Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1976.
Newcastle skauzt
að hlið Ipswich
— Newcastle sigraði Everton 4-1 í 1. deildinni
á Englandi í gærkvöld
Newcastle United skauzt upp
að hliðinni á Ipswich i gærkvöld
er liðið vann stórsigur á Everton
á St. James's Park i skipaborginni
míkln á N-A-strönd Englands.
Fjóram sinnnm sendu leikmenn
Neweastle knottinn i net Everton
—en fengu eitt mark á móti.
Ipswieh og Newcastie eru nú
þremur stignm á eftir Liverpool
— en Ipswich á leik til góða.
Fáir spáðu Newcastle gengi í
byrjun keppnistimabilsins. Mikill
órói virtisl með leikmönnum og
var orðrómur um aö nokkrir vildu
hverfa frá félaginu vegna
óánægju með framkvæmdastjóra
Newcastle — Gordon Lee. Þrír
fóru — þeirra frægastur Malcolm
McDonald til Arsenal. Menn
héldu að lítið yrði eftir — hver
átti svo sem að skora mörkin?
En þrátt fyrir mótlætið hefur
Newcastle átt sitt bezta keppnis-
tímabil eftir að liðið kom upp í 1.
deild í lok síðasta áratugsins.
Liðið er nú í þriðja sæti — aðeins
þremur stigum á eítir Liverpool.
lanusz heldur sig
við sama kjarnann
Islenzka landsliðið i handknatt-
leik. sem lcikur gegn pressu-
liðinn á langardag, var valið í gær
og mnn liðið þá leika í fyrsta sinn
nndir stjórn Janusz Czerwinskys
— og því fróðlegt að sjá hvernig
honnm tekst til í frumraun sinni.
Landsliðið virkar óneitanlega
sterkt á pappirnum — en þrátt
fyrir það eigum við nokkra ákaf-
lega sterka leikmenn sem eru er-
lendis og myndu styrkja liðið. En
ekki verður um landsliöið deilt —
það er leikur á laugardag.
Markverðir eru:
Olafur Bcncdiktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Aðrir leikmenn eru:
Jón Karlsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Val
Þorbjörn Guðmundsson, Val
Geir Hallsteinsson, FH
Viðar Símonarson, FH
Þórarinn Ragnarsson, FH
Viggó Sigurðsson, Víking
Björgvin Björgvinsson, Víking
Þorbergur Aðalsteinsson, Víking
Ólafur Einarsson, Víking
Ágúst Svavarsson, ÍR.
Kjarni liðsins kemur úr þremur
félögum — Víking og Val, sem
eiga 4 leikmenn hvort félag.
íslandsmeistarar FH eiga 3 Ieik-
menn í landsliðinu nú.
Nú, en leikur Newcastle og
Everton í gærkvöld var hraður og
aðeins eitt mark skildi liðin í leik-
hléi. Skotinn Tommy Craig
skoraði markið á 25. mínútu.
En markamaskína Newcastle
fór í gang í síðari hálfleik — Alan
Gowling, sem næstum hafði
gleymzt hjá Huddersfield í 4.
deild — skoraði annað mark New-
castle á 58. mínútu — skallaði
knöttinn í netið eftir sendingu frá
Stuart Barrowclough'. Aðeins
tveimur mínútum síðar bætti
Paul Cannell við þriðja marki
Newcastle. En leikmenn New-
castle létu ekki þar staðar numið
— Gowling skoraði sitt annað
mark í ieiknum — fjórða mark
Newcastle á 75. mínútu Átta
mínútum síðar tókst Everton að
minnka muninn þegar Mike
Lyons skoraði — en þá var það
líka allt of seint. Stórsigur New-
castle var staðreynd.
Tveir leikir fóru fram á FA-
bikarnum.
Bradford 6 Walsall 0-2
Colchester — Cambridge 2-0
Að lokum skulum við líta á
stöðu efstu liða í 1. deild á Eng-
landi.
Liverpool
Ipswich
Newcastle
Aston Villa
Manch. City
Leicester
Everton
Leeds
15 10 3 2 26-10 23
14 8 4 2 29-15 20
15 7 6 2 24-15 20
15 8 2 5 30-19 18
14 6 6 2 18-11 18
16 4 9 3 16-17 17
15 6 4 5 25-23 16
15 5 6 4 20-18 16
Hæsti getraunavinningurinn í haust 413.800 krónur:
Tveir Seyðfirðingar
tippa á 100 seðlum!
— Vió höfum verið meó uir
hundrað seðla síðustu fjórar
fimm vikurnar — ég og Mikhael
Jónsson. múrari. sagði Haraldui
Sigmarsson. verkamaður i
Seyðisfirði. þegar við slógum i
þráðinn til hans i morgun. Þeii
vora einir með ellefu rétta í get
raununum sl. laugardag og hlutu
hæsta vinning, sem komið hcfur í
getraununum í haust og vetur
Samtals 413.800 krónur. 408 þús
und krónur fyrir seðilinn meé
ellefu réttum, en þcir Ilaraldui
og Mikhael áttu einnig seðil meé
tiu réttum ásamt 29 öðrum. Þar
kom í hlut 5.800 krónur, svo vinn-
ingur Sevðfirðinganna í heild er
413.800 krónur.
— Þetta kemur sér vel núna
því það hefur bókstaflega ekkerl
verið að gera hér á Seyðisfirði i
fimm-scx vikur, eða síöan togar-
inn okkar fór í viðgerð. Og það
hefur dregizt og dregizt að hann
komi úr þeírri viðgerð.
Hafið þið tippað lengi?
— Nei, við erura nýbyrjaðir
saman aftur. Fyrir um sex árum
^vorum vrð með tuttugu seðla á
víku og vínníngarnir, sem við
hiutum þá, náðu nokkurn veginn
að standa undir kostnaði. Siðan
hættum við Mikhael þessu saman
— eða þar til í október að við
byrjuðum á ný með 100 seðla. Það
hefur kostað okkur um fimm
þúsund kr. t hvert skipti, en vinn-
ingslíkurnar aukast mjög, þegar
þannig er típpað. Þessi ár á milli
höfum við tippað eitthvað í sitt
hvoru lagi, sagði Haraldur.
Ahugi á ensku knattspyrn-
unni?
— 4á. við höfum báðir áhuga á
ensku knattspyrnunni — og
íþrnttum almennt.
Leikið knattspyrnu?
— Við erum báðir fæddir og
uppaldir hér á Seyðisfirði, sagði
Haraldur, sem er 36 ára, en
Mikhael er 42 ára. Báðir kvæntir.
Við lékum lengi með Huginn. Ég
er til þess að gera nýhættur — lék
nær allar stöður í liðinu nema í
mark — en lengra er síðan Mikha-
el hætti.
Þú hefur verið í fleiri iþrótta-
greinum, ef ég man rétt?
— Já, það er rétt — aðallega þó
í skíðagöngu og var víst Austur-
landsmeistari í skíðagöngu, þegar
síðast var keppt. Það var fyrir
þremur árum. Áður hafði ég
hlotið bezt annað sætið.
Og það á að halda áfram að
tippa?
— Já, blessaður vertu. Ekki
minnkar áhuginn við að fá þenn-
an góða vinning, sagði Haraldur
Sigmarsson að lokum.
UTAÐIR BUNING-
AR í BADMINT0N
— til umræðu á Norðurlandaþinginu
sl. laugardag
Norðurlandaþing í badminton
var Italdið að Hótel Loftleióum sl.
laugardag í nánum tengslum við
Norðurlandamótiö, sem háð var
um helgina. Það er ekki stjórn i
þessum samtökum okkar, aðeins
haldin þing, og samvinna með af-
brigðum góð. sagði Rafn Viggós-
son. þegar hlaðið hafði samband
við hann í gær. Rafn er varafor-
maöur Badmintonsambands ís-
lands.
Þingforseti var Guðlaugur Þor-
valdsson, háskólarektor. og þing-
ritari frú Bjiirg Jublin Arna-
dóttir. Þingið sátu fulltrúar Irá
iillum Norðurliindunum fimm.
Það var ineðal annars rætt unt
að laka upp notkun litaðra bún-
inga á badmintonmótum, en
hingað til hefur alhvítur bún-
ingur verið allsráðandi. Fékk sú
hugm.vnd góðar undirtektir og
var Svíum falið að fylgja málinu
eftir á þingi alþjóðasambandsins,
sem haldiö verður i Malmö á
næsta ári.
Einnig var rætt allítarlega um
niðurröðun opinna móta í iiinum
ýmsu aldur.silokkuni á Norður-
löndum — svo og uni ódýrustu
ferðamöguleika innan Norður-
landanna í þeim tilgangi að geta
aukið íþróttaleg samskipti milli
latidanna í badminton, sagði
Rafn. Næsta Noröurlandaþing
verður haldið i káupmannahöfn i
nóvember 1977.
Leicester City og Manchester United léku síðastliðinn laugardag á Filbe
jöfn 1-1 og mátti United þakka jafnteflið. Hér sækir Sammy Mcllro.v en
Withworth fylgist með. Væiítanlega gefst ísienzkum knattspyrnuunnend
sjónvarpi á sunnudag.
QPR reyndisl
ofjarl í Lundi
QPR sigraði FC Köln 3-0 á Loftus Road ei
flest mörkin — 5 — í UEFA bikarni
QPR — eina enska liðið sem enn er
eftir í UEFA-bikarnum sigraði í gær-
kvöld v-þýzka liðið FC Köln 3-0 á
Loftus Road í Lundúnum. Þrátt fyrir
að markatalan gefi til kynna yfir-
burði Lundúnaliðsins þá var FC Köln
mjög sterkt og lék á köflunt ágæta
knattspyrnu.
Leikmenn QPR hafa náð að sýna
mjög góða leiki í UEFA-bikarnum
þrátt fyrir misjafna leiki í ensku 1.
deildinni. Liðið lék mjög vel í gær-
kvöld — og af tveimur góðum liðum
þá hafði QPR lengst af undirtökin.
Don Givens skoraði fyrsta mark
leiksins á 30. mínútu — skallaði í
netmöskvana. Markvörður Kölnar-
liðsins hafði hendur á knettinum en
krafturinn i skalia Givens var of
mikill. — knötturinn hafnaði í net-
Aðeins þremur mínútum síðar var
QPR aftur á ferðinni — miðvörður-
inn sterki — David Webb skoraði þá
af stuttu færi eftir hornspyrnu.
Staðan í leikhléi var því 2-0. Köln
sðtti mjög í sig veðrið í s. hálfleik
en þrátt fyrir það var það QPR sem
skoraði þriðja mark leiksins. Hinn
ákaflega leikni Stan Bowles lék
skemmtilega á tvo varnarmenn Köln
og sendi knöttinn í netmöskvana —
3-0 og QPR hlýtur að eiga góða
möguleika á að komast í 4. umferð.
I Svíþjóð áttust Öster Vaxjö og
Bareelona frá Spáni við. Öster átti
aldrei möguleika gegn hinu sterka
liði Barcelonameðþa Johan Cruyff og
nafna hans Neeskens i broddi
fylkingar. Þrátt fyrir að frost væri og
aðstæður allar sænska liðinu í hag þá
einfaldlega var Barcelona of mikið
fyrir Svíana.
Clares kom Barcelona yfir í fyrri
hálfleik — og i síðari hálfleik bætti
Neeskens við öðru marki og Clares
við sinu þriðja og hinir tæplega 15
þúsund áhorfendur gátu ekki annað
en dáðst að leikni Spánverjanna—
og auðvitað Hollendinganna Neesk-
ens og Cruyff.
Nágrannar Barcelona — Espanol
léku við Feyenoord i Barcelona, borg-
inni nnklu í Katalóníu á austurströnd
Spánar. Espanol átti ekki sama gengi
að fagna og nágrannar þes., þrátt
fvrir að Espanol hafi gengið
vel í fvrstu deildinni á Spáni.
Hollenzka liðið — Feyenoord vann
UEFA-bikarinn fyrir tveimur árúm,
lék ákaflega sterkan varnarleik og
áttu Spánverjarnir í mestu erfiðleik-
um með að hrj'tfta ntður sterka vörn
Feyenoord. Og svo fór að það var
Feyenoord sem skoraði. De Filipe
varð fyrir því að senda knöttinn í
eigið mark og Feyenoord komið með
annan fótinn i r.æstu
umferð.Feyenoord hefur nú forustu í
1. deildinni í Hollandi og virðist þetta
fræga lið frá Rotterdam vera heldur
en ekki að ná sér á strik.
í Torino átti Juventus í höggi við
sovezka liðið Schactor Donetz — og
ítalska liðið sigraði 3-0. Bettega
skoraði fyrsta mark leiksins —
Tardanelli og Boninsegna bættu viö
tveimur mörkum og aðeins 35.
mínútur liðnar af leiknum. En Sovét-
mönnunum tókst að halda aftur af
hinum sterku ítölsku sóknarleik-
mönnum það sem eftir var leiksins.
Þegar leikið verður í Donetzk þá
verða 100 þúsund manns til að hvetja
liðið áfram — svo síðari leikurinn
verður Itölum áreiðanlega erfiður.
I Moolenbeek — útborg Antwerp-
en, hafnarborginni miklu lék Molen-
beek við v-þýzka liðið Schalke 04.
UEFA-b
Urslit leikja i UFEA-bikarnum.
í Barcelona: Espanol, Spáni —
Feyqnoord, Hollandi 0-1 (0-1). Mark
Feyenoord de Filipe, sjálfsmark.
Áhorfendur 40 þúsund.
í Torino: Juventus, Ítalíu, —
Schahtor Donetzk, Sovétríkjunum, 3-
0 (3-0). Mörk Juventus skoruðu
Bettega, Tardelli og Boninsegna.
Ahorfendur 50 þúsund.
Í Vaxjö: Öster Vaxjö, Svíþjóð, —
Barcelona, Spáni, 0-3 (0-1). Mörk
Barcelona skoruðu Clares 2,
Neeskens. Ahorfendur 14.706.
í London: QPR Englandi — FC
Köln, V-Þýzkalandi. 3-0 (2-0). Mörk
QPR skoruðu Givens, Webb og
Bowles. Ahorfendur 25 þúsund.
í Aþenu: AEK Aþenu, Grikklandi,
— Rauða Stjarnan. Júgóslaviu, 2-0
(2-0). Mörk AKK skoruðu Papaouan-
nou, Mavros. Áhorfendur 28 þúsund.
í Brussel: RWD Molonbeek, Belgiu
— Schalke 04. V-Þýzkalandi 1-0 (0-0).
Mark Molenheek skoraði LaFont.
Ábnrfendur 15 þúsun'd.