Dagblaðið - 26.01.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1977
3
Hljómar vorubezta hljómsveitin sem við höfum átt. F.v. Rúnar Júlíusson, Gunnar Þórðarson og
Erlingur Björnsson skipuðu hljómsveitina Hijóma sem gerðu garðinn frægan á sínum tíma.
Hljómar voru á
heimsmælikvarða
—tónsmíðar Gunnars hafa sérstakan gæðastimpil
Raddir
lesenda
ALLT ÞAÐ
SKILUR
BATTI
L.H. sendi cftirfarandi:
Ekki er kerfið umtalsvert,
allt það skilur Batti,
ýmsir komast opinbert
undan þungum skatti.
ÓLIJÓOG
EINAR EIGA
AÐ VÍKJA
— ekki síður en
Haukur
Steinar Guðjónsson hringdi:
Ég vil gjarnan koma með fyr-
irspurn. Ber ekki Einari
Agústssyni utanríkisráðherra
og Ólafi Jóhannessyni dóms-
málaráðherra að segja af sér á
meðan mál þeirra eru á rann-
sóknarstigi? Þeir eru ekki síður
bendlaðir við mál en Haukur
Guðmundsson lögreglumaður.
Honum var vikið úr starfi og
hefur aðeins hálf laun á meðan
verið er að sanna sekt hans eða
sakleysi. Það hlýtur að vera
skýlaus krafa almennings að
þessir tveir verði látnir víkja.
Hefur
nokkur
séð hana
Skottu?
Vigdís Ingibergsdóttir hringdi.
Það var fyrir um það bil
viku að ég tapaði henni Skottu,
en skott hennar er óvenju stutt,
þess vegna hlaut hún nafnið.
Skotta er hálfstálpuð og því
miður ekki með hálsband. Það
er mamma hennar aftur á móti
með en hún er vön að fara út í
fylgd með henni.Að þessu sinni
var það einnig svo en hún kom
bara ekki inn aftur. Skotta er
dálítið fælin og ekki mikið fyrir
ókunnuga. Ef einhver hefur nú
skotið skjólshúsi yfir hana eða
séð henni bregða fyrir væri ég
afar þakklát fyrir að fá að vita
af henni. Sími minn er 25658 og
ég á heima í Eskihlíð 18.
St. Guðm. skrifar:
Þegar fyrsta bréf 453031 birt-
ist í Dagblaðinu varð ég mjög
undrandi á því að maður með
jafngóðan tónlistarsmekk og
453031 virðist hafa samkvæmt
upptalningu sinni á góðum tón-
listarmönnum skuli ráðast svo
harkalega að okkar bezta og af-
kastamesta tónlistarmanni. Þar
sem 453031 er jafnaldri minn
hefur hann líklega fylgzt með
tónlistarferli Gunnars jafn-
lengi og jafnmikið og ég, þó
varlega megi ætla það sam-
kvæmt því að hann kallar
Gunnar mesta óvin íslenzkrar
tónlistar og vill hann úr landi.
Ef við skoðum tónlistarferil
Gunnars frá því er Hljómar
byrja er ekki annað hægt að sjá
en sá ferill sé lýtalaus, að
undanskilinni Lónlí blú bojs
. peningavélinni. Ferill Hljóma
er tvímælalaust merkilegasti
ferill hérlendrar hljómsveitar
til þessa. Ástæður tel ég aug-
ljósar, þær má hiklaust rekja til
tónsmiða Gunnars Þórðarsonar
sem oftast hafa sérstakan gæða-
stimpil. Þá hafa vandaðar út-
setningar meistarans sitt að
segja því augljóslega var það.
hann sem samdi og stjórnaði
þegar hin frábæra hljómsveit
Trúbrot var stofnuð af úrvals
tónlistarfólki var augljóst að
þar leiddi Gunnar hljómsveit á
heimsmælikvarða. Það sann-
aðist til dæmis með plötum
hljómsveitarinnar Undir
áhrifum og Lifun, sem báðar
eru enn í dag í hópi okkar beztu
platna. Þegar Hljómar voru
endurreistir gáfu þeir út stór-
góða plötu, Hljómar ’74. A
þeirri plötu stjórnar Gunnar
heilmiklu liði bandarískra
sessiontónlistarmanna. Líklega
hefði ekki öðrum tekizt það
verk betur. Það var líka árið
1974 að Gunnar leiddi fram-
varðasveit íslenzkra popptón-
listarmanna á tónlistarhátíð í
Stokkhólmi. Þar var einmitt
verið að mótmæla hinni árlegu
Eurovision söngvakeppni en í
henni er eingöngu flutt innan-
tóm commercial-tónlist sem.
453031 er svo mjög á móti, sem
og ég og allir er una þróaðri
tóniist. Þessi hljómsveit.
Gunnars vakti mikla athygli og
var íslenzku þjóðinni til mikils
sóma. Árið 1975 sendi Gunnar
frá sér sína fyrstu sólóplötu
sem var eins og við mátti búast
mjög góð í alla staði. í fyrra
kom út á plötu Vilhjálms Vil-
hjálmssonar lagið Hrafninn
eftir Gunnar. Með þessu lagi tel
ég Gunnar hafa náð hvað lengst
í tónsmíði. Vonandi hefur
453031 heyrt það lag. Ekki má
líta fram hjá öllum þeim fjölda
hljómplatna með ýmsu
tónlistarfólki sem Gunnar
hefur veitt ómetanlega aðstoð
á. Og nú hefur Gunnar unnið
sinn stærsta sigur til þessa,
undirritað samning við banda-
rískan umboðsmann um útgáfu
hljómplatna hjá heimsþekktu
hljómplötufyrirtæki. Ég er viss
um að 453031 þárf ekki að
óttast það að Gunnar hefur,
eins og allir vita, hlotið lista-
mannalaun. Það var ekki að
ástæðulausu. Flestir eru líklega
þeirrar skoðunar að Gunnar
hafi unnið til úthlutunar lista-
mannalauna oftar en í þetta
eina sinn. Enginn íslenzkur
tónlistarmaður hefur veitt mér
meiri ánægju en Gunnar með
tónlistarsköpun sinni. Hef ég
þá trú að 453031 hafi þar haft
ánægju af líka. Auðvitað er
ekki sama snilldin í öllu sem
Gunnar hefur látið fara frá sér
á hljómplötum. Lónlí blú bojs
(peningavélina) tel ég vera ör-
þrifaráð févana listamanns til
að framfleyta sér og sínum.
Sjálfum er mér meinilla við
tónlist LBB en get engan veg-
inn sagt hið sama um plötuna
Einu sinni var. Mér finnst hún
vönduð fjölskylduplata og vel
útsett, þó að hún sé auðvitað
ekkert til að þroska tónlistar-
smekk fólks. 453031, reyndu að
líta fram hjá LBB og öðru slíku,
sem er miður umræddum lista-
manni, njóttu heldur i ríkum
mæli þess góða sem frá honum
kemur. Að lokum vil ég taka
undir það sem 453031 beinir til
0840-1241 að reyna að minnsta
kosti eina kvöldstund að hlusta
á snillingana Bob Dylan og
Megas, þó ekki væri nema
textana.
Hún Skotta er koisvört og með stutt skott. Þetta er mamma hennar
sem lika er svört.
Virðirei vísindi slík
DB fékk senda eftirfarandi vísu:
Við reynum að setja upp sanna mynd
af sjávarins nytsömu gæðum,
en eigum að stríða við öflin biind,
sem afneita siikum fræðum.
Seint mun vor elja það afkastarík
sem allir vér kjósa myndum,
og Matthías virðir ei vísindi slik,
sem vald’a h’onum óþægindum.
Spurning
dagsins
litasjónvarp?
Hólmfríður Gfsladóttir: Nei, ég
horfi svo sjaldan á sjónvarp, það
er ekki nógu skemmtiiegt og svo
er litasjónvarp allt of dýrt.
María Anna Þorsteinsdóttir: Nei,
ég horfi ekki svo mikið á sjón-
varp, en ég mundi alveg þiggja
það ef mér væri gefið eitt.
Óskar Jóhannesson: Já, það er
allt annað að horfa á dagskrána i
lit, fólki finnst sjónvarpið svona
leiðinlegt, af því að það sér allt i
svarthvítu.
Þóra Hafsteinsdóttir: Já, það er
miklu skemmtilegra að horfa á
þætti í lit, en svo kemur það á
móti að litasjónvörp eru svo dýr.
Ólafur Arnars: Já, þvi ekki það.
Ég er viss um að það er allt annað
að horfa á sjónvarpið i lit en
svarthvitu.
Sigurður Jóhannsson: Já, það er
miklu skemmtilegra að hafa
sendingar í lit. Það er að visu
alltaf hægt að gagnrýna dag-
skrána, en litirnir hressa mikið
upp á hana.