Dagblaðið - 07.02.1977, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1977.
Gandhi fær nú
dræmar viðtökur
— í upphafi kosningabaráttunnar
Áberandí fjölmennara og
fjörlegra var á kosningafund-
um indversku stjórnarandstöð-
unnar en hjá Indiru Gandhi,
forsætisráðherra Indlands,
þegar kosningabaráttan hófst í
Nýju Dalhi í gær.
Fjórir stærstu stjórnar-
andstöðuflokkarnir hafa
myndað með sér samtökin
Janata. Þeir héldu mikinn fund
í gær -ásamt klofningshóp úr
Kongressflokknum, sem sleit
sig úr santbandi við flokk frú
Gandhis í síðustu viku. Leiðtogi
þess hóps er Jagjivan Ram,
fyrrum landbúnaðarráðherra.
Fundurinn var haldinn á
Ramlila-íþróttavellinum, þar
sem frú Gandhi átti í tölu-
verðum erfiðleikum með
eirðarlausan hóp og neyddist til
að stytta fyrstu kosningaræð-
una töluvert.
Talið er að um tvö hundruð
þúsund manns hafi sótt fund
stjórnarandstöðunnar í gær og
var það nokkuð meira en á
fundi Kongressflokksins.
Jagjivan Ram, sem verið hefur riðherra Kongressfiokksins í
tuttugu og sjö af undanförnum þrjátiu árum, sagði skilið við Indiru
Gandhi í síðustu viku og berst nú gegn henni í kosningunum, sem
fyrirhugaðar eru í mars.
Ródesía:
BÖRNIN
VIUA
BERJAST
Örvæntingarfullum blökkum
foreldrum hefur aðeins tekizt
að fá 51 af nærri 400 börnum
sínum í Ródesíu til að snúa
heim á ný og hætta við áform
um að taka þátt í skæruhernað-
inum gegn stjórn hvítra manna
í landinu.
Segir frá þessu í fréttum frá
Francistown í fiotswana í morg-
un.
Börnin — bæði piltar. pg
stúlkur — fóru yfir landamær-
in inn í Botswana fyrir viku,
eftir að vopnaðir skæruliðar
höfðu heimsótt trúboðsskóla
þeirra í Ródesíu.
Stjórn Botswana, sem kom á
fundum barnanna og grátandi
mæðra þeirra (ásamt bál-
reiðum feðrum), segir börnin
hafa farið yfir landamærin af
frjálsum og fúsum vilja. Ródes-
ísk yfirvöld halda því aftur á
móti fram að þeim hafi verið
rænt með opnum byssukjöft-
um.
,,Eg held ekki að ég eigi eftir
að sjá hana aftur,“ sagði
Bulawayo Clerk Samson í
Francistown í morgun, eftir að
sautján ára gömul dóttir hans
ákvað að verða um kyrrt. Orð
hans eru sögð dæmi um þá ang-
ist og ringulreið sem ríkir
meðal þeirra 140 foreldra sem
þar eru.
Belgar snobbaðastir
Erlendar
fréttir
—Bretar í fjórða sæti, við
komumst ekki á blað
REUTER >
Snobbaðasta fólk í heimi eru
Belgar, að sögn Harolds Brooks-
Baker, framkvæmdastjóra
Debretts, sem er einskonar
ættarskrárbiblía brezka aðals-
ins.
„Mín skoðun er sú, að Bretar
séu svo sannarlega ekki hinir
einu sem eru snobbaðir,“ sagði
hann i London í morgun.
„Snobbaðastir eru Belgar,
síðan Frakkar, Bandaríkja-
Umvafinn skuldum
—skaut sjálfan sig og
fjöiskylduna
Fjörutíu og níu ára gamall
skuldum vafinn heimilisfaðir í
úthverfi Bonn í Vestur-
Þýzkalandi, skaut konu sína og
fjögur börn til bana i rúmum
þeirra, setti blóm og krossmörk
á lík þeirra og svipti sjálfan sig
síðan lifi.
Líkin fundust þegar lögregl-
an fann sér ástæðu til að fara
inn á heimili þeirra í Bad
Godesberg í gærmorgun. Börn-
in voru á aldrinum 10—21 árs.
Faðirinn, Paul Stappen,
fannst með skammbyssu í
hvorri hendi. Hann skildi eftir
bréf, þar sem hann sagðist
nt.vrða fjölskyldu sína vegna
skulda, sem næmu 30 þúsund
mörkum, eða tæplega 2.4 millj.
ísl.
Lögreglan í Bonn segir að
skuldir mannsins hafi verið
margfalt meiri.
menn, Bretar, Austurríkis-
menn og Þjóðverjar."
Til að fullnægja þörfum
hinna snobbuðu hyggst Brooks-
Baker — sem er fyrrverandi
bankamaður í Bandaríkjunum
— gefa úr samskonar bækur
fyrir aðalinn í öðrum Evrópu-
löndum á næstu fimm árum.
„Ég vil gera Debretts að
alþjóðlegu fyrirtæki," sagði
hann um bókina yfir lávarða og
baróna. Hún kom fyrst út 1769.
íslendingar komast ekki á
blað fyrir snobb í ár. Við
verðum að gera betur!
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
/i/allteitthvaö
gott í matinn
^utUr^
^tversy
STIGAHLÍÐ 45^47 SÍMI 35645
Meömæli kaupmannsins
Græn ensk
gúmmístígvél
Vönduð með góðu sniði
Verð: 28-34 kr. 1400.-
Verð: 3541 kr. 1600.-
Verð: 4245 kr. 1900.-
Sérstaklega falleg
tegund
Brún Derry-boots Vinil
kuldastígvél
25-30 Verð 2300.-
31-36 Verð 2500.-
37-39 Verð 2700.-
Póstsendum um land allt
Skóbúðin Suðurveri
Stigahlíð 4547 Sími 83225
2. flokkur
Endurnýjun^
9 á 1.000.000-
9 — 500.000-
126 —
306 —
8.163 —
8.622
18
8.640
200.000,—
100.000 —
50.000 —
10.000 —
50.000 —
9.000.000 —
4 500.000 —
1 800.000 —
12.600.000 —
15.300.000 —
81.630 000 —
124 830.000 —
900.000,—
125.730.000 —
Þeir, sem misstu af miðakaupum í byrjun janúar hafa ennþá
möguleika á að eignast miða.
Gleymið ekki að endurnýja tímanlega.
Dregið 10. febrúar.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
________________________Tvö þúsund milljónir í boói