Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 18
1H DAdMI.AÐH) KOSTUDACUR 10. DESEMBER 1976. Uss, ekki hafa hátt: HEFÐI MÁTT VERA MUN VANDAÐRI JÓN RAGNARSSON: Uss, ekki hafa hátt UTGEFANDI: SG-hljomplotur (SG-098) UPPTAKA: Tóntœkni hf. TÆKNIMAÐUR: SigurAur Arnason PRESSUN: Soundtek. New York Áður en platan „Uss, ekki hafa hátt“ kom út, þekkti ég ekkert til Jóns Ragnarssonar, nema að hann hafði leikið á gítar með hljómsveitinni Fops á sínum tíma og að hann samdi titillag einu stóru plötunnar, sem hljómsveitin Svanfriður gaf út. Platan hét What’s Hidd- en There og Jagið var gott. A „Uss, ekki hafa hátt” láta mörg laganna vel i e.vrum, en textar aftur á móti síður. Satt að segja gerast þeir vart inni- haldslausari og þá eru áherzlur islenzks máls oft á tíðum rangar svo textinn falli að lögunum. Með Jöni leika á plötunni þeir Sigurður Arnason á bassa, Hrólfur Uunnarsson á trommur og Birgir Hrafnsson og Björg- vin Gíslason, gítarleikarar. Það. verður ekki annað sagt um Hrólf en að hann haldi takti og að hinir séu ófalskir. Hins veg- ar minnist ég þess ekki að hafa he.vrt meiri meðalmennskubrag á hljóðfæraleik þessara ágætu manna og skemma þeir fremur en bæta lög Jóns. Hlutur Jóns Ragnarssonar sjálfs, auk þess að semja lög og texta er að syngja öll lögin og leika á kassagítar. Það fer ekki hjá því, að maður eins og Jón, sem hefur verið jafn lengi fjarri lifandi tónlistarflutningi og þeim áhrifum, sem tónlistar- menn hafa hver á annan, sé farinn að stirðna talsvert. Raddbeiting hans er keimlik í öllum lögunum og vantar þar alla tilbreytingu. 1 heild virðist mér ekki hafa verið nógu vel vandað til plöt- unnar „Uss, ekki hafa hátt". I.ögin sjálf eru flest fullboðleg á plötu, en textar og undirleity- ur er fyrir neðan allar hellur. Þá virðast mér möguleikar slúdiós Tóntækni lítt hafa verið notaðir, en keppzt við að spara liina og Ijúka upptökum af á sem skemmstum tima. -AT- ÓMAR VALDIMARSSON Þau stóðu að útgáfu hundruðustu plötunnar. Frá vinstri eru Öskar Halldórsson lektor. María Jóhanna Lárusdóttir. Svavar Gests. Hólmfríður Pálsdóttirog Knútur Skeggjason. DB-mynd: Arni Páll. Vinsældakosningar DB Dagblaðið hyggst nú í fyrsta skipti gefa lesendum sínum kost á aðveljásjálíir þaðfólk og hljómsveitir, sem þeir telja að hafi skarað fram úr á árinu 1976. Til að marktæk heildar- mynd fáist af stöðu islenzkra tónlistarmanna innbyrðis, er æskilegast að sem flest at- kvæði berist og sem víðast að af landinu. Við hvetjum ykkur því eindregið til að taka þátt I þessari kosningu og senda seð- ■ilinn strax í dag, eins og skáld- ið sagði(ha.ha). Eins og sjá má, vantar á list- ann möguleika til að velja vin- sælustu plötur ársins. Ekki er ráðlegt að gefa lesendum kost á að velja hana strax, þar eð mikill fjöldi hljómplatna er íútkominn ennþá, eða nýút- kominn, þannig að fæstum hef- ur unnizt tími til að mynda sér skoðun um þær ennþá. Þá er möguleiki á að velja þrjá þá beztu á hverju sviði. Sá bezti fer þá í 1. sæti, næstbezti í 2. sæti o.s.frv. Jæja, höfum ekki fleiri orð um þetta. Skilafrestur á at- kvæðaseðlinum er fram til Þorláksmessu. — 23. desem- ber. Þá sakar ekki að lesendur láti fylgja með nokkrar línur, þar sem þeir geta rakið raunir sínar eða hrósað því sem vel hefur verið gert að þeirra dómi. -AT- Hljómsveit \ Söngvari ! Söngkona Bjartasta von 1 Bezta svidsframkoma m Gítarleikari Bassaleikari i Trommuleikari m Hljómborðs leikari Tónskáld og textahófundar 1 Önnur hljóðfæri m Erlendar hljómsveitir Erlendur söngvari Erlend söngkona Nafn Eiginhandarundirskrift. Heimili Aldur— í fyrradag var tímamóta- dagur hjá SG-hljómplötum, því að þá kom út hundraðasta stóra platan, sem fyrirtækið hefur gefið út á tólf ára ferli sínum. Þetta er nokkurs konar hátíðar- útgáfa hjá fyrirtækinu og plat- an er helguð Lárusi heitnum Pálssyni leikara. Svavar Gests, eigandi SG- hljómplatna, boðaði til blaða- mannafundar í tilefni af út- komu þessarar plötu. Þar sagði hann meðal annars, að það væri honum heiður að fá tækifæri til að gefa út plötu moð Lárusi Pálss.vni, sem hann hefði metið mjög mikils. Það var Öskar Halldórsson lektor, sem valdi efnið á plötuna og raðaði því niður. Upptökur eru allar fengnar úr segulbandasafni Ríkisút- varpsins og ná yfir 25 ára tíma- bil, frá árinu 1942-’67. Það var Knútur Skeggjason, tækni- maður og segulbandavörður, sem tók að sér að tína til upptökur með Lárusi og endur- bæta þær. A blaðamannafundinum færði Svavar Gests þessum tveimur mönnum þakkir fyrir framlag þeirra til þessarar hátíðarútgáfu. Þá voru við- staddar á fundinum Hólm- fríður Pálsdóttir, systir Lárusar og dóttir hans María Jóhanna og þakkaði Svavar þeim sér- staklega aðstoð þeirra við gerð. plötunnar. SG-hljómplötur áttu tiu ára afmæli árið 1974. Svavar Gests ákvað þá að bíða með að halda upp á afmælið vegna afmæla- flóðsins, sem þá gekk yfir þjóðina. Hann notaði því tækifærið til að minnast tíma- mótanna er hundraðasta platan kæmi út. Hjá SG-hljómplötum hafa komið út, auk LP platnanna 100, um 80 tveggja og fjögurra laga hljómplötur. -AT- 1 OOasta plata SG — Lárus Pálsson les upp Hljómskífur í Skíf unni Skífan heitir hljómplötuverzlun, sem tók til starfa fyrir helgina á Laugavegi 33 í Reykjavík. Eigandi hennar er Jón Olafsson, Kefl- víkingur sem hefur um margra ára skeið verið viðriðinn íslenzkan tónlistariðnað. sem umboðsmaður og hljómplötuútgefandi. auk þess sem hann hefur um nokkurt skeið rokið hljómplötuverzlun í Hafnarfirði. 1 Skífunni hefur Jón á boðstólum allar nýjustu plöturnar og stefnir að auknu framboði í vistlegum hlisakynnurh. Myndina tók Bjarnleifur af Jóni (t.h.) og afgreiðslumanninum, Rúnari Marvinssvni. þegar verzlunin var formlega opnuð fyrir nokkru. -ÖV.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.