Dagblaðið - 10.12.1976, Side 6

Dagblaðið - 10.12.1976, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976. Kanada: Sovézkum flugmálasendi- fulltrúa vísaö úr landi Kanadíska utanrikis- ráðuneytió í Ottawa hefur beðið aðstoðarflugmálasendi- fulltrúann við sovézka sendi- ráðið að hverfa úr landi. Var Vladimir Vassiliev majór við sendiráðið úrskurðaður sem persona non grata vegna starfsemi sinnar, sem ekki félli undir ákvæði um sendiráðsstarfsmenn. Ekki var farið nánar út í þá sálma. Sam- kvæmt heimildum úr utanríkis- ráðuneytinu, er búizt við því, að Vassiliev fari úr iandi fyrir helgina. Árið 1965 var tveimur sovézkum sendiráðsstarfs- mönnum visað úr landi fyrir njósnir. Höfðu mennirnir reynt að múta fólki til að láta þeim í té hernaðarupplýsingar. Árið áður hafði fréttaritara dag- blaðsins Izvestia verið visað úr landi fyrir atferli sem ,,er alls ekki í sambandi við störf blaða- rnanna". Að sögn ríkis- stjórnarinnar hafði hann reynt að stunda iðnaðarnjósnir. 1961 var hernaðarsendi- fulltrúa sendiráðsins visað úr landi er uppvíst varð, að hann hafði tekið á móti leynilegum upplýsingum. 1 fyrra vísuðu yfirvöld í Kanada kínverskum sendiráðs- starfsmanni úr landi og var það sagt öryggisráðstöfun. lan Smith: „Engin lausn á þessu ári” Ian Smith, forsætisráðherra Rodesíu, hefur algjörlega útilok- að möguleika á því, að árangur náist fljótlega á ráðstefnunni um framtíð Rodesíu í Ccnf, einmitt, er vonir höfðu glæðzt um að svo yrði. „Við munum ekki finna lausn í samningunum á þessu ári,“ sagði hann við fréttamenn í gærkvöldi. ,,Til þess er tíminn of naumur." Smith hitti fréttamenn að máli eftir fund sinn með Ivor Richárd, formanni ráðstefnunnar og Richard sagði í óvenjnlega svart- sýnum tón af honum að vera, „þetta getur tekið lengri tíma, en við héldum.“ Bretland: _ Samkomulag innan stjómarinnar um ráðstafanir í efnahagsmálunum skilyrði fyrir 3.9 milljarða dollara láni.er Bretar þiggja hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. pessi tíðindi spuroust út í London eftir að brezka ríkis- stjórnin hafði i gær komizt að samkomulagi um efnahags- ráðstafanir sínar án þess að það leiddi til afsagnar einstakra ráðherra eins og raunar virtist mögulegt um tíma. Fundur stjórnarinnar í gær var hinn áttundi, sem haldinn er um efnahagsástandið_síðan fulltrúar Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins komu til London fyrir mánuði síðan til að ræða um lánskjörinog kynna sér efna- hagsástandið í Bretlandi. Talið er líklegt að niður- skurður fjárlaga verði ofarlega á blaði í sparnaðaráætlun Healeys. Ekkert hefur þó verið látið uppi um fyrirhugaðar aðgerðir, en haft er eftit kunnugum, að óbeinir skattar muni hækka nokku<ýog komi sú hækkun til framkvæmda þeg- ar eftir jól. Denis Healey, fjármála- nýjum sparnaðarráðstöfunum ráðherra Bretlands, mun á brezku stjórnarinnar, þar sem miðvikudaginn gera grein fyrir hún hefur komið sér saman um Denis Healey. fjármálaráðherra Bretlands. PELSARIURVALI Hlý og falleg jólagjöf sem vermir. Ath. Góðir greiösluskilmálar. Opið í dag föstudag til kl. 8. Laugardag til kl. 6. Njólsgötu 14 Sími 20160. sportmagasín á tveimur hæðum í húsi Litavers við Grensásveg 22 Til jólagjafa: Allar tegundir af íþróttafatnaði, íþróttatöskum og íþróttaskóm. Allt fyrir hestamenn, reiðtygi, spaðahnakkar á kr. 29.00Ó,-, reiðstígvél. Snjóþotur — Skíði — Skautar og sleðar Ódýru barnaskíðin kr. 3.775.- settió. Fótboltaspil — Bobbspil — Datspil Björgunarvesti með kraga Allt fyrir sport- og veiðimenn. Sportmagasínið Goðaborg hf. Sími 81617 - 82125

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.