Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976.
íþróttir
Muhammad Ali mun
áreiðanlega verja tilii sinn í
þungavigt i hnefaleikum. sagði
Ilarold Conrad á fundi st.jórnar
alþ.jóðasambands hnefaleika-
manna í Las Vegas í gær — en
þessi Conrad er þekktur útgef-
andi iþróttablaða og bóka.
Formaður sambandsins, Jose
Sulaiman, sagðist vilja fá yfir-
lýsingu frá Ali sjálfum eða fram-
kvæmdastjóra hans,
Herburt Muhammad, áður en
nokkrar ákvarðanir eru teknar
um titilleik.
Harold Conrad var viss í sinni
sök og sagði, að Ali mundi frekar
berjast tvisvar en einu sinni. Þeir
George Foreman og Earnie
Shavers mundu sennilega báðir
fá tækifæri til að keppa við Ali
um heimsmeistaratitilinn.
Aðalvandamálið enn er þó
varnarleikur íslenzka liðsins og
allar æfingar í janúar verða
miðaðar við að reyna að laga
varnarleikinn sem mest, sagði
Janusz ennfremur. Sóknarleikur
liðsins er hins vegar að koma til.
Mér fannst þýzka liðið ekki eins
sterkt núna og þegar það lék
landsleikina í Reykjavík í
nóvember 1974, sagði Ölafur
Einarsson, en hann var einn bezti
maður íslands í leiknum og
hættulegur í sókninni og það svo,
að Þjóðverjar tóku hann úr
umferð allan síðari hálfleikinn. 1
landsleikjunum 1974 sigruðu
Þjóðverjar í báðum leikjunum.
Fyrst með þriggja marka mun,
24-21, en 24-20 í síðari leiknum.
Leikurinn i gær var sá fimmti við
Austur-Þýzkaland — og fimmti
tapleikurinn. A Olympíuleikun-
um í Munchen. 1972 vann A-
Þýzkaland ísland með 16-11.
Það var ekki stór handknatt-
leikur, sem Austur-Þýzkaland og
ísland sýndu í Austur-Berlín i
gær. Mikill tilraunasvipur á
báðum liðum og greinilegt, að
þjálfarar liðanna eru að þreifa sig
áfram fyrir B-keppnina í Austur-
ríki um mánaðamótin febrúar-
marz. Löndin eru þar í sama
riðli ásamt Portúgal. — Ég hef
fengið þrjd mánuði til að undir-
búa íslenzka landsjiðið fyrir þá
keppni, sagði Janusz Czerwinski í
gær — þegar flestir aðrir þjálf-
arar hafa fengið tvö ár til að
undirbúa lið sín fyrir heims-
meistarakeppnina. En ég ætla að
koma íslandi í úrslitin í Dan-
mörku 1978, bætti hann við.
Viðar Símonarson sýndi mikið
öryggi í leiknum í gær og var
markhæstur íslenzku leik-
mannanna. Skoraði níu mörk og_
sjö þeirra voru úr vítaköstum.’
Þau brugðust aldrei hjá honum.
Olafur Einarsson og Jón Karlsson
skoruðu þrjú mörk hvor. Björgvin
Björgvinsson tvö og Geir
Hallsteinsson eitt.
Nær sörnu leikmenn léku allan
leikinn. Ölafur Benediktsson,
Viðar, Geir, Ólafur, Jón, Björg-
vin, Þorbjörn Guðmundsson og
Þórarinn Ragnarsson. Gunnar
Einarsson kom ekki f markið —
og þeir Ágúst Svavarsson,
Bjarni Guðmundsson og Viggó
Sigurðsson komu lítið við sögu.
Þorbergur Aðalsteinsson og
Kristján Sigmundsson léku ekki í
gær — en í kvöld munu þessir
ungu leikmenn leika sinn fyrsta
landsleik. Þá leika Austur-
Þýzkaland og Island aftur og
verður leikurinn háður í Frank-
furt am Oder. Á laugardag verður
haldið til Danmerkur og lands-
leikur leikinn við Dani á
sunnudag.
Lise-Maria'Morerod. Sviss. sigraði í f.vrstu keppni heimsbikarsins.
— Eg er eftir atvikum ánægður
með leik íslenzka liðsins. þótt
margt megi enn laga. Þetta er
þriðji leikur liðsins á stuttum
tíma — tveir pressuleikir áður —
og samkvæmt skrám. sem við
höldum vfir leikina er lands-
leikurinn við Austur-Þjóðverja
mun betri en pressuieikirnir.
Þetta fer allt batnandi. sagði
pólski landsiiðsþjáifarinn.
Janusz Czerwinski. eftir leik
Austur-Þýzkalands og íslands i
Berlín í gær. Þjóðverjarnir
sigruðu með sex marka mun.
25-19. sem er. þegar litið er á
tölurnar. mikil framför frá
siðasta leik tslands og Austur-
Þýzkalands ytra. 1973 í desember
unnu Austur-Þjóðverjar með 35-
14 eða 21 marks mun.
Þó var sigur þýzka liðsins
óþarflega stór í gær miðað við
gang leiksins. Islenzka liðið hafði
ekki alltaf heppnina með sér og
átti þrjú stangarskot, en verst
var, þegar knettinum var gloprað
á óþarfan hátt og Þjóðverjar
brunuðu upp og skoruðu. Það
kom allt of oft fyrir i leiknum.
KEPPIR
ALIEÐA?
Það miðar í rétta
átt hjá strákunum
- sagði landsliðsþjálfarinn, Janusz Czerwinski, eftir landsleikinn í Berlín í gær
ANNA-MARÍA HEFUR ENGU GLEYMT
Mesta skíðakona heims. Anna-
María Moser-Pröll sýndi i gær.
þegar keppnin um heimsbikarinn
hófst í Val d’Isere í Frakklandi.
að hún hefur engu gleymt. þrátt
fyrir rúmlega ársfjarveru frá
keppni. Frú Moser. sem nú er
23ja ára. varð í þriðja sæti í svig-
keppninni í heimsbikar kvenna
— en svigið hefur alltaf verið
hennar veikasta grein. í bruni var
hún langbezt — og einnig sterk í’
stórsvigi. Sigurvegari í gær varð
Lise-Maria Morerod. Sviss. og
önnur — mjög óvænt — hin 19'
ára Abbi Fisher. Bandarikjunum.
En það var þó fyrst og fremst.
Anna-María, sem dró að sér at-
hyglina. Hún hafði nýlega gengizt
undir læknisaðgerð vegna maga-
veiki og það var ekki við miklu
búizt af henni. Eftir keppnina
sagði hún: —,,Ég vissi að ég gekk
ekki alveg heil til leiks og er ekki
í þeirri æfingu, sem þarf. Mér
hefur sjaldan liðið eins illa og var
gráti næst — en ég mátti ekki láta
tilíinningarnar ráða og er mjög
ánægð með þriðja sætið.“
Það var mikil snjókoma, þegar
keppnin hófst, og dimmt yfir á
rásstaðnum. Lise-Maria Morerod
sýndi mikla hæfni í brautinni,
sem var 1500 metra löng með 53
hliðum og fallhæð 320 metrar.
Tími hennar var 1:17.10 min., en
Anna-María keyrði á 1:17.29 mín.
Svissnesku stúlkunni hefur al-
mennt verið spáð miklum frama í
heimsbikarkeppninni í vetur, en
eftir keppnina í gær munu þó
fleiri hallast að sigri Önnu-Maríu
enn einu sinni.
Lisa-María hefur tækni, sem
minnir mjög á Ingemar Sten-
mark, sænska heimsmeistarann.
Sjaldan hefur henni þó tekizt að
líkjast Svíanum eins og í gær.
Hún sagði:
„Tíu mínútum áður en keppnin
hófst var ég taugaóstyrk — en það
hvart og ég var mjög róleg, þegar
að keppninni kom. Ég ætla ekki
að hugsa svo mikið um sigur í
heimsbikarnum, að minnsta kosti
ekki á þessu stigi — en reyna að
einbeita mér að því að sigra í
hverri keppni."
Mest á óvart kom frammistaða
Abbi Fisher, en hún hafði rás-
rúmer eitt — og varð raunveru-
lega að ,,ryðja“ brautina fyrir
aðra, sem á eftir henni komu. „Ég
er orðin vön þessu. Þetta er i
fjórða skipti á stuttum tíma og ég
er mjög bjartsýn á árangur í vet-
ur. Ég get aðeins orðið betri og
betri," en hún er ekki talin eins
góð skíðakona og Cindy Nelson,
sem varð í áttunda sæti í dag. í 10.
sæti varð Becky Dorsey, Banda-
ríkjunum, svo þrjár bandarískar
stúlkur voru með 10 beztu í
keppninni. Skíðakonan kunna,
Birgitte Zurbriggen, Sviss, varð i
fjórða sæti og 16 ára frönsk stúlka
Perrine Pelen varð í sjötta sæti.
Hins vegar voru hinar frægu stöll-
ur hennar frá Frakklandi, Dan-
ielle Debernard og Fabienne
Serrat, aðeins i 13. og 14. sæti.
Ég vil að þú aðstoðir Roger, en mundu,
að þú ert fnegur og þín verður —J
___________________________________ gætl vei __________________________________________________________________________________________________________________________________ •' ’vott'*’i
Aah, ég vona að ‘ jRólegur, drengur.
^þetta gangi... ^Þú átt eftir að hrist;
upp i þeim.
-----------
Iþróttir
HALLUR
SÍMONARSON
Ingemar Stenmark
Stenmark
byrjar vörn
heimsbikars-
ins í dag
Heimsmeistarinn í alpagrein-
um. Svíinn Ingemar Stenmark,
byrjar vörnina i heimsbikarnum í
Val d’Isere í Frakklandi í dag —
og er talinn langsigurstrangleg-
astur. Keppnin í heimsbikar-
keppninni hjá körlum hefst með
stórsvigi.
Fyrir aðeins mánuði sagði
Ingeniar Stenmark. að hann væri
illa undirbúinn fyrir keppnina í
vetur miðað við marga aðra.
Margir af beztu skíðamönnum
heims æfðu í Argentínu í sumar
— en á þeim mótum, sem háð
hafa verið hefur Ingemar
sýnt. að hann er sá snjallasti. þó
hann hafi ekki farið til æfinga í
Argentínu.
Þrír sigrar af fjórum
mögulegum — einu sinni 'annað
sætið. Það þarf kraftaverk
til þess að einhver „steli“ heims-
bikarnum frá honum. sagði
fréttamaður Reuters í gær. Ótti
Ingemars að þriggja mánaða her-
þjónusta í sumar geri það að verk-
um. að hann sé ilia undirbúinn
fyrir keppnistímabilið. virðist
ástæðulaus.
Helztu keppinautar hans i
vetur verða eflaust Gustavo
Thoeni, fjórum sinnum heims-,
meistari. sem er nú í góðri æfingu
eftir slakan árangur á síðasta
keppnistímabili. Piero Gros.
einnig ftalíu. og Heini
Hemmi.Sviss. Þá gæti brunsér-
fræðingurinn austurríski. Franz
Klammer. skotið þessum görpum
aftur fyrir sig — en fyrsta
brunkeppni heimsbikarsins
verður á sunnudag.