Dagblaðið - 07.02.1977, Side 6

Dagblaðið - 07.02.1977, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRUAR 1977, Hroðalegar lýsingar á st jórnarf ari Amins: Fangamir neyddir til að berjast til dauða —segir í skýrslu Amnesty International Mannréttindahreyfingin Amnesty International skýrði frá því í gær að öryggissveitir í Uganda bæru ábyrgð á fjölda- morðum, kerfisbundnum pynt- ingum, aftökum og fangelsun- um án dóms og laga. Þetta kom fram í skýrslu til undirnefndar Mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna sem kemur saman til fundar í Genf í dag. Rannsókn var gerð á ásökun- um um hrikalegan skort á mannréttindum síðan Idi Amin komst til valda í landinu fyrir sex árum. Greindi í skýrslunni frá fjöldamorðum, þar á meðal á mörg þúsund hermönnum í her landsins. Einnig voru tvö hundruð Kenyamenn, sem bjuggu í landinu, myrtir skipu- lega í fyrra þegar sambúð land- anna kólnaði. „Mikill fjöldi frammámanna í landinu hefur verið handtek- inn og horfið sporlaust í fram- haldi af því... fyrirvaralausar handtökur og brotthvörf fylgja i kjölfar allra atburða sem gætu virzt ógna stjórninni,“ segir i skýrslunni. Tölur um fjölda þeirra, sem myrtir hafa verið síðan Amin komst til valda, eru allt frá 50 þúsund upp í 300 þúsund, segir i skýrslunni. Hafnað var niður- stöðum tveggja innlendra rann- sóknarnefnda um hvarf fólks i landinu. önnur rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að frú Dora Bloch, sem var meðal farþega í vélinni sem rænt var á leið frá Paris og látin lenda í Entebbe í fyrrasumar, hefði verið flutt frá sjúkrahúsinu til flugvallarins áður en ísraels- menn björguðu gíslunum, og hefði hún verið flutt úr landi. í skýrslu Amnesty Inter- national segir um þetta atriði: „Þetta kemur ekki heim og saman við frásagnir sjónarvotta sem segja öryggishermenn hafa sótt konuna til flugvallarins, kyrkt hana og síðan brennt líkið. Eftir áhlaupið á flugvöll- inn voru drepnir fjölmargir flugvallarstarfsmenn og aðrir sem töluðu eða vissu um afdrif frú Bloch. Meðal þeirra var Jimmy Parma, ljósmyndari sem, talinn er hafa ljósmyndað lík frú Bloch. Pyntingar eru daglegt brauð í lögreglustöðvum og fangels- um. Fangar eru neyddir til að berja hver annan til dauða með hömrum og járnbútum. Sá sem lifir þann slag af er skotinn til bana, segir í skýrslunni. Auglýsing Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í að gera steinsteyptar undirstöður og stagfestur fyrir stálturna í 220 kV háspennulínu frá Geithálsi að Grundartanga í Hvalfirði (Hval- fjarðarlínu) ásamt lagningu jarð- skauta og jarðvírs. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Landsvirkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, frá og með mánudeginum 7. febrúar 1977, og kostar hvert eintak kr. 3.000. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11.00 föstudaginn 18. febrúar, 1977. Auglýsing Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í 220 og 132 kV rofabúnað ásamt stjórnbúnaði fyrir 220/132 kV spenni- stöð í Hvalfirði. BUFFALO, New York: Neyðarástandi hefur verið Iýst yfir f nokkrum ríkjum Bandarfkjanna vegna stöðugrar snjókomu og storma. Fjöldi fólks hefur látið lffið og þúsundir komast ekki út úr heimilum sinum vegna snjóþungans. Þessi myud er frá Buffalo f New York, þar sem hefur snjóað samfleytt f 48 daga. Svarta lfnan neðst á myndinnier sfmalina. Nýju húsgagnaáklæðin Utboðsgögn verða seld á skrifstofu Landsvirkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, frá og með mánudegin- um 7. febrúar 1977, og kostar hvert eintak kr. 3.000. okkar vöktu athygli á Franfurt Heim Textii Messe í janúar sl. Þessa viku sýnum við þessi áklæði íteppadeild okkar að Vesturgötu 2 Tilboðum skai skila á sama stað fyrir kl. 14.00 föstudag- inn 1. apríl 1977. Vi Álafoss h/f

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.