Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 10

Dagblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 10
10 DACHI.AÐIÐ KÖSTUIMCUR 10. DKSKMBKR 1976. írjálst, úháð dagblað Útgefandi DagblaAiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjansson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Aöstoöarfróttastjóri: Atli Steinarsson. íþróttir: Hallur Símonarson. Hönnun: Jóhannes Reykdal. Handrit: Ásgrimur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Erna V. Ingolfsdottir, Gissur Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Johanna Birgisdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kristin LýÖsdóttir, Ólafur Jonsson, Ómar Valdimarsson. Lfósmyndir: Árni Páll Jóhannsson, Bjarnleifur Bjarnleifsson, Sveinn Þormóösson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson. Áskriftargjald 1100 kr. á mánuöi innanlands. Í lausasölu 60 kr. eintakiö. Ritstjórn Síöumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiösla Þverholti 2, simi 27022. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakurhf., Skeifunni 19. Misheppnað undanhald Skipulagssýning Reyk.javíkur á Kjarvalsstöðum ber nokkur merki gagnrýninnar á svonefndar blikk- beljur, sem hefur verið í ti/ku á undantornum árum. Sú uagnrýni ristir þó ekki dýpra en svo, að höfunclar hennar stiga gjarnan upp í einkabíla sína að reiðilestri loknum. Peningaleg rök eru fyrir því, að notkun strætisvagna eigi að aukast á kostnað notkunar einkabíla. Taprekstur strætisvagnanna felur líka í sér viðurkenningu borgaryfirvalda á því, að notkun þeirra sparar borginni gerð umferð- armannvirkja. Ef skipulagsmenn telja svo, að þessi peninga- legu rök skipti mestu máli, vaða þeir í villu og svima. Einkabíllinn er annað og meira en flutn- ingatæki. Hann er sálrænn og félagslegur hluti nútímamannsins. Þetta meginatriði málsins verða menn að viðurkenna, þegar þeir skipu- leggja borgir. Þróunarstofnun Reykjavíkur treður bíleig- endum ekki upp í strætisvagna með því að skera niður áætluð bílastæði í gamla miðbæn- um úr einu stæði á hverja 50 fermetra gólfflat- ar í eitt stæði á hverja 150 fermetra gólfflatar. Menn munu áfram þrjózkast um á einkabílum í umferðarteppunni, hvað sem yfirvöldin segja. Þetta er líka reynslan erlendis, þar sem ástand- ið er verra en hér. Auðvitað verður að bæta strætisvagnakerfið og reka það áfram með tapi, þótt ekki sé nema fvrir börnin og gamla fólkið. En það er ófært, að skipulags.vfirvöld leggi á flótta undan blikk- beljugagnrýninni og taki að fækka bílastæðum. Meið slíku er einungis verió að skipuleggja umferóaröngþveiti í framtíðinni. Auka þarf flutningsgetu Skúlagötu og Hring- brautar frá því, sem sýnt er á skipulagssýning- unni, óg reisa vió Hverfisgötu nokkur bíla- geymsluhús, sem ekið sé inn í frá Skúlagötu. Þar með er hindrað, að umferðarþunginn frá Skúlagötu stífli hinar þröngu götur gamla mið- bæjarins og spilli svip þeirra. Úr slíkum bíla- geymsluhúsum er svo unnt að hafa innangengt í yfirbyggða göngugötu framtíðarinnar á Laugavegi. Aðrar breytingar umferöarmála á sýning- unni eru yfirleitt til bóta, til dæmis fráhvarfið frá tengingu Túngötu við Grettisgötu. Það er ekki rétt að slíta gamla miðbæinn mikið í sundur meö bílaumferð. Undantekningin er Lækjargatan, enda háttar landslagi þar svo, aö þægilegt er að koma fyrir brúm fyrir gangandi fólk milli holts og kvosar. Skipulag borga hefur löngum veriö háð alls- konar dellum og tízku. Blikkbeljugagnrýnin er þar í flokki. Hún tekur ekki tillit lil sálrænna og félagslegra þarfa nútímamannsins, þótt hún líli vel út á öðrum sviðum. Ef skipuleggjendur Reykjavíkur láta hugmyndafræði blikkbelju- gagnrýnenda loka augum sínum fyrir heil- brigðri skynsemi, er voðinn vís. Þá kafnar gamli miðbærinn í umferðaröngþveiti. Skipuleggjéndur eiga að miða við fólk. eins og það er í raun og veru. en ekki við fölk. eins og það ætti að vera frá sjónarmiði blikkbelju- gagnrýnenda. Um þetta geta skipuleggjendur sannfærzt með því að skoða einkabí||ieign hinna reiöu inanna. Eftir stefnubreytingu Kína: Albanía einangrast æ meir Vestrænn sendiráðsstarfs- maður, sem aðsetur hefur i Tirana, höfuðborg Albaníu, þurfti að panta hótelherbergi í Róm. Hann varð að aka rúmlega þrjú hundruð kílómetra vegaíengd að hóteli skamml innan við landamæri Júgóslavíu til þess að geta notað símann. Það er ekkert simasamband til vesturs og norðurs frá Tirana. Hinir sárafáu ferðamenn frá Vestur-Þýzkalandi, sem leyft hefur verið að heimsækja landið. segja að þeir haf'i verið undir stöðugu eftirliti. „Þegar ég reyndi að fara út af hótelinu að næturlagi til þess að fá mér göngutúr," sagði einn þeirra í grein sinni um ferðina, ,,kom lögregluþjónn aðvífandi og skipaði mér að fara aftur upp á herbergi.“ Aðrir, sem telja sig þekkja til, segja, að þrátt fyrir blóðuga sögu þjóðarinnar og inn- hveríingu hennar, séu flestir menntamenn hennar vel að sér í frönsku og lesi franskar bók- menntir sér til skemmtunar. Slíkar einstaka fréttir á stangli og ónákvæmar, eru þær einu, sem berast frá Albaníu, einu einangraðasta landi Evrópu, þar sem öllu er stjórnað af mikilli hörku og fátækt er mikil. Þó vita menn nóg til þess að staðfest er, að leiðtogi þjóðarinnar, hinn 68 ára gamli Enver Hoxha, hefur náð sér það vel af veikindum sínum, að hann heldur enn traustataki um stjórnvölinn hjá 2.4 miljjón manna þjóð sinni, þrátt fýrir ýmis aðsteðjandi vandamál. Deild úr albanska kvennahernum ágöngu. Að loknu þingi Alþýðusambands Um síðustu helgi lauk að Hótel Sögu í Reykjavik stærstu og valdamestu samkomu, sem haldin er í landinu, jafnvel þótt Alþingi sé talið með. Þing Alþýðusambands íslands, sem haldin eru á fjögurra ára fresti. geta valdið þáttaskilum í sam- félaginu. Samhent verkalýðs- hreyfing getur steypt ríkis- stjórnum, og hefur raunar gert það. Við leikmanni, sem fyrir utan stendur og horfir á, virðist samt blasa við, að að þessu sinni hafi verið óvenjumikil ólga á þinginu. Á yfirborði virðast það vera nýróttæk öfl einhvers konar, en sé betur að gáð virðast það þó fremur vera öfl, sem eru óánægð með kjör sin, lágtekjufólk sem finnst það orðið útundan í kjarakapp- hlaupi síðustu ár og fólk sem finnst kerfi stjórnmála- flokkanna liafa óeðlileg af- skipti af málefnum verkalýðs- hreyfingar. Stundum er þetta sama fólkið, en þó ekki alltaf. Þessu fólki hefur samt vaxið fiskur um hrygg, og er ekki ólíklegt að hlutur þess eigi enn eftir að vaxa á næstu árum. Alþýðusambandsþing endur- kaus Björn Jónsson til forseta. hann virðist vera sterkur og njóta trausts. Þjóðstjórnin svo- kallaða. það er miðstjórn kosin eftir hlutfallareglum stjörn- málaflokka. situr áfrant þó með nokkrum breytingum sé. Þó vex hlutur fulltrúa láglauna- fólks og hlutur þeirra sem eru óbundnir stjórnmálaflokkum. Hvort tveggja virðist þróun i hagstæða átt. Á Alþýðusamband að vera stjórnmólaflokkur? A þessu Alþýðusambands- þingi var samþykkt stefnuskrá fyrir Alþýðusambandið, í fyrsta skipti síðan viðskilnaður Alþýðuflokks og Alþýðusam- bands átti sér stað árið 1940. Vandinn er auðvitað samt sá, að verkalýðssamtökin eru óendan- lega viðkvæm samtök, þar sem lítið má út af bera. Þar er að Kjallari á föstudegi Vilmundur Gylfason l'inna allar mögulegar skoðanir á öllum mögulegmn málum. 1 fyri a bjuggu einhverjir forkólf- ar Alþýðusambandsins til frasa um alþýðuvöld. Kf sú hugsun er lnigsuð til enda. þá hlýtur það að vera einhvers konar tilraun til þess að auka afskipti Alþýðusambands af pólitiskum málum. sem hins vegar eru ekki faglegs eðlis. í þá veru er eiunig samþykkt þingsins nú um að Ísland skuli l'ara úr NATO. Vandiun er samt sá að stór hluti fulltrúa á þessu þingi, stór hluti launþega yfirleitt, vill og ætlast til, að verka- lýðshreyfingin sé einasta fagleg hreyfing, sem fjallar um kjaramál, aðbúnað á vinnu- stöðum og önnur mál sem tengjast vinnu og framleiðslu. Fjölmargir eru þeirrar skoðunar, að með þessum hætti sé verkalýðshreyfingin færust um að ná árangri. Og að pólitískar skiptingar. að ekki sé talað um flokkspólitískar skiptingar, hafi reynzt til bölvunar á undangengnum árum. Það er aö sjá sem hugmvnda- fræði Aðalheiðar Bjarnfreðs- dóttur og þeirra. sem umhverfis hana eru, gangi fyrst og fremst út á þetta. Og efalitið eru þetta hvort tveggja: skvnsamlegar skoðanir og skoðanir sem munu verða oían á á næstu árum. Þau pólitísku hrossakaup. sem fara fram á þessum þingum, og fjölmiðlar gera mikið úr — kannske of mikið þó — eru auðvitað til þess fallin að rýra álit slíkra þinga. Uppreisn geqn flokkum? Flokkspólitískt Alþýðusam- band flokkspólitisk verkalýðs- hreyfing. er ekki til þess fallin að verða launþegum það tæki. sem hún annars gæti orðið. Þegar svo við bætist. að stjórn- málaflokkarnir eru meira og minna brenglaöir og úreltir. lýðræði innan þeirra oft tak- markað og þátttaka í starfsemi þeirra af skornum skammti. Iireinlega vegna þess hve þeir — allir sem einn — oft eru leiöinlegir og litt aðlaðandi. þá gel'ur auga leið að eðlilegt er að

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.