Dagblaðið - 07.02.1977, Qupperneq 2
ÞAÐ A EKKIAÐ UPPHEFJA
EINA ÍÞRÓTTAGREIN
)
Ágúst Kárason skrifar:
„Ég vil leyfa mér að mót-
mæla þeirri ákvörðun ráðherra
okkar að ætla að taka upp á því
að styrkja handknattleiks-
menn. Mér finnst það furðu-
legt að ætla að styrkja suma
íþróttamenn og aðra ekki. Ég er
hræddur um að þeir Iþrótta-
menn, sem hafa náð umtals-
verðum árangri í sinni íþrótt,
vilji heidur styrkja sjálfa sig.
Það væri nú skárra en að borga
skatt fyrir aðrar íþróttagreinar.
Eins og allir vita fer ekki mikið
fyrir styrkjum til íþrótta-
manna.
Ég vil því beina þeim orðum
til ráðherra að upphefja ekki
eina íþróttagrein. Það er hið
mesta óréttlæti og svívirðing
við þá sem stunda aðrar íþrótta-
greinar en handknattleik.“
V
VÍKUR ELDHÚS
HÚSGAGNAVERKSTÆÐI ÞÓRS INGÓLFSSONAR SúSavogi 44 - Sfmi 31360
(GengiS inn frá Kænuvogi)
VALIÐ ER AUÐVELT..
VÖNDUÐ ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA • SKOÐW SÝNINGARELDHÚS
Sendum litprentaða bœklingu
hvertd land semer.
Stutt er síðan aS öll islenzk húsgögn voru
sérsmiSuð og þá var aSeins á færi fárra útvaldra
aS kaupa þau, vegna þess hve dýr þau voru.
Nú eru þau meira stöðluð en áSur, og verðið
viðráðanlegra. Nú er röðin komin að eldhús-
skápunum. Við gefum öllum kost á að eignast
VlKUR-ELDHÚSSKÁPA á verði sem allir
geta ráSið viS.
VlKUR ELDHÚS er draumur eiginkonunnar, .
enda framleitt með þaS i huga aS gera eld-
húsverkin sem auðveldust.
KomiS og skoSiS sýningareldhúsiS
á framleiðslustað.
Ef þér komiS meS mál á eldhúsi, eSa teikningu,
getum við gefiS fast verðtilboS.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRUARJ977.
Skora á þingmenn
að samþykkja alvöru
bjórfrumvarp
—og láta ekki templara villa sér sýn
Baldvin Eyjólfsson, Kársnes-
braut 87 Kópavogi, skrlfar:
„Fyrir nokkrum dögum rit-
aði Jón Helgason smágreinar-
stúf í Tímann um bjórinn, að
venju uppfundið af Kirkjubóls-
kenningunni sem er ekki beint
til þess að lagfæra áfengismál1'
okkar. Þessi lygi og álfatrú um
tilkomu bjórs hér á landi er
landsfræg ofstækisplága sem á
að berja niður með harðri
hendi.
Kunningjar mínir sem bæði
hafa verið og starfað í Svíþjóði
og öðruni löndum telja þennan
áróður á móti bjór slíka firru að
einsdæmi sé, einkum og sér í
lagi þegar um leið eru borin á
borð þau ósannindi að I bjór-
löndum sé drykkjuskapur
unglinga meiri en hér. Þvert á
móti. Unglingar i Svíþjóð
drekka minna en hér á landi.
Hér á landi drekka skóla-
krakkar svartadauða af stút en
J.H. blessuðum láðist að geta
þess. Hann útmálar aðeins
skaðsemi bjórs sem er þó vís-
indalega rannsakað að er holl-
ari drykkur en svartidauði.
Hitt er annað mál, sem menn
kunnugir Svíaveldi hafa tjáð
mér, að hassneyzla og annar
ósómi er áberandi í skólum, en
bjór og hass er tvennt ólíkt.
Templarar hamra sýknt og
heilagt á því að þeir vilji engan
bjór, því þeir sjá ekki annað en
boð og bönn á sviði bjórmála,
án þess að vita um hvað þeir
eru að þvæla.
Ég leyfi mér að lýsa því yfir
að það sé lágmarkskrafa að
'þingmannaliðið í sölum
Aiþingis láti ekki mútuþægan
rotinn templaralýð ráða sínum
gerðum.
Þá fyndist mér að loka ætti
fyrir áhorfendapalla Alþingis
. og eins að taka fyrir símaráp
þingseta.
Það er lágmarkskrafa að
þingmenn samþykki alvöru-
bjórfrumvarp án þess að Tíma-
og Kirkjubólskenningar úr
Edduhúsi komi með mótbárur.
Raddir
lesenda
Templarar hafa ekki efni á
slíku nú. Það er hægt að reka
ýmislegt þveröfugt ofan í bæði
þingmenn og templara fyrir
hrossakaup og mútur.“
Það er nærri því synd að ekki
skuli vera framleiddur aivöru-
bjór í iandinu þar sem hér er
eitthvert albezta vatn sem til er
í heiminum. Ur því hlyti að fást
góður drykkur sem síðan væri
hægt að flytja út um alian
heim.
Eru ráðamenn
sjónvarpsins á
móti öllu sem er
skemmtilegt?
— Hvað verður af skemmtilegum þáttum?
Sigfús Sveinsson skrifar:
„Hvað varð eiginlega um
teiknimyndina Umhverfis
jörðina á 80 dögum, sem byrjað
var að sýna fyrir einu eða
tveimur árum I sjónvarpinu.
Það er voðalega hart að allir
beztu þættirnir í sjónvarpinu
hverfi eins og ekkert sé sjálf-
sagðara. Er hægt að nefna mörg
dæmi um þetta, t.d. Eisku
pabbi. Hvað varð eiginlega af
þeim þætti?
Það er eins og þessir menn
sem ráða hjá sjónvarpinu séu á
móti öilu sem er skemmtilegt.
Hvernig væri að fá að heyra
og sjá sænsku hljómsveitina
ABBA? Það hijóta að hafa
verið gerðir einhverjir þættir
með þeirri þljómsveit.“