Dagblaðið - 25.11.1976, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1976.
9
Það verður sumar altt árid
ínýja Kringlubænum
„Þróunarstofnun Reykjavik-
ur hefur í mörg ár unnið að
endurskoðun aðalskipulagsins
frá 1965 undir yfirstjórn skipu-
lagsnefndar Reykjavíkur, sem
hefur rætt allar tillögur og hug-
myndir jafnóðum og þær hafa
komið fram....
Skipulagsneínd borgarinnar
hefur afgreitt hið nýja aðal-
skipulag að sínu leyti og nú ér
það borgarráðs og borgarstjórn-
ar að samþykkja það endan-
lega.“
Þetta sagði Birgir ísteifur
Gunnarsson m.a. við opnun á
Skipulagssýningu Reykjavikur
að Kjarvalsstöðum i gær. Þar
gefst borgarbúum kostur á að
k.vnna sér íramtiðaráætlanir
um skipulag borgarinnar, eins
og það er sett fram á þessari
sýningu, fram til ársins 1995.
Aður en borgarráð og borgar-
stjórn fjalla um hið nýja skipu-
lag geta borgarbúar komið á
framfæri hugmyndum sinum
um breytingar.
Það er mjög margt að sjá á
sýningunni og meðal þess sem
vakti forvitni okkar var nýi
miðbærinn við Kringlumýrar-
braut. Hann afmarkast af
Miklubraut að norðan, Hvassa-
leiti og Háaleitisbraut að aust-
an, Bústaðavegi að sunnan og
Kringlumýrarbraut að vestan.
Um 30 þúsund manna ibúða-
svæði umlykur þetta svæði.
Þar eru settar fram hug-
myndir um göngugötur, sem
verða alveg aðskildar vélknú-
inni umfer'ð og verða þær yfir-
byggðar með glerþaki. Það
rignir hvorki né snjóar á fólk
sem mun eiga leið um þennan
nýja miðbæ. Hitinn verður um
18 gráður og alls konar skraut-
jurtir suðlægra landa verða
vegfarendum til augnayndis.
Meðfram götunum verða svo
verzlanir af ýmsu tagi og alls
konar þjónustufyrirtæki. I nýja
miðbænum verða svo alls konar
menningarstofnanir, t.d. borg-
arleikhús, borgarbókasafn, út-
varp og sjónvarp.
Gert er ráð fyrir heilmiklu
gróðurtorgi sem er ætlað til alls
konar útivistar og þar ætti að
vera hægt að efna til hljóm-
leika og jafnvel leiksýninga.
Blikkbeljurnar koma þarna
hvergi nærri, þær verða geymd-
ar neðanjarðar.
-KP.
A Eskifirði eru menn bólusettir heima
Það er ekki annað hægt en að
hrósa læknaþjónustunni hér á
Eskifirði. Fyrir nú utan hvað
læknirinn er góður þá gengur, já
gengur á tveimur jafnfljótum,
hún Sigurborg héraðshjúkrunar-
kona i hús á kvöldin og er búin að
bólusetja við svinainflúensu flest
fólk sem komið er yfir sextugt og
einnig öryrkja.
Þetta er til þess að vinnutap
verður ekki hjá mönnum, en hér
eru allir á kafi i vinnu. Það er
eitthvað annað en hjá ykkur höf-
uðborgarbúum þetta með bólu-
setninguna. Hér þarf ekki einu
sinni að fara neitt. Það er bara
komið heim að dyrum með bólu-
efnið. Til fróðleiks skal þess getið
að á Eskifirði búa um 1 þús.
manns. Regina.
I nýja Kringlubænum verður Rikisútvarpið meðal annarra stofn-
ana. Kári Jónasson fréttamaður hjá útvarpinu virðir fyrir sér
teikninguna af nýja húsinu.
Runtal-ofnamálið:
,Runtal-0fnar HF. á réttinn samkvæmt samningi’
— segir lögmaður Guðrúnar
Vegna frétta Dagblaðsins
varðandi fyrirtækið Runtal-
Ofna hf. í Reykjavík. þar sem
þau Birgir Þorvaldsson og Guð-
rún Einarsdóttir eru hluthafar
að jöfnum hlutum, svosemstað-
fest hefur verið á grundvelli
Hæstaréttardóms i sambandi
við búskipti á milli þeirra, hef-
ur lögmaður Guðrúnar Einars-
dóttur komið að máli við blaðjð.
Eftir atvikum telur hann
rétt, að það komi fram, að Guð-
rún liti svo á, að leyfissamning-
ur við Runtal Holding Company
S.A. i Sviss, sé gerður við
Runtal-Ofna hf., en ekki Birgi
Þorvaldsson persónulega.
I frétt i DB i gær heldur
Birgir þvi hins vegar fram, og
til stuðnings þeirri staðhæfingu
vitnar hann, einnig i DB i gær, i
bréf dags. 26.4.1976 frá Runtal
Holding Co. A.S.
Leyfissamningur sá, sem hér
um ræðir, var, aðsögnlögmanns
Guðrúnar, upphaflega gerður á
miðju ári 1965, tæplega hálfu
ári áður en Runtal-Ofnar hf.
var stofnað. Átti samningurinn
þá að vera við Vélsmiðjuna
Járn hf„ þar sem Birgir Þor-
valdsson var aðalhluthafi. Hins
vegar var hann þá að gera ráð-
stafanir til að selja það fyrir-
tæki, og bar þvi fram þá ósk, að
samningurinn yrði við sig per-
sónulega. Var það staðfest með
bréfi frá Runtal Holding 22.
júlí 1965, að svo skyldi vera.
Þegar Runtal-Ofnar hf. var
svo stofnað i árslok 1965, gerð-
ist það aðili að samningnum.
Hefur það fyrirtæki meðal
annars greitt öll Ieyfisgjöld,
sem greidd hafa verjð sam-
kvæmt honum til þessa dags, að
sögn lögmannsins.
Við breytingar, sem gerðar
voru á þeim samningi 1968 og
1971, var sérstaklega staðfest,
að félagið, þ.e. Runtal-Ofnar
hf„ væri aðili að honum. Síðari
breytingarsamningurinn, þ.e.
frá 1971, lá frammi í dómsmáli
þvi, sem áður var greint frá.
Segir i fyrirsögn þess samn-
ings, að um sé að ræða „breyt-
ingu á leyfissamningi frá 1.
ágúst 1965, milli Runtal
Holding Company S.A. (Runtal
Holding), Nauchatel, Sviss og
Runtal-Ofnar hf. (Runtal Ice-
land), Siðumúla 17, Reykjavík,
Islandi, undirritaða af hr. E.
Runte fyrir hönd Runtal
Holding og af hr. Birgi Þor-
valdssyni fyrir hönd Runtal-
Ofna“. Eru undirskriftir á
samningnum i samræmi við
þetta, þ.e. milli félaganna, en
ekki persónulega.
Fyrri breytingarsamninginn
lagði Birgir Þorvaldsson ekki
fram i áðurgreindu dómsmáli,
en Guðrún Einarsdóttir hafði
undirritað hann með honum af
hálfu Runtal-Ofna.
Að sögn lögmannsins er Guð-
rúnu að sjálfsögðu kunnugt um
bréf það frá Runtal Holding,
sem vitnað var til í frétt Dag-
blaðsins i gær. Hins vegar Iitur
hún svo á, að þar sé um að ræða
misskilning eða mistúlkun á
leyfissamningnum, þar sem
hvorki Birgir né Runtal
Holding geti breytt þvi eftir á,
sem gert var á löglegan hátt
með ofangreindum breytingar-
samningum. BS.
Tröllabingó
Tröllabingó KR-inga verður í kvöld 25. nóvember, í Sigtúni.
Húsið opnað kl. 20.00.
Forsala á aðgöngumiðum verður í KR-húsinu við Frostaskjól.
Heildarverðmæti vinninga kr. 700.000, þar á meðal 5 utanlandsferðir.
KR-Tröllin