Dagblaðið - 07.02.1977, Qupperneq 9
9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 7. FEBRUAR 1977.
Jólavinningamipafhentir ígærdag:
Fengu Videomaster
sjónvarpsleiktæki
í verðlaun
Það dróst talsvert að vinning-
arnir bærust í hendur verðlauna-
höfunum okkar í jólagetrauninni.
Sjónvarpsleiktækin voru loks af-
hent í gær, þrír af fimm verð-
launahöfum mættu og sóttu tæki
sin, VIDEOMASTER-tæki sem
efalítið munu verða vinsæl.
Reyndar var það vinsældum tækj-
anna að ,,kenna“ hvernig fór.
Framleiðendur gátu ekki staðið
við afgreiðslu fyrir jól eins og til
stóð. Tækin komu hingað til lands
fyrst núna um mánaðamótin.
Með tækjum þessum má bregða
á ýmsan leik, tennis, knattspyrnu,
skotfimi og sitthvað fleira. Erl-
endis fara tæki þessi eins og eldur
í sinu og seljast með eindæmum
vel, enda ekki um mjög kostnað-
arsamt tæki að ræða.
Vinningshafarnir sem sóttu
tæki sín í gærdag voru þeir Guð-
mundur R.J. Guðmundsson Kefla-
vik, Jón Arnar Traey Grýtubakka
hjá DB
Birgir Helgason, sölustjóri
hjá NESCO á Laugavegi 10
afhenti þrem verðlaunahaf-
anna sjónvarpsleiktækin í
gærdag. Birgir er lengst til
vinstri á myndinni. en þá.
koma þeir Kristbjörn Jóns-
son, Jón Arnar og Guðmund-
ur Guðmundsson. (DB-
m.vnd Bjarnleifur).
26, Reykjavík, og Kristbjörn Jóns-
son Aðalbóli við Starhaga,
Reykjavík. Tækin til hinna
tveggja vinningshafanna, Olgu
Ásbergsdóttur Suðureyri við Súg-
andafjörð og Guðrúnar Jónsdótt-
ur Skaftahlið 38, Reykjavík,
verða send þeim þegar í dag.
Að lokum þökkum við þátttak-
endum öllum góða þátttöku í
þessum árlega jólaleik okkar.
-JBP-
Eldurá Akureyri:
KVIKNAÐI í ÚT
Heimili víðsvegar að-Heimilið er fyrir alla
VEGGSAMSTÆÐUR
Vorum aðtaka upp
danskar veggsamstæður
frá Denka úr palesander.
Eigum þrjárgerðir úr
sýrubrenndri eik.
Verð pr. einingu frá
kr. 60.900.
SÓFABORD
Þýsk söfaborð m/marmara
plötu. Hæð stillanleg
(frá 54-72 cm.)
Einnig sænsk úr bæsaðri
eik, sýrubrenndri eik og
hnotu, einnig hornborð og
lampaborð.
Verð frá kr. 14.500.
FRÁ BENSÍNGUFU
Bakhús við Oddeyrargötu á
Akureyri varð alelda á svip-
stundu á laugardagsmorguninn er
kviknaði í út frá bensíngufu.
Miklar skemmdir urðu á húsinu
og munum sem voru geymdir þar.
Piltur, sem vann þar við að
hreinsa vélarhluta úr vélsleða
slapp hins vegar ómeiddur.
Bakhúsið var hitað upp með
rafmagnsofni með glóðargormum
og er hann taldinn hafa valdið
íkveikju. Pilturinn, sem inni var,
hafði útidyrnar opnar og slapp
hann þegar í stað út er eldurinn
blossaði upp. — Eldurinn var
slökktur á rúmri klukkustund.
-at-
Titringur á Hengilssvæöínu:
ALLT MEÐ R0 0G
SPEKT AFTUR
..Titringur á Hengilssvæðinu
hefur verið algengur siðast-
liðna áratugi en í kringum 1950
var nokkur órói á þessu svæði.
sem fór svo minnkandi næstu
tvo áratugi á eftir,“ sagði Ragn-
ar Stefánsson jarðskjálftafræð-
ingur í samtali við DB.
Klukkan tíu mínútur yfir
átta á laugardagsmorguninn
kom snarpur jarðskjálftakipp-
ur í Hveragerði. sem mældist 4
stig á Rieterkvarða. Hlutir féllu
úr hillum og sprungur komu í
hús. Hafa Hvergerðingar haft
það á orði að þeir hafi ekki
fundið eins snarpan kipp síðan
árið sem Hekla gaus 1947.
Annar stór kippur kom svo
klukkan fimmtán minútur fyrir
niu og að sögn Ragnars mældist
hann 3.6 stig á Ricterkvarða.
Upptök skjálftana eru um 10
kílómetra norðvestur af Hvera-
gerði.
Ragnar sagði að síðan um há-
degi á laugardag hafi verið ró-
legt á svæðinu og ekki sagðist
hann halda að þessir skjálftar
væru merki um að neitt óvenju-
legt væri að gerast á þessu
svæði.
-KP.
B0RÐST0FUHUSGÖGN
Okkar sérgrein er úrval af
borðstofuhúsgögnum,
íslensk, dönsk, hollensk
og belgísk, margar
gerðir, sýnishorn ávallt
fyrirliggjandi.
Gerum sérpantanir fyrir
viðskiptavini.
Sjön er sögu ríkari.
Verið ávallt velkomin.
Símsvari
allan
sólahringinn
S0GAVECI 188 - SÍMI 37210