Dagblaðið - 26.01.1977, Síða 12

Dagblaðið - 26.01.1977, Síða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1977. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1977. " 11jhh^h^hhbhbbwb Hi'itnflW 'W fYTf^g íIílLíiUÍI* þróttir ■ ■ GAGNRYNIFJÖLMIÐLA ER ALLTOF NEIKVÆÐ —segir pólski landsliðsþjálfarinn Janusz Czerwinski, en hann var mjög ánægður með sigur íslenzka liðsins í gærkvöld — Ég er öánægður með skrif ís- lenzku blaðanna um islenzka lands- liðið. Þau eru ekki núgu jákvæð og ástæðan til þess, að ekki voru fleiri áhorfendur (um eitt þúsund) á landsleiknum í kvöld, sagði Janusz Czerwinski, landsliðsþjálfari, eftir landsleikinn í gær, þegar blaðamenn fóru að spvrja hann um álit hans á leiknum. Við erum að gera tilraunir með liðið, sem fram hafa komið í pressu- leikjunum, síðan í landsleikjunum við Dani og nú við Pólverja. Þetta hefur allt verið í rétta átt — en umfjöllun fjöímiðla hefur verið nei- kvæð. Það hefur áhrif eins og sjá má af áhorfendaf jöldanum nú, sagði Janusz. — En ég er ánægður, hélt hann áfram, með strákana í íslenzka liðinu. Þeir voru nú miklu einbeittari, en í f.vrri leiknum við Pólverja. Allir í liðinu áttu góðan leik, og ekki vildi Janusz telja einhvern einn öðrum betri. íslenzka liðið lék vel og var gott í heild. Skotin miklu betri en i fyrri leiknum og þess vegna virkaði mark- varzla Pðllands nú lakari. Þetta er bezti leikur. sem íslenzka landsliðið hefur leikið siðan ég tók við þjálfun þess. Þessi sigur er frábær fyrir liðið. því lið Pólverja er í heimsklassa. Dómararnir? — Þeir voru kata- stroffa, sagöi Janusz að lokum. Það er rétt að taka undir þau orð landsliðsþjálfarans, að gagnrýnin hefur oft verið of hörð. Það er á þessu- sviði eins og svo mörgum í íslenzku þjóðlífi — annað hvort í ökkla eða eyra. Það eru fáar þjóðir i heiminum, sem gera aðrar eins kröfur til íþrótta- manna sinna og við íslendingar, og þá einkum í handknattleiknum. Annað hvort erum við í skýjunum — eða sárreiðir. Við hér á Dagblaðinu tökum þó þessa gagnrýni ekki alvar- lega til okkar, og það er rétt að það komi fram, að undirritaður lýsti því strax yfir á pressuleikjunum. að okkur — blaðamönnum —kæmu ekk- ert við þær tilraunir, sem Janusz Czerwinski var þá með á liði sínu. -hsim. TIL HVERS - HVERS VEGNA? Óvænt ummæli formanns HSÍ, Siguröar Jónssonar, Þær eru farnar að segja til sín þessar 130 æfingar íslenzku lands- liðsmannanna — en allir beztu leik- menn okkar eru hér heima, sagði Sigurður Jónsson, formaður Hand- knattleikssambands íslands, eftir iandsleikinn í gær. Það er mín skoðun, að þessir lands- leikir við Pólverjana hafi sýnt það, að við eigum að byggja þetta upp á strák- unum hér heima, en ekki sækja menn til útlanda. En ég tek það skýrt fram, að þetta er mín persónulega skoðun og ég er hér ekki að tala fyrir hönd stjórnar HSÍ eða landsliðsnefndar. Þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jóns- son falla ekki inn í leikkerfin, sem verið er að byggja upp. Það yrði vissulega styrkur af Ölafi H. Jóns- s.vni, en ekki nema hann geti verið eftir landsleikinn ígær hér heima og æft með strákunum, sagði Sigurður Jónsson að lokum. Eg verð að segja eins og er, að ég skil ekki til hvers — eða hvers vegna — Sigurður vinur minn Jónsson var að varpa þessari „sprengju" eftir landsleikinn „einn bezta landsleik, sem íslenzkt landslið hefur sýnt“, svo notuð séu orð Birgis Björnssonar, for- manns landsliðsnefndar. Það var varla viðeigandi eftir einn mesta landsliðssigur íslands. Auðvitað er það rétt, að þeir Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson hafa ekki getað æft mikið með íslenzka landsliðinu vegna dvalar sinnar í Þýzkalandi. En það er enn heill mán- uður til stefnu í B-keppnina — mán- uður, þar sem þessir leikmenn hafa miklu meiri tækifæri en áður til að æfa með íslenzka landsliðinu. Þá ætti að verða létt fyrir þessa greindu pilta að komast til botns í leikkerfum Januszar Czerwinski — og flesta leik- menn íslenzka landsliðsins gjör- þekkja þeir Axel og Ólafur og því aðeins herzlumunur að ná samæfingu við þá. Þssi yfirlýsing Sigurðar kom mér og fleirum vissulega á óvart — og kom engan veginn fram á réttum stað eða tíma. Það er auðvitað út í hött, að segja að leikmaður eins og Ólafur H. Jónsson sé ekki styrkur fyrir íslenzkt landslið — sé ekki í hópi 14—16 beztu leikmanna íslands nema æfa því meira. Og sama gildir vissulega einnig með Axel Axelsson. hsím. ÍSLENDINGAR HAFA MIKLA MÖGULEIKA í B-KEPPNINNI —sagði fararst jóri pólska liðsins eftir landsleikinn á gær . , .. i_1..UA.-A nnid/a lirtsirn; nií F.inknm var litli nr. sex er beztur (Biörgvi Ég tel að íslcnzka landsliðið hafi mikla möguleika til að komast áfram í B-keppni heimsmeistarakeppninnar í Austurríki, sagði Stanislaw Majorek, þjálfari pólska liðsins eftir leikinn í gærkvöld. Það er ástæða til að óska íslenzka landsliðinu og Janusz Czerwinski til hamingju með þennan sigur. íslenzka landsliðið spilaði mjög vel og hin góða sam- vinna, sem tekizt hefur milli íslands og Póllands er mjög ánægjuleg. Hins vegar er ég ekki ánægður með leik pólska liðsins nú. Einkum var vörnin slæm — og markvarzlan eftir því. Beztu menn íslands. Geir Hall- steinsson, Björgvin Björgvinsson og þessi nr. 13, Þorbjörn Guðmundsson. Ég tel, að það hefði litlu breytt, þó leikmenn meistaraliðs okkar, Slask, hefðu tekið þátt í þessum leik. Við eigum svo jafna leikmenn, sagði Henzyk Rozmiarek, landsliðsmark- vörður Póllands, sem varði markið svo snilldarlega i fyrri leiknum, en var hvíldur í þeim síðari. tslenzka liðið er mjög gott. Þessi litli nr. sex er beztur (Björgvin Björg- vinsson), en nr. 2 (Ólafur Einars- son) og sá örvhenti nr. 11 (Agúst Svavarsson), eru einnig mjög góðir leikmenn. Ég held, sagði Rozmiarek ennfrem- ur, að ísland og Austur-Þýzkaland komist áfram í B-keppninni í Austur- ríki. Spánverjar geta verið hættulegir — en varla norska liðið. Já, ísland, á örugglega að komast i heimsmeistara- keppnina í Danmörku 1978, sagði markvörðurinn að lokum. Opidmótfbilliard: Kom sigurinn á óvart Um síðustu helgi fór fram á Billiardstofunni Júnó í Skipholti fyrsta opna mótið í snooker, sem háð liefur verið hérlendis. Þátttakendur voru alls 24 og var keppt í þremur riðlum, eða 8 kepp- endur í hverjum riðli. Fyrirkomulag mótsins var þannig, að þrír efstu menn í hverjum riðli komust síðan áfram í einn úrslitariðil og kepptu þeir síðan allir við alla. Sigurvegari þessa móts var hinn ungi og efnilegi billiardspilari, Stefán Aðalsteinsson, sem er aðeins tvítugur að aldri. Sigraði hann flesta andstæðinga sína með miklum yfirburðum og með sigri sínum i þessu móti hefur hann sýnt það og sannað að hann er einn af okkar allra beztu spilurum í þessari iþróttagrein. Stefán sigraði Ágúst Ágústsson, margfaldan Islandsmeistara. í úrslita- leiknum 114-86. í þriðja sæti lenti Sverrir Þórisson, núverandi Islandsmeistari. ..Mér kom að mörgu le.vti á óvart að ég skyldi sigra á þessu móti,“ sagði Stefán Aðalsteinsson, er DB ræddi við hann að kepphjnni lokinni, „en samt held ég að ég eigi sigurinn að þakka miklum og ströngum æfingum að undanförnu." Fyrstu verðlauntivoru 30.000 krónur, önnur verðlaun 15.000 kr. og þriðju 10.000 kr. kkf. Pólverjinn Koziek nr. 14 tekur heldur betur um Geir Hallsteinsson, sem reynir að brjótast inn á linu hjá Pólverjunum. Fékk aðeins dæmt aukakast. Jón Karlsson, fyrirliði íslenzka landsliðsins, lengst til vinstri, og Olafur H. Jónsson tll hægri horfa undrandi á aðfarirnar. Á myndinni er lR-risinn örvhenti, Ágúst Svavarsson, með boltann algjörlega frír á línu og skorar auðveldlega hjá Pólverjum. Ágúst átti stórleik í íslenzka liðinu í gær. Sýndi nú loks þá hæfileika i landsliðinu, sem allir vissu að voru fyrir hendi — en sjaldan hafa brotizt fram. DB-myndir Bjarnlelfur. ÞETTA ER ALLTAF HÆGT, STRÁKAR Jú, nú er ég hress! — Við gerðum okkur grein fyrir því, að nú var að duga eða drepast eftir áfallið í fyrri leiknum og við fórum eftir því, sem Janusz lands- liðsþjálfari sagði okkur að gera fyrir leikinn. Tala saman í vörninni — og þegar vörnin er i lagi þá fellur flest annað í liðinn, því yfirleitt skorum við nógu mik- ið af mörkum, sagði Jón Karlsson, fyrirliði íslenzka landsliðsins, eftir sigur íslands gegn Póllandi — liði í heimsklassa — á fjölum Laugardalshallarinnar í gær- kvöld. Lokatölur 22-19 fyrir ísland. Hvílík stemmning í Höllinni. Þar nötraði allt, enda leikurinn einn sá „æðisgengn- asti“, sem þar hefur sézt. Þýzkir furöudómarar settu þar líka sín mörk á og ekki að vita hvort þeir hefðu komizt heilir úr Höllinni ef Ísland hefði tapað þessum leik. Annar þeirra var bezti maðurinn fyrir Pólland í leiknum. — Það var ánægjulegt að sjá hve Þorbjörn Guðmundsson komst vel frá leiknum, hélt Jón Karls- son áfram, og Ágúst Svavarsson vaknaði af löngum dvala. Sýndi hvers hann er megnugur. Þá var Ólafur Éinarsson mjög góður og miklu virkari í spilinu en áður. Um Björgvin Björgvinsson þarf ekki að ræða. Hann er frábær. Það er von maður sé hress, sagði Jón Karlsson og brosti. — Nú var samvinna og aftur sam- vinna í liðinu. Við fórum eftir fyrirmælum Januszar, sem við gerðum alls ekki í f.vrri leiknum, sagði Jón ennfremur. Þetta á allt eftir að springa enn betur út, sagði Geir Hallsteins- son. Nú var ógnun hægra megin, sem ekki var til staðar í fyrri leiknum. Við hlýddum f.vrir- mælum þjálfarans í einu og öllu. Já, það var gaman að vinna þessa karla, sagði Geir. Það er ekki vafi á því, að þessi sigur gegn pólsku bronzverð- launahöfunum frá Ol.vmpíu- leikjunum í Montreal verður lengi í minnum hafður. Spennan var gífurleg — en sigur vannst, þrátt fvri'r óhagstæða dómara. I 18 mínútur fengu leikmenn íslenzka liðsins að kæla sig, en Pólverjar í sex mínútur. Um tíma voru aðeins þrír útileikmenn hjá islandi inn á. Pólverjar fengu fjögur vítaköst — íslendingar eitt, og aldrei hefur sést litaðri maður í svörtu á fjölum Laugar- dalshallarinnar og annar vestur- þýzku dómaranna. Þar var allt í pólskum litum. En þó viðleitnin væri mikil tókst honum ekki að koma í veg f.vrir íslenzkan sigur. Dómgæzla hans gerði meira en að vega upp á móti f.vrir Pólverja, að þeir voru ekki með alla sína beztu menn í leiknum. Það er mikinn lærdóm hægt að draga af þessum leik. Þetta getið þið alltaf, strákar. Hæfileikarnir eru fyrir hendi — og þegar vilj- inn — sigurviljinn —gneistar af hverjum manni hlýtur sigur að nást. Einnig gegn þeim beztu. Allir leikmenn Islands léku vel — en tveir slógu í gegn. Agúst Svavarsson og Þorbjörn Guð- mundsson, tveir risar, sterkir og skotfastir. Agúst átti stórleik bæði í sókn og vörn. Skoraði fjögur falleg mörk. Brást ekki í skottilraun. Þorbjörn átti einnig stórleik — engan veginn þó galla- lausan stórleik. Skoraði einnig 4 mörk. Olafur Einarsson lék vel allan leikinn — og leikkafli hjá honum í fyrri hálflcik var stórkostlegur. Skoraði tvö mörk á stuttum tíma — átti tvær frábær-' ar línusendingar á Björgvinog Þorbjörn, sem gáfu mörk, og skoraði svo sjálfur þriðja af fjór- um mörkum sínum í leiknum. Björgvin Björgvinsson er ein- stæður — á varla sinn líka sem línumaðurinn. Ef þá nokkurn í heiminum. Allt spil snýst í kring- um Geir Hallsteinsson. — Hann átti nú miklu betri leik, en í fvrri leiknum. Akveðinn, dreif félaga sína áfram með ákafa sínum og leikni. Leikmaður, sem allt er b.vggt í kringum í íslenzka liðinu, það svo. að maður óttast þá til- hugsun, að Geir fái sérstakan gæzlumann. Að því hlýtur að koma, því erlendir sem innlendir hljóta að koma auga á þýðingu Geirs í liðinu. Hvað skeður þá? Eigum við mann til að halda uppi merki Geirs í samleiknum? Það er stór spurning, sem ekki verður reynt að svara hér. Ég held þó, að það séu til leikmenn, sem geta haldið merki Geirs á lofti — ef re.vnt verður að gera Bommi heldur áfram þrátt fyrir meiðslin eftir að hafa jafnað. Af hverju tekurðuhannY'Þetta er rétt j ekki út af? Þetta getur^hjá þér. Ég ætla haft slæmar gfleið T-að setja vara-7 ingar. ____________/ mannúnn á. ' Ég hef haft á \ röngu að standa í sambandi við hann Ifrábyrjun. Vegna y Bomina höfum við (j^Já. já, en áfram) \ með þig. — hann óvirkan. Hlutur flestra ann- arra í liðinu var mikill. Ólafur Ben. frábær í marki — einkum í síðari hálfleik, eftir heldur slaka byrjun, þar sem hann fór um tíma útaf. Ólafur H. Jónsson mjög sterkur varnarmaður, sem með krafti sínum einnig í sókn lagði hlut að mörkum. Skoraði eitt. Axel Axelsson byrjaði mjög vel. Skoraði annað mark íslands — og aðeins furðuleg heppni SÚ SVISSNESKA ÍEFSTASÆTI Brigitta Habersatter, Austur- ríki, sigraði í hrunkcppni heims- bikars kvenna i Crans-Montana í Sviss í gær. Sigraði þær Evu Mittermaier, Vestur-Þýzkalandi, sem varð i öðru sæti, og Önnu- Mariu Moser, Austurríki, með ör- litlum mun. Meðalhraði Brigittu, 98.8 km, „mesti hraði hjá mér i brunbraut," sagði hún eftir keppnina. Anna-María tók ekki alveg sömu áhættu og áður „ég hef fallið tvívegis og það hefur kostað mig mörg stig. Ég vildi ekki lenda enn einu sinni í snjón- um,“ sagði hún eftir keppnina. En möguleikar hennar til að ná sigri í keppninni eru nú ekki miklir. aðeins tvö brunmót eftir — en sjö svig- og stórsvigsmót. Lisa-Maria Morerod. Sviss, hefur þar verið snjöllust, svo allt bendir til að hún verði heimsmeistari. Stigatalan eftir keppnina í gær er þannig: 1. L.M. Morerod, Sviss, 165 2. A.M. Moser, Austrr.. 157 3. B. Habersatter, Aust., 146 4. H. Wenzel, Lichtenst.. 120 5. M.T. Nadig. Sviss. 99 pólska markvarðarins kom i veg fyrir að Axel skoraði aftur. Sýndi nú allt aðra takta en í fyrri leikn- um, en meiddist illa eftir aðeins sjö mínútur. Gat ekki leikið meira eftir það — og vafasamt, að hann geti tekið þátt í Evrópuleik Dankersen á sunnudag. Það er ekki ástæða til að rekja gang leiksins í löngu máli. ísland skoraði tvö fyrstu mörkin. Pólverjar jöfnuðu í 2-2. Komust yfir í 6-3 og skoruðu þá ákaflega ódýr mörk. Stórlcikur Ólafs Einarssonar gerði það að verkum, að ísland jafnaði. Ólafur H. kom islandi yfir 7-6, og Agúst, Björg- vin, Þorbjörn og Ólafur komu Íslandi í 11-7. Pólverjar minnk- uðu muninn í 12-10 fyrir hlé. Jöfnuðu í 12-12 í byrjun síðari hálfleiks. ísland seig framúr aftur. Komst fjórum mörkum yfir og gaf ekki eftir þó tveimur leik- mönnum væri vísað af leikvelli í fimm mín. hvorum. Það voru Þórarinn Ragnarsson og Ólafur H. og Geir fékk einnig 2ja mín. kælingu. En íslenzka liðið hélt fengnum hlut og vann frægan sigur. -hsím. Æfingagallar — Töskur — Búningar — Skór o.fí. Leggjum áherzlu á góða vöru á hagstæðu verði. gj| Póstsendum um allt land.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.