Dagblaðið - 18.01.1977, Blaðsíða 23
Sjónvarpið í kvöld kl. 20.35: Umræðuþáttur
Bændur í brennipunkti
Hagsmunamál bænda hafa
mikið verið á döfinni níi sem
endranær. Eftir rigningasamt
sumar hér sunnanlands og vest-
an gekk jafnvel verr en nokkru
sinni fyrr að ná sæmilegum
heyjurn inn. Afleiðingin varð
sú að fóðurgildi heysins varð
lítið.
Það er Magnús Ölafsson.
bóndi og blaðamaður. sem í
kvöld ætlar að stjórna umræðu-
þætti um hagsmunamál bænda
með hliðsjón af fundahöldum
þeirra í vetur.
Þátttakendur auk hans eru
Magnús Finnbogason, bóndi,
Lágafelli, Kristófer Kristjáns-
son, Köldukinn í Húnavatns-
sýslu og Gunnar Guðbjartsson
bóndi, formaður Stéttarsam-
bands bænda. Einnig verður
rætt við fulltrúa neytenda.
EVI
Kýrnar á Þorvaldse.vri í
Austur-E.vjafjallahreppi þurfa
ekki að kvíða því að fá ekki góð
hey i vetur. Eggert Ólafsson
hóndi þar var einn af fáum á
Suðurlandi sem náði he.vjum
sínum óskcmmdum, enda verk-
ar hann einnig mikið í vothev.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 18. JANÚAR 1977.
Útvarpið íkvöld kl. 19.35: Vinnumál
MENGUNí
ÁLVERINU
„Það sem við tökum núna í
bættinum er Alverið. Það er
alltaf verið að tala um meng-
unarhættu þar í kring og að
ekkert þrífist í næsta nágrenni.
Minna er hins vegar hugað að
þeim, sem inni eru, og hvernig
mengunarmálin snúa gagnvart
þeim. Hafa þeir beðið tjón af
flúormengun?"
Það er Gunnar Eydal sem
stjórnar þættinum Vinnumál
ásamt Arnmundi Backman.
sem þetta sagði.
Þeir ræóa við starfsmennog
yfirmenn staðarins en um
fleira en mengunarmál er að
ræða. Þar er geysimikil raf-
magnsnotkun og spurt er um
slysahættu af völdum raf-
magns.
Meginspurningin er hvernig
stóriðjuver eru sem vinnu-
staðir. Þetta er brennandi
spurning vegna framtíðar
slíkra vinnustaða á tslandi.
Þeir Gunnar og Arnmundur
fara einnig inn á öryggismálin
á staðnum, snyrtiaðstöðu, kaffi-
og matsali o. fl.
Ef tími vinnst til munu þeir
einnig svara ýmsum spurning-
um sem ekki hefur verið tími
Þetta eru sementsverksmiðjur rétt fyrir utan Osió. Þar hefur verlð unnið mikið starf við að útiloka
mengun af reyknum og það tekizt að mestu. Vonandi berum við islendingar gæfu tii þess að hefta
mengun bæði vegna þeirrar stóriðju sem fyrir er í iandinu og komandi stóriðju.
tii að svara, eins og um rétt trúnaðarstörfum í vinnutíma samkvæmt nýgengnum næsta-
trúnaðarmanna til að starfa að og gerðardómi í kjaradeilum, réttardómi. -EVI.
Sjónvarpið íkvöld kl. 22.15:
Fræðslumynd
Helztu jarð-
skjálftasvæði
heims
Jarðskjálftar urðu i
Guatemala vorið 1976. Miklar
skemmdir urðu meðal annars í
Guatemalaborg eins og þessi
m.vnd sem tekin er þar í mið-
borginni ber með sér. Margir
létu lífið og margir meiddust.
En jarðskjálftar urðu á fleiri
stöðum á hnettinum á árinu.
í kvöld verður sýnd brezk
fræðslumynd um ymis helztu
jarðskjálftasvæði heims
Filippseyjar, Kína, Alaska,
Kaliforníu, Tyrkland og
Gúatemala. Þá eru sýndar svip-
m.vndir frá eldgosum í Etnu,
Vesúvíusi og Heimaey.
Þýðandi og þulur er Guð-
brandur Gíslason.
-EVI.