Dagblaðið - 18.01.1977, Síða 9

Dagblaðið - 18.01.1977, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1977. <9 Góður hamar atarna, má lesa úr svip menntamálaráðherra þar sem hann skoðar vinnusal Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Þór Sandhoit skólastjóri Iðnskólans (í miðið) getur víst ekki státað af annarri eins aðstöðu. Guðmundur Sveinsson skólastjóri Fjölbrautaskólans er iengst til hægri á mvndinni (DB-mvndir Bjarnleif- ur). Þessi glæsiiegi salur á væntanlega eftir að leiða fram á vinnumarkaðinn margan hagleiksmanninn til handa islenzkum iðnaði. Til þess er leikurinn gerður og milljónatugum til varið og í engu sparað að séð verði. Iðnfræðslubrautin fær glæsilegan vinnusal: Þaðan koma trésmiðir og málm- iðnaðarmenn framtíðarinnar Við Fjölbrautaskólann í Breið- holti hefur nú verið tekið í notk- un fullkomið kennsluhúsnæði fyrir nemendur á iðnfræðslu- braut skólans. Húsið er ætlað til kennslu í trésmíðum og málm- smíðum og skiptist nokkurn veg- inn til helminga milli þessara greina. Þetta er eina skólahúsið sem er sérútbúið fyrir kennslu í þessum greinum, að Iðnskólanum undan- skildum. Er hér því um mikla framför að ræða í menntun iðn- nema. Auk vinnusala eru í húsinu tvö búningsherbergi, snyrtiaðstaða og steypiböð fyrir allt að 100 nem- endur. Tvö kennaraherbergi eru fyrir kennara og kennslustofa er f.vrir 16 nemendur. Einnig er kaffistofa nemenda í húsinu. Áfallinn og greiddur bygging- arkostnaður við skólann i árslok 1976 var um 90 milljónir króna og áætlað er að eftir sé að greiða u.þ.b. 5 milljónir. Vélar og annar kennsluútbúnaður eru ekki með- talinn í framangreindum tölum- vegna þess að verulegur hluti þeirra var keyptur á árinu 1975 og hefur verið notaður í bráða- birgðahúsnæði í Fellaskóla. -KP bi?; (DB-mynd Arni Páll) GEMSINN GERIR ÞAÐ GOTT ÞRÁTT FYRIR HÁAN ALDUR Enda þótt þrjátíu ár og rúmlega það séu liðin frá þvi hinni ill- ræmdu heimsstyrjöld (þeirri síð- ari og vonandi síðustu á þessari öld) lauk er ekki þar með sagt að öll verksummerki hafi verið af- máð, til dæmis þessi gamli og seigi „gemsi“, þ.e.a.s. GMC- trukkur, sem hefur borizt hingað til lands vegna styrjaldarástands- ins og veru bandarísks herliðs hér á landi síðari hluta stríðsins. Hann er enn að vinnu suður í Hafnarfirði hjá Skipasmíðastöð- inni Dröfn, endurbættur að vísu, en þó í svipaðri mynd og í upphafi 17 erlend veiðiskip í landhelginni í gær íslenzka landhelgin hef ur aldrei verið „hrein” af erl. skipum þó 15 mánuðir séu f rá útf ærslu í200 mflur Landhelgisgæzlan skýrði frá því í gær að 17 erlend veiðiskip væru nú við íslandsstrendur að veiðum eða á siglingu. Segir Gæzlan hér um að ræða 11 þýzk skip og 6 belgísk samkvæmt samningum um veiðar þeirra. Sama dag í fyrra, eða 17.janú- ar, voru hér við landið að veið- um innan 200 milna fiskveiði- lögsögu íslands alls 72 erlend veiðiskip. Þar af voru 52 brezk- ir togarar en brezku togararnir urðu flestir i janúar 1976, 57 talsins. Gæzlan segir að á islandi yrðu belgísku togararnir marg- ir kallaðir togbátar. 12 slíkir hafa hér veiðiheimildir og eru nú á 6 mánaða samningi sem hófst 15. október. Mega þeir samkvæmt samningnum veiða 1-500 tonn af þorski og 5000 t af öðrum fiski. Meðalstærð belgisku skipanna eru 257 tonn brúttó og meðalaldur skipanna 22 ár. Öll eru skipin siðutogarar með 7-10 manna áhöfn. Skipin eru léleg og aflamagn þeirra lítið, að sögn Gæzlunnar. Veiðiheimildir Þjóðverja renna út hér við land síðla á þessu ári samkvæmt gildandi samningi. Afli Þjóðverja er samkvæmt samningi mest bundinn við karfa en heimild hafa þeir til veiða á 5 þúsund tonnum af þorski. 15 mánuðir eru liðnir frá út- færslu okkar í 200 mílur. Ekki einn einasta dag síðan þá hefur íslenzka landhelgin verið ,,hrein“ af erlendum fiskiskip- um. Umtalsverð „hvíld" fyrir miðin fékkst ekki fyrr en 1. des. sl. er brezku togararnir hurfu út fyrir 200 mílna mörkin. -ASt. Tærandi efni íheita vatninu íKröflu: Leiðslur og guf u- skiljur líka íhættu — aðeins gufa leidd inn á hverflana o$ þeim þvíekkihætt Það verður fvlgzt náið með tær- ingarhraða í leiðslum og skiljum þegar þar að kemur og reynist hún veruleg verður rennsli þar um stöðvað áður en skaði hlýzt af. sagði Karl Ragnars deildarverk- fræðingur hjá Orkustofnun er hann var spurður hvort tæringar- hættan með heita vatninu við Kröflu gæti ekki skaðað fleiri ein- ingar en holurnar sjálfar. Að sögn Karls á heita vatnið að renna eftir leiðslum til skilju- hússins og fara þar um skiijur sem skilja vatn og gufu að. Gufan fer síðan inn á hverflana í stöðv- arhúsinu en i gufunni eru ekki nein efni sem geta valdið óeðli- legri tæringu. Eins og fram er komið er talið að óvænt gas, sem blandazt vatn- inu. auki sýrumagnið í því og þá um leið tæringarhættuna. Kar! sagði að þetta gas hefð* komið óvænt og gæti þess vegna horfið aftur úr vatninu en ekkert væri hægt að segja um það með vissu ,að svo stöddu. Sagði hann að víð- tæk athugun á þessu væri í gangi með .samvinnu Orkustofnunar og Rannsóknastofnunar iðnaðarins og skýrðust línurnar væntanlega alveg á næstunni þar sem áherzla er lögð á það. F.vrirbæri þetta er ekki þekkt í jafnríkum mæli, t.d. í Japan. sem er mikið eldfjallaiand. -G.S. 1 ~ - THkynning til viðskiptavina Verzlunin Krómhúsgögn, Grensásvegi 7, Reykjavík, hefur fíutt að Smiðjuvegi 5 Kópavogi.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.