Dagblaðið - 07.02.1977, Qupperneq 4
Starfskraftur
óskast strax við símaafgreiðslu o.fl.
Föst yfirvinna. Umsóknir sendist
afgreiðslu Dagblaðsins merkt
„Rösk 1357”.
Auglýsinga-
skrifstofa
óskar að ráða starfsfólk sem fyrst.
Æskileg er starfsreynsla við gerð aug-
lýsinga.
Einnig kemur til greina ráðning
starfskrafts sem hefur góða vélrit-
unar- og íslenzkukunnáttu.
Umsóknir, sem greinir aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist afgreiðslu
Dagblaðsins, Þverholti 2, merkt
„Strax 123“.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRUAR 1977.
Kaupmenn vildu
hækka mjólkina
—segir Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins
Kaupmenn fá nokkrar glósur
fyrir mjólkursölumálið frá Upp-
lýsingaþjónustu landbúnaðar-
ins í nýkomnu fréttabréfi henn-
ar. Kaupmenn hafi viljað
hækka mjólkina, segir þar, og
beðið um, að álagningin í smá-
sölu yrði 14 prósent en hún var
ákveðin 11 prósent.
,,Það'virðist vera erfitt að
gera kaupmönnum til hæfis á
þessum siðustu og verstu tím-
um,“ segir þar. „Bændur höfðu
nú álitið að í herbúðum kaup-
manna ríkti fögnuður yfir sigri
þeirra á mjólkureinokunni,"
En annað hafi verið uppi á ten-
ingnum. Kaupmenn hafi krafizt
hærri álagningar og mótmælt
þegar það var ekki samþykkt.
„Verðlagning mjólkur verð-
ur endurskoðuð eftir tæplega
einn mánuð og þá kemur vænt-
anlega i ljós, hvort ástæða er til
að hækka verð á mjólk eða
ekki,“ segir í fréttabréfinu.
„Það verður örugglega ekki
safnað í sjóði hagnaði af heild-
sölu og vinnslu mjólkur, því að
bændur þakka fyrir ef þeir fá
grundvallarverð í ár, en á síð-
asta ári vantaði tugi milljóna
upp á að það næðist. Nú eiga
kaupmenn að vera kátir og
selja sem allra mest af mjólk og
öðrum vörum mjólkurbúanna,"
segir í bréfinu.
Þar kemur fram að hlutur
mjólkurbúa hafi verið ákveð-
inn hærri en hann var fyrir
breytinguna á mjólkursölunni.
Hafi það verið gert tii að vega
upp á móti tekjutapi þeirra við
breytinguna, en þau hafi áður
flest haft „smávegis hagnað“ af
verzlunum sínum, sem hafi
stuðlað að þvi að bændur
fengju umsamið verð fyrir
mjólkina. -HH
12 gerðir af hjónarúmum, og allar íslenskar! Þér getiö valið um spring- eöa svampdýnu,
mjúka eða stinsia aö vitd. Rúmin finnið þér i svefnherbergisdeildinni á 5 hæö í J.L.húsinu.
Þar fáið þér einnig allt annað sem tilheyrir,
svo sem sængurfatnaö, rúmteppi, o.m.fl. 1
herbergisdeild, 5. hæö
11 iH yiiiii 11
U H ii 11 H m
ii ii 11 |B 11 H
húsið
Jon Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Veðrið að undantórnu hefur
leikið við Sunnlendinga og þá
sem á suðvesturlandssvæðinu
búa. Uppbót fyrir sumarið ’76
sem var með eindæmum fúlt á því
svæði. Yfir Norðlendinga hefur
fannfergið aftur á móti steypt
sér að undanförnu. Það er ekki
venjan á þorra að sinueldar logi á
Reykjavíkursvæðinu, né heldur
að strákar spili fótbolta. Hér eru
nokkrir í þeim eðla leik, og vænt-
aniega „koma þeir vel undan
vetri“ eins og einhver orðar slíkt,
eða öilu heldur munu þeir mæta
til keppni í vor í betri æfingu en
nokkru sinni fyrr.
(DB-mynd Sveinn Þormóðsson)
Akureyri:
SLASAÐIST
í ÁREKSTRI
Ökumaður á léttu bifhjóli
slasaðist nokkuð á Akureyri á
föstudagskvöldið. Hann lenti í
árekstri við bifreið á gatna-
mótum Glerárgötu og Þórunn-
arstrætis um klukkan 21.55 þá
um kvöldið.
Pilturinn meiddist nokkuð í
baki og var fluttur á sjúkra-
hús. Vélhjólið er talsvert
skemmt.
-at-