Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.02.1977, Qupperneq 10

Dagblaðið - 07.02.1977, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRUAR 1977. mmumÐ frýálst, úhái dagblað Útgefandi Dagblaðið hf. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Fréttastjórí: Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí ritstjómar: Johannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfréttastjórí: Atli Steinarsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason. Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Ema V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Katrín Pálsdóttir, Krístin Lýösdóttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þoríeifsson. Dreifingarstjórí: Már E.M. Halldórsson. Áskriftargjald 1100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 60 kr. ointakið. Ritstjóm Síöumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskríftir og afgreiösla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Stoindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerö: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Lykilmál upplýst Dagblaðið upplýsti í síðustu viku lykilmál í íslenzkri pólitík og atvinnulífi. Frá upphafi álversins í Straumsvík hafa margir spurt, : hvort verið gæti, að raforkan til þess væri seld svo lágu verði, að í rauninni væri um niðurgreiðslur að ræða. Vinir Alusuisse hafa hummað þessa spurningu fram af sér. Útkoman hefur orðið sú, að almenningur hefur talið, að þetta gæti ekki verið. Svo vitlausir væru stjórnmála- menn okkar ekki. Ohlutdræg rannsókn sérfræðings á þessu hefur ekki legið fyrir fyrr en nú. Samkvæmt beiðni Dagblaðsins gerði Gísli Jónsson prófess- or úttekt á málinu og komst að því, að raf- magnsverðið til álversins er stórlega niður- greitt, og almenningur borgar brúsann. „Margur kann sjálfsagt að spyrja, hvaða áhrif niðurgreiðslan á raforkuverði til stóriðju hefur á verð til hins almenna neytanda.Árið 1974 hefur niðurgreiðslan valdið um það bil 30 prósent hærra útsöluverði en árið 1976 um það bil 20 prósent hærra verði,“ segir Gísli Jónsson. SOVÉTMENN AUKA VIÐBÚNAÐ VEGNA YFIRVOFANDIHÆTTU Á SVÍNAINFLÚENSU Eleonora Gorbunova, blaðamaður APN-f réttastof unnar, lýsir viðbúnaði Sovétmanna vegna þessa íviðtali við sovézka landlækninn, Pjotr Burgasjof Kólera, svarti dauði, spánska veikin — þessir sjúkdómar eru okkur tákn um bráða lífshættu. Enda þótt hálf öld sé liðin síðan þeir voru ofarlega á svarta list- anum yfir skæðustu óvini heilsu okkar geymum við enn svo hræðilegar minningar um þessar drepsóttir að segja má .................. að almenningur fái slæmt áfall í hvert sinn sem minnst er á þær, jafnvel þótt aðeins sé um að ræða einstök tilfelli. Nú nýlega hafa menn fyllst áhyggj- um vegna endurkomu veiru þeirrar sem á árunum 1919- 1920 olli plágunni sem kölluð var „spánska veikin“. Þá hafði hún á brott með sér 20 milljónir mannslífa, eða fleiri en fyrri heimsstyrjöldin. Eiga áhyggjur manna rétt á sér? Er „draugur fortíðarinnar" endurvakinn? — Ég get ekki staðhæft að hætta á útbreiðslu spönsku veikinnar sé ekki fyrir hendi, en ég efast um að af henni verði á næstunni, — sagði sovéski landlæknirinn, Pjotr Burgasof, á blaðamannafundi sem fram fór í Moskvu fyrir stuttu. Ef spánska veikin er á ferð- inni er nauðsynlegt að hraða mjög framleiðslu á nýju bólu- efni og það krefst gífurlegra fjárútláta og mikillar vinnu. En ef hættan er ímynduð? — Ég hygg að við eigum hvorki að gera of mikið né of lítið úr hættunni. Það er satt, að árið 1976 komu upp veik- indatilfelli í einu af fylkjum Bandaríkjanna og veirurnar sem ollu þeim voru mjög áþekk- Menn rekur í rogastanz yfir þessari niður- stöðu. Almenningur hafði ekki hugsað til þess, þegar hann greiddi hina háu rafmagnsreikn- inga, að allt að þriðjungur verðsins væri vegna niðurgreiðslna til álversins. Vinir Alusuisse munu enn halda því fram, að rétt hafi verið að fá álverið hingað, vegna þess að það gerði Búrfellsvirkjun mögulega og gjaldeyristekjur séu okkur svo mikilvægar. Þó má nú öllum vera ljóst, að upphaflegi samningurinn við Alu- suisse var vondur samningur. Svisslendingun- um tókst að plata sveitamanninn. Reynslan síðar, til dæmis gífurlegur áhugi Alusuisse á frekari útþenslu hér, sýnir okkur glöggt, að við þurftum ekki að betla til að fá hingað erlenda stóriðju. Hroðalegast í þessu máli er, hvernig stjórn- málamenn hafa haft almenning að fíflum með þögn sinni og vífilengjum um niðurgreiðslurn- ar. Reglur lýðræðisskipulagsins hafa verið þverbrotnar. Auðvitað hefði hið eina heiðar- lega verið að leggja spilin á borðið þegar í upphafi. Sérfræðingar ríkisvaldsins áttu að skýra frá, um hversu miklar niðurgreiðslur væri að ræða. Svo gátu menn út frá því rætt um rökin fyrir byggingu álversins. Samkvæmt niðurstöðum Gísla Jónssonar greiddu almennar veitur árið 1974 66,6 prósent hærra meðalverð en þeim bar samkvæmt til- kostnaði, en ísal greiddi þá aðeins 53,7 prósent af því verði, sem verksmiðjan hefði átt að greiða. Með nýlegum samningum um hækkun raf- magnsverðsins hafa niðurgreiðslurnar til ál- versins minnkað verulega, en þær eru enn miklar. Nú skýrist betur árátta stjórnvalda að reyna að halda leyndu því, sem fram fer milli þeirra og Svisslendinganna. Fortíðinni verður ekki breytt, en hindra verður, að Alusuisse leiki þennan leik. Hafna verður þegar í stað tilmæl- um þess um frekari útþenslu hér á landi. Spjall um hlutverk sáttasemjara 1. Vald sáttasemjara og lýöveldislegir stjórnarhættir Launamál og önnur kjaramál eru átakafyrirbrigði í þjóð- félaginu og líklega mun svo ávallt verða, þó að með ólíkum hætti sé, eftir því hvert stjórnarfyrirkomulag ríkir. Ég hætti mér ekki út í það að skilgreina hugtakið lýðræði, en leyfi 'iífér að halda því fram, að hér á landi ríki lýðræði og lýð- ræðislegar leiðir hafi einkennt samningamálin á vinnumark- aðnum í stórum dráttum. Lýðræði er tímafrek stjórn- unarleið og krefst þolinmæði. Nútiminn einkennist þó miklu fremur af skorti á tíma og þölinmæði en öðru, og við hljótum því að spyrja okkur, hvort við höfum tíma og þolin- mæði til lýðræðislegra stjórnar- hátta yfirleitt. Samningsaðilar vinnumark- aðsins, fulltrúal- ' okkar á Alþingi og margir fleiri hafa verið gagnrýndir fyrir seina- gang mála og vafstur við ákvörðunartöku, sem hljótist af of langri umræðu um mál. Hljótum við því ekki að spyrja okkur, hvort við höfum tíma til lýðræðis? Er hægt að aðlaga lýðræðið hraða nútímans með því að knýja lýðræðiskerfið til virkari og skjótari ákvörðunar- töku, sem jafnframt ,hvílir á traustari þekkingargrunni, eða verðum við að hægja á lífs- hraðanum, ef við viljum halda í lýðræðið? Þetta er í mínum huga mikil- væg spurning, og undir svari okkar er það komið, hvort gagn- rýni okkar á seinvirkt kerfi lýð- ræðisins sé að fullu á rökum reist. Ef við viljum lýðræði, þá verðum við líka að gefa okkur þann tíma, sem þarf til ástund- unar þess. Ég lít svo á, að lýðræðishug- Sjónin sé það ^rótgróin hér á landi, að breytingar á vinnulög- gjöfinni og starfsháttum við samningsgerð séu varhuga- verðar, nema báðir aðilar vinnumarkaðsins séu sam- þykkir þeim. Menn játist undir hinn nýja sið. Sérstaklega er þetta nauðsynlegt í landi, þar sem framkvæmdavald er veikt, svo sem hér hefur verið, þar sem ögunarstofnanir ríkisins eru fáliðaðar og getulitlar. Lög- þvingaðar breytingar við slíkar aðstæður leysa ekki vandann, en breyta farvegi hans. Sáttasemjari í lýðræðisþjóð- félagi er meðalgöngumaður, sem leitar sátta og lausnar á vanda, sem báðir aðilar vinnu- markaðsins geta sætt sig við, en er ekki settur sérstaklega til að framkvæma opinbera stefnu í launamálum, þótt honum sé nauðsynlegt að þekkja hana og þau rök, sem hún hvílir á. Ég er þeirrar skoðunar, að við íslenzkar aðstæður sé vafa- samt að auka mjög vald sátta- semjara, nema fullur vilji beggja aðila vinnumarkaðsins sé fyrir hendi. Ella sé enginn vandi leystur til frambúðar. Hins vegar þarf valdsvið sátta- semjara að vera skýrt afmark- að, að því er samningamál varðar. Þá tel ég, að aðilum vinnumarkaðsins beri skylda til þess að freista þess til hlítar aó gera lýðræðið við samnings- gerðina hraðvirkara og hag- kvæmara þeim, sem við það búa. Vald sáttasemjara má heldur ekki auka svo, að samningsaðil- arnir telji sig firrta allri ábyrgð. Þá er ekki lengur um sáttasemjara i lýðræðisþjóð- félagi að ræða, heldur mið- stýrða framkvæmd af öðru tæi. Ég er ekki þeirrar skoðunar, að skortur á valdi sáttasemjara sé höfuðástæðan til þess, að samningsgerð sé seinvirk, eins og almennt er haldið fram. Virk, upplýst og ábyrg þátt- taka samningsaðilanna í samn- ingsgerðinni er að minni hyggju höfuðnauðsyn lýðræðis- legs fyrirkomulags og sátta- semjari hefur aðeins hlutverki V.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.