð þeirra voru opnuð. Tilboðunum var báðum hafn- að, en þáverandi framkvæmda- stjóra Trévals mun vera kunnugt um, að Innkaupastofn- unin hafði stuttu siðar sam- band við Trésmiðjuna Ás og fól henni siðan verkið. Að sögn Timans var verkið boðið út árið 1975. Ás vann verkið fyrir 38% lœgra verð en lœgra tilboðið hljóðaði upp ó. „Þetta ártai er ekki rétt,“ sagði Ásgeir Jóhannesson i samtali við Dagblaðið. „Þetta verk var boðið út árið áður, þ.e. 1974 og tilboðin opnuð í sept- ember það ár. Ástæðan fyrir þvi, að við höfnuðum tilboðunum tveimur, er sú, að tækniráðgjafi Inn- kaupastofnunarinnar taldi þau bæði of há og vinnslutiminn, sem lægra tilboðið bauð upp á, væri of langur, — eða 3-4 mán- uðir. Trésmiðjan Ás vann verk- ið hins vegar á 3-4 vikum og fyrir 678.460 krónur. Lægra til- boðið hljóðaði upp á 940.000 krónur þannig að Ás gat unnið verkið fyrir 35% lægri upphæð og á 2-3 mánaða skemmri tíma.“ Hver sem er mó vera viðstaddur, er tilboð eru opnuð. Ásgeir Jóhannesson kvað ekkert óeðlilegt við það, þó að maður frá Trésmiðjunni Ási hefði verið viðstaddur, er til- boðin voru opnuð. Það væri öll- um frjálst. Eftir að tilboð hefðu verið opnuð væri öllum frjálst að kynna sér skilmála þeirra. „Satt að segja er svo langt siðan þetta gerðist, að mig rek- ur ekki minni til að nokkur hafi verið viðstaddur frá Trésmiðj- unni Ási, en það er hins vegar aukaatriði," sagði Ásgeir. „Hitt skiptir meira máli, að við buð- um verkið út og hlittum i öllu islenzkum staðli, ÍST 30, um meðferð tilboða. Við höfnuðum tilboðunum tveimur bréflega þann 16. sept- ember 1974 og gengum síðan frá framkvæmd verksins við Trésmiðjuna Ás 10 dögum siðar.“ Ásgeir Jóhannesson vildi bæta þvi við að lokum, að ekki hefði komið fram i undirrit- uðum bókunum þeirra, sem voru viðstaddir opnun tilboð- anna, að nokkuð hafi verið óeðlilegt þar. Þá hefðu full- trúar Trévals og Hjálmars Þor- steinssonar ekki gert neina athugasemd við návist fulltrúa Áss, — hafi hann þá nokkurn tima verið viðstaddur. -ÁT- Smiðjustígurinn f ær andlitslyftingu fm" * Gamalt hús hvarf og í Ijós kom minnsta torg Reykjavíkur og 700 fermetra sýningarsalir húsgagna í nær 50 ára gömlu húsi - Ymsir hafa að undanförnu veitt athygli nýstárlegum breytingum við Smiðjustiginn i Reykjavik. Gamalt hús við götuna hvart skyndilega og að baki hefur annað gamalt hús tekið miklum breytingum og fengið sérkenni- lega andlitslyftingu. Þetta er gamla smiðaverkstæði Húsgagna- verzlunar Kristjáns Siggeirssonar h.f. Það hefur nú verið dubbað upp aó innan sem utan og mun það vekja athygli og undrun margra. Þarna fær þessi lands- þekkta húsgagnaverzlun 700 fer- metra viðbótarsvæði til að sýna framleiðslu sína og ódýr innflutt sænsk húsgögn sem einkum eru ætluð ungú fólki og unglingum. Þótt gamla smíðaverkstæðið sé nú orðið nýstárlegt bæði að innan og utan, og þótt fólki kunni að þykja húsgögnin þar girnileg, þá mun rýmið eða „torgið“ milli hússins og Smiðjustigsins ekki vekja minnsta ath.vgli. Þar hefur' sömu smekkvísi verið beitt við allar húsbreytingarnar. Á efri hæð hinna nýju sýn- ingarsala er sérdeild f.vrir skrif- stofuhúsgögn. Þar er mikið úrval skrifborða, i öllum stærðum og ýmsum litum, fundarborð, skrif- stofusófar, margar gerðir skápa. Þannig litur þetta út við Smiðjustig 6. Minnsta torg Reykjavíkur og gamla húsið sem fékk andlitslyft- ingu. Nýtt og glæsilegt SP0RT MAGASÍN 0PNAR Á M0RGUN FÖSTUDAG í HÚSI LITAVERS VIÐ GRENSÁSVEG - NÆG BÍLASTÆÐI Sportmagasíniö G0ÐAB0RG HF. Símar 81617 og 82125 sem raða má santan á ótal vegu i stórar og smáar heildir. Eru þetta svonefnd ..Varia" húsgögn sem fyrirtækið framleiðir. Eru þau svo vinsæl að nú hafa 45 þúsund húsgögn verið seld eða álika mörg og fjölskyldur eru á íslandi. Yms- ar aðrar skápa- og geymslueining- ar er þarna að finna. A neðri hæðinni eru svonefnd „Innovator" húsgögn frá Sviþjóð, nýjung hér á landi. Þau eru oft nefnd „pakka-húsgögn" og eru mun ódýrari en venjuleg húsgögn hér. Séu þau keypt i pökkum og setji kaupendur þau saman sjálf- ir. fá þeir 5% verðafslátt. Kristján Siggeirsson hefur um árabil verið einn stærsti hús- gagnaframleiðandi hérlendis. Margar vörur firmans eru vel kunnar og vinsælar. Áður eru nefnd Varia-húsgögnin en auk þess má nefna Mekka- skápasamstæðuna. Novis- heimilissamstæðuna og Zontbi- töfraborðið fyrir allt og ekkert Fyrirtækið hefur sennilega framleitt fleiri skrifborð en nokk- urt annað islenzkt fyrirtæki og eru þau i stofnunum og á heimil- um um allt land. Sama er að segja um geymsluskápana. Nú bætist við ný gerð af stól sent Hjalti Geir Kristjánsson hefur hannað en hann er i senn fundarstólí og skrifborðsstöll. Verkstæði firmans er nú i 2400 fermetra sölum við Lágmúla. Þar Hjalti Geir og Jón Helgason verzlunarstjóri i „pakka- húsgagnadeildinni" sem einkum er ætluð ungu fólki og táningum. -DB-mvnd Bjarnleifur. starfa um 30 manns. Nýjar vélar hafa verið ke.vptar sem auka framleiðsluna um 30%. 15 manns vinna á Laugavegi 13 og er skrif- stofa og verzlanir á tveimur hæð- um og nú að auki að Smiðjustig 6 i nálega 700 fermetra húsnæði. Þarna var verkstæðið i 30 ár. Veggklæðning innanhúss er enn hin santa i húsinu. plægð fura. sem nú hefur verið sandblásin og setur sérstæðan blæ á salina. Verzlunarstjóri er Jón Helgason en framkva'indastjóri Hjalti Geir Kristjánsson. -ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.