Dagblaðið - 07.02.1977, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR7. FEBRUAR 1977.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
fþróttir
STAÐAN STÖÐUGT ÓUÓSARI
VEGNA FRESTAÐRA LEIKJA
Newcastle 21 9 7 5 35-27 25
Leicester 25 7 11 7 30-37 25
Leeds 23 8 8 7 29-29 24
Norwich 24 9 6 9 26-30 24
Coventry 22 8 7 7 28-27 23
WBA 23 7 8 8 30-28 22
Birmingham 25 8 6 11 38-39 22
Stoke 22 6 7 9 13-25 19
Derby 21 5 8 8 27-30 18
QPR 20 7 4 9 26-30 18
Evorton 23 6 6 11 32-45 18
Tottenham 23 6 5 12 29-45 17
Brístol C. 21 5 6 10 21-25 16
West Ham 23 4 5 14 20-37 13
Sundorland 25 2 7 16 13-36 11
—en Liverpool hefur nú aftur náð þriggja stiga forskoti í 1. deild
Vetrarhörkurnar á Bretlands-
eyjum í vetur — síðan vatns-
flaumur á ýmsum völlum — hafa
gert stöðuna í deildunum nokkuð
óljósa. Munurinn er orðinn mikill
á leikjafjölda hinna ýmsu liða.
Liverpool hefur þriggja stiga for-
ustu í 1. deild,.en hefur samt
tapað fimm stigum meira en Ips-
wich, sem er í öðru sæti, og þrem-
ur stigum meira en Manch. City,
sem er í 3ja sæti með sama stiga-
fjölda og Ipswich, 32 stig. Liver-
pool hefur 35 stig. Efstu liðunum
gekk vel á laugardag. Ipswich gat
þó ekki leikið vegna vatnsflaums
á leikvelli QPR í vesturbæ Lund-
únaborgar, en hin öll nældu sér í
tvö stig nema Arsenal, sem náði
ekki nema jafntefli á heimavelli
gegn neðsta liðinu, Sunderland.
Urslitin á laugardag urðu þessi:
1. deild
Arsenal-Sunderland 0-0
Aston Villa-Everton 2-0
Bristol City-Newcastle 1-1
Leeds-Coventry 1-2
Leicester-West Ham 2-0
Liverpool-Birmingham 4-1
Manch. Utd.-Derby 3-1
Middlesbro-Tottenham 2-0
Norwich-WBA 1-0
QPR-Ipswich fr.
Stoke-Manch. City 0-2
2. deild
Blackburn-Cardiff 2-1
Carlisle-Chelsea 0-1
Fulham-Charlton 1-1
Hereford-Sheff. Utd. fr.
Luton-Burnley 2-0
Millwall-Bolton 3-0
Notts Co.-Plymouth 2-0
Oldham-Bristol Rov. 4-0
Orient-Blackpool fr.
Southampton-Hull 2-2
Wolves-Nottm.For. 2-1
3. deild
Brighton-Preston 2-0
Bury-York 4-2
Chesterfield-Portsm. 1-2
C.Palace-Tranmere 1-0
Gillingham-Walsall 1-0
Lincoln-Northampton 5-4
Mansfield-Rotherham 3-1
Oxford-Chester 2-0
Peterbro-Grimsby 3-1
Reading-Shrewsbury 1-0
Sheff. Wed.-Port Vale 1-2
Wrexham-Swindon 2-2
4. deild
Brentford-Huddersfield 1-3
Cambridge-Exeter 1-1
Colchester-Rochdale 1-0
Darlington-Bradford 0-0
Halifax-Workington 6-1
Hartlepool-Crewe 3-0
Scunthorpe-Watford 0-0
Southport-Andershot 0-1
Torquay-Doncaster 0-1
Meistarar Liverpool létu það
ekki á sig fá, þó Kenny Burns
skoraði strax á 2. mín. eftir send-.
ingu Howard Kendall, og unnu
öruggan sigur 4-1. Phil Neal jafn-
aði úr vítaspyrnu á 37. mín. eftir
að John Toshack hafði verið felld-
ur af Joe Gallagher innan víta-
teigs. Sex mín. síðar fléttuðu þeir
Keegan og Heighway fallega og
Toshack skallaði í mark. í síðari
hálfleiknum hafði Liverpool yfir-
burði til mikillar ánægju fyrir 41
þúsund áhorfendur. Keegan og
Toshack unnu að 3ja markinu,
sem Toshack skoraði á 73. mín. Á
79. mín. brunaði Steve Heighway
upp völlinn eins og hraðlest og
skoraði 4-1.
Á meðan átti Manch. City í litl-
um erfiðleikum með Stoke á
Victoria Ground og vann þar sinn
fyrsta sigur síðan 1969 með ákaf-
lega hefluðum leik. Dennis
Tueart skoraði fyrra markið eftir
mikið einstaklingsframtak. Lék á
hvern varnarmann Stoke á fætur
öðrum og komst í skotfæri. Peter
Shilton varði skot hans. Hélt ekki
knettinum og Tueart náði honum
aftur og sendi hann innanfótar í
markið. Tveimur min. fyrir leiks-
lok gulltryggði Joe Royle sigur
Manchester-liðsins. 14. leikur City
án taps.
Hitt Manchester-liðið, United,
gerði það einnig gott og vann sinn
sjöunda sigur í röð. Leikurinn
gegn Derby var eins og létt æfing
hjá United, þar sem þeir Coppell,
Macari og Jimmy Greenhoff léku
snilldarlega. Lið Derby ákaflega
slakt án .Gemmill og George. Þar
vantar bæði hjarta og sál. Lou
Macari skoraði fyrsta mark leiks-
ins á 8. mín. eftir fallegt upp-
hlaup Martin Buchan og Stuart
Pearson. Á 53. mín. tók Coppell
aukaspyrnu. Gaf á J. Greenhoff,
sem renndi knettinum til Stewart
Houston og bakvörðurinn skoraði
af öryggi. Sex mín. síðar börðust
Sammy Mcllraoy og Steve Powell
um knöttinn og Powell varð fyrir
því óláni að senda knöttinn í eigið
mark 3-0. Tony Machen skoraði
eina mark-Derby 10 mín. fyrir
leikslok.
Aston Villa hafði mikla yfir-
burði gegn Everton og mörkin
hefðu átt að vera miklu fleiri. Á
ll.mín. átti Brian Little stangar-
skot — og loks á 28. mín. skoraði
Andy dæmigert Graymark. Skalli,
24. mark hans á leiktímabilinu.
Hann varð að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla á 63. mín. Brian
Little skoraði síðara mark Villa
eftir að bakvörðurinn John Gid-
man hafði átt stangarskot. Það
var á 76. mín.
Arsenal tókst ekki að sigra
Sunderland þrátt fyrir mýmörg
tækifæri — og Sunderland hefur
ekki skorað mark í deildakeppn-
inni í 969 mínútur. Síðasta markið
eftir tvítekna vítaspyrnu. Litlu
munaði þó tvívegis á Highbury á
laugardag. Sunderland átti
hörkuskot í þverslá — og I annað
sinn varði Jimmy Rimmer hreint
á undraverðan hátt. Um aðra leiki
í 1. deild er það að segja, að David
Mills skoraði bæði mörk Middles-
bro í fyrri hálfleik. Chris Garland
náði forustu fyrir Bristol City, en
rétt í lokin tókst Mickey Burns að
jafria fyrir Newcastle. Leicester
vann auðveldan sigur á West
Ham með mörkum kappanna
kunnu, Frank Worthington og
Keith Weller, og Lundúnaliðið
stefnir beint niður í 2. deild.
Gibbins skoraði eina markið á
Carrow Road, sem nægði Norwich
til sigurs á WBA. En Langmest á
óvart kom, að Leeds tapaði á
heimavelli fyrir Coventry. Alan
Green náði forustu fyrir Coventry
á 19. mín. Joe Jordan jafnaði fyrir
Leeds en mínútu fyrir leikslok
tókst Don Murphy, sem hafði
komið inn sem _varamaður, að
skora sigurmark Coventry.
Aðalleikurinn í 2. deild var i_
Wolverhampton. Þar unnu Ulf-
arnir þýðingarmikinn sigur á
Nottm. Forest 2-1 og hafa því unn-
ið Forest í báðum leikjunum í
deildinni. Það verður sennilega
þungt á metunum, þegar að upp-
gjöri kemur í vor. Völlurinn var
slæmur eftir rigningu — og Ulf-
arnir gerðu út um leikinn á fjög-
Stenmark
íefstasæti
Ingemar Stenmark, Svíþjóð,
sigraði í svigkeppni heims-
bikarsins í St. Anton í Austurríki
í gær og varð þar með fyrstur til
að sigra í fimm svigmótum í röð í
þeirri keppni. Klaus Heidegger,
Austurríki, varð annar. Við sig-
urinn færðist Stenmark í efsta
sætið í stigakeppninni. Hefur nú
174 stig. Franz Klammer er
næstur með 155 stig og Heidegger
3ji með 151 stig. Siðan er langt
stökk niður i 4ða sæti. Gustavo
Thoeni hefur 108 stig. Nánar á
morgun.
urra mín. kafla í fyrri hálfleik. Á
32. mín. skoraði Willie Carr eftir
undirbúning Ken Hibbitt og á 36.
min. sendi Larry Lloyd knöttinn í
eigið mark, aðþrengdur af John
Richards. í lok hálfleiksins voru
Úlfarnir heppnir. Sluppu tvívegis
með skrekkinn. Munro bjargaði
til dæmis á marklínu. í s.h. fékk
Richards tækifæri til að koma
Ulfunum í 3-0. KOmst einn í gegn
en spyrnti knettinum yfir þver-
slá. Rétt í lokin skoraði Tony
Woodcock eina mark Forest, en
það kom of seint til að bjarga
einhverju.
Chelsea hefur örugga forustu í
2. deild og sigraði í Carlisle með
marki Ken Swain. Bolton steinlá
hins vegar í Lundúnum fyrir Mill-
wall og það eftir, að leikmenn
Bolton voru nýkomnir heim úr
fjögurra daga ferð til Spánar. Vic
Halom, fyrrum miðherji Sund-
erland, skoraði þrjú af mörkum
Oldham gegn Bristol Rovers, og
Ted MacDougall bæði mörk
Southampton gegn Hull. Bjargaði
þar með stigi, en Hull hafði
lengstum yfir í leiknum. Poul
Price og Johnny Aston skoruðu
mörk Luton og Fulham náði stigi
af Charlton. Mitchell skoraði fyrst
fyrir Fulham, en Mike Flanagan
jafnaði fyrir Charkon. Fulham
hefur ekki unnið leik siðan Alec
Stock hætti sem framkvæmda-
stjóri og Bobby Champell tók við.
í 3ju deild er Brighton nú efst
með 37 stig. Mánsfield hefur 33
stig, Wrexham, Shrewsbury og
Rotherham 32 stig og Crystal
Palace 31 stig. í 4. deild er
Cambridge efst með 36 stig —
Bradford, Southend og Colchester
hafa 32 stig.
Staðan er nú þannig:
Liverpool 1. deild 26 15 5 6 45-25 35
Ipswich 22 13 6 3 41-20 32
Man.City 23 11 10 2 35-16 32
Aston Villa 23 13 3 6 46-26 29
Middlesbro 24 11 7 6 22-21 29
Arsonal 24 10 8 6 41-35 28
Man. Utd. 23 10 6 7 41-33 26
Chelsea 2. deild 25 14 7 4 43-32 35
Bolton 24 14 4 6 42-31 32
Wolves 23 11 8 4 53-28 30
Nott. For. 24 11 7 6 50-28 29
Blackpool 24 10 9 5 36-24 29
Millvall 23 11 4 8 39-31 26
Charlton 24 9 8 7 46-40 26
Oldham 22 10 6 6 32-29 26
Luton 24 11 3 10 37-31 25
'Notts Co. 22 10 4 8 36-34 24
Southampton 24 7 8 9 42-42 22
Sheff. Utd. 22 7 8 7 26-30 22
Brístol Rov. 26 8 6 12 35-48 22
Blackbum 23 9 4 10 25-34 22
Hull 23 5 11 7 26-28 21
Cardiff 24 7 7 10 34-38 21
Fulham 26 6 9 11 34-42 21
Plymouth 24 5 10 9 29-36 20
Bumley 24 4 10 10 26-37 18
Cariisle 25 6 6 13 25-48 18
Orient 19 4 7 8 19-25 15
Hereford 21 3 6 12 29-50 12
Portúgalir sigurvegarar
— en árangurs ÍR-sveitarinnar ekki getið
Carlos Lopez, Portúgal, sigraði
í Evrópubikarnum I víðavangs-
hlaupi í Palencia á Spáni í gær.
Hljóp hina 9.5 km á 30:03.6 mín.
og félag hans, Sporting Lissabori,-
varð í fyrsta sæti sveita frá 18
þjóðum. Meðal annars keppti þar
ÍR-sveit, þeir Agúst Asgeirsson,
Sigfús Jónsson, Gunnar Páll Jóa-
kimsson og Hafsteinn Oskarsson.
Arangurs hennar var ekki getið í
fréttaskeyti Reuters og hún var
ekki meðal sex efstu sveitanna.
Annar i hlaupinu var Mariano
Haro, Spáni, á 30:10.0 mín. og 3ji
Jacky Boxberger, Frakklandi, á
30:21,0 mín. Sveit Sporting Lissa-
bon varð fyrst, í öðru sæti
Palencia, Spáni, þá Guelle Futh,
V-Þýzkalandi, St. Bern, Sviss,
Jalbot, Noregi, og sjötta sveit
Montpellier, Frakklandi.
Roces
skíðaskór,
stærðir 30-35.
Verð kr. 4458.
MOCES
Uvex skíðagleraugu
$
5
Alpina skíðaskór
Verðfrákr. 7844,-
Verð kr. 6474.-
PÓSTSENDUM
Tyrolia öryggisbindingar
Tyrolia skíðabremsur
Laugavegi 13
Símil3508.