Dagblaðið - 18.01.1977, Page 14

Dagblaðið - 18.01.1977, Page 14
14 /■ DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1977. Þúgetur ekki „sofið” í öllum skrítlumyndum eru þeir timbruðu að jafnaði með íspoka á höfðinu. Það má vel vera að þetta gefi góða raun við höfuðverknum, en öruggasta leiðin er mjög einföld: Drekktu bara ekki svona mikið af alkóhóli! Flestir sem á annað borð bragða áfengi kannast við slæma liðan „daginn eftir“. En hvað er það sem gerir það að verkum að við finnum f.vrir þessum óþægilegu áhrifum daginn eftir að við höfum feng- ið okkur í glas? Við rákumst á grein um þessi mál i sænsku blaði og fer hér á eftir lausleg þýðing greinar- innar, þar sem blaðamaðurinn á samtal við Carl Magnus Ide- ström lækni við drykkjumanna- deild Karolinska sjúkrahússins. Hinir svokölluðu timbur- menn eru í rauninni ekkert annað en óþægindi sem maður finnur fyrir þegar alkóhólið er að fara úr líkamanum. Það er aðeins til eitt ráð við timbur- mönnum og það er að drekka ekki eins mikið af alkóhóli og við erum vön að gera, þ.e. ef við fáum timburmenn. sofnaðir sofa þeir létt og órólega. Þegar fólk sefur undir áhrifum áfengis er að ekki neinn venjulegur svefn. Það er langt frá því að allir geti „sofið áfengið burt“ úr likamanum. Til eru þeir sem eru enn und- ir áhrifum áfengisins þegar þeir vakna að morgni. Þeir geta verið hættulegir, bæði um- hverfinu og sjálfum sér. Þeir hafa ekki fulla stjórn á ökutækjum eða vélum. Því mið- ur er algengt á mannmörgum vinnustöðum að þar séu dag- lega einhverjir sem svo er ástatt um. Það er í rauninni ekkert utanaðkomandi sem getur eytt áfenginu úr líkamanum. Það tekur ákveðinn tíma fyrir líkamann að losa sig við það, og það er mjög mismunandi hvað sá tími er lengi hjá hverjum og einum. Ekki bregðast allir á sama hátt við timburmönnum. Síður en svo. Til eru þeir, sem ekki finna svo mjög fyrir þeim, á meðan aðrir líða vítis- kvalir, þrátt fyrir að báðir aðil- ar hafi drukkið álíka mik- af alkóhóli. Þarna hefur svefninn ákaf- lega mikið að segja. Margir sofa illa eftir að hafa drukkið ákveðið magn af alkóhóli. Þeir sofa „eins og steinn", en skömmu eftir að þeir eru Að sjálfsögðu er til eitthvert meðaltal sem hægt er að miða við, en það er engan veginn einhlítt. Reiknað er með að venjulegur maður losi sig við tvær flöskur af áfengu öli á fjórum tíma, eina flösku af léttu víni á níu klukkutímum 25 cl af vodka tekur hálfan sólarhring að losa sig við úr líkamanum. Allir sem einhvern tíma hafa komizt í tæri við timburmenn þekkja hinn hræðilega þorsta sem fólk þjáðist af daginn eftir. Það er almennt talið að áfengis- neyzla auki þvagrennsli. úr líkamanum. Líkaminn hefur hreinlega misst of mikinn vökva og bregzt við á þann hátt að viðkomandi verður ákaflega þvrstur. Mismunandi hve lengi líkaminn er að afgeiða alkóhólið úr líkamanum QUINN í HLUTVERKI GRÍSKS SKIPAKÓNGS OG AUÐJOFURS I augum margra eru Anthony Quinn og Grikkinn Zorba einn og sami maðurinn þótt nú séu liðin tólf ár síðan hann fór með þetta hlutverk. Anthony Quinn er afar Iiðugur þótt hann sé kominn til ára sinna. Ilann dansaði grískan dans í næturklúbbnum Siroceo á Manhattan um daginn við mikinn fognuð áhorfenda. Nýlega sýndi Quinn að hann hefur ekki gleymt hinum eldfjöruga gríska dansi, sem hann dansaði af svo mikilli list í mynd- inni um Zorba. Hann dansaði i grískum næturklúbb á Manhattan við gífurleg fagnaðarlæti áhorf- enda. „Ég dansa aðeins fyrir peninga," sagði Quinn. Hann fékk svo sannarlega peninga fvrir að dansa, en ætlar þó ekki að gera þetta að atvinnu sinni í framtíðinni. Hann fékk 50 þúsund dollara fyrir sinn jnúð og peningarnir gengu óskiptir til visindastofnunar sem hefur helg- að sig baráttunni gegn krabba- meini, eiturlyfjum og gigtarsjúk- dómum. Annars er Quinn nú búinn að fá hlutverk annars Grikkja, en ekki er víst að hann fái að dansa í því. Það er hlutverk skipakóngs, sem gekk að eiga ríka, bandaríska ekkju og mótleikari hans er Jackie, — þ.e. Jackie Bisset.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.